Dagur - 11.03.1980, Side 5

Dagur - 11.03.1980, Side 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaóamaóur: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Fiskeldi og landbúnaður Hver væri staðan í frystiiðnaði okkar í dag, ef erlend auðfélög hefðu haft uppbyggingu hans með höndum og hirtu nú af henni hagnaðinn? Því er þessari spurn- ingu varpað fram, að horfur eru nú á að fiskeldi og hafbeit eigi eftir að verða stóratvinnuvegur hér á landi, og aðild útlendinga í upp- byggingu hans hefur verið líkt við það, að útlendingar hefðu annast fyrir okkur uppbyggingu frystiiðn- aðarins. Erlend auðfélög sækja það nú fast, að hafa hönd í bagga með lax- og fiskeldi hér á landi. Mögu- leikarnir í þessum efnum eru nær óþrjótandi og hvergi í heiminum er eins kjörin aðstaða til þessara hluta og einmitt hér. Það er landið sjálft og gæði þess, sem skapa þessi góðu skilyrði til fiskeldis og hafbeitar og skyldra hluta, og með því að veíta útlendingum aðild að þessari auðlind erum við að selja sjálft landið. íslendingar hafa þekkingu sem til þarf og vanti eitthvað á í þeim efnum, er ekkert auðveldara en að afla þess. fs- lendingar hafa einnig fjármagn til þessarar uppbyggingar, á nákvæmlega sama hátt og þegar þeim tókst að byggja upp frysti- iðnaðinn. Nú er verið að stofna almenn- ingshlutafélag til að hægt verði að koma fiskeldi á fót í stórum stíl. Gert er ráð fyrir að ríki, sveitarfé- lög og önnur félagasamtök taki þátt í þessum félagsskap og með því móti verði unnt að afla þess fjár, sem til þarf. Sú röksemd, að ekki sé hægt að gera þetta af neinu viti vegna fjárskorts, nema útlendingar komi inn í myndina, fær ekki lengur staðist. Því skyldu bændur og aðrir eigendur þeirra svæða á landinu, þar sem mögu- leikarnir til fiskeldis og hafbeitar eru hvað mestir, spyrna við fótum gegn erlendri ásælni. Þá er ekki síður mikilvægt, að menn átti sig á því, að þessi at- vinnugrein verður vart talin til landbúnaðar, ef bændur eiga þar engan hlut að máli, en margir líta einmitt til fiskeldis og skyldra greina, sem nokkra lausn á þeim vanda, er landbúnaðurinn á nú við að etja. Það er gott og giit að stofna al- menningshlutafélög og fá ríki og sveitarfélög til samstarfs um stór- aukið átak í fiskeldismálum, en fyrst og fremst verður að hafa samráð við bændastéttina, og bændur mega ekki fyrir nokkurn mun láta sinn hlut í þessu máli. Tomas Ingi Olrich: Nokkur orð um skipulagsmál SÍÐASTLIÐIN tvö ár hafa mikl- ar umræður oróið um miðbæ Ak- ureyrar. Tengjast þær deiliskipu- lagi miðbæjarins, sem enn er í mótun. Hugmyndir um skipulag miðbæjarins hafa verið kynntar bæjarbúum með ýmsum hætti. Þótt margar þeirra teljist til álitamála, er ágreiningur mestur um hafnarmálin. f nokkrum til- lögum arkitektanna, sem unnu að skipulaginu, var gert ráð fyrir varðveislu Torfunefsbryggju og endurbótum á því mannvirki, og mæltu arkitektarnir með þeirri tilhögun. Aðrar tillögur gerðu ráð fyrir að hraðbraut yrði lögð yfir Torfunefsdokkina, en austur- kantur syðri bryggjunnar yrði viðlcgukantur