Dagur - 15.02.1983, Blaðsíða 1
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66.árgangur
Akureyri, þriðjudagur 15 . febrúar 1983
19. tölublað
Óánægja með vinnubrögðin
- en viðræðum haldið áfram til að reyna að hafa áhrif á gang mála
„Við erum ekki með meirihluta
og verðum því að semja um mái
ef við ætlum að starfa í stjórn-
málum og hafa áhrif1 sagði
Steingrímur Hermannsson
formaður Framsóknarflokks-
ins á miðstjórnarfundinum á
sunnudag, en niðurstaða fund-
arins var sú að þingflokki og
framkvæmdarstjórn flokksins
var veitt umboð til að vinna
áfram að samkomulagi um
breytingar á stjórnarskrá og
kosningalögum.
Fram kom á fundinum að hinir
flokkarnir þrír væru ákveðnir í að
knýja fram breytingar og töldu
fundarmenn rétt að reyna til
þrautar að hafa áhrif á gang mála
þótt óánægja væri með vinnu-
brögðin.
Flestir þeir sem töluðu á fund-
inum lýstu sig mótfallna þeim
vinnubrögðum sem knúin hafa
verið fram og bentu á að nauðsyn-
legt væri að leiðrétta þann ójöfn-
uð sem ríkti á öðrum sviðum
landsbyggðarfólkinu í óhag,
samhliða breytingum á vægi at-
kvæða. Þá kom fram að menn
teldu breytingar ótímabærar og
illa undirbúnar.
í tillögu sem samþykkt var á
fundinum var lögð áhersla á að
vægi atkvæða yrði svipað og 1959,
fjölgun þingmanna yrði sem
minnst, kjördæmakjörnir þing-
menn yrðu sem flestir t.d. 53 af
63, þingmönnum verði hvergi
fækkað, jöfnunarsætum í þéttbýli
verði úthlutað fyrst t.d. þremur í
Reykjavík, tveimur á Reykjanesi
og einu í Norðurlandi eystra og
að síðasta sætið í öðrum kjör-
dæmum gæti komið til greina til
jöfnunar. Þá yrði stefnt að því að
kjósendur alíra flokka í hverju
kjördæmi hafi sem jafnastan at-
kvæðisrétt og sömu möguleika á
að koma manni á þing og í fram-
tíðinni verði það aðrir en þing-
menn sjálfir sem fjalli um breyt-
ingar á kjördæmaskipan og kosn-
ingalögum.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar:
Farið fram á allt
að 100% hækkun
fjárveitinga
„Fjárhagsáætlun bæjarins er í
vinnslu núna hjá bæjarráði og
ég þori ekki að segja til um það
hvenær hún verður til fyrri um-
ræðu í bæjarstjórn. Það var
meiningin að taka hana fyrir
n.k. þriðjudag en af því getur
ekki orðið“ sagði Helgi Bergs
bæjarstjóri á Akureyri er Dag-
ur ræddi við hann fyrir helgina.
„Það er tæplega tímabært að
ræða það hver hækkun fjárhags-
áætlunarinnar verður, þetta á ör-
ugglega eftir að breytast eitthvað
frá því sem nú er. En það er ekki
óalgengt að beiðnir um fjárveit-
ingar séu um 100% hærri en var á
áætlun í fyrra. Það er hinsvegar
ljóst að tekjurnar aukast ekkert
nálægt því.“
- Hvað getur þú sagt mér um
lausafjárstöðu bæjarins um þessar
mundir?
„Hún er í þrengra lagi. Lausa-
fjárstaða bæjarsjóðs hefur oft ver-
ið góð og einnig oft slæm. Hún var
slæms.l. haust og íveturenþað er
ekkert nýtt. Hún hafði verið af-
skaplega góð í eitt og hálft ár þar
áður og það eru hugsanlega fyrst
og fremst viðbrigðin sem menn
finna.
