Dagur - 10.09.1969, Blaðsíða 1

Dagur - 10.09.1969, Blaðsíða 1
FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SERVERZLUN: LJÖSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING ÞETTA ER PRÓFSUMAR í SVEITUNUM Ási í Vatnsdal 9. sept. Grátt er af snjó niður í miðjar hlíðar, en veður er gott nú og útlit fyrir -sunnanátt. Við erum að vonast eftir þurrki þessa viku og myndi þá töluvert rætast úr heyskap. En heyskapur hefur gengið með fádæmum illa í sum ar, svo segja má, að ástandið sé ákaflega illt vegna stöðugra óþurrka. í allt sumar hafa kom- ið 4—5 þurrkdagar og hafa þó ekki notazt að fullu. Hey eru víðast illa verkuð og geysimikil hey, meira og minna skemmd, eru nú úti hér um sveitir. Spretta varð að síðustu sæmi- leg og háarspretta víða mikil, KOSNIR í STJÓRN AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs Eyjafjarðar var haldinn 3. sept. sl. í stjórn voru kosnir: Stefán Valgeirsson, formaður, og með- stjórnendur Ketill Guðjónsson, Guðlaugur Halldórsson, Þórir Valgeirsson og Angantýr Jó- hannsson. — Varamenn: Snorri Kristjánsson, Jónas Halldórsson og Árni Hermannsson. □ en óvíst er að slegið verði, svo mikið liggur nú af blautu heyi og votheysgeymslur löngu full- ar. Fé var komið heim að girðing um og var réttað á Undirfelli og Auðkúlu um síðustu helgi og kom þar mjög margt fé, og sýn- ist það ekki vænt að þessu sinni. En um næstú helgi fara undanreiðarmenn í 6 daga göng ur og fer þá að fækka fullfrísk- um mönnum á mörgum heimil- um. Eitt af því, sem gerir bændum erfitt fyrix-, er það, að jörðin er blaut og gljúp eins og heili og engjavegir ófærir öllum hjóla- farartækjum. Nýtast því ekki góðar og grasgefnar engjar. Hér á bæ, sem hefur mikið þurr- lendi, varð að gera nýja vegi til að komast um með hey. Við höfum ekki lifað slík óþui’rkasumur nema ef vera skildi 1926 og 1934, en þá voi’u búhættir aðrir en nú. Þetta sumar er prófsumar. Ef við þolum þetta sumar án þess að kikna verulega, þolum við mikið óáran. G. J. Bændahátíð Suður-Þingeyinga BÆNDAHÁTÍÐ Suður-Þing- eyinga var haldin að Laugum sl. sunnudag. Hófst hún kl. 14 með guðsþjónustu er sr. Sigurð- |75% | STARFSLIÐ sjúkrahússins f l á Akureyri hefur sýnt lofs- i i verðan áhuga um 200 m — f = keppnina undir forustu for- i i stöðukonu — fyrr íþrótta- i i kennara. Hefur þar verið i i komið á keppni milli ýmissa i i deilda og árangurinn hefur § i ekki látið á sér standa — um i i 75% alls starfsliðs hefur i i synt — og enn lialdið vel i i áfrain! | | Mættu aðrir taka sér til i i fyrirmyndar. i i Komið og syndið! i Framkvæmdanefndin. i ur Guðmundsson pi’ófastur á Grenjaðai-stað flutti. Þá hélt landbúnaðari’áðherra Ingólfur Jónsson x-æðu, Gígjukórinn frá Akureyri söng, Ómar Ragnars- son skemmti, fram fór íþi’ótta- keppni unglinga og Gautar léku fyrir dansi um kvöldið. Margt fólk sótti hátíðina en vafalaust sátu einhvei-jir heima sökum þess að ágætur hey- þurrkur var um daginn. Vegna þess hve skúrasamt hefur vei’ið er heyskapur tæp- lega eins vel á vegi staddur og ætla mætti eftir góðu veðui’fari sumarsins. Einnig eru stórfelld- ar