farþegaskipa. Um þetta mál hafa bæði skipulags- nefnd og bæjarstjórn Akureyrar klofnað. Meiri hlutinn vill fylla upp í dokkina; minnihlutinn telur þá ráðstöfun ekki styðjast við gild rök og vill halda dokkinni og end- urbæta hana. Nú hefur verið auglýst eftir at- hugasemdum við það miðbæjar- skipulag sem meirihluti bæjar- stjórnar hefur samþykkt. Ég er í þeim hópi manna sem töldu að bæjarstjóm Akureyrar hefði aug- lýst eftir athugasemdum bæjar- búa af heilindum og af virðingu fyrir skoðunum þeirra, en ekki fyrir sýndarmennsku sakir. Nú hefur komið í ljós að jafn- vel í heiðarleika sínum og virð- ingu fyrir bæjarbúum er bæjar- stjóm klofin. Minnihlutinn, bæj- arfulltrúinn Ingólfur Árnason, ritar dreissuga grein í 9. tölublað Islendings, þar sem ekki er gert ráð fyrir að í skipulagsmálum bæjarins sé til nema einn sann- leikur, sem Ingólfur nefnir af lít- illæti sínu „lögmál lífsins“. Þeir bæjarbúar, sem ekki hafa fengið opinberunina, hafa syndgað gegn lögmáli lífsins og lagt lið skemmdarverkamönnum. Ingólf- ur tilgreinir sérstaklega Jón Björnsson, félagsmálastjóra. Virðist Ingólfur álíta að Jón hafi, sem embættismaður, syndgað gegn bæjarstjóm með því að hafa skoðun á miðbæjarskipulaginu. Rís Ingólfur hæst yfir almúga- menn í grein sinni, þegar hann fetar í fótspor frelsarans og fyrir- gefur félagsmálastjóra Akureyr- arbæjar vegna þess „að hann veit ekki hvað hann var að gera. “ Tómas Ingi Olrich. Ingólfur Árnason veltir því fyrir sér í feitletraðri fyrirsögn, hvort hægt sé að fá menn til að skrifa undir hvað sem er. Bæjarfulltrú- inn hefði að ósekju getað gengið svolítið lengra í „lýðræðisleg- um“ umþenkingum sínum og velt því fyrir sér hvort hægt sé að fá menn til að kjósa hvem sem er í bæjarstjóm; er þá orðið stutt í að efast um gildi þess umboðs sem hann sjálfur hefur til að stjórna málefnum bæjarins. Alþýðufor- ingjum, jafnaðarmönnum og frjálslyndum lýðræðissinnum er frjálst, eins og öðrum mönnum, að segja af sér embætti ef það er byggt á „röngum forsendum". Ég get hins vegar frætt Ingólf á því að það er ekki hægt að fá neinn, hvorki Ingólf Árnason né mig, né Akureyringa, til að skrifa undir hvað sem er, né heldur að kjósa hvern sem er. En þær kröfur geri ég til Ingólfs að hann beri jafn mikla virðingu fyrir öðrum mönnum og hann ber fyrir sjálf- um sér: mega þá allir vel við una. Ingólfur Árnason segir í grein sinni að breyta þurfi aðalskipu- lagi frá 1972 til þess að varðveita megi Torfunefsdokkina og telur undirskriftasöfnun átta árum á eftir tímanum. Hvorug fullyrð- ingin ber vott um að Ingólfur hafi lesið aðalskipulagið eða reglu- gerð um skipulagsmál gaumgæfi- lega. Aðalskipulag fjallar um meginatriði skipulagsmála. Það segir í stórum dráttum til um hvaða brautir skuli vera hrað- brautir og hvar vöruhafnir og að- staða fyrir fiskiskip skuli vera, svo eitthvað sé nefnt. Deiliskipulag gerir, svo vitnað sé í 10. gr. III. kafla gildandi reglugerðar um gerð skipulagsáætlana, „nánari grein fyrir meginatriðum aðal- skipulagsins; .... þar á að sýna legu og