Dagur - 15.11.1972, Qupperneq 4
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Útvarpið og ríkisbáknið ^.........
FYRIR nokkrum dögum var Ríkis-
útvarpið gert að umræðuefni á At
þingi, bæði hljóðvarp og sjónvaíp.
Það kom þá fram hjá þeim, sem jijii,
stjóm útvarpsins hafa fjallað, að fjár
hagur þessarar miklu ríkisstofnunar
væri heldur bágborinn, eða myndi
a. m. k. verða það að óbreyttu. Út-
varpshúsið, sem Jónas Þorbergsson
hóf undirbúning að fyrir þrjátíu til
fjörutíu árum, var ekki bvggt og býr
útvarpið í leiguhúsnæði. Samt er f jár
festing þess mikil, bæði í Reykjavík
og víða um land. Hjá hljóðvarpi og
sjónvarpi munu nú vinna um 200
fastir starfsmenn, en auk þess greiðir
útvarpið stórfé fyrir efni sem það
fær hjá öðrum en starfsmönnum
sínum.
Ekki getur blaðið greint tölur í
Jjessu efni, en þegar rætt var um f jár
liagsvanda útvarpsins á Alþingi, var
talið, að um tvennt væri að ræða: Að
hækka verulega afnotagjöld útvarps
og sjónvarps, sem almenningur greið
ir, eða veita stofnuninni styrk, sem
dygði úr ríkissjóði. Hér norðan f jalla
hefur Dagur hins vegar heyrt nefnda
þriðju leiðina og þykir rétt að kynna
hana. Sú leið er í því fólgin, að spara
útgjöldin með því að draga úr starf-
semi útvarpsins, fella niður nokkuð
af útvarpsefni, sem ]>jóðin gæti helzt
án verið sér að skaðlausustu eða skað
lausu. Ýmsum finnst það ofrausn, að
hafa hljóðvarpið í gangi næstum
stöðugt frá því um fótaferðatíma og
fram undir miðnætti dag hvem, og
sjónvarp í sex daga í viku ellefu
mánuði ársins.
Ríkisútvarpið er raunar ekki
nema einn þáttur í hinu mikla ríkis-
bákni, sem farið hefur sívaxandi síð-
ustu áratugi. Mörgum Jiykja að von-
um fjárlög há, enda eru þau í þann
veginn að verða tuttugu sinnum
hærri en þau voru fyrir fimmtán
árum. Og skattar þykja mönnum
háir. Það er oft talað illa um ríkis-
báknið, nefndimar, embættismanna-
fjölda og sagt sem svo, að þjóðin
greiði stórfé til offramleiðslu á lang-
skólamönnum, sem flestir fái svo
launaðar stöður hjá Jjví opinbera,
hvort sem þörf er á eða ekki, ef þeir
ekki heltast úr lest á miðri leið. En
]>egar ríkissjóður lendir í fjárhags-
vandræðum, sé oft til þess gripið, að
draga úr verklegum framkvæmdum
eða úr öðmm framförum í þágu
landsbyggðarinnar, eða fresta kosn-
ingaloforðum og áætlunum um slík-
ar framfarir. Hin heilaga kýr, ríkis-
báknið og borgríki Jjess, haldi áfram
að dafna hvað sem öðru líður. Þann-
ig hefur margur útkjálkamaðurinn
mælt í sinn hóp fyrr og síðar. Vera
má, að breyting sé á næsta leiti. !□
n.
"á
%
:
"á
%
"É
%
*
BEÐIÐ EFTIR FJALLRÆÐUNM
Það er fimmtudagur 13. apríl 1972. Ég er við
vinnu mína að vanda í Prentverki Odds Björns-
sonar. Allt er þar óvenjulega hljótt þessa stund-
ina og útvarpið — aldrei þessu vant - ekki spennt
upp úr öllu valdi.
Skyndilega er mér þögnin rofin. Klukkna-
hljómur, dimmur og válegur, klýfur loftið. Hann
glymur svo, að ósjálfrátt legg ég lófana fyrir
eyrun. Óhugnanlegur kuldastraumur smýgur í
gegnum mig allan. Þ>að flaug að mér eitt andar-
tak, að Jóhannes S. Kjarval væri andaður. Sú
hugsun hvarf þó úr huga mínum samstundis.
