Dagur - 16.08.1978, Page 4

Dagur - 16.08.1978, Page 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON Blaöamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr : JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Sól og sumar Skylt er að minnast þess með þakk- látum huga, að hið mikla og dýrlega ævintýri norðlensks sumars hefur enn gerst. Framan af sumrinu var veðr- áttan svo köld, að gróðurinn átti erfitt uppdráttar og menn voru uggandi um hag landbúnaðarins vegna grasbrests og heyleysis. En loks hlýnaði og síðan hefur hver dagurinn verið öðrum betri. Gróður túna og kartöfluakra tók vaxtarkipp og á örfáum dögum hafði vöxturinn náð meðallaginu. Til viðbótar hefur verið svo hagstæð tíð, að margir bændur hafa lokið heyskap og fengið góða uppskeru að vöxtum og gæðum. Þennan tíma hefur sveita- fólk lagt nótt við dag við að bjarga hinum verðmæta afrakstri og hafa undanfarnar vikur sannarlega verið bjargræðistími búskaparins. Þess sjást einnig glögg merki á sama tíma, hve þéttbýlisfólk lærir smám saman að njóta sumarsins í frístundum sínum á heimaslóðum, meira og betur en áður, með göngu- ferðum eða ferðalögum um nágrenn- ið, með útivist, náttúruskoðun og heilsurækt fyrir augum, þar sem bæði styrkjast fjölskyldu- og átthagabönd. Fjöldi fólks hvílist, hressist og endur- nærist í sumarleyfum sínum á heima- slóðum, ásamt ferðalögum um land sitt. Til samanburðar við sólarlanda- ferðir hefur víðförull maður látið þess getið að hér á landi sólbakist menn minna en t.d. á Spáni en auðgi meira sál sína. Eitthvað svipað hafa margir komist að raun um á síðustu tímum, að þrátt ágæti hópferða til fjarlægra landa að vetrinum, sé smalamennska ferðaskrifstofa mjög í ætt við fyrri tíma að því leyti, að ávinningurinn sé fremur smalanna en þeirra, sem smalað er. En menn njóta einnig sumars og sólar við störf sín á sjó og landi, við það að bjarga heyjum og við það að afla fiskjar í svo stórum stíl, að mót- taka hans hefur reynst torveid. Með tækni og dugnaði skila fiskimið og gróður mold miklum verðmætum í þjóðarbúið og hver vinnandi hönd hefur næg verkefni. Allt eru þetta góð og þakkarverð tíðindi. En sólarlitlir dagar munu nú vera hjá mörgum stjómmálamanninum, sem við þessi hagstæðu skilyrði allrar náttúru og kaupgleði viðskiptaþjóða, era að gera úttekt á ýmiskonar heimatilbúnum vanda, með tilliti til myndunar nýrrar ríkisstjórnar. Megi sólin einnig lýsa þeim fram á veginn. Juhan Isaksson frá Sanvo í Finnlandi Verðlagið hér á landi er hræðilegt Um það leyti sem Dagur var að fara í prentun f síðustu viku komu um eitt hundrað skátar til bæjar- ins. Þeir voru frá Danmörku, Færeyjum, Noregi, Finnlandi og íslandi og höfðu dvalist upp á há- lendinu í vikutíma. Þetta var hress hópur og fólkið átti það sameig- inlegt að vera skátar, vilja skoða ísland - fræðast um iand og þjóð og síðan og ekki síst að kynnast hverjir öðrum - viðhorfum og skoðunum. Hjá Hvammi, bæki- stöðvum skáta á Akureyri, hittum við að máli Juhani Isaksson frá Sauvo í Finnlandi. Juhani er meðlimur í skátasveit sem ber