Dagur - 22.02.1983, Qupperneq 1
HÁLSFESTAR
8 og14 KARÖT
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 22 . febrúar 1983
22. tölublað
- segir Grímur
Gíslason um
framboð óánægðra
framsóknarmanna
á Norðurlandi vestra
Á fundi sem haldinn var á
Blönduósi á föstudag ákváðu
framsóknarmenn sem óánægð-
ir eru með framboðslista
flokksins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra að efna til fram-
boðs í Húnavatnssýslum fyrir
komandi kosningar. Einnig var
ákveðið að boða sem fyrst til al-
menns fundar með stuðnings-
mönnum framboðsins og leita
eftir mönnum til sætis á fram-
boðslistanum. Ingólfur Guðna-
son, alþingismaður, hefur lýst
yfir stuðningi við framboðið og
tilkynnt aðstandendum þess að
hann sé tilbúinn til að taka
hvaða sæti sem er á framboðs-
listanum.
Mikill hugur er í fólki í Húna-
vatnssýslum um framboðið að
sögn Gríms Gíslasonar á Blöndu-
ósi og sagði hann að úr þessu yrði
ekkert til að koma í veg fyrir
framboð. Framboðið verður ekki
takmarkað við Húnavatnssýslur
og sagði Grímur að leitað yrði
eftir mönnum austan Vatnsskarðs
á framboðslistann.
„Við erum öruggir með mann á
þing af þessum lista og teljum
betra að bjóða fram en að tvístra
þessum hóp yfir á aðra flokka",
sagði Grímur Gíslason að lokum.
Skýrsla Framkvæmdastofnunar um vinnulaun 1981:
Laun áberandi lægst
á Norðurlandi- vestra
Samkvæmt skýrslu áætlana-
deildar Framkvæmdastofnunar
ríkisins sem ber heitið „Vinnu-
markaðurinn 1981“ voru
lægstu laun á landinu það árið í
Norðurlandskjördæmi vestra
og næst lægst í Suðurlandskjör-
dæmi. Norðurland eystra og
Austurland komu þar skammt
undan. Hinsvegar var minnsti
munur á launum karla og
kvenna á Norðurlandi.
Samkvæmt skýrslunni voru
meðallaun landsmanna 1981 113
þúsund krónur. Meðallaun karla
voru 129 þúsund og meðallaun
kvenna 85 þúsund eða 66% af
launum karlanna. Á meðfylgj-
andi töflu er auðvelt að bera
saman laun í hinum ýmsu kjör-
dæmum.
Kjördæmi
Reykjavík
Vesturland
Vestfirðir
Norðurland vestra
Norðurland eystra
Austurland
Suðurland
Reykjanes
Á þessu sést að verulegur mun-
ur er á launum t.d. á Reykjanesi
og á Norðurlandi vestra. Þannig
eru karlar á Norðurlandi vestra
aðeins með 75% af launum karla
á Reykj anesi.
karlar konur meðaltal allra
132 þús. 88 þús. 114þús.
125 þús. 80þús. 108 þús.
133 þús. 84þús. 116 þús.
105 þús. 76þús. 95 þús.
124 þús. 83 þús. 108 þús.
123 þús. 81 þús. 108 þús.
120 þús. 78 þús. 104 þús.
140 þús. 87 þús. 121 þús.
Minnsti launamunur kynja er
hinsvegar á Norðurlandi vestra en
þar hafa konur 72,4% af launum
karla. Mestur er þessi munur
hinsvegar á Reykjanesi þar sem
konur hafa aðeins 62% af launum
karlanna.
Samkvæmt skýrslu Fram-
kvæmdastofnunarinnar voru
meðallaun á Akureyri 1981 116
þúsund krónur. Sé litið á einstaka
atvinnugreinar kemur í ljós að
meðailaun voru langhæst í fisk-
veiðum eða 226 þúsund. Af öðr-
um greinum má nefna fiskvinnslu
með 121 þúsund, matvælaiðnað
með lOOþúsund, vefjariðnað með
105 þúsund, málm- og skipasmíði
með 130 þúsund og opinbera
þjónustu með 110 þúsund. Með-
altalshækkun launa frá 1980 var
50,6%.
