Dagur - 18.03.1983, Blaðsíða 5

Dagur - 18.03.1983, Blaðsíða 5
verður þess valdandi að þeir gef- ast upp. Þetta getur verið hálfgert meinlætalíf og aðalfæðan er yfir- leitt fiskur og grænmeti. Mjólk- urvörur ýmiss konar eru einnig góðar og ætli við neytum ekki u.þ.b. 3500 hitaeininga daglega. Þetta er svipað og mælt er með fyrir venjulegt fólk en við getum þó stundum þurft að fara mikið neðar eða allt niður í 1000 hitaein- ingar yfir daginn en það er sér- staklega fyrir mót sem slíkt gerist, segir Sigurður. Samkvæmt upplýsingum Sigurðar og Gísla er mataræðið vikurnar fyrir mót mjög mikilvægt. Allir vaxtarræktarmenn stefna að því að ná sem bestum „skurði“ þann- ig að vöðvarnir verði greinilegri. Það sem í raun gerist er að vatn og fita milli vöðvanna hverfur úr lík- amanum og skilin milli vöðvanna verða skarpari. - En hvernig er staða vaxtar- ræktar á Akureyri í dag? - Það er alveg ótrúlegur áhugi á vaxtarrækt hér. Það urðum við varir við strax og við fluttum í íþróttahöllina. Við erum eigin- lega að sprengj a allt utan af okkur og það hefur komið fyrir að um hundrað manns hafi komið á ein- um degi til æfinga, segir Gísli og bætir því við að brýna nauðsyn beri til að bæta tækjabúnaðinn. Mikið af tækjunum séu heima- smíðuð og önnur orðin úr sér gengin og því mikilvægt að endur- nýja en það kostar jú peninga. Tekjur af vaxtarræktinni í íþróttahöllinni eru nokkrar og eins hafa námskeið þau sem hald- in hafa verið gefið nokkuð í aðra hönd. En það hrekkur skammt. Bæði er leigan í Höllinni nokkuð dýr og eins kostaði þátttakan í ís- landsmótinu sitt. Góð aðsókn að mótinu á sunnudag er því nauð- synleg en í raun sögðust þeir Gísli og Sigurður ekki hafa miklar áhyggjur af því að það dæmi gengi ekki upp. Gamla bíó hefði verið troðfullt á íslandsmótinu og þeir tryðu því ekki að áhuginn væri minni hér. tali við Dag, en þeir hafa ásamt félögum sínum í vaxtarræktardeildinni borið veg og vanda af skipulagningu „Yaxtar- rækt ’83“ en svo nefnist mótið sem haldið verður í Sjallanum á sunnudag. Þeir Sigurður og Gísli verða báðir í eldlínunni á sunnudag og báðir voru meðal keppenda á íslands- meistaramótinu. Þarvarð Sigurð- ur íslandsmeistari í 70-80 kg. flokki en Gísli hafnaði í öðru sæti eftir geysilega harða keppni við Flosa Jónsson, einnig frá Akur- eyri. - Ég byrjaði í vaxtarræktinni fyrir þrem árum síðan en áður hafði ég keppt á skíðum í ein tíu ár, segir Sigurður. Að sögn þeirra félaga er undirstaða árangurs í þessari íþróttagrein, æfingar og aftur æfingar og þeir sem ætla sér að ná langt í greininni mega hvergi slaka á. - Við höfum æft gífurlega vel frá því í sumar og nú síðustu átta vikurnar fyrir Islandsmeistara- mótið æfðum við tvisvar á dag sex daga vikunnar, segir nú Gísli. - Við munum að sjálfsögðu hægja eitthvað á eftir þessi mót, en við munum þó æfa fjóra til fimm daga í viku og um frí er ekki að ræða. Ef við förum eitthvað þá verðum við að æfa þar. Við stefn- um að áframhaldandi keppni og auðvitað ætlum við beina leið á toppinn, segja þeir félagarnir en eru báðir sammála um að nauð- synlegt sé að hafa mót reglulega til þess að hafa eitthvað ákveðið mark að stefna að. Að sögn þeirra Sigurðar og Gísla eru margir vaxtarræktar- menn á toppinum 45 ára gamlir og leiðin á toppinn kann því