Dagur - 04.09.1968, Blaðsíða 5

Dagur - 04.09.1968, Blaðsíða 5
4' Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Sírnar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Hvað er framundan? MARGIR reyna að gera sér grein fyrir efnahagsmálunum, eins og þau blasa við nú og fá af þeim heildar- mynd í huga sér. A þessu ári hefur atvinnuleysið víða gert vart við sig í kaupstöðum og sjávarþorpum.- At- vinnufyrirtæki hafa stöðvazt hvert af öðru vegna fjárhagsörðugleika og önnur riða á gjaldþrotabarmi, m. a. hér á Akureyri. Markaðsleit hefur verið vanrækt og róðrarbann vegna yfirfullra frystihúsa rýrt tekjur sjó- manna og gjaldeyrisöflun þjóðarinn- ar- um leið. Gjaldeyrisvaiasjóðurinn er orðinn bannorð, enda gufaði liann fljótt upp en skuldir ríkis og ein- staklinga erlendis hafa vaxið með risaskrefum. Kaupgeta launafólks hefur lamazt. Bændur vantar þriðj- ung tekna, sem þeir eiga rétt á sam- kvæmt lögum. Vanskil í bönkum fara vaxandi og misferli af ýmsu tagi í meðferð fjármuna. Verðbólgan vex með hverjum mánuði, íslenzka krón an minnkar og flest atvinnufyrirtæki eru rekin með halla. Með þetta allt í huga verður heildarmyndin döpur, livort sein mönnum líkar það betur eða ver og þótt reynt hafi verið að dylja hana. Þessir erfiðleikar eru að hluta heimatilbúnir og stafa af rangri stjómarstefnu og hreinu stjómleysi og að hluta af utanaðkom- andi áhrifum, sem hvorki ríkisstjórn eða öðrum verður um kennt. Síðustu daga hefur kaupæði gripið um sig vegna ótta við enn eina gengisbreyt- ingu. Þær raddir verða æ háværari, sem krefjast breytingar á stjórn lands ins. Fyrir helgina lét forsætisráðherr- ann það boð út ganga, að hann f. h. stjómarinnar óskaði viðræðna við stjómarandstöðuflokkana um efna- hagskreppuna. Nú spyrja menn: Hvað er framundan í íslenzkum stjómmálum? Til hvers leiða þessar viðræður? Með hliðsjón af stjóm- málasögu og fræðilegum möguleik- um velta menn m. a. þessu fyrir sér: Er Bjami Benediktsson að setja póli- tískan sjónleik á svið með viðræðun- um, undanfara neyðarráðstafana? Óskar forsætisráðherrann að breikka stjórnarsamstarfið eða ætlar stjómin að segja af sér? Ef stjórnin segði af sér er komið að myndun nýrrar stjómar, tveggja flokka, þriggja flokka eða samstjóm alira flokka (þjóðstjórn). Takist slík stjómar- myndun ekki getur forsetinn, sam- kvæmt fordæmi, skipað utanþings- stjórn. Einnig gæti hugsast að nú- verandi stjórn ryfi þing og efndi til nýrra kosninga fljótlega. Dagur spáir engu um þróun þessara mála á þessu fyrsta viðræðustigi stjórnmálaflokk- anna. □ Landsmálaályktanir kjördæmisþingsins á Laugum 30. til 31. ágúst ssðastl. KJÖRDÆMISÞING Framsókn- armanna í Norðurlandskjör- dæmi eystra minnir enn á, að það sem mestu máli skiptir í íslenzkum stiórnmálum, er að ti’yggja til frambúðar sjálfstæði ríkisins, eignarumráð þjóðarinn ar yfir landi sínu og auðlindum, þjóðlega menningu, framfarir og bættan þjóðarhag. Því leggur kjördæmisþingið áherzlu á: 1. Að landið sé byggt allsstað- ar þar sem lífvænlegt er, og tek in upp áætlunargerð, sem stuðli að framgangi byggðastefnunnar. 2. Að sporna gegn því, að út- lend áhrif verði ráðandi í ís- lenzku atvinnulífi og þjóðlífi. 