Dagur - 26.04.1969, Side 8
* 8
SMÁTT & STÓRT
UNGFRÚ DEVLIN
Svo heitir 21 árs gömul kona,
sem nýlega var kjörin til neðri
málstofu brezka þingsins og er
yngsta kona, seni þar hefur set-
ið. Hún vann kosningasigur
sinn í Norður-írlandi. Hún er
ófeimin og myndarleg skóla-
stúlka og flutti þrumandi jóm-
frúræðu í þinginu 22. apríl og
fékk dynjandi lófatak að laun-
um.
SAMTÍNINGUR
Svipmyndir úr „Púntila og Ma tti“.
Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík.
Hver vill beita sér fyrir skoð-
unarferðum um nágrennið?
‘ ' " ■ • - * r -
Fuglar, gróður og skeljar eru
LEIKFÉLAG HÚSAVÍKUR
PÚNTILA og MATTI eftir Berthold Breeht. -
Leikstjóri: Erlingur E. Halldórsson.
SKYLDI nokkurstaðar vera
jafn mikill áhugi á leiklist, og
hér á íslandi. Stórir hópar fara
til Reykjavíkur að sjá leikrit í
Þjóðleikhúsinu og telja ekki
eftir sér að borga nokkur þús-
und í fargjöld. Lítil leikfélög út
á landi sýna stórverk, er þykja
ekki meðfæri nema þaulæfðra
leikara. Víða á landinu eru nú
Engar úrbætor
HIÐ mesta ófremdarástand rík-
ir nú í heilbrigðismálum, eink-
um hvað kvensjúkdóma snertir.
Fæðingar- og kvensjúkdóma-
deild Landsspítalans er löngu
ófullnægjandi, svo sem margir
hafa staðfest opinberlega.
Engar úrbætur eru fram-
undan næstu þrjú ár, þ. e.
áformaður af hálfu ráðamanna.
Ymis samtök kvenna hafa
mótmælt þessum seinagangi
harðlega, enda er það kapps-
mál þeirra, og ætti að vera
keppsmál allra, að sem flestum
megi bj.arga, sem nú og á næstu
árum þjást af krabba í móður-
lífi og öðrum sjúkdómum, sem
karlmenn eru lausir við.
Þegar mál þessi voru rædd á
Alþingi, fjölmenntu konur þar
og létu álit sitt mjög áberandi
í ljósi. □
félagsheimili er gera kleift að
ráðast í veigamiklar sýningar,
eru þetta gleðilegar framfarir.
Á Húsavík er gamalt leikhús,
með þeim elztu á landinu, og
senan bæði lítil og allar aðstæð
ur mjög erfiðar. Þó réðst lítið
leikfélag þar í að sýna hvorki
meira né minna en Púntila og
Matta eftir Bertolt Brecht. Ég
gat ekki setið á mér, en brá mér
austur á sýningu hjá þessu
dugnaðarfólki, núna um helg-
ina, og sé ég ekki eftir því.
Þessi sýning er Húsvíkingum
til sóma, bæði leikstjóra og leik
endum og öllum er lögðu þar
hönd að verki. Er þetta gott
dæmi um, hvað samhugur og
áhugi getur komið til leiðar.
Allt þetta fólk, sem að sýning-
um stendur, fær ekki eyri fyrir
erfiði sitt, en bak við þessa sýn-
ingu liggur óhemju mikið verk.
Meira verk en margur heldur,
er kemur bara og sér eina sýn-
ingu.
Þetta á ekki að vera neinn
leikdómur, ég vil bara með
nokkrum orðum vekja athygli á
þessari sýningu, hún á það fylli
lega skilið, væri gaman ef leik-
félagið gæti komið hingað með
þessa sýningu, er um hægðist.
Þó get ég ekki stillt mig um að
minnast þeirra, er mest á reyn-
ir, og raunar halda uppi sýn-
ingurn, þó margir aðrir komi
fram, en alls eru leikendur 25
að tölu.
Sigurður Hallmarsson leikur
Púntila bónda. Sigurður er
. (Framhald af blaðsíðu 8).
heillandi skoðunarefni, undir
leiðsögn fróðra manna. Mývetn
ingar andmæla harðlega þeirri
ráðagerð, að veita Suðurá,
Svartá og Kráká. út í Mýya(n
og telja að þá muni Mývatn upp
fyllast af sandi. Þá munu Aðal-
dælir sízt hrifnari af hugmynd-
inni. íslenzkum smiðum eru
boðnar 255 kr. pr. klst. við inn-
réttingar skipa í Svíþjóð. 180
manns gáfu sig þegar fram.
Kaup þeirra hér er milli 60 og
70 krónur. Sumar stofnanir hér
í bæ bjóða starfsfólki sínu í dýr
ar reisur um þessar mundir og
þykir það ekki í samræmi við
örðugleika ahnennings, sem
verður að neita sér um flest.
Upp hefur komizt um mikið
fjárbruðl hjá húsameistara ríkis
ins, og ýmsar athugasemdir
gerðar við fl. á ríkisreikningum.
