Dagur - 24.09.1969, Blaðsíða 1

Dagur - 24.09.1969, Blaðsíða 1
FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Simi 12771 • P.O. Box 397 SERVERZLUN: LJÖSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING Fjármagn lil íbúðalána Mikið ieiklistarlíf á Akureyri ÞEGAR blaðið spurðist fyrir um það, hver væru aðalverk- efni Leikfélags Akureyrar á komandi leikári, svaraði for- maður L. A., Jón Kristinsson, með því að senda blaðinu tvo unga menn til að kynna hin nýju verkefni. Mennirnir voru Sigmundur Örn Arngrímsson, Reykjavík, nú framkvæmda- stjóri L. A. og Arnar Jónsson leikari. Búið er að ákveða fimm verkefni. Hið fyrsta er „Rjúk- andi ráð“ sýnt fyrir 10 árum syðra og verður sá leikur sýnd- ur í Sjálfstæðishúsinu um miðj- an næsta mánuð undir stjórn Arnars Jónssonar. Sigmundur annast uppfærslu næsta leiks, eftir Jón Dan og heitir hann „Brönugrasið rauða“. Þriðja verkefnið er „Gullna hliðið“ eftir Davíð Stefánsson. Leikur- (Framhald á blaðsíðu 7) Ný fjárrétt var vígð í Öxnadal á sunnudaginn, en hana lét hreppurinn byggja í sumar og er það endurbyggð Þverárrétt. Almenningurinn rúmar um 5 þús. fjár og dilkar eru 24. Allir hom- stólpar eru steyptir og hliðgrindur úr járni. Fjallskilastjórinn, Steinn Snorrason á Bægisá, rakti aðdraganda, þörf og framkvæmd verksins. Fáni var dreginn að hún. Talið er, að fjárflestu bænd ur hreppsins hafi átt um þús. fjár á fjalli í sumar. (Ljósm.: E. D.) Höfnin dýpkuð og hifaveita endurbæff Sigmundur og Arnar til hægri. Ólafsfirði 22. sept. Hér hefur verið mjög tregur afli undan- farið, jafnt á togveiðibátum sem færabátum. Hefur atvinna því verið nokkuð sopul nú upp á síðkastið á íshúsunum. Við síð- ustu löndun höfðu togveiðibát- arnir frá 14—23 lestir eftir 5 daga útivist og þykir lítið. Heyskapur hefur í sumar gengið heldur báglega, sem von legt. er, því varla hefur komið þurr dagur síðan snemma í ágúst. Að vísu hefur ekki verið mikið um stórrigningar, en nóg til þess að gera bændum mjög erfitt fyrir við alla heyþurrkun. Þrátt fyrir votviðrasamt sumar eru flestir bændur búnir að fá sæmileg hey, en það eiga þeir fyrst og fremst súgþurrkuninni að þakka. Nokkrir bændur eiga uppsætt hey úti ennþá. Hér kólnaði mjög um helg- ina og snjóaði þá nokkuð í fjöll, bæði á laugardag og sunnudag. Göngur standa yfir. Verið er að ganga neðri hluta sveitai’- innar í dag og verður réttað í Ólafsfjarðarrétt. En á morgun verður fremri hluti sveitarinn- ar genginn og verður þá réttað að Reykjarétt. Á miðvikudaginn hefst svo slátrun í sláturhúsi Kaupfélags Ólafsfjarðar og er ráðgert að (Framhald á blaðsíðu 2) Fimtn báfar feknir í Lónafirði Hrossin seld ufan til lífs og sláfrunar Ási í Vatnsdal 22. sept. Útlit í heyskai>armálum er nú orðið mikið skárra en þegar ég talaði við þig síðast. Menn hafa náð miklu af heyjum þótt mikið sé eftir að hirða enn. Sunnanblást- ur hefur verið öðru hverju og hver stund notuð. Frost var í nótt og nú er bezta veður. Göngur voru slysa- og stór- til útflutnings, mest þriggja vetra trippi og eldri hross líka. Fyrir trippin fá menn 11.500— 12.000 krónur. En fátt hrossa var heima, því stóð -er enn á fjalli. Það verður réttað hér 30. september. Stóðrétt í Svartárdal verður næsta miðvikudag og er þá réttardansleikur, en á fimmtu- daginn verður féð rekið þar til réttar. Senn verða hross tekin hér til útflutnings, sláturhross, sem •fara til Belgíu. Greiddar eru 23 krónur fyrir kílóið í lifandi vigt. Verður sennilega selt töluvert (Framhald á blaðsíðu 5) Gunnarsstöðum 22. sept. Skarðs rétt var í gær, og á morgun er Hallgilsstaðarétt, en það er aðal skilarétt Langnesinga, og í gær var Fellsrétt. Slátrun hefst á Þórshöfn á morgun. Féð sýnist fremur álitlegt, og sjást naum- ast mjög smá lömb í réttum nú, enda var sumarið gott. Nýlega tók landhelgisgæzlan fimm dragnótabáta að meintum ólöglegum dragnótaveiðum í Lónafirði, mjög