nefnið Sauvojapojat - hvað svo sem það kann að þýða. Juhani kom hingað til lands í lok júlí og ságði að það hefði verið tvennt sem réði því að hann kom til íslands. f fyrsta lagi var það af ævintýralöngun og áhuga á að hitta skáta frá öðrum lönd- um og í öðru lagi er erfitt og dýrt að fara á eigin spýtur frá Finn- landi til íslands. „Hér á landi kom mér ekkert sérlega á óvart, annað en verð- lagið, það er hræðilegt“, sagði Juhani. „Ég hef lesið mikið um ísland og vissi í stórum dráttum við hverju var að búast, en hitt er svo aftur annað mál að það er gjörólíkt að sjá og geta þreifað á. Hvað ferðalaginu viðkemur var ég svolítið undrandi á að við þurftum að taka allt með okkur t.d. var lítið um vatn. Annars heppnaðist ferðin vel og ég er ánægður með hana“. Samnorrænt skátamót á NA-landi VULCAN PROJEKT ISLANDI978 'Mtéí Vegalengdin samsvaraði f jarlægð miðbaugs frá norðurpól Samnorrænu skátamóti lauk á Akureyri f sfðustu viku. Mót þetta verður að teljast mjög óvenjulegt, en þátttakendur í því voru um eitthundrað og gengu skátamir um svæði sem afmarkaðist af Mývatni, Jökulsá á Fjöllum, Dyngjujökli og Skjálfandafljóti. Þeir skoðuðu náttúm lands- ins og athuguðu m.a. plöntulff, hraun- og öskulög og vom þær athuganir ekki alveg út í bláinn, þvf skátarnir fengu verkefni frá Norrænu eld- fjallastöðinni og Náttúmvísindadeild Háskóla íslands. í tvo daga dvöldu skátarnir f Mývatnssveit og undirbjuggu ferðina, þeim var kynnt jarð- og náttúmfræði svæðisins og sýnt hvemig ætti að leysa verkefnin. Þeir gengu um f fimm daga og komu til bæjarins fyrir réttri viku. Þess má geta að tölfróðir menn hafa reiknað út að heildarvegalengdin sem skátarnir gengu sé álfka og frá norðurpólnum allt suður að miðbaug. Skátarnir vom að koma úr sundi og ætluðu að setjast að ríkulegum málsverði f Hvammi er tíðindamann Dags bar að garði. Þar hitti blaðam. að máli Ingólf Armannsson, skáta og kennara, en hann átti sæti í undirbúningsnefnd. „Hugmyndin að þessu fyrir- tæki varð til fyrir þremur árum í sambandi við alþjóðamót skáta er haldið var í Noregi. Starfslið mótsins var á aldrinum 17 til 25 ára og var frá öllum Norðurlönd- unum. Okkur datt í hug að koma á enn frekara samstarfi milli fólks á þessum aldri og haft var sam- band við Norrænu eldfjallastöð- ina um hugsanlegt skipulag. Guðmundur Sigvaldason og Ey- þór Einarsson hafa starfað með undirbúningsnefndinni að skipu- laginu og lögðu þeir til verkefni í jarðfræði og náttúrfræði", sagði Ingólfur. Þátttakendur voru alls 98 auk 10 fararstjóra. Þeim var skipt niður í 25 hópa og voru fjórir í hverjum hópi. Annarsvegar var gengið um svæðið frá Mývatni og suður fyrir Öskju og hinsvegar var farið um Kverkfjallasvæðið. Undir lokin var sá hópur er dvaldi við Kverkfjöll ferjaðuryfir Jökulsá og síðustu tvo dagana dvöldu skátarnir í Grafarlöndum. „Aðallega fengu skátarnir verkefni í sambandi við náttúru- fræði og t.d. átti hver hópur að rekja, og færa inn á sérstök kort, tvær plöntutegundir sem fundust á svæðinu. Einnig voru könnuð öskulög á ýmsum stöðum og gáfu þátttakendur upplýsingar um hvar þau væru að finna, sagði Ingólfur. „í hópnum var þó- nokkuð af jarð- og grasafræðing- um, auk fólks sem er að nema þessi fræði. Flestir voru á aldrin- um 17 til 25 ára, en nokkrir voru eldri og aldursforsetinn mun hafa verið tæplega sextugur.