Strákamir á myndinni, Heiðar Jónsson (til hægri) og Auðunn Svavar Guðmundsson báðir 11 ára, litu við hér á dögunum og höfðu meðferðis
það smæsta hænuegg sem starfsmenn Dags og Dagsprents hafa augum litið. Eggið fengu þeir hjá afa Heiðars, Guðmundi Jóhannssyni, á
Kambi í Eyjafirði, en þetta egg minnir okkur óneitanlega á vísitöluna og verðbólguna. Ef þetta væri visitöluegg og færi að kenna hænunni þá
myndu bændur og aðrir komast af með minni hænsnakofa en svo er bara spurningin hvort ráð hafi verið fyrir þessu gert í vísitölufrumvarpinu?
Mynd: ESE
Rækjuveiðar
í Öxarfirði
Húsavík 21. febrúar.
Rækjuveiðar eru nýhafnar í
Öxarfirði. 90 tonna bátur, Þor-
steinn frá Raufarhöfn var feng-
inn til Kópaskers og mun hann
landa afla sínum í rækjuvinnsl-
una þar.
Að sögn Péturs Þorgrímssonar,
kaupfélagsstjóra KNÞ á Kópa-
skeri mun tilkoma þessa báts lyfta
mjög undir átvinnumálum staðar-
ins en þetta er eini báturinn sem
þaðan er gerður út. Pétur sagði þó
litla reynslu á þessar veiðar
komnar, rækjan væri dreifð í firð-
inum og talsvert happadrætti að
finna hana. Um atvinnumálin al-
mennt sagði hann að þau hefðu
verið í nokkuð góðu lagi. Allt upp
í 25 manns hefðu haft atvinnu í
kjötiðju kaupfélagsins við slátur-
gerð og við að svíða hausa. Meðal
annars hefur kjötvinnslan sviðið
og verkað hausa fyrir Þórshafnar-
búa.
-ÞB
Mikilvægt mál fyrir Húsa-
vík og kjördæmið í heild
-segir Guðmundur Bjarnason, alþingismaður, um pappírskvoðuversmiðjuna
„Nú eru málin mjög að skýrast
og sú skýrsla sem beðið hefur
verið eftir varðandi hag-
kvæmniathugun á verksmiðj-
unni er að líta dagsins Ijós. Svo
virðist sem málið sé allt mjög
hagstætt, ef marka má þær
fréttir sem þegar hafa borist, og
er það mikið fagnaðarefni fyrir
Húsvíkinga, sem bundið hafa
miklar vonir við þetta og beðið
eftir upplýsingum með mikilli
eftirvæntingu,“ sagði Guð-
mundur Bjarnason, alþingis-
maður, í viðtali við Dag um
fyrirhugaða pappírskvoðu-
verksmiðju á Húsavík, sem
Dagur greindi frá í síðustu
viku.
„Ég tel aö hér sé um mjög þýð-
ingarmikið skref að ræða í
atvinnuuppbyggingu á Húsavík ef
af þessu getur orðið, og má reynd-
ar segja fyrir kjördæmið í heild.
Atvinnulíf á Húsavík hefur verið
fremur einhæft til þessa einkum
byggt á sjávarútvegi og þjónustu
við héraðið, eins og reyndar á
flestum þéttbýlisstöðum út um
allt land. Húsavík er hins vegar nú
af þeirri stærð að mjög þýðingar-
mikið er að renna fleiri stoðum
undir atvinnulífið þar og treysta
byggðina.“
„Er það tryggt að verksmiðju-
rekstur af þessu tagi verði settur
niður á Húsavík, ef hann reynist
hagkvæmur?“
„Eins og allir vita áttu Húsvík-
ingar frumkvæðið að því að þetta
mál fór í gang og hafa bæjaryfir-
völd þar fylgt því fast eftir, lagt lið
ýmsum undirbúningsrannsóknum
með fjárframlögum, þó einkum
hafi málið verið á vegum Iðnað-
arráðuneytisins og kostað af því,
enda miklu stærra en svo að lítið
bæjarfélag úti á landi geti annast
það eitt. Við þingmenn kjördæm-
isins höfum fylgst með málinu, án
þess það hafi teljandi komið til
okkar kasta ennþá nema þá
óbeint í gegn um fjárveitingar til
undirbúningsrannsókna. Við
munum örugglega leggja því lið
eftir mætti og eftir því sem á okk-
ar valdi stendur. Við teljum að
málið sé Húsvíkinga frá upphafi,
vegna þess frumkvæðis sem þeir
hafa haft,“ sagði Guðmundur
Bjarnason að lokum.