Dagur - 12.06.1968, Síða 2
2
Knattspyrmilímabilið er Iramundan
TÍMI KNATTSPYRNUNNAR
er hafinn og fyrstudeildarleik-
irnir hafa vakið athygli svo sem
venja er, enda töluvert um þá
ritað í dagblöð höfuðborgarinn-
ar. Knattspyrnulið íþróttabanda
lags Akureyrar hefur nú þegar
leikið tvo leiki. Fyrri leikurinn
var við Keflvíkinga og leikinn
í 'Keflavík 25. maí. Lauk hon-
um með sigri ÍBA 1:0. Talið er,
að liðin hafi verið nokkuð jöfn
þótt niðurstaðan yrði Akureyr-
ingum í vil. En þessi leikur var
að því leyti merkur fyrir Akur-
eyringa, að úrslit hans urðu
gagnstæð venjunni, því þeir
hafa oftast tapað sínum fyrstu
leikjum í þessari keppni.
Með þessi tvö dýrmætu stig
úr fyrsta leik ÍBA í fyrstudeild
arkeppninni gengu þeir til leiks
við KR á Laugardalsvelli í
Reykjavík hinn 9. júní. En leik-
ir milli þessara knattspyrnuliða
hafa jafnan vakið eftirtekt, a.
m. k. hér á Akureyri og oft ver-
ið all-harðir og tvísýnir. Að
þessu sinni gengu Akureyring-
arnir með sigur af hólmi 3:0.
Sunnanblöðin róma mjög
frammistöðu norðanmanna.
Kári Árnason skoraði öll mörk
leiksins en tvö þeirra eftir hnit-
miðaðan samleik.
ÍBA-liðið var þannig skipað
gegn KR: Markvörður Samúel
Jóhannsson, bakverðir Gunnar
Austfjörð og Ævar Jónsson,
framverðir Guðni Jónsson, Jón
Stefánsson, sem jafnframt var
fyrirliði ÍBA og er aldursforseti
liðsins, og Pétur Sigurðsson.
Framlínuna skipuðu Steingrím
ur Björnsson, Kári Árnason,
Skúli Ágústsson, Magnús Jóna-
tansson og Valsteinn Jónsson.
Svo sem sjá má af nafna-
skránni er hér um sama lið að
ræða og á síðastliðnu ári, nema
Gunnar Austfjörð er nýr maður
og lék þó með í eitt sinn eða
fleiri í fyrrasumar.
Eftir leik sinn við KR-inga
hafa Akureyringar hlotið 4 stig
og er það góð byrjun.
Næsti leikur ÍBA-liðsins er
við Fram í Reykjavík 18. júní
en næsti leikur á heimavelli
verður ekki fyrr en 23. júní og
keppa Vestmannaeyingar þá við
ÍBA. Hinn 28. júní verður svo
minningarleikur Jakobs Jakobs
sonar og keppa Fram og ÍBA
þann dag.
Blaðið hitti sem snöggvast að
máli í gær, þá Einar Helgason
þjálfara Akureyrarliðsins og
Hrein Óskarsson formann Knatt
spyrnuráðs Akureyrar. Einar
Helgason sagði, að aðstaða til
æfinga hefði aldrei verið verri
hér en nú í vor. Þó myndi liðið
í heild ekki lakar undir keppni
búið en áður, e. t. v. betur. Of
snemmt væri að spá nokkru um
næstu leiki. í knattspyrnu ylti
á ýmsu og það væri of snemmt
að hefja sig til skýjanna, því að
snögglega væri hægt að dala.
Hreinn Óskarsson sagði, að
verið væri að útbúa leikskrá,
þar sem veittar væru upplýsing
ar um hin ýmsu lið, sem þátt
taka í fyrstudeildarkeppninni
og einstaka leikmenn, og gang
keppninnar nú í sumar. Fyrir-
tæki og einstaklingar styðja
þessa útgáfu með auglýsingum
■og leikskráin verður mjög hand
hæg uppsláttarbók fyrir knatt-
spyrnuunnendur.
Einar og Hreinn gátu þess, að
ÍBA hefði fengið mjög kær-
komna æfingaaðstöðu við flug-
stöðina á Akureyri og þökkuðu
þá fyrirgreiðslu ráðamanna.
Knattspyrnan er vinsælasta
íþróttagreinin hér um slóðir og
fjölmenna bæjarbúar jafnan á
íþróttavöllinn, þegar knatt-
spyrna er annars vegar. Allar
íþróttir byggjast á áhuga al-
mennings, skilningi og stuðn-
ingi. Hvorki þarf að hvetja bæj
arbúa eða nærsveitamenn til að
sýna þessari íþróttagrein áhuga
T I L LEIGU
óskast nú þegar hús eða
íbúð með húsgögnum, og
iiel/.t bílskúr. Leigutími
út ágúst.
Sími 1-11-44, kl. 9
til 17.
TIL SÖLU
Nýleg fjöguna herbergja
íbúð á Syðri-Brekkunni.
Laus lljótlega.
líppl. í sírna 1-29-66.
HERBERGI
TIL LEIGU
Regilusemi áskilin.
Uppl. í sítna 1-22-95,
eftir kl. 3 e. h.
T I L S Ö L U
2ja herbergja íbúð í nýju
húsi á norður brekkunni.