Það fer hinsvegar að koma sá
tími að við væntum þess að hún
batni verulega. Janúar og febrúar
eru tekjulausir mánuðir, engar út-
svarsgreiðslur í janúar og fyrsta
greiðsla fasteignagjalda fellur
ekki í eindaga fyrr en 15. febrú-
ar. En að öllu jöfnu á lausafjár-
staða bæjarfélaga að vera mjög
góð í maí/júní enda er útstreymi
fjár ávallt mest yfir sumarmánuð-
ina þegar framkvæmdir eru
mestar. En verði lausafjárstaðan
ekki góð á þeim tíma er ljóst hvert
stefnir er kemur fram á árið og ég
óttast að staðan verði frekar slæm
er kemurfram á árið“ sagði Helgi.
Nær fullvíst er talið að eldurinn sem kom upp í húsinu við Geislagötu 39 sl. föstudag sé af manna völdum. Hús þetta,
sem stendur við hlið bæjarskrifstofanna og slökkvistöðvarinnar, hafði verið dæmt ónýtt og eina ástæðan fyrir því að
ekki var búið að rífa húsið var sú að slökkviliðsmenn áttu að fá að æfa þar reykköfun. Mynd: ESE
Sauðkrækingar kvarta
undan þjónustu Flugleiða
„Það hefur komið fyrír tvívegis
á um tveggja mánaða tímabili
að áætlunarferðir Flugleiða
hafa verið felldar niður hingað
og því hefur verið borið við af
hálfu Flugleiða að engir farþeg-
ar hafi verið bókaðar í þær
ferðir,“ sagði Þórður Þórðar-
son, bæjarstjóri á Sauðárkróki,
í samtali við Dag en honum var,
á fundi bæjarráðs Sauðárkróks
þann 3. febrúar, falið að skrifa
Samgönguráðuneytinu og
kvarta yfir þjónustu Flugleiða
við Sauðárkrók.
„Þetta gerðist í síðara skiptið í
byrjun þessa mánaðar en þá var
tekin ákvörðun um það að fella
niður ferð hingað á fimmtudegi.
Sú ákvörðun var tekin á morgun-
fundi hjá Flugleiðum á þriðjudeg-
inum í sömu viku. Okkur þykir
það undarleg vinnubrögð að
aflýsa flugi rúmum tveimur sólar-
hringum áður en fljúga á vegna
þess að engar bókanir séu komnar
fram.
Ég hef hinsvegar vitneskju um
að þegar þessi ákvörðun var tekin
voru fjórir farþegar bókaðir frá
Sauðárkróki. Auk þess veit ég um,
eina 6 aðila sem hugðust komast
með Flugleiðum hingað þennan
dag. Bæjartæknifræðingur okkar
var í þessum hópi en hann fékk
þær fregnir strax á þriðjudeginum
að ekki væri tekið á móti bókun-
um x flug til Sauðárkróks á
fimmtudeginum.
Þá hafa ferðir hingað verið
mjög óhentugar. Engar ferðir
hafa verið á laugardögum og
sunnudögum og ekki hingað
norður fyrr en seint á mánudög-
um. Það hefur verið kvartað mjög
mikið undan þessu fyrirkomulagi
og helgakrferðir Flugleiða nýtast
okkur t.d. alls ekki,“ sagði
Þórður.
„Þetta er alveg rétt sem Þórður
segir,“ sagði Einar Helgason,
yfirmaður innanlandsflugs Flug-
leiða, er við bárum þetta undir
hann.
„Stefna okkar er hinsvegar sú
að það skuli reynt að komast hjá
því í lengstu lög að fella niður
áætlunarferðir. Ef við höldum
okkur við Sauðárkrók þá viljum
við sameina flug þangað flugi ann-
aðhvort til Akureyrar eða Húsa-
víkur.
í þessu umrædda tilfelli, 3.
febrúar, var engin bókaður til
Sauðárkróks og því fannst okkur
ástæða til þess að fella flugið alveg
niður. Síðar kom í ljós að nokkrir
aðilar hugðust notfæra sér flug frá
Sauðárkróki þennan dag en þær
bókanir komu seint. Þetta er
ástæðan fyrir því að flugið var fellt
niður þennan dag þótt stefna okk-
ar sé sú að gera slíkt ekki,“ sagði
Einar.