breidd bœði núverandi gatna og fyrirhugaðra gatna. “ Ég skil þessa grein reglugerðarinnar svo, að tilfærsla á legu hrað- brautarinnar til vesturs sé ekki brot á ákvæðum aðalskipulags, heldur eðlileg nánari útfærsla vegakerfisins í deiliskipulagi. I aðslskipulagi Akureyrar, sem var samþykkt árið 1975 er fjallað um Torfunefsbryggjur. Þar segir (gr. 4.44.4): „Gert er ráð fyrir að bryggjan verði notuð við farþega- flutninga og skemmtiferðir á sjó, enda er bryggjan skammt frá fyr- irhugaðri umferðamiðstöð og eðli- legt að þessar athafnir séu tengd- ar.“ Varðveisla Torfunesdokkar- innar brýtur ekki í bága við það hlutverk, sem aðalskipulagið ætl- ar Torfunefsbryggjunni, heldur þvert á móti. Ef Ingólfur Ámason kýs nú að halda tryggð við mis- skilning sinn á aðalskipulaginu og reglugerð um skipulagsáætl- anir, þá er enn hægt að benda honum á færa leið til að krækja fram hjá þeim formsatriðum sem honum virðast svo kær. I reglu- gerð er skýrt tekið fram að aðal- skipulag skuli taka til endurskoð- unar eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. Nú eru fimm ár liðin síðan aðalskipulagið var samþykkt og fresturinn til að endurskoða það að renna út. Bæjarstjóm hefur þegar samþykkt að hefja þessa endurskoðun á þessu ári, og á drögum að fjárhagsáætlun þessa árs er veitt þremur milljónum til að endurskoða aðalskipulagið. I grein sinni fullyrðir bæjar- fulltrúinn að allt annað en suður- kantur syðri bryggjunnar á Torfunefi sé ónýtt. Honum láist að geta þess hvaðan honum koma þessar upplýsingar, sem vonlegt er, því þær eru heimatilbúnar. Davíð Arnljótsson, verkfræðing- ur, var fenginn til þess fyrir tæpu ári að gera kostnaðaráætlun um fyllingu Torfunefsdokkarinnar annars vegar, og um endurbætur á austurkanti hins vegar. I skýrslu hans kemur í ljós að engar upp- lýsingar eru til um gildi og ástand mannvirkjanna á Torfunefi, hvorki hjá vita- og hafnarmála- vanrækslu, einu hafnarmann- virkin á Akureyri sem fullnægja þeim öryggiskröfum sem gerðar eru til hafna. Það er ekki tilviljun að Stefán Reykjalín, formaður hafnarstjórnar, hefur ritað nafn sitt á undirskriftalistann ásamt „unglingum og utanbcejarmönn- Ingólfur Árnason bendir rétti- lega á að gert sé ráð fyrir dokk við togarabryggju og telur að sú dokk fullnægi þörfum okkar langt fram á 21. öldina. Má vera, ef dokkin verður gerð. En það er ekki bæj- arsjóður heldur ríkissjóður sem greiðir 75% stofnkostnaðar við þá dokk. Hjá hafnarmálastjórn eru ekki til áætlanir um gerð slíkrar dokkar; bæjarfulltrúinn hefur ekki áttað sig á því að betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi. I grein sinni sakar Ingólfur forvígismenn undirskriftasöfnun- verk gegn bœjarfélaginu“ og full- hefur unnið og áður er getið. Þar er kostnaður við uppfyllingu hafnarinnar metinn á 119 milljónir króna en kostnaður við að styrkja austurkant Torfunefs- dokkarinnar, í þeim tilgangi að varðveita hana, er áætlaður 78 milljónir. Öðrum áætlunum er ekki til að dreifa. Þótt hér sé ein- ungis um að ræða frumáætlun |Sem miðast við tvær