Hádegisútvarpið flytur svo sorgarfréttina, er
klukknahljóðið hafði boðað mér áður: Látinn
er vinur minn, Jóhannes Sveinsson Kjarval, list-
málari.
Nóttina eftir glaðvakna ég og get ekki sofnað
aftur.
Ég sé milli svefns og vöku bregða fyrir björtu,
skínandi leiftri í skærum litum og lýsa upp her-
bergið, sem ég svaf í.
Óvænt og skyndilega snarast maður, stór
vexti og mikilúðlegur með síðan hött á höfði,
inn í herbergið til mín. Maður þessi bar reisn og
tiguleik íslenzkra fjalla í svip og fasi. Hann hélt
á stórum bunka undir hendinni, líkast sem það
væru innpakkaðar myndir í ramma.
Þegar hér var komið sögu, mátti kenna kemp-
una og snillinginn Jóhannes S. Kjarval, listmál-
ara.
Listamaðurinn hóf þegar að taka utan af
bögglinum. Kom þá í ljós hvert listaverkið öðru
fegurra, þó mælt sé á heims-mælikvarða, eins
og til að mynda „Himins lindir streyma“, sem
ætti að vera til á hverju einasta heimili á íslandi.
Það var líkast því sem arnsúgur færi um stof-
una, meðan listamaðurinn reisti hvert listaverk-
ið af öðru upp við veggina, og hvar sem hann
fann rúm fyrir þau í herberginu. Er hann hafði
gengið frá málverkunum sem bezt varð á kosið,
nam hann staðar litla stund, og benti með vísi-
fingri hægri handar á listaverkið „Beðið eftir
fjallræðunni“. Þ>á hvarf mér sýnin.
Ég þóttist þegar vita, að listamaðurinn vildi
mér eitthvað, sem ég gat eigi skilið í fljótu
bragði. En eftir að hann hafði bent mér á fyrr-
nefnt listaverk, þóttist ég vita, hvað hann væri
að fara.
Heldur þú, vinur minn, að ég sé búinn að
gleyma því, þegar þú komst til Akureyrar með
vordýrð í list og litum í byrjun vetrar 1954, allri
íslenzkri listsköpun til örvunar og endurnýjun-
ar? Árangurinn lét eigi eftir sér bíða. Alls komu
Listsjóli íslands
JÓHANNES SVEINSSON KJARVAL
HNIGINN f VALINN
Kveöja aÖ norÖan
þrjúþúsund og tvöhundruð manna til að bíða
eftir Fjallræðunni.
Nei. — Ég gleymi því aldrei.
En, nú getur þú sjálfur séð og heyrt höfund
Fjallræðunnar, gáfaðasta og glæsilegasta trúar-
leiðtoga allra tíma, sem fram hefur komið með-
al mannkynsins, og mesta andans hugsuð og
orðsins snilling allra alda. - Mannsins son, sem
við dáðum báðir, og allir geta treyst og trúað á.
Einn kleifstu hæsta tindinn, beiðst eftir Fjall-
ræðunni og öðlaðist alvizkuna í listinni.
Vinur minn, Jóhannes S. Kjarval. Þ»ú gerðir
þér ferð norður á Akureyri, til þess að heilsa upp
á skáldið, eins og þú kallaðir mig, og skemmta
því eina dagstund.
Nú skal „skáldið“, sem telur þig stórbrotnast-
an allra listamanna, kveða til þín í staðinn lítið
ljóð:
Hratt streymÍT lækur
frá háfjalla brún,
liðast um hlíðar
og heim um tún,
leitar síns upphafs
í Ægis höll,
og hverfur í djúpið.
Ævin er öll.
'.fc.
I hrauni og mosa
þú heíur allt séð.
Sú undra skyggni
þér einum var léð.
Sástu sál þjóðar
í sorg og gleði.
íslands lag lékstu
af listþrungnu geði.
