Dagur - 18.01.1983, Page 1
HÁLSFESTAR
8 og14 KARÖT
GULLSMIÐIR
l SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 18. janúar 1983
7. tölublað
Fjölgun við Eyjafjörð
undir landsmeðaltali
íbúafjölgun á Akureyri milli
áranna 1981 og 1982 varð 1,1%
sem er nokkru undir landsmeð-
altali, því samtals fjölgaði
landsmönnum um 1,46% eða
* ' Þetta kemur fram í
skýrslu Hagstofu íslands um
mannfjölda 1. desember 1982.
Ibúum Akureyrar fjölgaði um
154 milli ára eða úr 13.594 í
13.748 og eru báðar tölurnar
bráðabirgðatölur. Endanleg
tala um íbúafjölda á Akureyri
1. desember 1981 er 13.605, en
rétt þykir í samanburði að not-
Póstur og
sími fær
frímerkin
- Þetta er gamalt deilumál sem
oft hefur farið fyrir dómstól-
ana, en niðurstaðan hefur alltaf
orðið sú sama og Póstur og sími
hefur unnið málið, sagði Gísli
Eyland, stöðvarstjóri Pósts og
síma í samtali við Dag, er hann
var inntur eftir því hvers vegna
póstafgreiðslumenn héldu eftir
frímerkjum þeim sem væru á
póstkröfum.
Ástæðan fyrir því að haft var
samband við Gísla, var sú að
maður á Akureyri pantaði bók
sunnan úr Reykjavík og var hún
send honum í póstkröfu. Maður-
inn fékk afrit af fylgibréfinu í
pósti og honum tilkynnt að hann
gæti náð í bókina á pósthúsið, en
Pósthúsið hélt eftir fylgibréfinu
með frímerkjum að verðmæti 32
krónur.
Að sögn Gísla Eyland þá fer
Póstur og sími í öllu eftir lögum
Alþjóða póstsambandsins í þess-
um efnum, en samkvæmt lögun-
um ber póstafgreiðslumönnum að
halda eftir fylgibréfinu með frí-
merkjunum á. í Bretlandi og
Bandaríkjunum, sem standa utan
Alþjóðasambandsins, er þessum
málum þó öðru vísi farið og þar
eru frímerkin sett á pakkana
sjálfa.
- Ég veit til þess að sérstaklega
frímerkjasöfnurum hefur þótt
sárt að missa af frímerkjunum en
við því er ekkert að gera, sagði
Gísli, en samkvæmt upplýsingum
hans eru þessi frímerki boðin upp
árlega í 250 gramma pakkningum
hjá Pósti og síma í Reykjavík.
Rennur andvirðið til svokallaðs
Póstmannasjóðs og sagðist Gísli
vita til þess að mjög gott verð
hefði fengist fyrir frímerkin
undanfarin ár, en erlendir safnar-
ar hafa verið á meðal áhugasöm-
ustu kaupendanna á þessum upp-
boðum.
ast við bráðabirgðatölur, sem
eiga að vera sambærilegar.
Mannfjöldi stóð í stað á Ólafs-
firði nema hvað fjölgaði um einn
og voru íbúar þar 1189 um síðustu
áramót. Á Dalvík varð hinsvegar
talsverð fjölgun eða 3,2%, úr
1.294 í 1.335 manns, sem er fjölg-
un um 41.
Þegar litið er á alla hreppa
Eyjafjarðarsýslu kemur í Ijós að
íbúum þeirra hefur fækkað um
37, eða úr 2.667 í 2.630 eins og
þeir voru 1. des. sl. Þetta er 1,4%
fækkun. Sé litið til kaupstaðanna
þriggja við Eyjafjörð kemur fram
- Ég er þeirrar skoðunar að
þessi hópakstur hafi tekist vel.
Fólk á rétt á því að fá að vita í
hvaða ásigkomulagi öryggis-
tæki þeirra eru og við hverju
megi búast af þeim, sagði Tóm-
as Búi Böðvarsson, slökkviliðs-
stjóri í samtali við Dag, en um
helgina voru liðin 30 ár síðan
teknar voru upp fastar vaktir
hjá Slökkviliði Akureyrar.
Að sögn slökkviliðsstjórans
hefur Slökkvilið Akureyrar nú
yfir að ráða átta bifreiðum, ef
með eru taldar tvær sjúkrabifreið-
ar Rauða krossins og dælubíll
Brunavarna Eyjafjarðar. Af hin-
um eiginlegu slökkvibílum slökkvi-
liðsins er sá elsti frá árinu 1942,
annar er jafngamall vaktakerfinu,
eða frá 1953 og sá nýjasti er ár-
gerð 1976.
að samanlögðum íbúum þeirra
hefur fjölgað úr 16.076 í 16.272
eðaum 1,2%. Samanlagðurfjöldi
íbúa í Eyjafirði var 1. des. sl.
18.902 og hafði fjölgað úr 18.743
eða um 159, sem jafngildir 0,8%.
íbúafjölgun við Éyjafjörð er því
töluvert undir landsmeðaltali.
íbúum á Norðurlandi eystra
fjölgaði um 189 eða 0.73%. Þeir
voru við síðustu talningu 26.079.
