Dagur - 01.02.1983, Side 1
HÁLSFESTAR
8 og14 KARÖT
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 1. febrúar 1983
13. tölublað
Kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi vestra:
Þriðjungur fulltrúanna fór
af þingi vegna úrslitanna
— Ingólfur Guðnason neitaði að taka sæti á listanum með Páli Péturssyni
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í Norðurlandi vestra var
haldið í Miðgarði á sunnudag,
30. janúar. Á þinginu var skoð-
anakönnun um uppröðun á
framboðslistann í komandi al-
þingiskosningum. Rétt til
þingsetu áttu 206 þingfulltrúar
en 204 mættu til þingsins. Eftir
að Guttormur Oskarsson,
formaður kjördæmissam-
bandsins, hafði lesið upp fram-
boð og tillögur meirihluta kjör-
dæmisstjórnar um kosningar
urðu miklar umræður um hana
og fyrirvara þá sem tveir fram-
bjóðendur höfðu haft á fram-
boði sínu varðandi fyrirkomu-
Iag kosninganna. Lögð var
fram tillaga um að kjósa eitt
sæti í einu en tillaga kjördæm-
isstjórnar var um að merkt
skyldi í sæti. TiIIaga kjördæm-
isstjórnar var samþykkt með
127 atkvæðum en hin tillagan
hlaut 63 atkvæði.
Var nú gengið til kosninga og
urðu úrslit þannig að Páll Péturs-
son hlaut 105 atkvæði í 1. sæti, en
alls 176 atkvæði. Stefán Guð-
mundsson hlaut 192 atkvæði í 1.
og 2. sæti, alls 103 atkvæði. Tíu at-
kvæðum munaði á Páli og Stefáni
í 1. sæti. í 3. sæti varð Ingólfur
Guðnason með 106 atkvæði í 1,-
3. sæti og Sverrir Sveinsson í 4.
sæti með 167 atkvæði í 1.-4. sæti.
Aðeins munaði einu atkvæði á
Ingólfi Guðnasyni og Sverri
Sveinssyni í 3. sæti en Sverrir var
með 105 atkvæði í það sæti.
Að loknum úrslitum gekk Ing-
ólfur Guðnason í ræðustól og
kvaðst ekki taka sæti á listanum
óbreyttum, eins og hann hefði til-
kynnt áður, þakkaði fyrir samver-
una og gekk af þingi. Grímur
Gíslason, frá Blönduósi, tók til
máls og sagðist mundu yfirgefa
þingið. Hann sagði af sér öllum
trúnaðarstörfum fyrir Framsókn-
arflokkinn. Gekk hann síðan út af
þingi, svo og Magnús Ólafsson,
frá Sveinsstöðum, og nær allir
austur-húnvetnskir fulltrúar með
honum, einnig nokkur hluti full-
trúa Vestur-Húnvetninga, eða
samtals um 70 manns.
Var nú skipuð uppstillinga-
nefnd sem kom með tillögu um að
færa Sverri Sveinsson upp í 3. sæti
á listanum og fá síðan áframhald-
andi umboð ásamt kjördæmis-
stjórn til að ganga frá listanum.
Var það samþykkt, en þingið
varla orðið starfshæft eftir að
þessi stóri hópur fulltrúa hafði
gengið út. Voru menn sem flemtri
slegnir yfir ■ þeim atburðum sem
gerst höfðu og skiptist þingið upp
í smá hópa sem skröfuðu úti í
horni og virtust menn ekki á eitt
sáttir. Þingi var slitið klukkan
22.30 um kvöldið.
ÓJ.
Umtalsverð
vanstilling
áhita-
veitu-
kerfunum
„Það má gera ráð fyrir að það
taki fjórar vikur að yfirfara og
endurstilla öll hitaveitukerfin í
bænum. Nemendur og kennar-
ar frá Vélskóla íslands annast
þetta og þeim hefur nær undan-
tekningalaust verið tekið mjög
vel. Hins vegar hafa einstaka
menn hringt í okkur og kvartað
yfir því að utanbæjarmenn
væru fengnir í þetta verk. Okk-
ar mat var það að eðlilegt væri
að snúa sér til Vélskólans, þar
sem nemendur skólans hafa
áður tekist á við hliðstæð verk-
efni, sem var stilling olíukyndi-
tækja, með mjög góðum ár-
angri,“ sagði Hákon Hákonar-
son, formaður stjórnar Hita-
veitu Akureyrar, í viðtali við
Dag.
