Dagur - 21.04.1983, Page 1

Dagur - 21.04.1983, Page 1
FLORA DANICA SKARTGRIPIRNIR KOMNIR. MIKIÐ ÚRVAL. GULLSMIÐIR l SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 66.árgangur Akureyri, fimmtudagur 21. aprfl 1983 Sumri fagnad. Mynd: - g Merkisberi Viðbún- aður hjá út- varpi og sjónvarpi Útvarp og sjónvarp verða með talsverðan viðbúnað á Akur- eyri á kjördag og á kosninga- nóttina og er stefnt að því að Norðurlandskjördæmi eystra verði talsvert í sviðsljósinu. Útvarpið mun er líða tekur á kvöldið birta fréttir um færð og hvernig gengur að safna saman kjörgögnum til Akureyrar. Eftir að talning hefst verður útvarps- maður sem fylgist með talning- unni. Þá verður bein útsending úr Hljóðhúsinu á Akureyri eftir að fyrstu tölur koma, þar sem rætt verður við fulltrúa allra lista er bjóða fram. Sjónvarpið mun taka myndir og viðtöl við kjósendur á Akureyri á kjördag sem sýndar verða í kosn- ingasjónvarpi og verður rætt við þá um útlit og horfur. Þá er fyrir- hugað að sjónvarpsmenn bregði sér til Sauðárkróks sömu erinda ef veður og færð leyfa. Og sjónvarp- ið verður að sjálfsögðu með full- trúa við talningu atkvæða á Akur- eyri. I ávarpi frambjóðenda Fram- sóknarflokksins sem birtist á bls. 5 í dag er lögð megin- áhersla á undanbragðalausa niðurtalningu verðbólgu- stigsins, atvinnuöryggi, byggðastefnu, eflingu vel- ferðarþjóðfélags, jafnrétti kynja og rækt við landið og menningararf þjóðarinnar. í ávarpinu segir meðal annars: Niðurtalningin er samræmd verðlækkunarstefna sem miðar að því að lögfesta verðhjöðnun stig af stigi. Framsóknarflokk- urinn telur atvinnuöryggi aðal- hagsmunamál verkamanna og ananrra launþega og lítur á atvinnuleysi sem svik við vinnufúst fólk. Byggðastefna hefur lyft Grettistökum í atvinnu- og félagslífi lands- byggðarinnar síðastliðin 12 ár. Við minnum á að Framsókn- arflokkurinn er viðurkenndur flokkur landsbyggðarinnar og merkisberi framsækinnar landsbyggðarstefnu. Framsóknarflokkurinn er pólitísk kjölfesta á Norður- landi. Við vörum við framboðum sem veikja þessa kjölfestu og leiða til sundurlyndis. Kvennalistinn sundrar en sameinar ekki. Vilmundarliðið er upp- lausnarafl án allrar stefnu. Stuðningur við það er pólitísk uppgjöf. Alþýðubandalagið þarfnast viðvörunar og aðhalds um að vinna raunsætt en ekki með skrumi og slagorðum. Sjálfstæðisflokkurinn boðar leiftursókn og árás á atvinnuör- yggið. Sjábls. 5. 44. tölublað Akstur á kjördag Ýmislegt bendir til þess að veður verði ekki sem best á Norðurlandi á kjördag og því gæti svo farið að veður og ófærð gerði ýmsum erfitt fyrir með að komast á kjörstað. Framsóknarflokkurinn hvetur alla sem á aðstoð gætu þurft að halda við að komast á kjörstað til þess að hafa samband við trúnað- armenn flokksins í hverju sveitar- félagi og munu þeir fúsir til að veita alla þá hjálp sem unnt er. Einnig eru allir þeir sem hafa góða og vel búna bíla til vetrar- aksturs og möguleika á að að- stoða við akstur á kjördag hvattir til þess að hafa samband við trún- aðarmenn flokksins. Það má ekki henda að veður og ófærð hafi áhrif á kjörsókn. Því er skorað á alla framsóknarmenn að koma til starfa á kjördag og vinna vel að sigri B-listans. Gerist það, er forustuhlutverk Framsóknar- flokksins í málefnum Norðlend- inga tryggt Á bls. 3 jr listi yfir kosninga- skrifstofur og trúnaðarmenn Framsóknarflokksins birtur og einnig bflasímar í kjördæminu. Fyrstu tölur upp ur miðnætti „Við verðum að haga seglum eftir vindi á kjördag, en ef allt gengur samkvæmt áætlun ættu fyrstu tölur frá okkur að koma um hálf eitt leytið,“ sagði Ragnar Steinbcrgsson, for- maður yfirkjörstjórnar í Norðurlandskjördæmi eystra í samtali við Dag. Það kom einnig fram í samtal- inu við Ragnar, að talningarmenn munu loka sig af í Oddeyrarskóla um kvöldmatarleytið á kjördag og hefja talningu. Það verður þó ekki gert nema tryggt sé að kjör- fundum í öllum kjördeildum landsins ljúki á tilsettum tíma, því verði þeim frestað, t.d. í ein- hverja daga þá þurfa talningar- mennirnir að vera innilokaðir í jafnlangan tíma. Kjörgögn verða flutt til Akur- eyrar með ýmsum hætti, t.d. með flugvél frá Grímsey, Þórshöfn og Raufarhöfn, en bílum frá Dalvík og Ólafsfirði. Gangi allt sam- kvæmt áætlun verða allir at- kvæðakassarnir kómnir í Oddeyr- arskólann upp úr miðnætti. Verði hins vegar ekki flugveðut kemur babb í bátinn. Það tekur nefnilega tímann sinn að aka með kjörkass- ana alla leið frá Þórshöfn og í versta falli getur þurft að flytja þá sjóleiðina. Fari svo þarf ekki að búast við tölum úr Norðurlands- kjördæmi eystra fyrr en með sunnudagskaffinu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.