“ „Annarsvegar var tilgangur ferðarinnar að gefa skátunum VULCAN PROJEKT ISLANDI978 'Mtéí VULCAN ISLANDI978 WW Hér má sjá hóplnn (brekkunnl vestan vlð Hvamm. nokkrum manni Það var ekki hægt að sjá þreytu á Mynd: á.þ. Ingólfur Armannsson áttl sæti í undirbúningsnefnd. Myndir: á.þ. tækifæri að á reyna sig við óvenjulegar aðstæður og um leið erfiðar. Allir hóparnir voru þannig skipaðir að hvert landi átti þar aðeins einn fulltrúa, þannig að fólkið fékk þama gott tækifæri til að kynnast náið. Hinsvegar var tilgangurinn sá að gefa þátttak- endum innsýn í jarð- og náttúru- fræði svæðisins. Allir hóparnir skiluðu skýrslum um ferðina ogý síðar verður unnið úr þeim“ sagði Ingólfur Ármannsson að lokum. Gekk oft erf ið- lega að svara — sagði Danfríður Skarphéðinsdóttir frá Reykjavík „Ástæðan fyrir því að ég fór í þessa ferð er e.t.v. sú að maður drifur sig ekki af sjálfsdáðun og má því ekki missa af svona tæki- færi“, sagði Danfríður Skarphéð- insdóttir - úr Kráká-sveit - Reykjavík. Á daginn gekk Dan- fríður með þremur karlmönnum, einn var frá Noregi, annar frá Færeyjum og hinn þriðji frá Finn- landi en á kvöldin sameinuðust þau öðrum flokkum. Danfriður sagði að samstarfið hefði gengið vel og þetta var harðsoðin klfka. Danfríður sagði, að eftir ferða- lag af þessu tagi horfði hún öðr- um augum á landið, en hinir er- lendu samferðamenn spurðu hana og aðra íslendinga í þaula um það sem fyrir augu bar og vafðist löndum vorum oft tunga um tönn. „Otlendingarnir voru hér í skoðunarferð, en ég held að íslendingamir hafi yfirleitt farið í ferðina vegna göngunnar", sagði Danfríður. „Við gerðum ýmislegt í ferðalaginu og ég hef bæði haft gagn og gaman af henni". K ij M V5 Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup: Barátta fyrir friði á jörðu einkenndi starf páfa Séra Pétur Sigurgelrsson, vfgslubiskup, ásamt elglnkonu slnnl, Sólveigu, í Páfagarði. Blaðið óskaði þess við vígslubisk- upinn á Akureyri, séra Pétur Sig- urgeirsson, sem verið hefur í Páfagarði, að hann segði stutt- lega frá heimsókn sinni þangað. Varð hann góðfúslega við þeim tilmælum. Páll páfi 6. átti stóran þátt í því að efla skilning og bræðraþel þjóða á milli. Páfa er minnzt um þessar mundir með virðingu og þakklæti um allan heim. Það var fyrir tæpum 5 árum, sem okkur hjónunum veittist sú ánægja og heiður að eiga stutt viðtal við páfann, þar sem hann dvaldi á sumarsetri sínu Castel- gandolfo skammt frá Róm. Þar var Páll páfi, er hann andaðist sunnudaginn 6. ágúst. Eins og nærri má geta vorum við hjónin nokkuð kvíðin að eiga að mæta þessum leiðtoga nær 500 milljón manna. Við biðum komu hans í móttökusal og brátt birtist páfinn í dyrunum með fylgdarliði sínu. En hann tók burt allan kvíðann með því að ganga til okkar hógvær, brosandi og með útréttar