3. Að þjóðin beini vinnuafli og fjármagni til lausnar aðkall- andi verkefnum í þágu atvinnu- lífs, framfara, gjaldeyrisöflunar og aukinnar framleiðni og tryggi öllu vinnandi fólki næga atvinnu við þjóðnýt störf. 4. Að efla almenna menntun og auka starfsþj álfun og hag- nýta sérmenntun, ennfremur að jafna aðstöðu æskufólks til menntunar. 5. Að stefna beri að stöðugu verðgildi íslenzkrar krónu. 6. Að tekin sé upp heildar- stjörn gjaldeyrismála þjóðar- innar með hliðsjón af gjaldeyris öflun og þörfum framleiðslu- átv innu vegannóu 7. Að tryggt sé, svo sem unnt er, að til starfa í einstökum greinum í opinberri þjónustu og í þjóðarbúskapnum yfirleitt, veljist fyrst og fremst það fólk, sem hæfast er í þeirri starfs- grein, sem um er að ræða hverju sinni. 8. Að stuðla að því, að opin- berir aðilar, fyrirtæki og ein- staklingar gæti varúðar í með- ferð fjármuna og að auka að- hald til að koma í veg fyrir mis- ferli í fjármálum. 9. Að utanríkisþjónustan verði endurskipulögð, m. a. með tilliti til markaðsöflunar erlendis. 10. Að þjóðfélagið efli raun- hæfa baráttu gegn áfengisplág- unni. Kjördæmisþing Framsóknar- manna í Norðurlandskjördæmi eystra 31. ágúst 1968 leggur áherzlu á, að stjómarskráin verði tekin til ítarlegrar endur- skoðunar, og að ljúka beri þeirri endurskoðun svo, að ný stjómar skrá geti tekið gildi eigi síðar en árið 1974 á aldarafmæli ís- lenzkrar stjórnarskrár. Þingið telur rétt, að tekin verði upp einmenningskjördæmi og að landinu verði skipt í umdæmi (fylki), sem öðlist sjálfsstjórn í sérstökum málum, sem varðar umdæmin, hvert fyrir sig og nú eru í höndum ríkisvaldsins. Það er skoðun þingsins, að með þess Eggert Ólafsson formaður kjör- dæmissambandsins var endur- kjörinn: um hætti verði bein áhrif fólks- ins í dreifbýlinu á stjórn þjóð- félagsins aukin verulega og stuðlað að auknu jafnræði milli landshluta. Kjördæmisþing Framsóknar- manna í Norðurlandskjördæmi eystra lýsir ánægju yfir því sam starfi, sem tekizt hefur milli Sambands íslenzkra samvinnu- félaga og Alþýðusambands ís- lands um rekstur Bréfaskó'lans og fagnar auknum umræðum um samstarf þessara aðila. Vill þingið leggja áherzlu á það, sem eina mikilvægustu varnarað- gerð gegn illæri og sóknarað- ferð til velmegunar, að almenn- ingur skipi sér sem fastast til opinskárrar þátttöku í sam- vinnuhreyfingunni og geri hana öflugri en verið hefur um sinn til góðra áhrifa í þjóðfélaginu. Kjördæmisþingið vill leggja sérstaka áherzlu á þá þörf, að stéttarsamtökin hafi sem beztan aðgang að upplýsingum, sem þau telja sig mega treysta um þjóðarhag og hag sinnar stéttar. Vill því þingið hvetja til efling- ar hagstofnana stéttarsamtak- anna og aukinnar samvinnu þeirra við Hagstofu íslands. Kjördæmisþingið vekur sér- staka athygli á því mikilsverða hlutverki landbúnaðarins, að halda uppi byggð um landið allt, utan þéttbýlis. (Framhald af blaðsíðu 1). son fyrrv. alþingismaður og Þór arinn Kristjánsson í Holti, en ritarar Jónas Þórhallsson, Stóra hamri og Indriði Ketilsson, Ytra-Fjalli. Síðari fundardag önnuðust Sigtryggur Þorláks- son, Svalbarði og Eiríkur Sig- urðsson, Akureyri, fundarritun í fjarveru aðalritaranna. Svo sem venja er, fór fram athugun kjörbréfa og aðalnefnd ir þingsins voru