Dagur - 19.04.1983, Blaðsíða 1
FERMINGAR-
GJAFIR
í MIKLU ÚRVALI
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREVRI
66.árgangur
Akureyri, þriðjudagur 19. aprfl 1983
43. tölublað
Hægt að framlengja
eða fresta kjörfundi
„Við verðum bara að treysta á
vegagerðarmennina, að þeir ýti
og ýti eins og vitlausir menn,
þannig að kjósendur komist á
kjörstað verði eitthvað að
veðri,“ sagði Ragnar Stein-
bergsson, formaður yfirkjör-
stjórnar í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, þegar Dagur
ræddi við hann um veðurútlitið
á kjördag.
„Við verðum með öll okkar
tæki og allan okkar mannskap í
viðbragðsstöðu, auk þess sem
reynt verður að ná samkomulagi
við einkaaðila um snjómokstur.
Þrátt fyrir það er ekki framkvæm-
anlegt að halda öllum vegum opn-
um ef veðrið verður eitthvað líkt
því sem var um helgina," sagði
Guðmundur Svafarsson, um-
dæmisverkfræðingur Vegagerð-
arinnar á Akureyri.
En hvað gerist ef kjósendur
geta ekki neytt atkvæðisréttar
síns vegna veðurs og ófærðar?
Samkvæmt upplýsingum Ólafs
W. Stefánssonar, deildarstjóra í
dómsmálaráðuneytinu, þá hafa
undirkjörstjórnir heimiid til að
fresta kjörfundi um allt að viku, ef
óviðráðanlegar aðstæður krefjast
þess.
Til þess þarf þó einróma
samþykkt í kjörstjórninni og sam-
þykki yfirkjörstjórnar í viðkom-
andi kjördæmi. Þetta gefur mögu-
leika til að framlengja kjörfund í
einstaka kjördeildum, eða fresta
honum t.d. til sunnudags. Um
leið er útilokaður sá möguleiki að
hefja talningu og birta tölur úr
öðrum kjördæmum landsins. Það
getur því farið svo að nk. sunnu-
dagsnótt verði engin kosninga-
nótt. Dómsmálaráðherra getur
sett bráðabirgðalög um frestun
kosninga en ekki er talið líklegt
að af því verði, enda stefnt að því
að kjósa á laugardag.
Samkvæmt tölvuspá sem
Veðurstofan fær frá Bretlandi er
spáð norðanátt og éljagangi á
Norðurlandi á laugardaginn.
Úveðrið
á Norðurlandi:
Selja stolin
merki
í nafni
Sjálfsbjargar
Nokkuö hefur borið á því að
undanförnu að óprúttnir aðilar
hafa gengið í hús hér í bænum
og selt merki og jafnvel konfekt
í nafni Sjálfsbjargar. Þessi sölu-
starfsemi er þó alls ekki á veg-
um Sjálfsbjargar heldur leikur
grunur á að hér sé verið að selja
stolin merki.
Að sögn Valdimars Péturs-
sonar, framkvæmdastjóra Sjálfs-
bjargar þá er full ástæða til að
biðja fólk að vera á varðbergi og
láta rannsóknarlögregluna vita
þegar í stað ef einhverjir reyna að
leika þennan leik aftur. Valdimar
sagði að eina merkjasalan sem
Sjálfsbjörg stæði fyrir færi fram í
lok september ár hvert en önnur
merkjasala væri ekki á vegum
samtakanna.
Þess má geta að rannsóknarlög-
reglan hefur nú mál þetta til með-
ferðar en „merkjasölumenn“
skutu fyrst upp kollinum fyrir tæp-
um mánuði eða svo en síðan þá
hafa viðkomandi reynt að selja
merkin á nokkrum stöðum.
Þrátt fyrir norð-austan stórhríð dag eftir dag með tilheyrandi fannfergi - og kosningum, þá er kominn vorhugur ■ börn-
in. Mynd: G.S.
Talsverð snjóflóðahætta var á
Siglufirði um helgina og sendi
almannavarnarnefnd bæjarins
út tilkynningu til bæjarbúa um
að vera við öllu búnir.
Þegar við töluðum við lögregl-
una á Siglufirði í gær var okkur
tjáð að hætt hefði að snjóa
snemma morguns en síðan fór að
snjóa aftur er leið á morguninn.
Snjóflóðahætta var enn til staðar
og voru það aðallega hús við
Suðurgötu sem voru á hættu-
svæði.
Lögreglan á Siglufirði tjáði
Degi að mjög mikill snjór væri í
bænum, með því mesta sem kom-
ið hefði í vetur en þó ekki það
almesta.