hendur. Samtalið við páfann snérist að mestu um bænina. Páfi sagðist eitt sinn fyrr á árum hafa komið til íslands á leið til Kanada. Við fundum, að það andaði hlýtt til landsins frá hjarta hans. Hann sagðist biðja fyrir Islandi og þjóðinni. Og hann bað okkur um að minnast sín í fyrirbæn. Sam- talinu lauk þannig, að við báðum með honum Faðir vor. Á meðan hélt hann um hendur okkar. Að skilnaði gaf hann okkur og börn- um okkar minnispening og helgi- myndir. Páll páfi var hlýr og alúðlegur maður í allri framgöngu sinni. Hann er einn sá auðmjúkasti maður sem eg hefir fyrirhitt um ævina. Kaþólska kirkjan lítur á embætti páfans þannig að páfinn sé arftaki Péturs postula. Páll 6. var 261. páfinn í þeirri röð. Páll 6. kom á páfastól 1963. Þá gerðist hann yfirmaður 470 millj. kristinna manna. Kaþólska kirkj- an er svo fjölmenn miðað við aðrar kirkjudeildir, að nærri læt- ur að helmingur allra kristinna manna tilheyri þeirri kirkju. Bar- átta fyrir friði á jörð og einingu kristninnar einkenndi einkum starfsferil Páls 6. Segja má, að hann hafi brotið blað í sögu páfadæmisins með því að ferðast vítt um lönd og álfur, en slíkt hafði eigi áður þekkst. Páll páfi heimsótti þing Sameinuðu þjóð- anna og flutti þar eftirminnilega ræðu um frið og sátt meðal manna. Mikill söknuður ríkir nú innan kaþólsku kirkjunnar, eins og greinilega hefur komið í ljós við líkbörur páfans. Það gleymdist engum, sem upplifðu það, að vera í nærveru hans. Áhrifin af heim- sókninni miðvikudaginn 13. sept. 1973 eru kærleiksrík, hlý og hjartanleg. Enn má kenna ylinn af handtaki og góðhug páfans. Castelgandolfo er bygging á hæð, sem gengið er upp til þegar farið er á páfafund. Þennan sama dag hélt páfinn sinn vikulega fund í 8 þúsund manna sal, sem var þéttskipaður. Þegar við hjón- in fylgdumst með fólkinu upp hæðina, varð mér ósjálfrátt hugs- að til mannfjöldans, sem hélt upp fjallið forðum og hlýddi á Fjall- ræðuna af munni Frelsarans sjálfs. Eg hlaut að hugleiða kær- leiksstrauminn, er þaðan kom, hið lýsandi af í sálum manna eftir nær tvær árþúsundir. „í myrkrin út þín elska kallar, og allur leiftr- ar geimurinn." Verk hins látna mannvinar eru þeirrar birtu og blessunar. Markaregn Þriðjudaginn 8. ágúst léku á Ak- ureyrarvelli KA og Þór í meist- araflokki. Var þetta seinni leikur liðanna í Akureyrarmóti, og hafði Þór unnið fyrri leikinn 3-2. KA menn hófu leikinn með mikilli sókn og á elleftu min gefur Guð- jón boltan inn í teiginn en þar er Sigurbjörn fyrir og gefur á Ár- mann sem sendir boltan viðstöðu- laust í netið. Það var ekki fyrr en á 24. mín sem Þórsarar komust í hættulegt færi, en þá spilar Jón Lárusson af sér tvo varnarmenn KA og skýtur föstu skoti, efst í hornið. Óverjandi fyrir Þorberg markvörð. Á 27. mín voru Þórsarar í sókn og Sigurður Lárusson fær háan bolta inn í teiginn og skallar boltann í netið. Þórsarar ná þar með forystu og auka hana með marki Sigþórs Ómars eftir varn- armistök hjá KA-mönnum. Á 32. mín voru Þórsarar í sókn og Jón Lárusson rekur endahnútinn á sóknina með lúmsku skoti, 1-4. Einni mínútu