ákveðnar ’skipulagstillögur, er ljóst að ásökun Ingólfs byggir ekki á traustari grunni en hans eigin hugmyndaflugi að viðbættri þeirri sjálfsblekkingu sem menn vopnast einatt þegar þeir hafa vondan málstað. Ég hef haft mikið gagn og gaman af þeim umræðum sem orðið hafa um skipulagsmál Ak- ureyrar á undanfömum árum. Er ekki nema eðlilegt að skoðanir séu skiptar um svo flókin mál sem skipulag er í eðli sínu. Allajafnan er það gagnlegt að sem flest rök Mynd sú, sem hér er birt, er sett saman úr Ijósmynd og teikningu. Sýnir Ijósmyndin miðbæ Akureyrar eins og hann leit út fyrir rúmum áratug. Teikningin sýnir höfnina eins og hún getur Iitið út ef dokkin er varðveitt að hluta, en endur- bætt og stækkuð til norðausturs. stjóm né hjá hafnarstjórn á Ak- ureyri. Ingólfur telur að dokkin „full- nœgi ekki lengur þeirri þörf sem hún gerði (sic) í gamla daga. “ Hér er talað undir rós. Ingólfur veit, og aðrir Akureyringar vita, að Torfunefsbryggjumar eru, þrátt fyrir háan aldur og dæmalausa yrðir að þeir vilji „eyða hundruð- um milljóna í óþarfa. “ Hér er, sem endranær, hátt reitt til höggs og meira af kappi en forsjá. Aðeins ein kostnaðaráætlun hefur verið gerð um hraðbrautina við hafn- arsvæðið. Er það sú áætlun sem arinnar um „að vinna skemmdar- Davíð Arnljótsson verkfræðingur komi fram. En drambsemi, rang- j færslur og órökstuddar fullyrð- ingar eru engum til gagns né j sóma. Akureyri 6. mars 1980 Tómas Ingi Olrich. wmiŒmfflmsmssmmmmmmmm Atriði úr Pilti og stúlku. F.v.: Marta Gestsdóttir, Sesselja Ingólfsdóttir, Guðmundur Skúlason, Sigrún Amsteinsdóttir, Svanhildur Axelsdóttir og öm Þórisson. Piltur og stúlka eftir Emil Thoroddsen Leikstjóri: Jóhann Ögmundsson Ungmennafélag Skriðuhrepps ÞAÐ VAR mikið hlegið og mikið klappað i félagsheimilinu á Melum í Hörgárdal s.I. laugardagskvöld er Umf. Skriðuhrepps frumsýndi þar sjónleikinn Piltur og stúlka. Félag- ið hefur um langt skeið staðið fyrir öflugu leikstarfi og hin siðari ár hafa leiksýningar verið fastur liður f starfsemi þess, annað hver ár. Verður það að teljast myndarlegt framtak og þakkarvert, til aukins menningarlífs i sveitinni, af áhuga- fólki f fámennu hreppsfélagi. Ung- mennafélagið hefur jafnan lagt kapp á að vanda eftir föngum til leiksýninganna, t.d. með vali á leik- stjórum. Júlfus heitinn Oddsson leikstýrði hjá félaginu nokkur ár, en tvö sfðustu skiptin hefur Jóhann ögmundsson annast leikstjórn. Þegar það spurðist snemma í vetur að Umf. Skriðuhrepps ætlaði ÞóroddurJóhannsson skrifar um leiklist að sviðsetja sjónleikinn Pilt og stúlku, fannst mörgum að með því færðist félagið of mikið í fang, myndi hreinlega ekki ráða við þetta umfangsmikla verkefni, en frum- sýningin s.l. laugardagskvöld af- sannaði þá spádóma. Piltur og stúlka eftir Emil Thoroddsen, gerist um miðja síðustu öld og er leikritið samið eftir samnefndri skáldsögu afa Emils, Jóns Thoroddsens. Fyrri hluti sjónleiksins fer fram á prest- setri í sveit, þar sem bæði „heldra fólk“ og alþýðufólk kemur við sögu á eftirminnilegan og oft spaugileg- an