Dagur - 11.01.1983, Side 1
DEMANTS-
HRINGARNIR
KOMNIR
GULLSMIÐIR
i SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 11. janúar 1983
4. tölublað
„Við höfum fengið um það
nokkuð góð orð að heimilt
verði að ráða í þær stöður sem
þarf til að koma þessu af stað og
nú er verið að vinna í því að fá
einhverja peninga til reksturs-
ins og ekki útilokað að það geti
gengið,“ sagði Bjarni Arthúrs-
son, forstjóri Kristneshælis,
en þar bíður nú nær fullbúin af-
vötnunarstöð fyrir áfengis-
sjúklinga þess að verða tekin í
notkun.
Húsbúnaður og húsnæði er
fyrir hendi og læknar og hjúkrun-
arfólk er á staðnum, en heimild
vantar til að ráða fjóra starfsmenn
og fjárveitingu til rekstursins.
Á fjárlögum er ekki sérstök
fjárveiting til þessa máls, en sér-
stakur liður í fjárlögum gæti gert
mögulegt að fé fengist í þetta.
Reiknað er með að launakostn-
aður á ári verði 935 þúsund
krónur, miðað við verðlag 1.
desember og annar rekstrarkostn-
aður rúmlega 400 þúsund krónur.
Afvötnunarstöðin á að rúma 10
manns í senn og gert er ráð fyrir
viku til tíu daga meðferð. Bjarni
sagði að full þörf væri orðið fyrir
framhaldsmeðferð í líkingu við þá
sem nú fer fram á Vífilsstöðum
og Sogni en það yrði þá á annarra
vegum en Kristneshælis.
Skattframtöl
borin út
bráðlega
Nú líður senn að því að menn
þurfi að fara að setjast niður og
taka til við hina árlegu skýrslu-
gerð til yfirvaldanna en hér er
að sjálfsögðu átt við skatt-
framtalið skemmtilega.
Hjá Skattstofunni á Akureyri
fengust þær upplýsingar að senni-
lega yrðu skattframtölin borin út
um 20. janúar og skilafrestur yrði
þá væntanlega 10. febrúar eins og
í fyrra. Dragist hinsvegar eitthvað
að framtölin verði borin út gæti
fresturinn lengst eitthvað.
Togararnir eyðilögðu
I ínuna í friðuðu hólf i
„Það komu þarna tveir eða þrír
togarar inn á lokaða svæðið í
Reykjafjarðarál, toguðu yfir
línuna hjá mér og ég missti 14
bjóð. Þetta er tilfinnanlegt tjón
því þetta er um fjórðungur af
línunni sem ég er með. Ég held
að þetta geti ekki verið eins-
dæmi því hvað gera þeir þegar
við erum ekki á staðnum úr því
að þeir leyfa sér að fara inn á
svæði sem er lokað fyrir öllum
togveiðum meðan línubátar
eru þar við veiðar,“ sagði
Gunnlaugur Konráðsson, á
Særúnu frá Árskógssandi, í
viðtali við Dag en togarar eyði-
lögðu fyrir honum línu í
Reykjafjarðaráli í síðustu viku.
Þetta gerðist á svæði sem er
lokað fyrir öllum togveiðum.
„Ég frétti það hjá Jakobi Þor-
steinssyni, á Frosta frá Grenivík,
að hann hefði lent í því nóttina
áður að togarar toguðu yfir línuna
hans sem var um hálfa mílu fyrir
innan mörkin. Hann missti sjö
bjóð. Til að vera öruggur lagði ég
mína línu hvergi nær mörkunum
en tvær mílur, vegna ótta við tog-
arana. Mér datt ekki í hug að til-
kynna togurunum í talstöðina að
ég hefði lagt línuna á þessum
slóðum, enda taldi ég mig örugg-
an. Ég var síðan að draga þegar 2
eða 3 togarar komu inn í hólfið.
Ég var það langt í burtu að ég sá
ekki hvort þeir voru að toga, enda
dimmviðri og snjókoma af og til
og bræla. En það kom sem sagt í
ljós að þeir höfðu heflað allan
vestasta hlutá línunnar hjá mér,
samtals 14 bjóð með 540 krókum.