Björg kleifstu hál
og hæstu tinda,
gjár og sprungur
þér gáfu fjöld mynda.
Þú kannaðir dýpstu
íslands ála.
Alstaðar fannstu
fegurð að mála.
Hrímþursar úfnir
um hraunklungur skunda,
listsmíði dvergar
í Dyrfjöllum stunda.
Glaðir sér una
álfar í hólum,
dansa um nætur,
er dregur að jólum.
Stórhrotinn skörungur
innst bæði og yzt.
Skarpvitur meistari
í lifandi list.
Einn steigstu úr götu
auðrækrar hjarðar.
Fæddur af himni
en fóstri jarðar.
Hamingjurúnir
hafa þér ristar
gæfudísir
guðlegrar listar.
Far þú nú heill
og hamingjuglaður,
íslands litelski
listamaður.
Lesendur þessara lína, lifið heilir við hásumarsheiðríkju á
himni fagurra lista.
Á uppstigningardag 1972.
JÓN BENEDIKTSSON, prentari.
m
%
i )
W
m
[ r
y
%
%
m
i
m
I
> !
m
m
m
, í
p
5
m
í
K
Fénu vart gefið strá
Haganesvík 13. nóv. Nú mun
vera ófært á bílum til Siglu-
fjarSar, og hér innansveitar er
einnig orðið ófært að heita má,
enda komst mjólkurbíllinn ekki
leiðar sinnar í morgun. Gripu
bændur þá til dráttarvéla sinna
og eru að flytja mjólkina. Þeir
koma svo hér við til að verzla
eitthvað smávegis.
Hér hefur verið hið versta
veður síðan á íimmtudaginn,
þar tij í dag, að veður er að
ganga niður. Snjór sá, sem nú
er kominn, er ekki mikill, og
þetta er fyrsti snjórinn hér um
slóðir.
Féð hefur gengið úti fram að
þessu og því hefur naumazt eða
ekki verið gefið strá. E. Á.
Minningarhátíð á Mælifelli
Á ALLRA sálna messu sl. var
haldin á Mælifelli í Skagafirði
minningarhátíð prestshjónanna
frú Önnu og síra Tryggva Kvar
ans. Kirkjukór Mælifellspresta-
kalls söng undir stjóm Björns
Ólafssonar á Krithóli,-m. a. þrjá
sálma eftir síra Tryggva. Sókn-
arpresturinn, síra Ágúst Sig-
urðsson frá Möðruvöllum, flutti
predikun og minningarræðu.
Síra Tryggvi vígðist að Mæli-
felli vorið 1918 og þjónaði brauð
inu til dauðadags, 5. ágúst 1940.
Hann var fæddur á UndirfeTTi 7
Vatnsdal 31. maí 1892; son síra
Hjörleifs Einarssonar frá Valla-
nesi á Völlum og síðari konu
hans, frú Bjargar Eiharsdóttur
KY OLDFAGNAÐUR
TIL STYRKTAR OG HJÁLPAR VANGEFNIJM
frá Mælifellsá. Síra Tryggvi var
þjóðkunnur prestur, mikill
ræðusnillingur og skáldmæltur.
Kennari var hann góður, og vin
sæll í sveit sinni og héraði. —■
Frú Anna kona hans var dóttir
Gríms hreppstjóra og stórbónda
á Kirkjubæ á Rangárvöllum
Thorarensens. Mikilhæf mann-
kostakona og fyrirmannleg.
■ Hún lézt á Svalbarði á Eyja-
fjarðarströnd 7. nóv. 1944, að-
: eins 54 ára. — Dætur þeirra
hjóna eru Hjördís Björg, kona
' Finns kaupfélagsstjóra á Húsa-
vík Kristjánssonar, og Jónína
Guðrún, gift Ólafi skrifst.manni
'í Reykjavík Kristjánssyni.
Á Mælifelli var fjölmenni við
minningaguðsþjónustuna og
barst þangað innileg kveðja
* þeirra systra. □
Orðsending
SUNNUDAGINN 19. nóvember
verður kvöldfagnaður í Sjálf-
stæðishúsinu á Akureyri til
styrktar vangefnum á Norður-
landi. En málefnum þessa fólks
hefur verið betur sinnt hér en
víðast annars staðar á landinu.