kosnar, en þær eru: Landsmálanefnd, kjördæm ismálanefnd og skipulags- og fjárhagsnefnd. Þá flutti form. Eggert Ólafsson skýrslu stjóm- ar, en Jón Aspar, Akureyri, gjaldkeri' samtakanna las upp reikninga og skýrði þá. Voru þeir síðan samþykktir. Eftir há- degi fluttu þingmenn Fram- sóknarflokksins í kjördæminu, þeir Gísli Guðmundsson, Ingvar Gíslason og Stefán Valgeirsson, ræður. Ræða Gísla fjallaði meðal annars um fjárlög ríkis- ins fyrir yfirstandandi ár, ræða Ingvars um meðferð helztu mála á Alþingi og ræða Stefáns um störf hafísnefndar og landbún- aðarmál. Þingið sat ritari Framsóknar- flokksins, Helgi Bergs, og ávarp Kjördæmisþingið telur rétt mat á íslenzkum iðnaði og aukna iðnþróun algera forsendu þess, að hér verði haldið uppi stuðlað að staðsetningu atvinnu velmegunarþjóðfélagi. Telur þingið að koma verði á fastri stofnun iðnverkamanna, iðn- rekenda og stjórnarvalda, sem hafi meðal annars yfirumsjón með eftirfarandi: 1. Athugað verði stöðugt og gaumgæfilega, hvaða íslenzkur iðnaður er samkeppnisfær við erlendan, þegar tekið er tillit til gjaldeyrisþarfa og þeirra tekna, beinna og óbeinna, sem aukin atvinna í landinu hefur í för með sér. 2. Stofnunin hafi yfirumsjón með gæðamati á íslenzkum iðn- varningi, miðað við fáanlegan erlendan og stuðli þannig að réttu mati þjóðarinnar á eigin framleiðslu. 3. Umrædd stofnun og stjóm- arvöld hafi samvinnu um, að ekki verði á hverjum tíma flutt ar til landsins þær iðnaðarvör- ur, sem íslendingar geta annað að framleiða og standast mat samkvæmt fyrsta og öðrum tölu lið. 4. Stofnunin vinni jafnan að athugun á hverri þeirri nýrri iðngrein, smárri og stórri, sem eflt geti íslenzkt atvinnulíf og fyrirtækja víðsvegar um landið. aði hann þingfulltrúa og gesti. Eins og fyrr segir voru veðra- hrigði í lofti er þingfulltrúar héldu til þings á Laugum. Þenn an fyrri þingdag gætti þeirra einnig í stjórnmálalifinu, því að fréttir bárust af því, að forsætis ráðherra, Bjami Benediktsson, hefði formlega, fyrir hönd stjórn arflokkanna, óskað viðræðna við stjórnarandstöðuflokkana um aðsteðjandi vanda í efna- hagsmálum þjóðarinnar. En efnahagsmál þjóðarinnar eru nú almennt áhyggjuefni og dylst engum lengur sá vandi, sem nú er fyrir höndum, sem ríkisstjórn in reyndi í lengstu lög að dylja og ræður ekki við. Voru hinar væntanlegu viðræður ræddar manna í milli þótt ekki væru þær fundarefni á þessu stigi. Að kveldi fyrri þingdags sátu nefndir að störfum. En að morgni laugdagsins kallaði skólabjallan fulltrúa til þing- setu á ný og voru nefndarálitin þá lögð fram, rædd og síðan af- greidd hvert af öðru, svo og laga breytingar sambandsins, sam- kvæmt tillögum milliþinganefnd ar, sem kosin var í fyrra og skil aði áliti á þessu þingi. í stjóm sambandsins voru Kjördæmisþingið lítur svo á, að núverandi ríkisstjórn beri að segja tafarlaust af sér, þar sem hún hefur ekki ráðið við þann vanda, sem að hefur steðjað í efnaliags- og atvinnumálum þjóðarinnar og rekja má í megin atriðum til rangrar stjórnar- stefnu undanfarin ár. □ SAMVINNAN FJÓRÐA hefti Samvinnunnar er komið út. Þar segir frá Nass- er, Gunnar Bjarnason, Bjöm Stefánsson, Indriði G. Þorsteins son, Gunnar Guðbjartsson, Jó- hann Franksson, Jóhannes