Ég veit ekki hverjir þetta voru, en
á þessu svæði voru togarar alls
staðar að af landinu, milli 10 og 20
skip. Mín reynsla er sú að vegna
frekju og aðgangshörku togar-
anna geta línubátarnir ekki einu
sinni treyst því að fá að vera í friði
í hólfum sem eru lokuð fyrir öll-
um togveiðum," sagði Gunnlaug-
ur.
Hann bætti því við að þeir
hefðu verið svona vestarlega
vegna þess að sáralítinn eða eng-
an afla væri að fá á heimamiðum.
Um 10 tíma sigling er á miðin í
Reykjafjarðarál. Gunnlaugur gat
þess einnig að hann hefði kært
þetta mál til Landhelgisgæslunn-
ar.
Sjúkraflutningar:
Harðar
innheimtu-
aðgerðir
dugðu
„Þegar dæmið var gert upp 20.
desember sl. voru ekki nema
11,4% af greiðslum fyrir
sjúkraflutninga útistandandi,
sem er mikill munur frá því ára-
mótunum í fyrra en þá voru
45% útistandandi,“ sagði
Bjarni Arthúrsson, forstöðu-
maður Rauða kross deildarinn-
ar á Akureyri, í viðtali við Dag.
Bjarni sagði að þetta stafaði
fyrst og fremst af því að nauðsyn-
legt hefði verið að fara út í harðar
innheimtuaðgerðir og þær hefðu
borið þennan árangur.
Um 55% aukning varð á útseld-
um akstri milli ára en töluverður
rekstrarhalli er á sjúkraflutning-
unum. Kemur það sér illa því nú
þarf að fara að endurnýja fjór-
hjóladrifsbíl Rauða krossins og
kostar nýr bíll um 750 þúsund
krónur eftir að gjöld hafa verið
felld niður.
Hvassviðrið og snjókoman undanfarna daga hefur tæplega farið framhjá neinum, margir hafa fengið tækifæri á að
draga fram snjóskóflumar, t.d. bátseigandinn sem var að hreinsa snjó af bát sínum í smábátahöfninni í Sandgerðisbót,
á dögunum. Ljósmynd: KGA.
Innbrot á
Afvötnunar
Gerðardómur í brauðmálinu:
Sala utan veitingastofu
Dómur er nú genginn í
brauðmálinu svokallaða I versl-
unarmiðstöðinni í Sunnuhlíð.
Niðurstaða hans varð sú að
meirihluti gerðardómsins sem
skipaður var í málið taldi söiu á
matarbrauðum og brauðum í
heilum pakkningum sem ekki
væru ætluð til neyslu á staðnum
óheimila og byggir dómurinn á
kaupsamningi.
Sem kunnugt er reis upp deila
milli Brauðgerðar Kr. Jónssonar
og KEA vegna sölu brauðgerðar-
innar á brauði út úr veitingastof-
unni í Sunnuhlíð. Taldi KEA að
um væri að ræðá brot á sameign-
arsamningi, sem m.a. kveður á
um hvað hver aðili megi selja á
staðnum. Skipaður var gerðar-
dómur til að leysa úr ágreiningn-
um. Árni Pálsson, lögfræðingur,
var skipaður af fógeta sem oddviti
en Ragnar Steinbergsson var full-
trúi KEA og Björn Jósef Arnvið-
arson fulltrúi brauðgerðarinnar.
Oddviti og fulltrúi KEA kom-
óheimil
ust að áðurnefndu meirihlutaáliti
en fulltrúi brauðgerðarinnar var
nánast á öndverðri skoðun.
Gerðardómnum er ekki hægt
að áfrýja og á grundvelli hans er
hægt að fá lögbann sett á sölu
brauða úr veitingastofunni sem
neyta á utan hennar.
í fyrrinótt var brotist inn í
Krókeyrarstöð við Drottning-
arbraut á Akureyri. Farið var
inn um sölulúgu og einhverju
stolið þar af tóbaki og hugsan-
lega einnig einhverju sælgæti.
Að sögn Daníels Snorrasonar,
rannsóknarlögreglumanns á Ak-
ureyri, hafði verið lítið um inn-
brot í bænum þar til um áramótin
og hefur talsvert borið á minni
innbrotum síðustu daga. Rann-
sóknarlögreglan vinnur að því að
upplýsa þessi mál.