Tíu eftirtektarverð atriði
Á ALÞINGI hafa Framsóknar-
menn barizt fyrir leiðréttingum
á málefnum iðnaðarins en talað
þar fyrir daufum eyrum. í þings
ályktunartillögu Einars Ágústs-
sonar og fl. er lagt til m. a.:
1. Kannað verði, hvaða iðn-
greinar geta hérlendis haft jafn
góða eða betri starfsgrundvöll
en hliðstæðar iðngreinar hafa í
nágrannalöndum.
2. Sérstök lánafyrirgreiðsla
verði veitt þeim fyrirtækjum,
Átta kindur drápust
Stórutungu 18. apríl. í gær var
fyrsta hlákan sem hægt er að
tala um. Snjó og svell hefir þó
leyst undanfarið því hægviðri
hafa verið en frost um nætur,
en sólar notið og hún vinnur
mikið þegar jarðar gætir. Þess
vegna er mikið autt orðið í daln
um þótt srijór sé mikill til heið-
arinnar.
Mikið er orðið um það að fé
sé rúið að vetrinum, þó ekki
alrúið, það telja menn ekki
skynsamlegt svo óráðið sem er
um veðráttu þegar rúningur fer
fram og fóðurþörf getur orðið
mun meiri en ella. Veturinn hef
ur verið mjög gjaffrekur en
heybirgðir yfirleitt nægar —
Skepnur hafa verið hi'austar að
undanskyldum einum bænum,
Svartárkoti. Þar hefir verið
ókennd veiki í sauðfé og 8 kind
ur drepizt, sumar snögglega
nokkuð og óttast er um lamb-
leysi í ám. Þarna er hætt við
að um einhverja efnavöritun sé
að ræða. Dýralæknir hefir ekki
getað skýrt þetta. Fé er þarna
mjög mikið fóðrað og hey yfir-
drifin, óvenjumikil innistaða og
lítil kraftfóðurgjöf. Nú virðist
vera tekið fyrir þetta.
Fundir standa nú yfir um
búnaðarmál, samvinnumál o. fl.
Pétur Kristjánsson sem setið
hefir fyrir tófum undanfarna
vetur og veitt þær við ljós, hefir
drepið 3 nú í vetur. Þ. J.
sem keppa við erlend fyrirtæki,
sem bjóða greiðslufresti.
3. Komið verði á sérstöku út-
flutningslánakerfi.
4. Rekstrarlán til iðnaðar
verði veitt með hliðstæðum
hætti og til annarra atvinnu-
greina.
5. Felldur verði niður inn-
flutningur iðnaðarvara á þeim
sviðum, þar sem vörur til sömu
notkunar eru framleiddar hér á
landi með atvinnulega hag-
kvæmum árangri.
6. íslenzk fyrirtæki látin ann
ast þau verk, sem þau eru fær
um að annast þannig, að talizt
geti þjóðhaglega hagkvæmt.
7. Smíði fiskiskipa og flutn-
ingaskipa verði haldið áfram og
hafin smíði fiskibáta á vegum
ríkisins til að auka hráefnisöfl-
un til frystihúsa.
Þórarinn Þórarinsson og
fleiri hafa flutt tillögu um
þetta:
8. Innflutningstollar á efnum
og vélum til iðnaðarins verði
hinir sömu og á efnum og vél-
um til fiskveiða.
9. Iðnfyrirtæki fái víxilsölu-
heimild til sölu á allt að 90 daga
löngum víxlum er nemi allt að
þriggja mánaða framleiðslu
þeirra fyrirtækja sem selja vör
ur sínar heilsölu til dreifingar-
aðila.
10. Iðnfyrirtækin fái yfir-
dráttarheimild á reikningslán-
um, er svari til þriggja mánaða
kaupgreiðslu viðkomandi fyrir-
tækis.
Hér eru helztu ábendingar og
tillögur Framsóknarmanna sett
ar fram í tíu punktum. Á þetta
hefur ekki verið hlustað.
Hér stendur illa upp á stjóm-
völd landsins. □
SAMTOK VINSTRI MANNA
UM alllangt skeið hefur það
verið á döfinni, að stofnuð yrðu
ný stjórnmálasamtök vinsti'i
manna á íslandi. Eru það meðad
annarra stuðningsmenn alþingis
mannanna Hannibals Valdi-
marssonar og Björns Jónssonar,
sem þar eiga hlut að máli, svo
og margir fleiri, er telja það
nauðsyn að vinstri menn í land
inu efni til nýrra, frjálslyndra
og víðsýnna samtaka um þjóð-
mál, Er það sameiginleg skoðun
þessarra manna, að núverandi
flokkaskipan í landinu sé orðin
úrelt og fullnægi engan veginn
kröfum og þörfum nútímans.