að verða löng bæði í árum og erfiði talin. En það eru ekki bara geysiharðar æfingar sem liggja að baki góðs árangurs - gæta þarf sérstakrar aðgætni varðandi mataræði. - Það er kannski mataræðið sem er erfiðast fyrir marga og Nokkrir félaganna úr vaxtarræktardeild LRA - fv. Einar Guðmann, Sigurður Pálsson, íslandsmeistari í flokki ung- linga 75 kg. og þyngri, Sigmar Knútsson, Sigurður Gestsson, íslandsmeistari 170-80 kg. flokki og Gísli Rafnsson. Mynd: ESE Rættvið Sigurð Gestsson og Gísla Rafhs- sonhjá mxtarrækt- ardeild LRA Þrir keppendanna í flokki 70 - 80 kg. á íslandsmótinu. Lengst til hægri er Gísli Rafnsson frá Akureyri sem varð annar í flokknum og í miðjunni er Flosi Jónsson frá Akureyri sem varð þriðji. Flosi og Kári settu sig að sjálfsögðu í vaxtarræktar stellingar. Mynd: ESE km 1 Árangurinn í vaxtar- ræktarkeppnhun kom okkur á óvart“ — segja lyftingameunimir Flosi Jónsson og Kári Etíson Lyftingamenn hafa verið drjúgir við að taka þátt í þeim tveim íslands- mótum sem haldin hafa verið í vaxtarrækt fram að þessu. Guðmundur Sigurðsson, íslandsmeistari í vaxtarrækt, er t.d. margfaldur íslands- meistari í lyftingum og svo mætti lengi telja. Tveir lyftingamenn frá Ak- ureyri þeir Kári Elíson og Flósi Jónsson tóku þátt í Islandsmeistaramót- inu og gerði Kári sér lítið fyrir og vann sinn flokk en Flosi varð þriðji í sínum þyngdarflokki. - Þetta kom mjög þægilega á óvart, segir Kári og Flosi segist aldrei hafa átt von á því að komast á pall. Að sögn þeirra félaga æfðu þeir ekkert sérstaklega fyrir mótið ef síðasti hálfur mánuðurinn er undanskilinn enn þá tóku þeir líka vel á. Það vill svo skemmtilega til að þeir Flosi og Kári tóku þátt í fyrsta meistaramótinu sem haldið var í lyftingum á íslandi en þá kepptu þeir í 56 kg og 52 kg flokki. - Við vorum sem sagt eins og blessaðar dúfurnar sem kepptu á vaxtarræktarmótinu, segja þeir - ungir og léttir. Af þeim keppend- um sem þátt tóku í þessu fyrsta lyftingamóti eru þeir einir eftir sem virkir keppnismenn og nú stefna þeir báðir á Norðurlanda- mótið í kraftlyftingum sem fram fer á Álandseyjum í sumar. En þeim Flosa og Kára er fleira til lista lagt en lyftingar og vaxtar- rækt. Kári, sem sett hefur um 140 íslandsmet í lyftingum, er vel lið- tækur skákmaður og hefur m.a. orðið Skákmeistari Akureyrar oftar en einu sinni. - Ég tefldi alltaf nokkuð sem unglingur og á Akureyrarmóti ’79 fékk ég að vera með í efsta flokki fy rir hreina tilvilj un af því að mót- ið var svo illa skipað. Ég hafnaði þarna í efsta sæti ásamt Gylfa Þór- hallssyni en tapaði svo titlinum í einvígi en ég bætti það bara upp áriið eftir, segir Kári. Flosi, sem er gullsmiður á Ak- ureyri, er heldur ekki við eina fjö- lina felldur þvf hann var á árum aður virkur bíladellukarl og rak þá meðal annars Tryllitækjabúð- ina samhliða gullsmíðastofunni Skart. Flosi á enn eitt íslandsmet í bílaíþróttum en það er í sand- spyrnu í standard jeppaflokki, sett í fyrra sumar. Þegar blaðamaður Dags ræddi við þá Kára og Flosa var ekki ljóst um þátttöku Kára á mótinu í Sjailanum. Flosi ætlaði ekki að vera með enda hefði það aidrei staðið til að taka þátt í fleiri mót- um en íslandsmeistaramótinu í Reykjavík. -:6Í 8.,roare 1983,-^PAQUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.