Dagur - 20.12.1969, Side 1
i ^
ÞRÍFUR
ALLT
LII. árg. — Aknreyri, laugardaginn 20. des. 1969 — 52. lölublaö
FILMU húsið
Hafnarstrætj 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SERVHRZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Freslun EFTA-málsins
AFGREIÐSLU EFTA-málsúis
lauk í gser á Alþingi og var til-
lagan samþykkt. Við aðra um-
ræðu málsins báru fulltrúar
Framsóknarflokksins í utanrík-
ismálanefnd, þeir Þórarinn Þór
arinsson og Eysteinn Jónsson,
fram svohljóðandi frávísunar-
tillögu:
„Með sérstöku tilliti til þess,
að enn hefur ekki verið gerð ís-
lenzk iðnþróunaráætlun, sem
feli í sér aðlögun að fríverzlun
við önnur lönd, né viðlilýtandi
áætlun um aðra þætti þjóðar-
búskaparins við slík skilyrði, og
með því að fríverzlun sú, sem
kostur er á, er ekki aðkallandi
nauðsyn vegna útflutnings, eins
og liann er nú, telur þingið rétt,
að frestað verði að taka ákvörð-
un varðandi aðstöðu íslands til
Fríverzlunarsamtaka Evrópu,
en nú þegar hafist handa um
nauðsynlegar áætlunargerðir og
málið kynnt þjóðinni sem bezt
og tekur fyrir næsta mál á dag-
skrá.“
Þessari tillögu munu þing-
menn Framsóknarflokksins hafa
greitt atkvæði.
Þingfundum átti að fresta í
gær til 12. janúar. En þegar
þing þá kemur saman verður
tollskráin nýja og söluskatts-
hækkunin tekin á dagskrá. □
Akureyrarmal á Alþingi
VIÐ fjánlagaafgreiðsluna núna í
vikunni var meðal annars sam-
þykkt:
Heimild fyrir ríkissjóð til að
leggja 10 milljón kr. hlutafé til
Slippstöðvarinnar á Akureyri,
enda verði hlutafé hennar eigi
minna en 30 milljónir.
Hækkun á framlagi til Efna-
Dagur
kemur næst út á mánudags-
kvöld, og þurfa auglýsingahand
rit og annað efni að berast í
tæka tíð, samkvæmt því.
í-annsóknarstofu Norðurlands
úr 150 þús. kr. í 250 þús. kr.
Til geymsludeildar Amtsbóka
safnsins 100 þús. kr.
Framlag til Fjórðungssjúkra-
hússins er nú 4.1 millj. kr. en
var 2 milljónir í fyrra. Auk þess
hækka fjárveitingar til þvotta-
húss og tækjakaupa.
Til Glerárhverfisskólans var
ekkert fé veitt, en heimilað að
leyfa að hefja byggingu skólans
og umtalað, að fjárveitingu til
íþróttahúss yrði varið til að
hefja byggingaframkvæmdir
Glerárhverfisskólans á næsta
ári. □
Á Ráðhústorgi hefur bærinn sett upp jólatré og aðrar skreytingar. (Ljósm.: E. D.J
Atvimiumál eru mál málanna
segir Hákon Torfason, bæjarstj. á Sauðárkróki
KOMIN er hér vetrar- og
skammdegislægð, sagði Hákon
Torfason bæjarstjóri á Sauðár-
ki'óki í símtali við blaðið í gær.
Atvinnuleysi er nokkurt eins og
er, eins og oftast á þessum tíma,
enda ekki að undra, þar sem
Saga Sauðárkróks er komin út
SAGA SAUÐÁRKRÓKS er
komin út, mikil bók og vönduð,
eftir Kristmund Bjarnason
fræðimann á Sjávarborg.
Bókin er nær 500 bls. auk 64
myndasíðna, sem innihalda 214
rnyndir. Uppdráttur af Skaga-
firði frá 1815 prýða bókina.
Saga Sauðárkróks er mjög
vönduð bók, bæði frá hendi
höfundarins og annarri gerð
allri. Kristmundur Bjarnason
er löngu landskunnur fyrir rit-
verk sín sögulegs eðlis og vand-
ur að heimildum. Hann nær
þeim frásagnarstíl, sem gerir
bókina í senn fróðlega og
skemmtilega til lestrar. Að
þessu verki hefur Kristmundur
unnið allt frá 1962 m. a. með
heimildasöfnun, sem reyndust
mun erfiðara en gert hafði ver-
ið ráð fyrir í upphafi.
Ekki er að efa að Sauðkrækl-
ingar og aðrir Skagfirðingar, í
héraði sem að lieiman, fá hér í
hendur merkilega bók, merki-
lega sögu byggðarinnar á Sauð-
árkróki og um leið einnig hér-
aðsins alls og nágrennis.
