Dagur - 01.03.1983, Qupperneq 1
HALSFESTAR
8 og 14 KARÖT
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
- á alþjóðlegum
bænadegikvenna
Alþjóðlegur bænadagur
kvenna verður í ár haldinn
föstudaginn 4. mars. Á þessum
degi munu samtök kvenna víða
um heim og í ýmsum kirkju-
deildum og trúfélögum gangast
fyrir guðsþjónustu þar sem
konur annast alla framkvæmd.
Konur í Hálsprestakalli í
Fnjóskadal hafa nú ákveðið að
slást í hópinn og munu þær
messa að Hálsi nk. föstudag kl.
20.30.
Hér á landi hefur alþjóðlegur
bænadagur kvenna verið haldinn
hátíðlegur í mörg ár bæði í
Reykjavík og víða um land. Þema
dagsins að þessu sinni verður: Ný
sköpun í Kristi.
Kristín Jónsdóttir, Draflastöð-
um og Auður Guðjónsdóttir,
Hálsi, munu annast predikunar-
starfið við messu kvennanna í
Hálsprestakalli. Ritningarlestur
og bænargjörð verða fluttar af
konum úr öllum þremur sóknum
prestakallsins. Þó konur annist
guðsþjónustuna eru karlmenn
velkomnir kirkjugestir ekki síður
en konur, að sögn Kristjáns Ró-
bertssonar, sóknarprests.
Sinfónían:
Stjórn Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands ákvað á fundi sínum í síð-
ustu viku að vegna þess hvað
leiga væri há fyrir íþróttahöll-
ina nýju gæti ekki orðið af
hljómleikum þeim sem fyrir-
hugaðir voru þar 12. mars n.k.
Farið er fram á 30 þúsund
króna leigu fyrir höllina.
Að sögn Sigurðar Björnssonar,
framkvæmdastjóra hljómsveitar-
innar, mun þetta mál að vísu
verða endurskoðað, þannig að
ekki er enn útséð með hvort af
hljómleikunum verður, en flytja
átti Tosca og Kristján Jóhannsson
meðal flytjenda. Hermann Sig-
tryggsson, íþróttafulltrúi, segir í
viðtali við Dag að íþróttaráð hafi
eiginlega verið sett upp við vegg í
þessu máli og sagt að ef leigan yrði
of há gæti hugsanlega ekki orðið
af tónleikunum. Helgi Bergs,
bæjarstjóri, segir að þessi leiga
fyrir húsið sé ekki há og ef hljóm-
sveitin geti ekki uppfyllt þær
skyldur sínar að halda tónleika úti
á landi væri réttast að breyta um
nafn á henni og kalla Sinfóníu-
hljómsveit Reykjavíkur, sem hún
virtist vera í raun. Sjá nánar um
málið á bls. 3.
Akureyri, þriðjudagur 1. mars 1983
25. tölublað
Vilja lögbinda verð-
bólgu og atvinnuleysi
- segir Stefán Valgeirsson, alþingismaður, um Alþýðubandalagið
„Alþýðubandalagið talar um
það núna að það vilji koma í
veg fyrir kjaraskerðingu með
því að borga fullar verðbætur á
laun. Vísitöluhækkunin núna
þýðir að láglaunamaðurinn fær
1.500 króna hækkun um mán-
aðamótin, aðrir fá 4.500 krónur
í launahækkun og enn aðrir allt
að 6.000 krónur. Þannig verða
áhrifín af 14,74% vísitölu-
hækkuninni núna 1. mars,“
sagði Stefán Valgeirsson, al-
þingismaður, í viðtali við Dag.
„Það er talið að verðlagsgrund-
völlur landbúnaðarvara muni
hækka um 18% og það má ætla að
sumar landbúnaðarvörur hækki
um allt að 30% en Alþýðubanda-
lagið hefur neitað að auka niður-
greiðslurnar. Það sér hver maður
að þetta getur ekki komið vel út
fyrir launafólk," sagði Stefán enn-
fremur.
„Nú má segja að búið sé að loka
hringnum. Það er búið að ákveða
að fiskverð hækki hlutfallslega við
kaup í landinu. Það má segja að
búið sé lögbinda verðbólguna.
Það gefur auga leið að gengi ís-
lensku krónunnar muni falla um
10-12% í kjölfarið ef við gerum
ráð fyrir að gengisfelling verði
eins lítil og hægt er að komast af
með svo atvinnuvegirnir gangi.
Allir þeir sem eru neðan við með-
altalið hljóta að tapa og Alþýðu-
bandalagið er því að berjast fyrir
kjaraskerðingu þeirra sem eru í
lægri kantinum með laun. Þeir eru
málsvarar þeirra tekjuhærri.