síðar þegar KA-menn eru í skyndisókn er Elmari Geirssyni brugðið í teign- um og dómarinn dæmir víta- spymu. Eyjólfur tekur spyrnuna og skorar örugglega 2-4. Það var ekki fyrr en á 37. mín sem Þórs- urum tókst að skjóta framhjá góðum markverði KA, Þorbergi. Var þar að verki Óskar Gunnars- son. Seinni hálfleikur var rétt byrjaður þegar Óskar bætti sjötta marki Þórs við, 6-2. Það var ekki fyrr en á 15. mín sem Ragnar markvörður Þórs mátti hirða boltann úr markinu. Það mark skoraði Óskar Ingimundarson eftir að Ragnar missti sjónar af boltanum. Á 20. mín fengu Þórs- arar aukaspyrnu sem Sigurður Lárusson skoraði beint úr. Stuttu seinna skoraði KA, og var þar að verki Óskar Ingimundarson. Fallegt mark. Tveimur mínútum síðar var KA aftur í sókn og Ár- manni Sverrissyni er brugðið í markteignum. Eyjólfur Ágústs- son skoraði örugglega hjá Ragn- ari markverði í vítinu. Var þetta síðasta mark leiksins sem lauk með sigri Þórs, 7 mörk gegn 5 mörkum KA. Fréttir úr starfi HSÞ Ráðinn hefur verið þjálfari hjá H.S.Þ. í frjálsum íþróttum. Er það Höskuldur Goði Karlsson kennari að Reykjaskóla. Hann mun þjálfa héraðslið HSÞ í frjálsum íþróttum og einnig mun hann fara milli félaga og vera með æfingar hjá þeim. Undanfarin ár hefur Héraðs- sambandið haft sumarbúðir fyrir unglinga. Að þessu sinni voru þær að Laugum og stóðu í 10 daga. Þátttakendur voru 47 úr öllu héraðinu, og má það teljast gott. Sumarbúðir er nauðsynlegur liður í starfinu, því þar fá unglingar úr héraðinu tækifæri að hittast og kynnast um leið og þeir fá tilsögn í alls konar íþróttum og félagsstörf- um. Víðavangsboðhlaup H.S.Þ. fór fram sunnudaginn 18. júní. Var þetta í fyrsta skipti sem slíkt hlaup fór fram. Hlaupið var frá Tjörn í Aðaldal til Húsavíkur og er vegalengdin um 21 km. Hver sveit var skipuð 10 mönnum. Alls tóku þátt í þessu hlaupi 8 sveitir frá 5 ungmennafélögum. Vakti athygli að bæði umf. Reykhverfingur og umf. Tjör- nes sendu sveitir í hlaupið því á báðum þessum stöðum eru íbúar ekki margir. Úrslit urðu þau að knatt- spyrnudeild Völsungs vann og hljóp leiðina á 1 klst. og 17 mín., önnur varð sveit frjálsíþrótta- deildar Völsungs og þriðja varð sveit ungmennafélagsins Gaman og alvara. Þriðja bestan tíma hlaut stúlknasveit H.S.Þ. en sveitin var ekki fullskipuð. Yngsti þátttakandinn var aðeins 7 ára gamall. Margir fylgdust með hlaupinu sem gekk í alla staði mjög vel. Órétt' lát úrslit Sl. föstudagskvöld léku á Akur- eyri KA-Keflavík í I. deildinni í knattspyrnu. Ekki voru liðnar nema tvær mínútur þegar Keflvík- ingar höfðu gert tvö mörk f röð án þess að KA tækist að svara. Fyrra markið skoraði Rúnar Georgsson og það seinna Steinar Jóhanns- son. KA-menn gáfust þó ekki upp og á 12. mín átti Gunnar Blöndal hörkuskot að marki fBK en góður markvörður, Þorsteinn Bjarna- son, varði vel eins og svo oft í leiknum. Á 15 mín fengu KA-menn aukaspyrnu inn í víta- teig og Sigurbjörn skaut knettin- um í samskeytin og út. Stuttu scinna áttu KA-menn tvö dauða- færi sem Þorsteinn átti ekki f erf- iðleikum með. Á 35. mín átti Ólafur Júlíusson hörkuskot að marki KA en Þorbergur varði meistaralega. 