Dagur - 16.08.1978, Page 8

Dagur - 16.08.1978, Page 8
DAGUR Akureyri, miövikudagur 16. ágúst 1978 ÞJÓNUSTA FYRIR OLÍUSLÖNGUR og BARKA PRESSUM TENGIN Á FULUKOMIN TÆKI VÖNDUÐ VINNA Við svörum gagnrýni með öflugu starffi „Æfingar á fyrsta verk- efninu hefjast 21. ágúst. Það er: „Þess vegna skiljum við“, eftir Guð- mund Kamban,“ sagði Oddur Björnsson nýráð- inn leikhússtjóri Leikfél- ags Akureyrar í samtali við Dag. „Við höfum lagt á það áherslu að verkefnaval leikhússins væri fjölbreytt og mánnskapurinn verði vel nýttur. Þá verðum við með leiklistarnámskeið fyrir áhugamenn, þannig að það verð- ur mikið líf í tuskunum. Strax að lokinni fyrstu frum- sýningu í október, verða hafnar æfingar á Skugga-Sveini. Það leikrit ætlum við sem fjöl- skyldu-leikrit, því það hefur of mikið verið gert af því undanfarin ár, að flytja inn ævintýri, en við - segir Oddur Björnsson nýráðinn leikhússtjóri viljum reyna að breyta því aðeins núna.“ Og nú er búið að ráða sex leik- ara? „Já, við teljum þetta ákaflega sterkan hóp. Leikararnir eru á ýmsum aldri, þannig það þeir ættu að nýtast vel. Annars þarf ekki að kynna þessa leikara fyrir Akureyringum, þeir þekkja þá alla af góðu. Það bætist þarna nýr maður inn í hópinn, Viðar Egg- ertsson, sem er ákaflega efnilegur leikhúsmaður og Akureyringur þar að auki.“ Nú hafa orðið nokkur blaða- skrif um málefni LA ? „Okkur er ljóst að mikið starf er framundan, og þar má ekkert gefa eftir. Ég álít að blaðaskrifin hafa stafað af fljótræði og þau voru alltof neikvæð. Ég las um þessi mál í Vísi, þegar ég var að koma norður í flugvélinni, og þar voru alls kyns rangfærslur, tíma- skekkjur og svo frv. Svona nei- kvæðum skrifum teljum við ekki vert að svara með öðru en dug- miklu starfi", sagði hinn nýráðni leikhússtjóri að lokum. Hlaut f jársekt og fangelsisdóm Á laugardag kom varðskip til Akureyrar með norska hrefnubátinn Andfjord, en hann var tekinn að ólöglegum hrefnuveiðum á Skagagrunni og að sögn talsmanna Land- helgisgæslunnar munu skipverjar hafa skotið eina hrefnu. Dæmt var í málinu á sunnudag og var skipstjórinn dæmdur til að greiða 50 þúsund króna sekt og auk þess hlaut hann 45 daga fangelsisdóm. Afli og veiðarfæri voru gerð upptæk, en verðmæti hvorutveggja nemur 1,5 milljón króna. mynd:áþ Hljómsveitir Tónlistarskóians heimsækja vinabæi Akureyrar Um mánaðamótin munu hljóm- sveitir Tónlistarskólans fara í hljómleika- og kynningarferð til vinabæja Akureyrar í Noregi og Danmörku. Verða þar m.a. heim- sóttir • tónlistarskólar bæjanna og tekið þátt í samlcik með nemendum þeirra. Undirbúningur ferðarinnar hefur nú staðið í tæpt ár og hafa meðlimir hljómsveitanna, aðstand- endur þeirra og kennarar Tónlist- arskólans lagt á sig mikla vinnu til að allt mætti takast sem best. Til þess að kynna bæjarbúum starfið og um leið til að afla fjár í ferðasjóð ætla hljómsveitirnar að efna til tónleika í Akureyrarkirkju n.k. fimmtudag og mánudag. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Á þeim fyrri kemur einkum fram lúðrasveit skólans ásamt einleikur- um á trompet og blokkflautur með strengjaundirleik og á seinni tón- leikunum verður blönduð sveit og strengjasveit. Auk þess verður org- elleikur á báðum tónleikunum. Á efnisskránum eru sígild verk, létt tónlist, íslensk og erlend þjóðlög svo eitthvað sé nefnt. Bæjarbúar og gestir eru hvattir til að mæta og kynna sér hið viðamikla starf Tón- listarskólans. Þátttakendur í ferðinnl komu saman í Laugaborg um sl. helgi. Hér má sjá Magnús Kristinsson, kennara, að fræða þá um hvernig best sé að haga sér í útlandinu. Mynd: á. þ, 0 lllt er að mætast á mjórri brú Hin gamla víkingslund og frekja hefur ekki látið deigan síga í aldanna rás og má og menn ræddu í ákafa hvor ökumannanna ætti að gefa sig og að lokum ákvað kapp- akstursmaðurinn að „lúffa“, en ekki var hann hýr á sviplnn og er andstæðingurinn ók framhjá fékk hann safn ókvæðisorða í vegarnesti. finna