Dagur - 29.03.1983, Page 1

Dagur - 29.03.1983, Page 1
FERMINGAR- GJAFIR í MIKLU ÚRVALI GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 66. árgangur Akureyri, þriðjudagur 29. mars 1983 37. tölublað LAUN AMISRETTIÐ EYKST STÖÐUGT — vegna verðbólgunnar og vísitölukerfisins Á fundi með frambjóðendum Framsóknarflokksins í Norður- landi eystra í Þingeyjarsýslum að undanförnu hefur m.a. verið rætt um vísitölumál og það hvaða afleiðingar verðbólgan hafi á launakjör í landinu, mis- munandi eftir því hversu há laun menn hafa fyrir. Hún veld- ur því m.a. að launamisréttið eykst stöðugt, auk þess sem atvinnulífinu stendur mikil hætta af þróuninni. Frambjóð- endur Framsóknarflokksins hafa lagt á það megináherslu að á þessu verði að verða breyting. Sem dæmi um það hvaða áhrif verðbólgan hefur á launahækkan- ir vegna verðbóta má nefna að ef reiknað er með því að 15% verð- bótahækkun komi á laun öll fjög- ur verðbótatímabilin á þessu ári, þ.e. 1. mars, 1. júní 1. september og 1. desember þá myndu laun þess sem er með 10 þúsund krón- ur í febrúar í mánaðarlaun hækka um 7.490 krónur á árinu, laun þess sem hefur 40 þúsund krónur í febrúar myndu hækka um 29.960 krónur og sá sem hefði 50 þúsund krónur í laun í febrúar myndi fá 37.450 krónur í verðbætur á ár- inu, eða 30 þúsund krónum meira en sá fyrrnefndi. í lok ársins hefði sá sem hafði 10 þúsund í febrúar því 17.490 kr í mánaðarlaun, sá sem hafði 40 þúsund væri kominn í 69.960 kr og sá sem hafði 50 þús- und fengi í desember 87.450 kr í mánaðarlaun. Þessar hækkanir eiga að vega upp verðlagshækk- anir og þær ganga nokkuð jafnt yfir alla, þannig að munur á kaup- mætti hæstu og lægstu launa fer sífellt vaxandi í þessu sjálfvirka kerfi. Sjá nánar grein á bls. 4 Jón A. prestur í London „Það má segja að hér sé um til- raun að ræða því ég fékk heim- ild til þess hjá dóms- og kirkju- málaráðuneytinu og einnig hjá fjármálaráðuneytinu að ráða prest til starfa í Bretlandi í 6 mánuði“ sagði biskup íslands, hr. Pétur Sigurgeirsson er Dag- ur ræddi við hann. „Á þessum tíma munum við fá reynslu á það hvort þörf er fyrir þetta starf í Bretlandi. Ég hef leit- að til Jóns Aðalsteins Baldvins- sonar á Staðarfelli í Kinn um að hann taki þetta starf að sér og hann hefur orðið við því. Hann mun því fá leyfi frá störfum á Staðarfelli í 6 mánuði" sagði biskup. Á síðasta kirkjuþingi var sam- þykkt að heimila biskupi að ráða prest í þetta starf með aðsetri í London og er það hliðstætt því starfi sem íslenskur prestur hefur unnið í Kaupmannahöfn undan- farin ár. Eftir að Jón Aðalsteinn hefur starfað ytra í 6 mánuði mun verða tekin ákvörðun um hvort á þessu verður áframhald. pilta vélhjóli Á sunnudagskvöld varð harður árekstur á mótum Þingvalla- strætis og Þórunnarstrætis. Fólksbifreið var ekið austur Þingvallastræti og beygði hún norður Þórunnarstræti fyrir vél- hjól sem ekið var vestur Þing- vallastrætið. Ökumaður vélhjóls- ins hlaut opið fótbrot og var flutt- ur á sjúkrahús og er hjól hans mikið skemmt. Nokkrar skemmdir urðu einnig á bifreið- inni. Hæstiréttur: Gert skylt að flytja út innan 3 mánaða Fimmtudaginn 25. mars var kveðinn upp i Hæstarétti dómur í máli Grímu Guð- mundsdóttur gegn Danielle Somers Jónsson og Ólafi Rafni Jónssyni þar sem kraf- ist var að Danielle og Ólafi væri gert skylt að flytja úr íbúð þeirra að Þingvalla- stræti 22 á Akureyri. í undir- rétti náði útburðarkrafan ekki fram að ganga en Hæstiréttur breytti niður- stöðunni og er Danielle og Ólafi gert skylt að flytja úr íbúð sinni innan þriggja mánaða frá birtingu dómsins og greiða allan málkostnað. Mál þetta er til komið vegna mikils ósættis íbúa hússins Þingvaliastræti 22 og á sér lang- an aðdraganda. Ekki eru tök á að rekja málið upp hér, eins og gert er í forsendum dómsins, en menn minnast e.t.v. máls sem reis vegna hleðslu á vcgg og niðurbrots. í dóminum segir m.a. um þctta atriöi: „Af hálfu stefndu er því haidið fram að veggurinn hafi verið reistur á öðrum stað en timburskilrúm- ið var, þannig að gengið hafi verið á eignarhluta þeirra og stefndi, Olafur Rafn hefur skýrt svo frá að ranglát og fá- ránleg skipting eignarhluta í húsinu sé undirrót að sundur- þykkju þeirri, sem orðið hafi með íbúum hússins. Ekki hafa stefndu þó reynt að fá hlut sinn að þessu leyti réttan cftir lög- legum leiðum. Af gögnum þeim sem fyrir liggja þykir ljóst að spellvirki þau á milliveggjum, sent lýst hefur verið, hafi öll verið unnin trá íbúð stefndu og verður að telja sannað að þau beri ábyrgð á þeim. Þykir eigi efamál að spellin hafi a.m.k. öðrum þræði verið unnin í því skyni að valda áfrýjanda og leigjanda hennar ama og vandræðum.” í dóminum er ennfremur tal- að um að „stefndu hefi gerst sek um stórkostleg og ítrekuð brot á skyidum sínum gagnvart áfrýjanda“. Þess má geta að Danielle og Ólafur Rafn hafa kært til sak- sóknara meinta ólöglega skipt- ingu hússins m.a. vcgna þess að á afsai þess sem keypti af Grímu og seidi þeim hafi vant- að stimpil lóðarskrárritara og heimild bygginganefnd.ar fyrir skiptingunni. norðanlands næstu daga: Norðanátt og él Veðurstofa Islands spáir því að í dag snúist veður í ákveðna norðanátt á Norður- og Vestur- landi með éljum, en bjartviðri verði sunnanlands. Frost verð- ur 4-6 stig. Veðurfræðingur á Veðurstofu íslands sem Dagur ræddi við sagð- ist reikna með að þetta veður myndi standa fram á föstudag. Lengra vildi hann ekki spá og sagði að þetta væri það lengsta sem hægt væri að fara í spá fram í tímann. Ekiðá

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.