5. mín síðar skor- uðu Keflvíkingar sitt þriðja mark eftir seinagang í vörn KA og má skrifa það mark á reikning varn- armanna liðsins. Þarna var Rúnar aftur að verki. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks átti Gunnar Gunn- arsson dauðafæri, stóð fyrir opnu marki, en hann skaut langt yfir. Framan af var síðari hálflcikur tilþrifalítill en á 16. mín átti Elmar Geirsson lúmskt skot að marki ÍBK, en Þorsteinn varði vel. Á 30. mín áttu Keflvíkingar skyndisókn og varamaður liðsins, Þórður Karlsson, skaut hörkuskoti að marki KA, en Þorbergur var ekki á réttum stað og boltinn lenti inni, 0-4 fyrir ÍBK. A 34. mín komst Gunnar Blöndal einn innfyrir vörn IBK en markvörðurinn bjargaði tímanlega. Aðeins mínútu síðar voru Keflvikingar í sókn og besti maður IBK liðsins, Rúnar Ge- orgsson skallaði beint upp í horn- ið, óverjandi fyrir Þorberg mark- vörð. Það sem eftir var leiksins áttu KA-menn tvö dauðafæri en heppnin var með sunnanmönnum, boltinn vildi ekki inn. Mörkin urðu 5 hjá Keflvíkingum gegn engu marki KA-manna. Tölurnar segja ekki allt því KA var einlægt óheppið með sín tæki- færi en ÍBK skoraði úr sinum. ÞROTTUR SIGRAÐI ÞOR 1 -O Sl. laugardag léku á Akureyrar- velli Þór-Þróttur I II. deild i knattspyrnu. Þórsarar hófu leik- inn með mikilli sókn og á 5. mín fengu þeir gott færi sem þeir mis- notuðu. Það var sama sagan á 9. mfn. en boltinn vildi ekki inn. Einni mínútu sfðar áttu Þórsarar skalla í þverslá en heppnin var með Þrótturum. Það var ekki fyrr Nýr þjálfari Nú hefur verið ráðinn þjálfari hjá II. deildarliði Þórs í handknattleik. Er það Arnar Guðlaugsson handknattleiksmaður úr FH og er hann væntanlegur til Akureyrar 10. septem- ber. ••«••••••••••••••••••« en á 20. mín sem hætta skapaðist við mark Þórs en þá kom hár bolti af vinstri kanti sem stefndi yfir að markinu en öruggur markvörður Þórs sló boltann yfir. Það sem eftir var hálfleiksins skiptust liðin á um að sækja og sköpuðu sér góð færi. En marklaus hálfleikur var stað- reynd og var meiri kraftur í leik- mönnum Þróttar í fyrri hálfleik. Fyrstu 10. mín. síðari hálfleiks skiptust liðin á um að sækja en nú var meira spil hjá Þórsurum. Á ll. mín skoruðu Þróttarar eina mark leiksins, eftir að hafa tætt í sundur vörn Þórsara og sýnt fall- egt spil. Þarna var vörnin hjá Þórsurum illa á verði. Það sem eftir var leiksins voru Þórsarar meira í sókn og áttu nokkur dauðafæri. En boltinn vildi ekki inn og ósanngjörn úrslit leiksins urðu því 0-l fyrir Þrótt, því Þór sótti meira allan leikinn. Kæstu leikir N.k. laugardag leika í I. deild í Vestmannaeyjum ÍBV og KA og hefst leikurinn kl. 15.00. Nú verða KA-menn að vinna þennan leik ef þeir ætla sér að leika í I. deild næsta sumar. Sama dag fara Þórsarar suður og keppa við Hauka í II. deild á Hvaleyrarholtsvelli. Þetta verður baráttuleikur beggja liða og sér- staklega Þórsarar sem verða að vinna leikinn ef þeir ætla sér að berjast um sætið í I. deild. 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.