Torfason, Ólafur Geir Vagnsson og Agnar Tryggvason skrifa um landbúnaðarmál, ásamt rit- stjóra, Sig. A. Magnússyni. Ein- ar Karl Sigvaldason á þarna kvæði, Guðmundur Halldórsson smásögu og Eysteinn Sigurðsson ritar um stefnur í bókmennta- könnun. Þá eru skemmtilegheit Gísla J. Ástþórssonar og tæpi- tungulaus grein ritstjórans, Eft- ir forsetakosningai’. Þá eru þýddar greinar og greinar um erlend málefni, meðal þeirra greinin Kosningar óvissunnar í Svíþjóð eftir Njörð P. Njarðvík. Enn má nefna greinina Kristin trú frá sjónarmiði guðleysingja eftir Gísla Gunnarsson. Heftið er rúmar 60 síður, prentað á góð an pappír og mörgum myndum prýtt. □ kjörnir til eins árs: Eggert Ólafs son, formaður, Svavar Ottesen, Akureyri, gjaldkeri, Stefán B. Ólafsson, Ólafsfirði, ritari, Har- aldur Gíslason, Húsavík, Hákon Hákonarson, Akureyri, Guð- mundur Sigurðsson, Fagranesi og Guðlaugur Halldórsson, Merkigili. í miðstjóm flokksins: Áskell Einarsson, Bjöm Guðmundsson, Hjörtur E. Þórarinsson, Óli Hall dórsson, Valtýr Kristjánsson, Ingólfur Sverrisson og Björn Teitsson. Endurskoðendur Jón Samúelsson og Jóhann Helga- son, báðir á Akureyri. Þinginu lauk á sjöunda tím- anum á laugardaginn með ávörp um þingmanna, ritara flokksins, nýkjörins formanns sambands- ins og að síðustu með hvatn- ingar- og þakkarorðum þingfor setans. Þetta níunda aðalþing kjör- dæmissambands Framsóknar- manna í Norðurlandskjördæmi eystra fór allt hið bezta fram. Umræður voru miklar, eflaust gagnlegar fyrir fulltrúana og þingmönnum flokksins nokkurt veganesti til þjóðnýtra starfa á næsta löggjafarsamkomu, sem bráðlega hefur störf á ný. □ Starfsmenn níunda kjördæmisþingsins á Laugum 31. ágúst sl. Frá vinstri: Eiríkur Sigurðsson, Sig- tryggur Þorláksson, fundarritarar, Karl Kristjánsson og Þórarimi Kristjánsson, þingforsetar. (Ljósm.: E. D.) Kjördæmisþingið að Laugum 5 BÚSKAPUR ÓLAFS KONUNGS Ármann Dalmannsson. ÁRMANN D ALMANN SSON lét í sumar af starfi skógarvarð- ar hjá Skógrækt ríkisins og framkvæmdastjórastarfi hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga, enda bráðum 74 ára, þótt naum- ast verði það á honum séð. Við þessum störfum hefur Gunnar Finnbogason skógfræðingur tek ið og er hann hér boðinn vel- kominn til góðra verka. Við þessi mannaskipti er fróðlegt að ræða skógræktarmál lítillega og geta þess manns, sem þar hefur lengi fremstur staðið þó því fari fjarri, að hér sé verið að mæla eftir hann, því þótt aldur fyrr- verandi skógarvarðar sé allhár orðinn, gengur hann dag hvern að erfiðisvinnu, þegar hann ekki er önnum kafinn við félagsmála störf og hikar ekki við hin erfið ustu störf, enda maðurinn óvenju mikill þrekmaður, íþróttamaður fyrrum og mennt- aður á því sviði innanlands og utan, og svo kappsfullur, að yngri menn mega flestir taka á honum stóra sínum, vilji þeir ekki láta sinn hlut eftir liggja. Margskonar félagsmálastörf hlóðust á Ármann, og þykir hann hafa leyst þau farsællega að sínum hluta með hógværð sinni og heiðarleika. Hann var formaður fþróttabandalags Ak- ureyrar í 20 ár, er deildarstjóri Akureyrardeildar KEA og hef- ur verið það lengi, formaður Áfengisvamamefndar Akureyr ar, löngum prófdómari í fim- leikum við skóla bæjarins og