Hákon sagði að orðið hefði
vart umtalsverðrar vanstillingar á
búnaði. Töluvert væri um það að
menn fengju meira en þeir borg-
uðu fyrir en einnig nokkuð um að
menn fengju of lítið vatn. Miklu
meira var um yfirstillingu. Hákon
sagði þessa yfirreið einnig nauð-
synlegan undirbúning undir fulln-
aðarvinnslu á spjaldskrá hita-
veitunnar.
Sem dæmi um það hversu hér er
um nauðsynlegar aðgerðir að
ræða má geta þess að samkvæmt
heimildum Dags hefur m.a. kom-
ið í ljós að menn hafi fengið yfir
einum lítra meira en þeir greiddu
fyrir og dæmi er um mann sem
keypti einn og hálfan lítra en fékk
ekki nema 0.9 lítra. Þá kom einn-
ig í ljós að einn notandi hitaveit-
unnar var ekki á skrá og hafði því
ekkert greitt fyrir vatnið, líklega í
ein fjögur ár.
„Það er nú lítið hægt að segja
um það meðan húsið er tómt,
hvernig hljómburður mun
reynast í því og e.t.v. þarf að
gera einhverjar ráðstafanir, en
ég óska ykkur til hamingju með
húsið. Þetta er stórglæsileg
íþróttaaðstaða“, sagði Sigurð-
ur Björnsson, framkvæmda-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í viðtali við Dag, er hann
kom fyrir helgi til að kanna að-
stæður til hljómleikahalds í
nýju íþróttahöllinni.
Þann 12. mars n.k. mun Sinfón-
íuhljómsveitin koma norður og
flytja óperuna Tosca eftir Puccini
í konsertformi, en hún verður
flutt í Reykjavík 2. og 5. mars.
Þetta er mikið verk og meðal ein-
söngvara verða Kristján Jóhanns-
son, Sigelinde Kahman og Robert
Becker. Stjórnandi verður Jean-
Pierre Jacquillat. Söngsveitin Fíl-
harmonía mun annast kórhlut-
verkið.
Sigurður sagði að leigð yrði
þota sem myndi bíða listamann-
anna, sem eru samtals um 160.
Áætlaður kostnaður við að koma
norður er um 300 þúsund krónur.
Sigurður sagði ennfremur að Ní-
unda sinfónía Beethovens yrði
flutt í Reykjavík í byrjun júní.
Hann sagði að mikili áhugi væri á
því að flytja hana einnig á Akur-
eyri og hugmyndin er ennfremur
sú að fá kóra á Akureyri til að
taka þátt í flutningi verksins á
báðum stöðum. Þetta væri þó
óráðið ennþá.
Grýlurnar
stóðu
í ströngu
Hin vinsæla hljómsveit Grýl-
urnar úr Reykjavík var á ferð-
inni á Norðurlandi um helg-
ina. Komu þær Grýlur
fljúgandi með vél frá Sverri
Þóroddssyni á laugardagskvöld
til Akureyrar, en þær áttu að
skemmta í Sólgarði í Saurbæj-
arhreppi það sama kvöld.
Þegar bifreiðin sem ók þeim
kom á móts við Kristnes ók hún á
þrjú hross og drapst eitt þeirra við
áreksturinn.
Grýlurnar létu ekki hugfallast
við þetta óhapp heldur skemmtu á
dansleiknum um kvöldið. Þar
voru um 300 unglingar saman-
komnir, flestir frá Akureyri á
aldrinum 16-20 ára.
Grýlunum tókst að ná þar upp
mikilli stemmningu, svo „góðri“ að
eftir að dansleiknum lauk neituðu
margir að fara heim. Kom til óláta
við samkomuhúsið og voru
nokkrar rúður brotnar og eins
mun eitthvað lítilsháttar af hús-
gögnum hafa orðið undan að láta.
Þjófaflokkur
afhjúpaöur
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri hefur komið upp um hóp
unglinga sem hefur stundað
það að undanförnu að heim-
sækja vinnustaði og stela pen-
ingaveskjum frá fólki sem þar
starfar.
Hér var um að ræða 7 pilta á
aldrinum 11-15 ára, og höfðu þeir
„heimsótt" 8-9 vinnustaði í þess-
um tilgangi. Einn piltanna var
stórtækastur, en yfirleitt voru þeir
2-4 saman við þessa iðju sína.
Þeir munu hafa haft hátt í 30 þús-
und krónur upp úr krafsinu og er
talið ólíklegt að stór hluti af þeim
peningum skili sér til réttra eig-
enda aftur.
Sigurður Bjömsson framkvæmdastjóri Sinfóníunnar skoðaði aðstæður í nýju íþróttahöliinni fyrir helgi.
Mynd: H.Sv.
Tosca og 9. sinfónían
í nýju íþróttahöllinni?