kalskemmdir á einstöku bæj um í utanverðum Reykjadal, svo að dæmi er þess að hey- fengur af túni nái ekki nema þriðjungi meðaluppskeru. Hins vegar koma áhrif sum- arsins í ljós í mikilli sprettu berja, garðávaxta og skraut- blóma í skrúðgörðum. □ Starfsmenn kjördæmisþingsins á Húsavík Frá vinstri: Aðalbjörn Gunnlaugsson, Þórarinn Kristjáns- son, Karl Kristjánsson, Þórarinn Magnússon og Halldór Jóhannesson. (Ljósm.: H. S.) Kjcrdæmisþing Framsóknarmanna á Húsavík HINN 5. september hófst tólfta kjördærhisþing Fi’amsóknar- manna í Norðui’landskjöi’dæmi eystra og var það að þessu sinni haldið í nýja félagsheimilinu á Húsavík, að ósk heimamanna, og lauk að kveldi 6. september. Á þinginu mættu um 70 full- ti'úar með atkvaeðisrétti og auk þess nokkrir gestir. Formaður sambandsstjórnarinnar, Eggert Ólafsson bóndi í Laxárdal, setti þingið á ellefta tímanum að morgni fyrra þingdags með ávarpi og bauð þingfulltrúa velkomna, en því næst tók kjör Frá lögreglunni LÖGREGLAN tjáði blaðinu eftirfarandi í gær: Laugai’dag- inn klukkan rúmlega 23 valt fólksbíll með A-númei’i út af vegi í Moldhaugahálsi og fór tvær veltur. Fjórir voru í bif- reiðinni og meiddust eitthvað allir og voi-u fluttir í sjúkrahús. Þar liggur kona úr þessum hópi ennþá. Bíllinn var mjög illa far inn og sýndist ekki mikils virði. Þá bar það við neðan við Vind- heirna, að bílar mættust og óku báðir út af veginum, annar skemmdist nokkuð, lenti á steini. Og enn fór bíll út af vegi hjá Miðlandi, lenti á girðingu. bi’éfanefnd til stai’fa. Þegar kjör bréf höfðu verið afgreidd voi’u stai’fsmenn þingsins kjöi’nir. Þingforseti var kjöi’inn Karl Kristjánsson fyrrv. alþingis- maður og varafoi’seti Þói’arinn Kristjánsson bóndi í Holti, en þingi’itai’ar Þói’ai’inn Magnús- son, Akureyi’i, Halldór Jóhann- esson, Dalvík, og þeim síðan til aðstoðar Aðalbjörn Gunnlaugs- son kennari i Lundi. Þráinn Valdimarsson fram- kvæmdastjói’i Fi'amsóknar- flokksins var gestur fundarins. Eggert Ólafsson formaður og Svavar Ottesen gjaldkei’i fluttu skýrslu stjórnarinnar og enn- fi-emur erindi'eki sambandsins, Haraldur M. Sigurðsson, og svöruðu fyrirspurnum. Eftir hádegi tóku fyrstir til máls alþingismenn flokksins í kjördseminu, þeir Gísli Guð- mundsson, Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirsson og fluttu skýrslur um þingmál og ræddu stjórnmálaviðhorfið, í stuttu máli. Þingfullti’úum var nú skipað í þrjár fastanefndii', eftir til- lögum þar til kjörinnar nefndar, landsmálanefnd, kjördæmis- málanefnd og fjárhags- og skipulagsnefnd. Ennfremur var kosin kjöx’stjórn fyrir þingið. Að loknum nokkrum umræðum tóku nefndir til stai'fa og störf- uðu þær um kvöldið og fram á nótt. Þingfundum var fram haldið fyrir hádegi næsta dag og lauk rétt fyrir miðnætti á laugardag, 6. sept. Þennan síðai’i fundardag fóru fx-am umi’æður um tillögur nefnda og verður hér í blaðinu nánar sagt frá ályktunum þings ins. Kosnir voru skriflegri og leynilegri kosningu, stjórnar- menn sambandsins og menn í miðstjói'n flokksins. í sambandsstjórn voru kjörn- ir: Eggert Ólafsson, Laxárdal, formaður, Svavar Ottesen, Ak- ureyri, gjaldkeri, Stefán B. Ólafsson, Ólafsfirði, ritari, Hai’- (Framhald á blaðsíðu 5). MYNDIR AKUREYR- INGS í VARÐBORG RÓSA Kristín Júlíusdóttir sýn- ir um þessar mundir 12 olíumál vei'k í veitingasal Hótel Varð- borgar. En ungfrú Rósa hafði sjálfstæða málverkasýningu á Akureyri fyrir rúmu ári og seldi þá meiri hluta mynda sinna. Síðan hefur hún dvalið við listanám á ítalíu og mun senn á förum þangað á ný. □ NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA Frá 12. k j ör dæmisþingi F ramsóknarmanna LANDSMÁLAÁLYKTUN. Tólfta kjördæinisþing Fram sóknarnianna í Norðurlands- kjördæmi eystra haldið á Húsavík 5.—6. september 1969 samþykkti svofellda ályktun urn landsmál: 1. Höfuðnauðsyn íslenzkra stjórnmála um þessar mundir, er að koma fram grundvallar- stefnubreytingu í efnaliags- og atvinnumálum þjóðar- innar. 2. f sambandi við slíka stefnubreytingu ber einkum að hafa í huga þau atriði, sem hér greinir: a). Endurreisn atvinnulífs- ins svo að full atvinna verði í landinu, sem stöðvi landflótta vegna verkefnaskorts. b). Stöðvun dýrtíðar. Vernd un á verðgildi íslenzku krón- unnar. Tekin verði upp stjórn á gjaldeyris- og innflutnings- málum þjóðarinnar, sem fryggi myndun raunverulegs gjaldeyrisvarasjóðs og koini í veg fyrir gjaldeyriseyðslu, langt umfram sjálfsaflafé þjóð arinnar. Sérstaklega ber að varast að taka gjaldeyrislán í því skyni að viðlialda liömlu- lausum innflutningi glingurs og óþarfa munaðarvarnings og margskonar vöru, sem fram- leiða mætti í landinu sjálfu. c) . Til þess að nýta sem skynsamlegast framleiðslu- getu þjóðarinnar og trj'ggja, að þær framkvæmdir gangi fyrir, sem mest þjóðhagslegt gildi hafa, verði komið á fót opinberri áætlunargerð í sam- starfi við fulltrúa atvinnu- greina og stéttarsamtaka. d) . Gætt verði fyllsta sparn aðar í öllu, sem lýtur að yfir- stjórn ríkisins og því, sem við kemur ríkisrekstrinum. Hrað- að verði endurskipulagningu utanríkisþjónustunnar með viðskiptahagsmuni íslands sér staklega fyrir augum. e). Gætt sé hófs og aðhalds í opinberu veizlulialdi, og veit ing áfengisfríðinda til handa einstökum mönnum verði af- lögð með öllu. 3. Kjördæmisþing Fram- sóknarmanna í Norðurlands- kjördæmi eystra 5.—6. septem ber 1969 leggur áherzlu á, að stjómarskráin verði tekin til ítarlegrar endurskoðunar, og að Ijúka beri þeirri cndurskoð un svo ný stjórnarskrá geti tekið gildi eigi síðar en árið 1974 á aldarafmæli íslenzkrar stjórnarskrár. Þingið telur rétt, að einmenningskjördæmi, með tveggja flokka kerfi að markmiði, verði tekin upp. Ennfremur, að landinu verði skipt í umdæmi (fylki), sem öðlist sjálfstjóm í sérstökum málum, sem varða umdæmin, hvert fyrir sig og nú eru í höndum ríkisvaldsins. Það er skoðun þingsins, að með þess- uni hætti verði bein áhrif fólksins í dreifbýlinu á stjórn þjóðfélagsins aukin verulega og stuðlað að auknu jafnræði milli landshluta. 4. Kjördæmisþingið minnir á, hvernig óstjórn núverandi stjórnarflokka undanfarin ár, hefur leitt til síendurtekinnar (Framhald á blaðsíðu 2)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.