prófdómari við Hólaskóla. Hann hefur um árabil verið formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar og er það tímafrekt og vanda- samt starf. En hans aðalvinna, síðan hann lauk aldarfjórðungs- starfi hjá Ræktunarfélagi Norð- urlands fyrir tveimur áratug- um, eru, eins og fyrr segir, skóg ræktarstörf. Hann hóf gróður- setningu hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga í Kjamalandi á sínu fyrsta starfsári hjá félaginu. En félagið fékk þar 20 ha. á erfða- festu hjá bænum. Síðan fékk Skógræktarfélag Akureyrar allt að 90 ha. land, samliggjandi, Akureyrarmegin við landa- merki Hrafnagilshrepps og Ak- ureyrarkaupstaðar. Allt þetta land verður brátt skógi vaxið og hið fríðasta. Búið er að planta í það að mestu og með hverju óri sem líður ber landið þess gleggri merki, að það er að breytast í skóglendi. Þetta sam- liggjandi svæði nær frá þjóð- veginum til Hamrakletta. Skóg- ræktarfélag Akureyrar gróður- setti fyrstu plöntumar við þjóð- veginn og það voru fyrstu plönt urnar frá hinni nýju skógrækt- arstöð Skógræktarfélags Eyfirð inga. Þessar plöntur blasa við Gunnar Finnbogason. vegfarendum og mynda ein- hvern fegursta ungskóg sinnar tegundar, sem kostur er að sjá, nær hver planta þráðbein og vöxturinn mikill. Gróðrarstöðin í Kjarnalandi er verk Ármanns Dalmannsson- ar og með honum hefur m. a. starfað Jón Dalmann við að koma stöðinni upp og starf- rækja hana. Gróðrarstöð Skógræktarfé- lags Eyfirðinga, en það félag er einskonar samband skógræktar félaga sýslunnar, hafði það hlut verk að framleiða og hafa til sölu algengar trjátegundir til að mæta þörfum héraðsins. Hún hefur hin síðari ár afhent um og yfir 100 þús. plöntur á ári. Skjól belti voru snemma gróðursett í stöðinni, umhverfis sáðreiti og dreifplöntuð beð, sem skipta all miklu landi í marga reiti. Þeir eru enn margir, sem naumast vita um þessa stöð og of fáir, sem þar hafa komið. En þessi unga gróðrarstöð er á margan hátt lærdómsrík og er andleg heilsubót að ganga þar um. Flest virðist þar hafa vel tekizt og umgengni hefur jafnan verið til fyrirmyndar, eða svo hefur það verið er ég hefi lagt þar leið mína til að undrast mátt moldar og auka eigin bjartsýni á fram- tíð skógræktar. Hér má ekki blanda saman gömlu Gróðrar- stöðinni á Akureyri, sem Rækt- unarfélag Norðurlands átti lengi en nú er vanhirt ríkiseign, með sín sextugu tré og lærdómsríku sögu. Við höfum öll séð birkiskóga vaxa og undrumst ekki þótt þeir vaxi í Kjamalandi hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga. Meiri athygli vekja skjólbeltin, f GREIN minni: Forsetabúið á Bessastöðum, í Degi 17. júlí nefndi jeg aðeins „norska kon- ungsháttu um búskap", en taldi ekki rúm í blaðinu leyfa að rekja það nánar. Nú hefi jeg verið spurður um þetta þannig, að það lítur út fyrir að lesendum Dags leiki nokkur forvitni á að vita hvað þar er í efni. Upplýsingar um búskap Olafs konungs Norðmanna eru í stuttu máli þessar, ef ritstjóri Dags sjer sjer fært að birta þær: sem snemma urðu þroskamikil og fögur, gróðursett 1948 og 1949 og svo lerkilundurinn, sem þýtur upp og er að verða enn ein sönnun á ágæti þessarar trjá tegundar hér á Norðurlandi. Þegar ekið er eftir veginum frá Kaupangi