Á Húsavík er gífurlegt fann-
fergi. Þar voru allar götur ófærar
um helgina og öllum samkomum
sem vera áttu í bænum var
frestað. Reynt var að ryðja helstu
götur bæjarins á sunnudag með
öflugum heflum en fljótlega var
hætt við það verk þar sem strax
fennti og skóf í slóðirnar. Dæmi
voru um það að snjórinn næði upp
á aðra hæð íbúðarhúsa og Hús-
víkingar héldu sig því sem mest
inni við um helgina. Þannig
reyndist t.d. ekki unnt að hafa
kosningaskrifstofur í bænum opn-
ar svo dæmi sé nefnt.
Leiftursókn þrátt fyrir
orðalagsbreytingar
„Við viðurkennum fúslega að
stjórnarsamstarfið bar ekki
þann árangur sem til var ætlast í
verðbólgumálum, enda má
segja að stjórnarmyndunarvið-
ræður hafi staðið allan tímann.
Þrátt fyrir málefnasamninginn
tókst ekki að fá samstarfsaðil-
ana í ríkisstjórn til að fara eftir
honum, því viljuni við nú
tryggja undanbragðalausar að-
gerðir með lögfestingu tfl t.d.
tveggja ára,“ sagði Guðmund-
ur Bjarnason, alþingismaður, á
fundi sem Félag ungra fram-
sóknarmanna hélt á fimmtu-
dagskvöld með yngri frambjóð-
endunum á lista Framsóknar-
flokksins í kjördæminu.
Hákon Hákonarson benti
fólki á að lesa grein eftir Hall-
dór Blöndal í íslendingi frá 14.
aprfl þar sem hann talar um að
koma verðbólgunni niður í einu
vetfangi. Ekki væri hægt að
skilja þessi orð öðruvísi en að
leiftursóknin væri það úrræði
sem Sjálfstæðisflokkurinn
hygðist nota ef hann fengi góða
kosningu. Aðeins væri um
orðalagsbreytingu að ræða.
„Við viljum lögbinda þak á
hækkun verðlags, vaxta, launa,
búvöruverðs og fiskverðs. Sé hins
vegar grundvöllur fyrir grunn-
kaupshækkanir án þess að þær
fari beint út í verðlagið og auki
verðbólguhraðann er ekkert því
til fyrirstöðu að aðilar vinnumark-
aðarins semji um þær,“ sagði
Guðmundur Bjarnason.
Níels Á. Lund ræddi lítillega
um Vilmundarframboðið. Hann
sagði að Vilmundur hafi fallið í
kjöri innan síns flokks, en þar sem
hann hafi verið staðráðinn í því að
halda áfram hefði hann þurft að
finna sér stefnuskrá. Sú stefnu-
skrá væri byggð á því að sá óá-
nægju meðal þjóðarinnar. Níels
minntist einnig á það að Fram-
sóknarflokkurinn legði á það höf-
uðáherslu að halda fullri atvinnu.
Til þess mætti ekki koma að ungt
fólk sem væri að ljúka námi sæi
ekki fram á neina atvinnu og
nefndi dæmi um könnun meðal
skólafólks í Svíþjóð, þar sem að-
eins 10% nemenda taldi sig ör-
ugga um að fá vinnu að námi
loknu. Níels benti á að þrátt fyrir
800 milljón króna tekjutap vegna
aflabrests hefði tekist að halda
uppi fullri atvinnu.
Valgerður Sverrisdóttir lagði
áherslu á að byggðastefna væri
ekki að segja höfuðborginni stríð
á hendur og jafnframt segja að
ekki megi fækka sauðkindinni.
Spurningin væri um jafnrétti milli
landshluta.
f ávarpi Hákonar Hákonar-
sonar kom fram að Alþýðubanda-
lagið hefði ekki séð sér annað fært
en fallast á niðurtalningarstefnu
framsóknarmanna að loknum
kosningunum 1979. Þeir hafi hins
vegar aldrei í raun ætlað sér að
vinna heils hugar að þessari stefnu
og láta þar með koma í ljós hversu
áhrifarík hún væri. Hákon sagði
ennfremur að menn skyldu ekki
ganga að því gruflandi að Sjálf-
stæðisflokkurinn væri með leift-
ursóknina uppi í erminni tilbúinn
að taka hana í notkun, með til-
heyrandi atvinnuleysi.
Þóra Hjaltadóttir talaði síðust
frummælenda og lagði m.a.
áherslu á atvinnumálin. Athuga
yrði vel alla möguleika og varpa
þeim ekki fyrir róða fyrirfram
vegna fordóma.