IJppl. í síma 1-17-67,
eftir kl. 7 á kvöldin.
nú í sumar, eða til þess að fagna
því sem vel er gert á íþrótta-
vellinum. Oft er hér skorað á
viðstadda að hvetja heimamenn
sérstaklega. Ekkert nema gott
er um það að segja, en hér gild-
ir það, sem í öðrum íþróttagrein
um, einstaklinga og hópa, að
frækileg frammistaða er jafnan
fagnaðar verð, hverjir sem í
hlut eiga.
Þess er óskandi, að bæjarbú-
ar og aðrir, sem leggja leið sína
á íþróttavöllinn í sumar, eigi
þar sem flestar ánægjustundir.
Til leikmanna eru gerðar mikl-
ar kröfur um góða frammistöðu
á leikvellinum og góða fram-
komu utan leikvallar. Undir
þær kröfur tek ég um leið og
ég sendi þeim beztu kveðjur.
E. D.
TIL SÖLU
tvær notaðar barnakojur
með dýnum. Seljast
ódýrt.
Uppl. í síma 1-12-71.
SVEFNSÓFI
nýlegur, til sölu. Verð kr.
6.800. Selzt vegna brott
l'lutningSi
Uppl. í Hafnarstræti 95.
TIL SÖLU
svefnsófi, saumavél
og kolakyntur
þvottapottur.
Uppl. í síma 1-16-52,
eftir kl. 7 e.h.
TRILLA TIL SÖLU
Upplýsingar gefur
Jóhannes Hjálmarsson,
sími 7-14-43, Siglufirði.
Nýlegur, vel mcð farin
PEDEGREE
BARNAVAGN
til sölu.
Uppl. í síma 1-12-12.
ÓDÝRAR
JEPPAKERRUR
TIL SÖLU
Upplýsingar í sírna 1-14-61
Grímur Valdimarsson,
Geislagötu 12.
150 teuundir GÓÐRA BÓKA SELDAR MEÐ HÁLFVIRDI TIL 16. JÚNÍ. Skrá yfir bækurnar fýrirliggjandi. Höfum opið vegna 17. jóiií r Á langardag til kl. 6 e. h.
Bókaverzl. Edda h.f. og á sunnudag kl. 9-12.
Hafnarstr. 100, Akureyri. Sími 1-13-34. BLÓMABÚÐIN LAUFÁS
Fyrsta keppni Golfkiúbbsins
FYRSTA keppni Golfklúbbs
Akureyrar í ár var Flaggkeppn-
in (full forgjöf) og fór hún fram
þann 2. júní. Sigurvegari varð
Þórarinn B. Jónsson með tals-
verðum yfirburðum, en hann
lék mjög vel í þessari keppni.
Annar varð Ragnar Steinbergs-
son og þriðji Skúli Ágústsson.
Um síðustu helgi, eða 8. og 9.
júní, var háð keppni um
Mickey’s Cup (3/l forgjöf), en
leiknar voru 18 holur 'hvorn
daginn. Keppendur voru 24.
Urslit urðu þau, að fyrstur varð
Þengill Valdemarsson með
137V2 högg (nettó), annar varð
Ólafur Stefánsson með 138 högg
og þriðji varð Árni Jónsson með
144 högg.
Árangur Þengils er mjög eftir
tektarverður, þar sem hann er
aðeins 16 ára og tvímælalaust
efni í góðan golfleikara.
Nýir meðlimir k,ai'lar, konur
og unglingar hafa í stórauknum
mæli gengið í Golfklúbb Akur-
eyrar nú í vor og hafa hafið
æfingar af fullum krafti. Aðal-
kennari klúbbsins er Sævar
Gunnarsson, og geta nýir og
gamlir kylfingar hitt hann á
golfvellinum á hverjum degi kl.
5—7 e. h., og látið skrá sig á
æfingastundatöflu. Nýir golf-
félagar fá fimm fyrstu tímana
sér að kostnaðarlausu eins og
áður hefur verið skýrt frá í
blöðum.
Næsta keppni Golfklúbbsins
er keppni um Gunnarsbikarinn,
en það er 72 holu keppni, sem
hefst miðvikudaginn 12. júní.
(Fréttatilkynning)
SÖLUFOLK VANTAR
Áhugasamt sölufólk (ekki yngra en 18 ára) óskast til
útbreiðslu og innheimtustarfa næstu tvær vikur. Nán-
ari upplýsingar veitir Gunnl. P. Kristinsson skrifstofu
KEA.
SAMVINNAN.
HESTAMENN, AKUREYRI
Þeir sem hafa hug á að koma trippum í sumarhaga á
Bleiksmýrardal í sumar, hafi samband t ið Sophonías
Jósefsson, sími 11573, eða Berg Erlingsson, sími 12368,
fyrir n. k. föstudagskvöld.
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR.
Verzlunar- og iðnaðarhúsnæði
Efri hæð hússins Glerárgata 32 er til sölu eða leigu.
RAFORKA H.F.
r
Odýr matar og kaffistell saman
8 MANNA - AÐEINS kr. 1.500 og 1.890.
JÁRN- OG GLERVÖRUDEILD
Iðnaðarmenn! — Verkstæði!
MILLER’S FALLS rafmagnsliandverkfæri:
BORVÉLAR, ýmsar stærðir.
BELTASLÍPIVÉLAR, 3 og 4“ m. poka.
SMERGELSKÍFUR.
HJÓLSAGIR.
HÖGGBORVÉLAR.
Aðeins nokkur stykki a£ hverju.
Viðgerðar- og varahlutaþjónusta.
RAFTÆKNI - Ingvi R. Jóhannsson
Símar 1-20-72 og 1-12-23, Akureyri.