Föst byggð á Sauðárkróki á
hundrað ára afmæli 1971, en
fyrstu íbúarnir settust þar að
1871. Þessara tímamóta verður
m. a. minnzt með útgáfu á sögu
staðarins í tveim bindum og etr
þetta fyrra bindið.
Saga þessi nær frá 1871 ti.1
1907 en þá varð Sauðárkrókur
sérstakt hreppsfélag. Síðara
bindið kemur út á afmælisárinu
1971 og fjallar það um tímabilið
1907 til 1947 er Sauðárkrókur
öðiaðist kaupstaðarréttindi.
Á kápusíðu þessa mikla verks heimilda, en nýtur þess í r£k-
segir svo: um mæli, hversu höfundur er
„Þessi bók er fræðilegt verk, efni sínu handgenginn af per-
byggt á rannsóknum skjallegra (Framhald á blaðsíðu 4)
hráefni berst nú ekki til hrað-
frystihúsanna, nema örlítið til
annars þeirra. En raunar hefur
þetta ár mikill fiskur borizt
hingað og atvinna því verið all-
góð.
Að undanförnu hefur það ver
ið fyllt á ný, sem sjórinn hefur
rifið úr bæjarlandinu. Þetta árið
hefur verið óvenju mikið byggt,
bæði íbúðarhús og tvær verk-
smiðjur. Hefur önnur þeirra,
sokkabuxnaverksmiðja, starfað
um skeið og veitir atvinnu.
Snjór er enginn að heitið get-
ur en allmikil svellalög og
hálka. Flugfært er um allar
sveitir héraðsins.
Jólasvipur er kominn á kaup-
staðinn og stórt jólatré lét bær-
inn setja á kirkjutorg'ið og einn
ig við skólana.
Mannlífið er rólegt, fólk er að
komast í jólaskap og undirbýr
hátíðina. En mál málanna er þó
atvinnulífið og nú er það hin
brennandi spurning, hvernig
frystihúsum staðarins verði
tryggt hráefni næsta ár. Undan-
farna tvo vetur hefur þetta
gengið vel, vogna þess að skip,
sem áður voru á síld, vildu
gjarnan leggja upp hjá okkur,
sagði bæjarstjóri að lokum og
sendir blaðið jólakveður vestui'.
Akurey
rartogararnir
Kaldbakur kemur inn í dag,
en hann hafur verið í sóttkví
vegna inflúensu skipveija.
Hann seldi í Grimsby fyrir
13.600 pund. Fer á veiðar fyrir
jól, sagði skrifst. Ú. A. í gær.
Svalbakur á að landa hér á
sunnudag og fer á veiðar næsta
dag.
Harðbakur landaði 15. des.
124 tonn, fór á veiðar 16. des.
Sléttbakur landaði 17. des.
57 tonnum og fór á veiðar 18.
des.
Allir verða þeir úti um jólin.
SJÚKRAHÚSSFÉ TIL GATNAGERÐAR f RVK
RÍKISSTJÓRNIN hefur gert
lóðaskiptasamning við Reykja-
víkurborg, sem hefur það í för
með sér, að ríkið verður að færa
til kafla af Hringbrautinni í
Reykjavík fyrir 30 millj. kr. Er
þetta, að sögn, gert til að
stækka lóð Landsspítalans og
verðui’ því að greiða þetta af
sjúkrahúsafé komandi ára. En
borgin þarf víst á þessari breyt-
ingu að halda vegna vansmíða á
skipulagi. Samningurinn var
staðfestur á Alþingi. □
Vatnsleit við verksmiðjur SÍS
Kristmundur Bjarnason, fræðimaður, Sjávarborg.
í SAMBANDI við endurbygg-
ingu Skinnaverksmiðjunnar á
Akureyri, var borað eftir vatni
á Gleráreyrum. Er þeirri borun
lokið og talið, að hún hafi borið
árangur, en hve mikinn, er ekki
unnt að fullyrða strax. Dæling
úr borholunni gefur svar við
spurningunni um vatnsmagnið,
og var í gær verið að undirbúa
tilraunadælingu. Vatnið verður
notað við sútunina og skinna-
iðnaðinn.
Þetta mun vera í fyrsta sinn
hér, að vatn til iðnaðar er grafið
úr jörðu á iðnaðarstað. Væri vel
ef þessi tilraun tekst, ekki sízt
til að létta á vatnsveitu bæjar-
ins, því Skinnaverksmiðjan er
talsvert vatnsfrek. Verður vænt
anlega sagt frá árangri síðar. □
SEX MILLJÓNIR TIL
ALÞÝÐUFLOKKSMAÐUR og
þrir ritstjórar fluttu við fjár-
lagaafgrciðslu á Alþingi tillögu
um, að hið opinbera kaupi dag-
blöð fyrir 6 millj. króna. Tillag-
an var samþykkt, en allmargir
þingmenn greiddu þó atkvæði
gegn henni. Hér á landi eru
fimm dagblöð og öll gcfin út í
Reykjavík. □