Er það til mikils sóma fyrir alla
þá mörgu, sem hlut eiga að
máli, að heimili fyrir vangefna
er risið á Akureyri og er að
fullu nýtt.
- Fulitrúafundur
(Framhald af blaðsíðu 1)
þessa fólks almennt verður
meiri en verið hefur og því
mun það gera kröfur um víð-
tækara úrval atvinnutækifæra
og þjónustu en nú er fyrir
hendi.
2) Atvinnuvegir utan Reykja
nessvæðisins eru einhæfir og
horfur eru á áð framleiðniaukn-
ing verði mjög mikil á næstu
árum í þeim atvinnugreinum,
sem hinir strjálbýlli landshlutar
byggja nær alla afkomu sína á,
þannig að þó framleiðsla aukist
til muna fjölgi fólki ekki í þess-
um atvinnugreinum.
3) Þjónustugreinarnar, sem
taka munu til sín mjög veru-
legan hluta viðbótar vinnuafls,
vaxa nær eingöngu á Reykja-
nessvæðinu en eru mjög van-
þróaðar utan þess, sem er ein
meginástæða búseturöskunar.
4) Rík tilhneiging til að stað-
setja öll ný stóriðjufyrirtæki og
önnur ný og þýðingarmeiri á
Reykjanessvæðinu.
5) Mismunur á aðstöðu til
menntunar, þjónustunota og
hverskyns menningarlífs á
Reykjanessvæðinu og í öðrum
hlutum fer vaxandi.
6) Raunhæfur skilningur
þjóðarinnar á gildi jafnvægis í
byggðaþróun er of lítill.
7) Mótun og framkvæmd
byggðastefnu hefur ekki fengið
þann sess í stjórnkerfi ríkisins
sem henni ber og bráðnauðsyn-
legt er að hún fái.
m. Sérstakra aðgerða þörf.
Fundurinn telur, að verði
ekki stefnubreyting geti horft
til landauðnar á Vestfjörðum
og hlutum Norður- og Austur-
lands og stöðnunar hinna líf-
vænlegustu staða og byggðar-
laga þessara landshluta samfara
því, að vandamál offjölgunar
fara sívaxandi á Reykjanes-
svæðinu. Slík þróun mun valda
þjóðfélaginu stórtjóni, efnahags
lega sem félagslega, og er mikið
þjóðfélagslegt átak réttlætan-
legt til að snúa henni við. Fund
urinn skorar á þá, sem fyrst og
fremst bera ábyrgð á velferð
Dagskrá kvöldfagnaðarins á
sunnudaginn er óvenjulega fjöl-
breytt og vönduð, sjá auglýs-
ingu á öðrum stað. Er því
treyst, að bæjarbúar fjölmenni
og styrki með því Styrktarfélag
vangefinna á Norðurlandi í
starfi. Kvöldfagnaðinn undir-
búa: Kolbrún Guðveigsdóttir,
Anna Antonsdóttir, Rebekka
Guðmann og Ragnheiður Sig-
urðardóttir. □
landshluta
íslenzku þjóðarinnar, alþingis-
menn og ríkisstjórn, að hefja nú
þegar undirbúning stórátaks til
að tryggja jákvæða og liag-
kvæma þróun byggðar í land-
inu og hafa að fyrirmynd mark-
vissar aðgerðir sumra nágranna
þjóða okkar.
Fundurinn telur að stefna
beri að fullkoninu jafnvægi
fólksflutninga að og frá Reykja
nessvæðinu, enda búa þar nú
nær 60% þjóðarinnar og fólks-
fjölgun á svæðinu kappnóg án
aðflutninga. Telja má að ekki
sé teljandi hætta á hnignun
byggðar á Suður- og Vestur-
landi, frekar séu horfur á hinu
gagnstæða vegna stórfelldra
samgöngubóta þessara lands-
hluta við Reykjanessvæðið. Hið
raunverulega byggðavandamál
á íslandi snýst því fyrst og
fremst um byggð á Vestfjörð-
um, Norðurlandi og Austur-
landi.