merki hvorutveggja á degi hverjum og þá sérstak- lega í umferðinni. Þær virðast menn fá útrás fyrir þær hvatir aSjfe Co|arnj sem forfeður okkar hafa verið ™ dýrkaðir fyrir. vantar Seint sl. laugardagskvöld nálguðust tveir bílar eina Listigarður okkar Akureyr- Eyjafjarðarárbrúna - sinn úr inga er stór og gefur tilefni til hvorri áttinni og þegar sá þess að vera skoðaður lengi. sem stefndi austur á bóginn Margir ferðamenn sækja varð þess var að hann yrði að staðinn heim og er han við- bíða ef haidið væri áfram á frægur um allt land, og jafn- löglegum hraða var hann vel utan landsteina. Þar. aukinn og bíllinn hentist upp má finna sjaldgæfar plöntur á brúna - og sjá - þar var hinn viðs vegar að úr heiminum, bíllinn fyrir og munaðí frá Grænlandi sem Himalaja- minnstu að bílarnir rækjust fjöllum. saman, nokkuð sem hefði Því miður vantar i Listi- þótt fréttamatur. Eins og garðlnn nokkra þjónustu við sauðþráar rollur í réttum alla þá ferðamenn sem heim- neituðu ökumennirnir að sækja staðinn. Þarna þurfa gefa sig, tóku um stýrin svo að vera salerni og önnur hnúarnir hvítnuðu og biðu. hreinlætlsaðstaða og eru Brátt safnaðist saman dálag- viðkomandi yfirvöld hvött til legur floti bíla við brúar- <að bæta úr þessu hið snar- sporðana, mikið var flautað asta. Níu vistmenn Sólborgar húsnæðislausir Sumarið 1975 festi Vistheimilið Sólborg kaup á húseign að Oddeyr- argötu 32 hér á Akureyri. Þá um haustið hófst þar rekstur fjöl- skylduheimiiis fyrir hluta af vist- mönnum Sólborgar, og um leið var hafinn nýr þáttur i starfsemi stofn- unarinnar. Rekstur fjölskylduheim- ilis fyrír vangefna var þá nýmæli héríendis, en vfða í nágrannalönd- um okkar, sérstaklega á Norður- löndunum, hafði þegar fengist mjög góð reynsla af starfrækslu slíkra heimila. Það er nú almennt viðurkennt, að þessi lausn á vistunarvanda vangefinna sé mun eðlilegri og æskilegri, en vistun á stórum stofn- unum. Kemur þar margt til. I fyrsta lagi verða einstaklingunum búin skilyrði til uppeldis og mótunar sem líkjast mjög þeim kjörum sem hinn almenni þegn í samfélaginu nýtur. Tengsl einstaklinganna verða um leið nánari og þeim veit- ist sú öryggiskennd, sem því fylgir að tilheyra smærri heild. En það er eitt af grundvallarskilyrðum eðli- legs þroska og persónuleikaþróun- ar. í öðru lagi ætti nærvera þessa fólks að stuðla að jákvæðri afstöðu almennings til þeirra, sem af- brigðilegir teljast. Sú reynsla, sem fengist hefur af rekstri fjölskylduheimilis Sólborg- ar, er mjög jákvæð. I Ijósi þess ákvað stjóm Sólborg- ar að auka þessa starfsemi og hefur þess vegna seit húseign sína að Oddeyrargötu 32, en í hennar stað voru keyptar íbúðir í fjölbýlishúsi, sem nú er í byggingu. Þær íbúðir verða þó ekki tilbúnar fyrr en næsta sumar. Til að brúa bilið þangað til var ætlunin að taka á leigu húsnæði til þessarar starfsemi, en ítrekaðar tilraunir í þá átt hafa enganárangur borið. 9 vistmenn Sólborgar era því húsnæðislausir og algjört neyðar- ástand framundan ef ekki tekst að fá handa þeim húsnæði nú þegar. Þeir vistmenn, sem hér um ræðir eru allir mjög vel sjálfbjarga og þægilegir í umgengni. Sumir þeirra sækja vinnu út í bæ og aðrir sækja skóla að Sólborg og dveljast þar hluta dagsins. Stjóm Visth. Sólborgar leyfir sér að koma þeirri ósk á framfæri við þá sem e.t.v. hafa yfir að ráða hús- næði til leigu að þeir hafi samband við framkvæmdastjóra heimilisins Bjarna Kristjánsson í síma 21757 eða forstöðumann, Þormóð Svaf- arsson í síma 21754. Jafnframt óskar stjórnin eftir að komast í samband við fjölskyldur eða einstaklinga sem gætu hugsan- lega tekið vistmenn í einkafóstur og vekur um leið athygli þeirra, sem búa í stóru húsnæði á þeim mögu- leika að leigja þessu fólki herbergi og skapa sjálfu sér um leið atvinnu við eftirlit og umsjón þess. Vakin er athygli á auglýsingu er birtist annars staðar í blaðinu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.