Á árunum 1972-1982 fjölgaði að
jafnaði um 1,4% milli ára á
Norðurlandi eystra. Fjölgunin á
Norðurlandi eystra varð þriðja
mest af landsbyggðafjórðungun-
- Við höfðum fjárveitingu að
hluta til, sem ætluð var til kaupa á
tíu tonna tankbíl, sem jafnframt
er slökkvibíll, en því miður feng-
um við ekki að nýta þessa fjárveit-
ingu. Ég er því að ganga frá bréfi
til bæjarráðs, þar sem þessi fjár-
veiting er ítrekuð, enda tel ég
ófært annað en að slökkviliðið fái
þennan bíl, segir Tómas Búi.
Helstu röksemdirnar sem for-
ráðamenn slökkviliðsins beita
fyrir sig varðandi þörfina á þess-
um tankbíl, eru þær að slíkur bíll
sé ómetanlegur við slökkvistörf á
ýmsum stöðum í bænum þar sem
vatnslagnir eru of veigalitlar ef
stórbruna ber að höndum. Þá er
tankbíllinn útbúinn tveim há-
þrýstislöngum og getur tekið um
500 - 800 lítra af froðuslökkvi-
vökva, sem er það eina sem dugar
um, aðeins Vesturland var með
meiri fjölgun eða 1,01% og Aust-
urland með 0,85%.
Langmest varð fjölgunin í ná-
grannabæjum Reykjavíkur eða
samals 3,17%. í Reykjavík fjölg-
aði um 1,55% og samtals á höfuð-
borgarsvæðinu um 2,06%. Mikil
íbúaaukning var einnig á Suður-
nesjum, Kjalarnesi og í Kjós eða
1,84%.
Af þessum tölum er greinilegt
að landsbyggðin á undir högg að
sækja í þessum efnum, því íbúa-
fjölgunin er langmest á suðvestur-
horni landsins.
í baráttunni við t.a.m. olíuelda.
Eins og ástandið er í dag, er
Slökkvilið Akureyrar tæpast þess
umkomið að ráða niðurlögum
elds í bensín- eða olíubíl, sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
Dagur fékk hjá Tómasi Búa
Böðvarssyni.
í dag starfa 14 manns hjá
Slökkviliði Akureyrar og þar af
ganga 12 starfsmenn vaktir. Þrír
eru á hverri vakt og sagði slökkvi-
liðsstjórinn það a.m.k. einum
manni of lítið. Tvo menn þarf á
hvorn sjúkrabíl, þannig að ef ann-
ar væri úti og neyðartilfelli bæri að
höndum, þá væri aðeins einn
maður til staðar. Það væri alls
ekki nægilegt ef bráð t.d. hjarta-
tilfelli bæri að höndum, sagði
Tómas Búi Böðvarsson.
Eldur kom upp í Galtalæk, þar
sem Flugbjörgunarsveitin á
Akureyri hefur aðstöðu sína,
sl. laugardagsmorgun.
Eldurinn kom upp í kjallara
sem er notaður sem geymsla. Vel
gekk að ráða niðurlögum eldsins
og urðu skemmdir litlar. Engar
skemmdir urðu á efri hæð hússins,
hvorki af reyk né eldi.
Á laugardag varð umferðarslys
á mótum Bugðusíðu og Austur-
síðu. Ungur piltur á skellinöðru
og bifreið óku þar saman og
slasaðist pilturinn.
Hann var fluttur á sjúkrahús og
komu í ljós innvortis meiðsli
piltsins. Hann var í gær ekki tal-
inn vera í lífshættu.
Kanna áhuga
á kvenna-
framboði
Á fundi Kvennaframboðsins á
Akureyri á sunnudag var
ákveðið að það hefði forgöngu
um það í Norðurlandskjör-
dæmi eystra að kanna áhugann
á framboði til Alþingis í næstu
kosningum.
Að sögn Valgerðar Bjarnadótt-
ur, bæjarfulltrúa Kvennafram-
boðsins á Akureyri, er einhugur
um það að kanna áhuga á slíku
framboði, en hins vegar væru uppi
ýmsar skoðanir á því hvort rétt
væri að ganga til slíks framboðs.
Hún sagði að það gæti reynst erfitt
að fá konur til að leiða slíkt fram-
boð og vera í efstu sætum á lista,
en sér þætti þó ólíklegt annað en
hægt væri að finna hæfar konur
sem treystu sér til að fara í þetta.
Hins vegar treystu þær sér ekki til
að bæta við sig meiri vinnu sem
virkar hefðu verið í bæjarmálun-
um á Akureyri.
Valgerður sagði að erfiðara
væri að fá konur til að taka að sér
leiðtogastörf en karla og til Iægju
vafalaust margar ástæður. Vegna
ótrúlega lítils hlutar kvenna á
framboðslistum sem fram eru
komnir yrðu flestar kvennafram-
boðskonur að líkindum ánægðar
ef til sérstaks kvennaframboðs
kæmi.
Hún sagði að ákvörðunar yrði
að vænta fyrr en seinna, jafnvel í
næsta mánuði.
Póstkröfur:
Um helgina efndi slökkviliðið til hópaksturs um bæinn í tilefni af því að 30 ár eru liðin síðan fastar vaktir voru teknar
33
upp hjá slökkviliðinu. Um leið vildu slökkviliðsmenn vekja athygli á tækjabúnaði slökkviliðsins. Mynd: ESE
Okkurvantar
nauðsynlega tankbíl“
— segir Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri