Dagur - 01.02.1983, Blaðsíða 9
Akureyringar hlutu 10 af 12
verðlaunum Hermannsmótsins
Um helgina var haldið fyrsta
bikarmót vetrarins í Hlíðar-
fjalli. Mótið er nefnt Hermanns-
mót í höfuðið á hinum merka og
mæta íþróttafrömuði Hermanni
Stefánssyni.
Til mótsins var nær allt besta
skíðafólk landsins mætt að
undanskildum fjórum körlum er
enn stunda æfingar erlendis.
Meðal keppenda voru Akureyr-
ingarnir Elías Bjarnason og
Björn Víkingsson, en þeir eru
nýkomnir að utan úr vel-
heppnaðri æfinga- og keppnis-
ferð.
Fyrri dag mótsins var keppt í
stórsvigi karla og svigi kvenna.
Eftir fyrri ferð í svigi kvenna
hafði Asta Ásmundsdóttir besta
tímann, en fast á hæla hennar
var Nanna Leifsdóttir, þá komu
þær Guðrún H. Kristjánsdóttir
og Tinna Traustadóttir í næstu
sætum. í síðari ferð féllu nokkrir
keppendur úr leik, meðal þeirra
er fengu byltu var Ásta Ás-
mundsdóttir.
í stórsvigi karla náði Björn
Víkingsson bestum tíma þátt-
takenda í fyrri ferð en stutt á
eftir honum var hinn knái skíða-
maður ísfirðinga, Sigurður
Jónsson, þriðji í röðinni var síð-
an Elías Bjarnason og þá Erling
Ingvason. í seinni ferð keyrði
Sigurður best allra og skaust
fram úr Birni er hafnaði í öðru
sæti.
Seinni dag mótsins var keppt í
svigi karla og stórsvigi kvenna. í
stórsviginu náði Nanna Leifs-
dóttir bestum tíma þátttakenda í
báðum umferðum og var því
hinn öruggi sigurvegari. Á eftir
henni kom síðan Guðrún H.
Kristjánsdóttir, sem er aðeins
fimmtán ára gömul og er skíða-
kona sem vænta má mikils af í
framtíðinni, í þriðja sæti var
Tinna Traustadóttir. Nanna
Leifsdóttir sigraði því í hvoru-
tveggja, svigi og stórsvigi, og um
leið alpatvíkeppni en fyrir hana
er veittur bikar til minningar um
Helgu Júníusardóttur. Nanna
sýndi mikið öryggi í öllum sínum
ferðum og er vafalítið ein besta
skíðakona landsins í dag.
í svigi karla urðu úrslit nokk-
uð með öðrum hætti en búist var
við. Fyrsta sæti hlaut kornungur
Húsvíkingur, Árni Grétar
Árnason, en þess má geta að
hann keppir enn í unglinga-
flokki. Með glæsilegri keyrslu í
seinni ferð skaut hann öðrum
þátttakendum aftur fyrir sig,
meðal þeirra voru Björn Vík-
ingsson og Elías Bjarnason, en
þeir höfðu forystu eftir fyrri
ferð. í öðru sæti varð Valþór
Þorgeirsson og þriðji Björn Vík-
ingsson. Björn sigraði síðan í
alpatvíkeppni og hlaut til varð-
veislu glæsilegan bikar, Her-
mannsbikarinn.
Að loknu þessu móti geta Ak-
ureyringar vel við unað bæði
hvað varðar árangur keppenda
og framgöngu mótsins. Vel
haldin mót sem þessi eru hverju
bæjarfélagi góð auglýsing og
forráðamönnum þess til sóma.
En ekki er allt sem sýnist. í
viðtali við Þröst Guðjónsson,
Þrjár efstu í stórsvigi kvenna. Frá vinstri: Guðrún, Nanna og Tinna.
Mynd: H.Sv.
KA á toppnum
í 2. deildinni
KA hefur nokkuð örugga for-
ystu í annarri deild í handbolta
en þeir eiga ennþá eftir að leika
þrjá leiki. Á föstudagskvöldið
leika þeir gegn Ármanni hér í
íþróttahöllinni og síðan eiga
þeir eftir að fá Gróttu í heim-
sókn og síðan fara til Eyja og
leika gegn Þór Vestmannaeyj-
um.
Ef þeir sigra í þessum leikjum
hafa þeir góða forystu í deildinni
en þau fjögur lið sem verða efst
leika til úrslita um tvö laus sæti í
fyrstu deild. Stigin sem liðin
hafa þegar úrslitakeppnin hefst
kemur þeim til góða í úrslita-
keppninni þannig að mikið er í
húfi að standa sig vel í þeim
leikjum sem eftir eru. Staðan í
deildinni er nú þessi:
KA 11 7 2 2 278-243 16
Grótta 11 7 0 4 159-266 14
Haukar 12 6 2 4 278-262 14
Breiðablik 12 5 4 3 237-222 14
ÞórVest. 11 4 3 3 239-240 11
HK 11 4 1 6 237-238 9
Ármann 12 2 3 7 241-262 7
Afturelding 12 2 3 7 231-259 7
hinn ötula formann Skíðaráðs
Akureyrar, kom fram að ekki
hefði mátt muna miklu að tíma-
taka á þessu móti færi úr
skorðum. Slíkt er litið mjög al-
varlegum augum, bæði af kepp-
endum er lagt hafa gífurlega
mikið á sig við æfingar til að
standa sig í mótum sem þessum
svo og af eftirlitsmönnum þess-
ara móta. Því er það mjög brýnt
erindi fyrir SRA að eignast ný
tímatökutæki þar sem þessi einu
er ráðið á nú eru ekki nógu góð
fyrir þau tvö stórmót sem haldin
verða hér í Hlíðarfjalli seinna í
vetur og eru mun fjölmennari en
þetta Hermannsmót.
Að lokum má geta þess að
mikill og góður skíðasnjór er nú
í Hlíðarfjalli.
Úrslit urðu sem hér segir:
Stórsvig karla:
1. Sigurður H. Jónsson í 127.89
2. Björn Víkingsson A 129.48
3. EltasBjarnason A 131.00
4. Erling Ingvason A 132.55
5. Árni G. ÁrnasonH 133.02
Stórsvig kvenna:
1. Nanna Leifsdóttir A 133.77
2. Guðrún H. Kristjánsd. A 134.46
3. Tinna Traustadóttir A 135.72
4. Kristín Símonard. D 140.14
5. Signe Viðarsdóttir A 140.56
6. Inga Júlíusdóttir D 143.93
Svig kvenna:
1. Nanna Leifsdóttir A 102.21
2. Guðrún H. Kristjánsd. A 103.77
3. Hrefna Magnúsdóttir A 105.20
4. Ásta Ásmundsdóttir A 115.20
Svig karla:
1. Árni Grétar Árnason H 104.81 4. Haukur Jóhannsson A 106.21
2. Valþór Þorgeirsson A 105.50 5. Elías Bjarnason A 106.32
3. Bjöm Víkingsson A 105.77 Fab.
Bjðm Vfldngsson hlaut „Hermannsbikarinn“. Með honum á myndinni er
Hermann Stefánsson. Mynd: H.Sv.
Góðir leikir Þórs
Þórsarar léku tvo æfingarleiki
í handbolta um helgina, en
þeir eiga tvo erfiða leiki í
deUdinni um næstu helgi. Þeir
fengu Breiðablik í heimsókn
nú um helgina og léku við þá
tvo Ieiki. Þór tapaði fyrri
leiknum með einu marki en
sigraði í þeim síðari auðveld-
lega.
I leiknum á föstudagskvöldið
léku Þórsarar mjög vel framan
af og voru búnir að ná fimm
marka forskoti seint í fyrri hálf-
leik. Þá fór hins vegar að ganga
ver hjá þeim og Blikararnir söx-
uðu á forskotið. í hálfleik var
staðan 14 gegn 12 Þór í vil. Strax
í byrjun síðari hálfleiks náðu
Blikararnir að jafna, og komust
í tveggja marka mun, en meiri
varð munurinn aldrei og Blikar-
arnir sigruðu með 26 mörkum
gegn 25. Sigtryggur var lang
markhæstur í þessum leik með
10 mörk, en Siggi og Guðjón
gerðu 5 hvor. Davíð stóð í marki
Þórs mest allan tímann og varði
ágætlega.
Á laugardaginn reyndu liðin
aftur með sér, en þá var Þórslið-
ið sterkara allan tímann. í hálf-
leik var staðan 15 gegn 14 fyrir
Þór, en þegar flautað var til
leiksloka hafði Þór gert 30 mörk
en Breiðablik 24.
Gísli varði Þórsmarkið mest-
allan tímann og varði mjög vel.
Einar Arason var markahæstur
með 8 mörk en hann gerði m.a.
nokkur úr góðum hraðaupp-
hlaupum.
Sigurður gerði 7 og Sigtryggur
5. Dómarar í báðum leikjunum
voru Aðalsteinn Sigurgeirsson
og Benedikt Guðmundsson.
Skíðavörur
Knei55L skíði
Salomon bindingar
Kneissl stakkar, hanskar, stafir
og húfur. Ellesse skíðafatnaður
í úrvali.
Moon Boots, púðapeysur og
stretchbuxur!
Bindingaásetningar
samdægurs.
HLfPA.'*- '
SPORT
VERSLUNARMIÐSTÖÐINNI SUNNUHLÍÐ
Sími 22146
í.febrúar 1983 - DAGUR - 9