(Framhald af blaðsíðu 8)
örvandi liönd í stjórnarandstöð-
unni. Fyrir nokkrum döguni
segir í Morgunblaðinu, Reykja-
víkurbréfi, um verkefni Sjálf-
stæðisflokksins: „að það þurfi
að draga enn skýrar fram í dags
ljósið þann ágreining og það
sundurlyndi, sem ríkir innan
ríkisstjórnarinnar.“ Innan Sjálf
stæðisflokksins styður hver ann
an í þessari gömlu iðju: að láta
nú ganga róginn. Geta menn
fengið það enn betur staðfest
með því að lesa íhaldsblöðin í
landinu og lilusta á útdrátt for-
ystugreina í blöðum sama
flokks.
VIÐTALSTfMI BÆJAR-
FULLTRÚA
Það hefur ráðizt svo, að bæjar-
fulltrúar Framsóknarmanna
hér á Akureyri hefðu ákveðinn
viðtalstíma í Hafnrastræti 90,
næstu vikurnar, þar sem bæjar
búar geta borið fram spurning-
ar sínar um bæjarmálin og rætt
um þær. Ber að fagna þessu, því
f rá happdrætti Styrkt-
arfélags Yangefinna
FYRIR nokkru voru happ-
drættismiðarnir með einkennis-
stöfum bifreiða póstlagðir til
bifreiðaeigenda um land allt,
ásamt tilmælum um að þeir
yrðu keyptir til stuðnings hinu
góða málefni: liælisbyggingum
vangefna fólksins. Vegna sí-
felldra breytinga á heimilisföng
um bifreiðaeigenda, eigenda-
skipta og hinnar hröðu aukn-
ingar á bílaeign landsmanna, er
ómögulegt að tryggja að allir
happdrættismiðarnir komist til
skila. Þess vegna eru það ein-
dregin tilmæli umboðsmanna
happdrættisins, að þeir, sem
"'ekki hafa fengið sína miða, til-
kynni það næsta umboðsmanni,
svo að hægt sé úr að bæta.
Umboðsmaður fyrir Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarsýslur,
Akureyri og Húsavík er Jóhann
es Oli Sæmundsson, Lönguhlíð
2, Akureyri (sími 12331). Hjá
honum fást einnig „lausir mið-
ar“ (A og Þ miðar). Menn ættu
sem flestir að kaupa þessa miða.
Málefnið er gott og vinningarn-
ir glæsilegir: Fjórir bílar. Eins
og áður verður dregið á Þorláks
messu. Gleymið svo ekki AÐ
MIÐI ER MÖGULEIKI til að
eignast nýjan bíl fyrir aðeins
150 krónur og vinningarnir
skattfrjálsir.
að líklegt er, að margar spurn-
ingar um hin fjölþættu mál
bæjarins brenni á vörum fólks.
Þá ætti það ekki síður að vera
nauðsynlegt, að bæjarfulltrúarn
ir kynnist viðhorfum fólksins
til hinna ýmsu mála.
ÓGÆTNIR ÞJÓFAR
Þjófnaður er talsvert tíðkaður
hér á landi, og eru aðferðir
manna oft hinar furðulegustu
og ekki allar fagrar. Sumir láta
sér nægja lítið en aðrir eru
stórtækir. Nýlega stálu íslenzk-
ir sjómenn fimm bílum í Fær-
eyjum, og fer namnast á milli
niála, að það hefðu þeir ekld
gert alls gáðir. Þetta var nú
heldur ógætilegt. Litlu gætnari
var þjófur einn í Reykjavík á
dögunum, sem var nýhúinn að
stela peningakassa. Hann gekk
með kassann langa stund í hend
inni og var síðast handsamaður,
sem æði grunsamlegur. Við
rannsókn kom í ljós, liver koss-
ann átti og áð liann var ekki i
liöndum eigandans. \,
S. V. N.
SMÁTT & STÓRT