nærri landi og einhverjir sluppu þó. Heyskap má heita lokið og varð heyfengur víðast sæmileg- ur og veði’áttan var yfirleitt góð..Um stærri heykaup verður ekki að ræða þetta árið. Margir bættu sér upp túnskemmdir með grænfóðurrækt. Stöku mann vantar þó tilfinnanlega fóður, þótt heildin sé betur sett í þessu efni en undanfarin ár. Ó. H. Banaslys á Hólsf jöllum Á FÖSTUDAGINN féll ungur maður af hesti í göngum á Hóls fjöllum og leiddi það hann til bana. Maður þessi, Haukur Snorrason að nafni, átti heima í Reykjavík og var 24 ára gamall. Slysið varð norðan við Hafragilsfoss, og er þar grjót- urð. Er talið, að beizli hafi bilað, maðurinn síðan fallið af baki, fest fót í ístaði og hesturinn dregið hann á grjótinu. Haukur heitinn var fluttur til Reykjavíkur og andaðist á Landakotsspítala 19. september. 1 FRÉTTATILKYNNINGU fé- lagsmálaráðuneytisins segir, að samningar milli Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar um aukið fjármagn til íbúðalána, hafi tek izt. Helztu atriði þess, sem ríkis stjórnin lofar að beita sér fyrir, eru þessi: Frá október n. k. til júní 1970 verður varið 470 milljónum króna til íbúðalána og jafngildir þetta fullum lánum út á 1100— 1200 íbúðir. Hafizt verður handa um ann- an áfanga byggingaframkvæmd anna í Breiðholti strax í haust og verða byggðar 180 íbúðir í þeim áfanga. Verður varið 50— 60 milljónum króna á næstu 9 mánuðum til þeirra fram- kvæmda. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að beita sér fyrir sérstakri 20 milljón króna fjáröflun til bygg ingaframkvæmda í þéttbýli utan Reykjavíkursvæðisins sem sambærilegar eru við Breið- holtsframkvæmdirnar. Ríkisstjórnin hefur til athug- unar aukna tekjuöflun vegna Byggingarsjóðs ríkisins og mun það mál verða tekið upp á Al- þingi. □ Geigvænlegt atvinnuleysi er framnndan tíðindalausar. Slátrun er hafin á Blönduósi og virðist féð í meðallagi og raunar betra en búist var við. Nokkuð hefur verið selt af hrossum héðan og rétt búið að taka nokkuð af lífhrossum hér, FIRMAKEPPNI f KNATTSPYRNU FIRMAKEPPNI í knattspyrnu hefst laugardaginn 27. septem- ber n. k. Þátttaka skal tilkynnt Páli Magnússyni fyrir hádegi föstu- daginn 26. september, sími 1-18-35. Firmakeppnin 1969. STJÓRN Alþýðusambands ís- lands hefur gert svofellda sam- þykkt um atvinnumálin: „Miðstjórn Alþýðusambands íslands samþykkir að fela full- trúum sínum í Atvinnumála- nefnd ríkisins að hefja þegar viðræður við ríkisstjórnina um aðgerðir í atvinnumálum, er fyrirbyggt gætu að geigvænlegt atvinnuleysi skelli yfir á kom- andi vetri. Miðstjórnin lýsir ugg sínum vegna ískyggilegra horfa í at- vinnumálum, sérstaklega á Reykjavíkursvæðinu og í öðr- um stærstu bæjum landsins. Bendir hún m. a. á stórfelldan samdrátt í stærri framkvæmd- um og byggingariðnaði, minnk- andi atvinnu við hvers konar vörumeðferð og þjónustustörf og hættu á, að fiskvinnsla drag- ist saman vegna siglinga togara með eigin afla. Miðstjórnin telur óhjákvæmi legt að nú þegar verði gerðar gagngerðar ráðstafanir til þess að stórauka byggingastarfsemi og opinberar framkvæmdir, að hráefnisöflun til fiskvinnslu- stöðva verði aukin eftir föng- um, að skipasmíðastöðvum verði fengin fullnægjandi verk- efni og að greitt verði fyrir auk inni framleiðslu iðnaðarins í heild, svo sem með því að auka rekstrarfé hans. Miðstjórnin felur fulltrúum sínum í Atvinnumálanefnd rík- isins að hafa nauðsynlegt sam- ráð við verkalýðsfélögin um til- lögugerð til úrbóta í atvinnu- málunum og aðgerðir allar til að knýja þær fram.“ Atvinnumálanefnd ríkisins mun nú óska greinargerðar frá atvinnumálanefndum kjördæm anna um atvinnuhorfur og fjalla frekar um nauðsynlegar aðgerðir á næstu fundum sín- um. □ DAGUR kemur næst út á miðvikudag- inn, 1. október. Verðui’ þá vænt anlega hægt að birta eitthvað af því efni, er bíður. ,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.