vestur yfir ey- lendið, sem leið liggur, má sjá skógarkjarr á víð og dreif í Kjarnalandi, í landi Skógræktar félags Eyf irðinga og Skógræktar félags Akureyrar. En þegar gengið er um þetta land tekur maður eftir trjáplöntum, sem ekki hafa enn sett svip á landið en eiga eftir að gera það. Það verður síðar gaman að sjá allt þetta land, yfir 100 hektara, skógi vaxið, hérumbil milli fjalls og fjöru. Skógaivörður hjá Skógrækt ríkisins, Ármann Dalmannsson, hafði einnig eftirlit með þeim löndum héraðsins, sem skógar- leifar fundust í og voru friðuð og aukin skógargróðri. Ennfrem ur hafði hann á hendi eftirlit og leiðbeiningarstarf hjá einstakl- ingum og félögmn innan héraðs ins, sem hafa skógrækt að ein- hverju ráði, sem starfsmaður Skógræktarfélags Eyfirðinga. En í héraðinu eru um 50 slíkir skógarreitir. Stærsta skógarsvæðið hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga er Vaðlaskógur, um 50 ha. að stærð. Hann er þegar til mikill- ar prýði og árlega er plantað í hann. Hann er í landi tveggja sýslna, Eyjafjarðar- og S.-Þing eyjarsýslu, úr landi Varðgjánna tveggja í Eyjafjarðarsýslu og í landi Veigastaða og Halllands í S.-Þing. Þetta land er fjölbreytt og víða grýtt. Á mörgum stöð- um þrífst skógurinn ágætlega. Lerkilundur, sem í var plantað 1951, er orðinn mjög fagur. Lerkitrén eru til jafnaðar orðin (Framhald á blaðsíðu 2). Mjög margir íslendingar kann ast við þann hluta Oslóborgar er nefnist Bygdöy, þótt það sje raunar nes eitt mikið, en alls ekki eyja. Þetta er eitt „fínasta“ hverfi borgarinnar ef þannig skal talið. Þar búa sendiherrar margra þjóða og þar á meðal sendiherra íslands, sem kunn- ugt er. Þar er Þjóðminjasafnið norska (Norsk Folkemuseum), húsið sem geymir víkingaskip- in, Framhúsið og Kon-Tiki-hús ið. Þar á nesinu er stórbýlið Bygdöy Kongsgárd, er ekið þar um garða, „á milli fjóss og bæj- ar“, þegar ekið er fram á nesið, t. d. á leið til bústaðar íslenzka sendiherrans, og Þjóðminjasafn ið er næsti nágranni Konungs- garðsins. Bygdöy Kongsgárd er all- mikil jörð á norska vísu, mjög álíka Bessastöðum um land- stærð, eða um 175 ha., en land Bessastaða er talið vera um 170 ha. Bygdöy Kongsgárd er eign norska ríkisins og er sumarbú- staður konungs, þótt nú sje jörð in orðin innan takmarka borg- arinnar. Þegar ekið er út Bygdöy, er bústaður konungs á hægri hönd, allmikið hús hvítt og skrúðgarður umhverfis. Bygg ingin er frá miðri 18. öld. En til vinstri getur að líta hús búsins, fjós og hlöður, gróðurhús og fleira. Ræktað land á Bygdöy Kongsgárd er um 75 ha., en skógur um 100 ha. Áhöfn á jörð inni er um 70 nautgripir og 1500 hænsni. Gróðurhús eru um 2.500 ferm. aldintrje 4—5 þús- und. Jörð þessa hefir konungur „til umráða“ án afgjalds, en bygg- ingum er haldið við á kostnað ríkisins. Konungur rekur búið algerlega á eigin ábyrgð og kostnað, ber tapið ef svo verður, og ágóði af búskapnum rennur í hans eigin vasa. Bústjóri kon- ungs ber ábyrgð bústjórnar sinnar gagnvart konungi og engum öðrum. Þjóðarmetnaður stendur vörð um Bygdöy Kongsgárd og bú- skap konungs þar, og metnaður konungs sjer fyrir því, að vel sje búið og til fyrirmyndar, eng in hætta á öðru. Þar má ekki hreyfa við landi til annarra nytja hvað sem