Þá hefur mér verið tjáð að mörg
þjónustufyrirtæki, s.s. í verslun,
verði að mæta þessari hækkun
vísitölunnar með hlutfallslegri
fækkun starfsmanna sinna. Það er
því ekki nóg með að verið sé að
lögbinda verðbólgu og kjara-
skerðingu þeirra lægst launuðu,
miðað við hina sem eru fyrir ofan
meðaltalið, heldur er einnig verið
að lögbinda atvinnuleysi. Mér
sýnst þetta heldur ógæfuleg stefna
að fara með út í kosningar fyrir
Alþýðubandalagið. Þá er afstaða
stjórnarandstæðinga í Sjálfstæðis-
flokknum ekki burðugri. Vegna
persónulegrar andúðar í garð
Gunnars Thoroddsens fyrst og
fremst eru þeir mótfallnir vísi-
tölufrumvarpi hans sem gæti
lækkað verðbólgu um 5-6% og nú
á að stefna öllu í stéttastríð,“
sagði Stefán Valgeirsson. Sjáenn-
fremur bls, 3.
Sögustundír hafa notið vinsælda á laugardagsmorgnum í Amtsbókasafninu. Sjá skýrslu um safnið á bls.4,
Mynd: KGA
Stórsamningur
um sölu á
mokkakápum
Iðnaðardeildin hefur gert stór-
samning um sölu á rnokka-
skinnskápum til Sovétrlkjanna,
samtals 10 þúsund kápur. Þetta
er stærsti samningur um kápu-
framleiðslu sem iðnaðardeildin
hefur gert og mjög stórt verk-
efni jafnvel á mælikvarða
stórra erlendra verksmiðja.
Samningurinn hljóðar upp á 36
milljónir króna og í þessar tíu
þúsund kápur fara um 80 þúsund
mislit skinn. Þau verða sútuð hér-
lendis en að hluta til saumuð er-
lendis því iðnaðardeildin ræður
ekki við svo stóran samning á til-
tölulega stuttum tíma. Fyrsta
sendingin fer í maí og svo í áföng-
um út árið.
Um tíma leit illa út með fjár-
mögnun þessa verkefnis en
rekstrarfj árstaða iðnaðardeildar-
innar er mjög slæm. Ræst mun
hafa úr þessum erfiðleikum núna
fyrir helgina.
„Göngumenn“ fá ekki að nota
listabókstaf Framsóknar
— að sögn Guttorms Óskarssonar,
formanns kjördæmisráðs í Norðurlandskjördæmis vestra
Á fundi sem haldinn var í
Framsóknarfélagi V-Húna-
vatnssýslu á Hvammstanga
fyrir skömmu var samþykkt til-
laga um að félagið tilnefndi tvo
menn á lista Framsóknarflokk-
sins í Norðurlandi vestra. Til-
laga þessi var samþykkt eftir
miklar og heitar umræður á
fundinum með 44 samhljóða
atkvæðum.
Að sögn Brynjólfs Sveinbergs-
sonar á Hvammstanga greiddu
flestir „göngumanna" atkvæði
með tillögunni og taldi Brynjólfur
skýringuna þá að þeir vildu ekki
standa í vegi fyrir því að félagið
tilnefndi menn á listann þó svo að
þeir vildu ekki styðja hann.
Göngumenn báru svo upp tillögu
þar sem óskað er eftir og beint til
kjördæmisstjórnar Framsóknar-
flokksins að hún gefi leyfi til þess
að notaður verði listabókstafur
flokksins, það er BB, á lista fram-
sóknarmanna sem borinn verður
sérstaklega fram fyrir utan hið
hefðbundna framboð. Tillaga
þessi var samþykkt með 26 at-
kvæðum gegn 22. Brynjólfur
sagði að línurnar í málefnum
flokksins væru orðnar nokkuð
skýrar hjá flokksbundnum mönn-
um og væru það aðeins nokkrir
menn sem styddu væntanlegt sér-
framboð. Þeir virtust aðallega
hafa nýkomið fólk í kringum sig
og láta mun hærra heyra í sér en
meirihlutinn. Brynjólfur sagði
það furðulegt að fjölmiðlar hefðu
ekki sýnt neina eftirtekt þegar
stór hluti fundarmanna hefði sam-
þykkt samhljóða að standa að
framboði en þess í stað leituðu
þeir jafnan eftir upplýsingum frá
einstaka uppþotsmönnum og
skýrðu frá þátttöku þeirra. Eftir
umræddan fund mun sá hópur
manna sem standa mun að lista
Framsóknarflokksins hafa komið
saman og tilnefnt tvo menn á list-
ann en nöfn þeirra munu fyrst
verða kunngerð uppstillingar-
nefnd og stjórn flokksins.
Dagur leitaði álits Guttorms
Óskarssonar, formanns kjördæm-
isráðs Framsóknarflokksins í
Norðurlandi vestra á því hvort
kjördæmisráðið myndi heimila
„göngumönnum" að nota lista-
bókstaf flokksins í væntanlegu
framboði. Guttormur sagði að
það yrði örugglega ekki leyft.
Guttormur sagði ennfremur að á
fimmtudaginn kemur myndi kjör-
dæmisstjórn flokksins ásamt upp-
stillingarnefnd koma saman og
ganga endanlega frá framboðs-
lista. Ó.J.