Nú hafa hópar manna víða
um land tekið sig saman um að
hefjast handa og hrinda máli
þessu í framkvæmd á næstu
vikum. Hafa þeir m. a. samið
frumdrög að lögum fyrlr sain-
tökin, þar sem segir svo- um til-
gang og hugsjónagrundvöll:
„Samtökin eru þjóðmálafélag,
er beitir félagslegum úrræðum,
jafnaðarstefnu og samvinnu-
stefnu við lausn þjóðmála til að
stuðla að betri lífskjörum og
koma á bættu og heilbrigðara
þjóðfélagi.
í því skyni leitast samtökin
við að sameina innan sinna vé-
banda alla vinstri menn meðal
allra starfsstétta þjóðfélagsins.“
Gert er ráð fyrir, að félagar
geti allir þeir orðið, sem náð
hafa 16 ára aldri, lýsa yfir stuðn
ingi, við stefnu samtakanna og
tilkynna aðild til stjórnar.
Eitt félag undir nafninu Sam
tök vinstri manna er þegar tek-
ið til starfa, þ. e. á Húsavík, en
félög verða mjög fljótlega stofn
liS á Akureyri og á Raykjavík.
Á Akureyri er starfandi sér-
stök undirbúningsnefnd, veitá
meðlimir hennar allar nánari
upplýsingar um væntanlega fé-
lagsstofnun og taka á móti þátt
tökutilkynningum.
í nefndinni eiga sæti: Adolf
Davíðsson, sími 1-23-78; Baldur
Svanlaugsson, sími 1-16-85;
Björn Hermannsson, sími
1-28-82; Heiðrún Steingríms-
dóttir, sími 1-26-54; Hörður
Adolfsson, sími 1-28-75; Jón B.
Rögnvaldsson, sími 1-15-13;
Kristófer Vilhjálmsson, sími
1-16-32; Lárus B. Haraldsson,
sími 1-20-61; Ólafur Aðalsteins
son, sími 1-14-87; Tryggvi
Helgason, símí 1-15-88; Þór-
hallur Einarsson, sími 2-10-26.
( Ffé ttatilkynning )
300 MANNA HERFLOKKUR
UM 300 manna sveit í brezka
hernum fékk leyfi til að stunda
lieræfingar á íslandi stuttan
tíma og fylgir 60 manna hljóm-
sveit til að leika fyrir innfædda.
Æfingar fara fram í Gnúpverja
lireppi og eru undir stjórn
Dymoks nokkurs höfuðsmanns.
EINVÍGI
Skúli Thoroddsen læknir af-
henti á sunnudaginn Dymok
höfuðsmanni afrit af bréfi sínu
- til .drottningar Bretaveldis, þar
sem hann skorar Dymok á
. liólm. -En. hann, -þ. e. Dymok
þessi, á að- vera fulltrúi dfottn-
ingar í einvígum og er eini
maðurinn í ríki Bretadrottning-
ar, sem ekki þarf að taka ofan
fyrir henni.
BIÐUR AÐ FA LÁNAÐA
BYSSU
Segir Skúli í bréfi sínu, ásamt
fögrum orðum um drottning-
una, mann hennar og þegna:
„en nú hefur hennar hátign
sent herflokk hingað til lands
míns til að skjóta á það og
finnst mér sem íslendingi, að
mér beri skylda til að skora
yður á hólm.“ Ennfremur segir,
að hennar hátign megi velja
vopnin, en verði byssa fyrir
valinu biðji hann drottningu að
lána sér eina.
ÞA VERÐUR IIÁTÍÐIS-
DAGUR
Um fátt er nú meira talað en
viðræður Björns og Hannibals
annars vegar og Framsóknar-
flokksins hins vegar — um sam
starf á Alþingi og utan þings og
hafa báðir aðilar gefið út yfir-
lýsingar rnn viðræðurnar og
stofnun nýrra samtaka.
Það verður mikill hátíðisdag-
ur á íslandi þegar vinstri menn
samfylkja gegn íhaldi og
óstjórn í stað þess að standa í
sundruðum hópum. Völd íhalds
ins í landinu byggjast á, því nú|
og áður, hve andstæðingar þess
eru tvístraðir.
LANDVARNIR
íslendingar, einir þjóða, kosta
engu til landvarna, og hafa jafn
vel drjúgar tekjur af þeim
„vörnum“, sem hér á landi eru
og aðrir kosta.
Islendingar verða þó að hugsa
um landvarnir, þótt á öðru sviði
sé, ef þeir vilja ekki tína sjálf-
lun sér. Þótt engin óvinaskot
heyrist, eru innrásarherir á
hverju strái. Það eina, sem
(Framhald á blaðsíðu 7)
Akurey
rartogarar
KALBAKUR landaði 165 tonn-
um hinn 21. ápríl.
SVALBAKUR landaði 262
tonnum 12. apríl.
IIARÐBAKUR landaði 184
tonnum 23. apríl.
SLÉTTBAKUR landaði 16.
apríl 260 tonnum.
Öllum aflanum landað í
heknahöfn. Nóg að gera. Miklir
peningar. □