hátt. Persónurnar eru marg- breytilegar að gerð og líf þeirra snýst um daglegt strit, metnað, auð og ástir. Bráðskemmtileg samtöl eiga sér stað og óvænt tíðindi ger- ast. Seinni hlutinn fer fram í Reykjavík og þar koma inn í myndina nýjar persónur, sem gleðja og auka á fjölbreytni leiks- ins. Ekki er vafi á því að leikstjórinn, Jóhann Ögmundsson, á sinn stóra þátt í því, hversu vel hefur tekist til með þessa leiksýningu, enda eng- inn viðvaningur við leikstjórn, hef- ur m.a. sviðsett Pilt og stúlku á Stykkishólmi. Uppsetning á Pilti og stúlku er viðamikil. Alls eru 22 hlutverk í leiknum, ekkert þeirra mjög stórt, en mörg smá. Leikendur eru alls 17. Sumir þeirra eru orðnir nokkuð sviðsvanir, aðrir stíga nú sín fyrstu spor á leiksviði. 1 heild finnst mér leikendur standa sig vel, þótt ýmis- legt mætti tína til, sem betur mætti fara. Leikendur voru fyrirleitt óþvingaðir í framkomu, framsögn oftast skýr og áhugi til að gera sitt best, leyndi sér ekki, og enginn virtist eiga „slæman dag“ á frum- sýningunni. Hlutverkin eru mörg erfið, önnur eru létt og verðúr að hafa það í huga þegar leikendiír eru gagnrýndir. Af „nýliðunum" fannst mér Svanhildur Hauksdótt- ir, Öm Þórisson, Sigrún Arnsteins- dóttir og Ivar Ólafsson standa sig best. „Gamalreyndir“ leikarar, svo sem Þórður Steindórsson, Dagur Hermannsson, Sesselja Ingólfs- dóttir og Arnsteinn Stefánsson brugðust ekki og skilja eftir sig eft- irminnilegar persónur. Margir hafa lagt hönd að verki við þessa leiksýningu, má þar nefna mikla vinnu við leikmynd, ljósa- búnað, búninga og fleira, allt unnið í sjálfboðavinnu. I viðtali við Jó- hann Ögmundsson leikstjóra kom fram, að samstarf við alla aðila hefði verið einstaklega gott. Fáir aðrir en þeir, sem þátt tækju svona starfi, gerðu sér grein fyrir því, hversu mikil vinna lægi á bak við svona sýningu. Allir voru samtaka, sagði Jóhann, og enginn spurði um laun eða kvartaði um tímaeyðslu. Mér finnst áhuginn fyrir leiklistinni í Skriðuhreppnum hreint ótrúleg- ur, þar ríkir hinn sanni áhugaandi, sagði Jóhann leikstjóri að lokum. Húsfyllir var á frumsýningunni og skemmti fólk sér hið besta. I leikslok voru leikendur og leikstjóri kallaðir fram á sviðið og þakkað með dynjandi lófaklappi, og leik- stjóra færð blóm. Ef fólk vill veita sér glaða kvöld- stund, er óhætt að hvetja það til að hverfa 130 ár aftur í tímann í góðri fylgd leikenda úr UMf. Skriðu- hrepps. — Næsta sýning verður á Mel- um í kvöld, þriðjudag og 3. sýning á f immtudagskvöld. Hermann skorar. Mynd: Ketill. KA sigraði Aftureldingu: Fyrsta deildin er í sjónmáli Á SUNNUDAGINN léku í annarri deild i handbolta KA og Afturelding og var það seinni leikur liðanna. Bæði liðin eru i baráttunni um sæti í I. deild og er það augljóst að aðeins annað liðið kemst upp. Strax I upphafi var harkalega barist hjá leik- mönnum beggja liða og hvergi gefið eftir. Gústaf Baldvinsson skoraði fyrsta markið en Alfreð jafnaði skömmu síðar úr víti. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og munaði aldrei meir en tveimur mörkum á liðunum. I hálfleik var staðan 12-10 KA í vil og hefði munurinn getað verið 6-7 mörk ef Gauti hefði varið betur, en hann varði mjög lítið í fyrri hálfleik. 1 byrjun síðari hálfleiks tókst sunnan- mönnum að jafna (12-12) og eftir það sigu KA-menn fram úr SANNGJÓRN (JRSLIT SIGUR ÞÓRS ALDREI í HÆTTU SL. LAUGARDAG léku í fþróttaskemmunni Þór og Afturelding í annarri deild í handbolta. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði liðin því hvert stig færði Þórsara fjær botninum. Afturelding er í baráttunni um sæti í fyrstu deild ásamt Fylki og KA. Strax í byrjun var hart barist og framan af voru Þórsarar yf- irleitt 1-2 mörkum yfir. I hálf- leik var staðan 13-12 Þór í vil. I seinni hálfleik juku Þórsarar muninn og voru alltaf 3-4 mörkum yfir. Markvarsla beggja liða var góð, sérstaklega í seinni hálfleik. Leiknum lauk með öruggum sigri Þórsara sem skoruðu 24 mörk gegn 19 mörkum sunnan- manna og var sigur þeirra aldrei í hættu. Bestir hjá Þór voru Sigtryggur og Benedikt, ásamt Pálma. Hjá Aftureldingu voru bestir Lárus og Gústaf ásamt Emil mark- verði. Markhæstir hjá Þór voru Sig- tryggur og Benedikt með 7 mörk hvor, Pálmi skoraði 4 og Gunnar 3. Lárus var marka- hæstur hjá Aftureldingu með 6 mörk, Gústaf 4, Steinar 3 og Sigurjón, Björn og Þórir með 2 mörk hver. Með þessum sigri hafa Þórs- arar hlotið 6 stig í deildinni. og voru oftast 2-3 mörkum yfir það sem eftir var leiksins. Emil markvörður UMFA varði mjög vel allan leikinn og m.a. tvö víti. Ólafur kom í markið í seinni hálfleik í stað Gauta og varði hann 12 skot í leiknum þ.á.m. 3 víti. Lokatölur leiksins urðu 22-19 KA í vil og eru KA-menn vel að sigrinum komnir en sunnan- menn voru mun grófari í leikn- um og fengu oft að yfirgefa völlinn. Besti maður vallarins, Jóh- ann Einarsson, skoraði 8 mörk fyrir KA, öll stórglæsileg. Al- freð skoraði 7 mörk þar af tvö úr víti, Þorleifur, Friðjón og Gunnar skoruðu 2 mörk hver, Gústaf 5, Steinar og Sigurjón með 3 hvor. Eftir þennan leik er KA komið í annað sæti í deildinni á eftir Fylki. Marsmót í lyftingum Á SUNNUDAGINN fór fram í Lundarskóla Marsmótið í kraftlyft- ingum og ennfremur Marsmótið í tvíþraut en þar lyftu aðeins tveir keppendur. Lyftingarmennirnir voru allir úr bænum og var mörgum metum hnekkt. Bestum árangri á mótinu náði Víkingur Traustason en hann bætti fyrra met í samanlögðu um 73 kg og setti auk þess Ak.met i hnébeygju og réttstöðulyftu. I tvíþraut setti Freyr Aðalsteinsson nýtt íslandsmet í snörun og Ak.met í samanlögðu. Kraftlyftingar: 75 kg flokkur Flosi Jónsson, KA 155 + 90 + 190 = 435 kg 100 kg flokkur Erlingur Níelsson, Þór 135 + 90 + 170 =395 kg Jóhannes Hjálmarsson, Þór 165 + 80 + 305 = 450 kg 125 kg flokkur Halldór Jóhannesson, Þór 137,5 + 250 ekkert samanlagt Víkingur Traustason, Þór 270>+ 125'+ 270 = 665 kg Tvíþraut: 75 kg flokkur Freyr Aðalsteinsson, Þór 122,52+ 147,5 = 270' kg 82,5 kg flokkur Kristján Falsson, KA 120 + 142,5 = 262,5 kg 1 Akureyrarmet 1 íslandsmet 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.