í boði er, og hvers sem með þarf. Þjóðminja- safnið, næsti nágranni. Kóngs- garðsins, er t. d. í mikilli land- þröng, en engum kemur til hug ar að skerða jörðina safninu til framdráttar, svo fast er haldið utan um þetta og þá hefð að Bygdöy Konungsgárð, sjer sjálf um og landi og þjóð til sóma. Ólafur konungur býr einnig búi sínu á eignarjörð sinni Skóg um (Skaugum) í Asker, en sú jörð var honum gefin löngu áð- ur en hann gerðist konungur. Þar á Haraldur ríkisarfi nú að setjast að, þegar hann hefir fest ráð sitt, en eigi er kunnugt hvort Haraldur tekur þar við búsforráðum sem „Ieiguliði“ konungsins föður síns, eður eigi. Hitt er víst, að engum borgar- búa i Noregi kemur til hugar að lagður verði niður myndar- búskapur á þessum tveimur nefndu jörðum, um hug bænda til þess máls þarf ekki að ræða. Hræddur er jeg um, að sá ráð- herra norskur sem bæri fram tillögur um að leggja niður bú- skap á Bygdöy Kongsgárd, af því að viðhald húsa og mann- virkja þar kostar ríkið nokkurt fje árlega, sæti ekki lengi á ráð- herrastóli. En slíkt kemur ekki fyrir, Norðmenn leiða ekki van- virðu yfir sig og norskan land- búnað með slíkum uppgjafar- ráðstöfunum. Nefna má, að oft hafa gripir frá búi Ólafs konungs á Bygdöy Konungsgárd hlotið verðlaun á sýningum. Mjer er minnisstætt er það skeði á Búnaðarvikunni í Osló fyrir fáum árum, þar sem þúsundir borgai'búa og bænda voru samankomnir, að deilt var út verðlaunum meðal annars fyrir bezta kynbótanaut í Nor- egi það árið. Allt í einu var nafn konungs bónda á Bygdöy Kongsgárd kallað upp, hann stóð upp úr sæti sínu, gekk upp á pallinn, tók við verðlaunun- um, þakkaði fyrir sig og bar hátt verðlaunagripinn er hann gekk til sætis síns aftur, svo að mannfjöldinn mætti gjörla sjá gripinn, en það var líkan af nauti gert úr málmsteypu, gott listaverk. Vel fagnaði mannfjöld inn öllum bændum sem verð- laun hlutu, með glaðvæi-u lófa- taki, en miklu mest konungin- um. Svona er enn hugsað til landbúnaðar í Noregi. Til gam- ans má geta þess að Hjörtur Eldjárn bóndi á Tjöm í Svarf- aðardal og kona hans voru meðal boðsgesta við þetta tæki- færi. Það er bæði gagn og gaman að kynna sjer þennan konungs- búskap í Noregi, en sennilega er það alltof mikil bjartsýni að halda, að slíkt fordæmi geti orð ið til fyrirmyndar á Bessastöð- um. Fljótt á litið mætti ætla að enginn forseti myndi leyfa sjer að búa minna en mesta fyrir- myndarbúskap á staðnum. En valt er að treysta því, eins og hjer er bágt í efni, um virðingu fyrir landbúnaði. E. S. Leiðar umbrotavillur voru í grein minni 17. júlí. Eina prentvillu í greininni 10. júlí vil jeg leiðrjetta. Hallinn á búskapn um á Bessastöðum 1943 var kr. 1090.00, en ekki kr. 11.090.00 eins og prentaðist í blaðinu. Reykjavik, 31. júli 1968. Ámi G. Eylands. __2 Ferðafélagið tók við skálamim FERÐAFÉLAG ÍSLANDS og Vegagerðin hafa byggt skála í Jökuldal — undir Tungnafells- jökli. Um helgina fóru nokkrir Ferðafélagsmenn frá Akureyri þangað, hittu menn frá Fí og tóku á móti skálanum nærri fullbyggðum til varðveizlu, svo sem um hafði verið samið. Skáli þessi rúmsu um 80 manns til gistingar í svefnpokum. □ nleaum arsprotum irvonir

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.