Dagur - 26.04.1983, Blaðsíða 1
FLORA
DANICA
SKARTGRIPIRNIR
KOMNIR.
MIKIÐ ÚRVAL.
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66.árgangur
Akureyri, þriðjudagur 26. aprfl 1983
44. tölublað
Nýju framboðin voru
sigurvegarar kosninganna
Bandalag jafnaðarmanna og
Samtök um kvennalista urðu
sigurvegarar í alþingiskosning-
unum sem fram fóru um
helgina. Þessi samtök buðu í
fyrsta skipti fram til Alþingis
og hlutu alls 7 þingmenn.
Sjálfstæðisflokkurinn vann ör-
lítið á og vann eitt þingsæti.
aðrir flokkar, Alþýðuflokkur,
Framsóknarflokkur og Al-
þýðubandalag töpuðu nokkru
fy'g'-
Alþýðuflokkurinn fékk alls
15.214 atkvæði eða 11,7%, tapaði
5,8% og fjöldi þingmanna flokks-
ins fór úr 10 í 6. Framsóknar-
flokkurinn fékk 24.094 atkvæði
eða 19%, tapaði 5,9% og hefur
nú 14 þingmenn í stað 17 áður.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 50.253
atkvæði eða 38,7%, bætti við sig
3,3% og hefur nú 23 þingmenn í
stað 22 áður. Alþýðubandalag
fékk 22.489 atkvæði eða 17,3%,
tapaði 2,4% og hefur 10 þing-
menn í stað 11 áður.
Framboð Bandalags jafnaðar-
manna fékk alls 17,3% og fjóra
þingmenn. Vilmundur Gylfason
náði kosningu í Reykjavík og tók
með sér þrjá landskjörna þing-
menn inn á Alþingi. Samtök um
kvennalista náðu einum kjör-
dæmakjörnum þingmanni, Sig-
ríði Dúnu Kristmundsdóttur í
Reykjavík og hún tók með sér tvo
landskjörna þingmenn á Alþingi.
Sérframboðin tvö, BB-listinn í
Norðurlandskjördæmi vestra og
T-listinn í Vestfjarðakjördæmi
fengu 0,5% hvort framboð og
voru langt frá því að fá mann
kjörinn.
Miklar vangaveltur eru nú uppi
um það hvernig ganga muni að
koma saman ríkisstjórn, en telja
má fullvíst að forseti íslands feli
Sjálfstæðisflokknum að hafa for-
göngu um myndun ríkisstjórnar í
fyrstu.
Ríkisstjórnarfundur var hald-
inn í morgun. Þar átti að taka
ákvörðun um hvenær ríkisstjórn-
in segir af sér. Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra hefur
ekkert viljað um það mál segja,
en Steingrímur Hermannsson
formaður Framsóknarflokksins
sagði í sjónvarpsumræðum í
fyrrakvöld að stjómin ætti að fara
frá sem allra fyrst svo viðræður
um nýja stjórn gætu hafist.
/ 'y'V/ //'/
Það var harðsnúið lið karla og kvenna sem vann að talningu atkvæða úr Norðurlandskjördæmi eystra á kosninganóttina í Oddeyrarskóla. Talningu var lokið
um 6 leytið um morguninn og var Norðurlandskjördæmi eystra fyrst kjördæma til að skila lokatölum. Ljósmynd: GS
13 nýir þingmenn:
Atta þingmenn töp-
uðu sætum sínum
Rúmlega fimmtungur þeirra
þingmanna sem taka nú sæti á
Alþingi voru ekki þar á síðasta
kjörtímabili og að sjálfsögðu
víkja jafnmargir þingmenn
þaðan eða alls 13 talsins.
Átta þeirra sem hverfa af þingi
féllu í kosningunum um helgina.
Það voru Geir Hallgrímsson
formaður Sjálfstæðisflokksins,
Magnús Magnússon varafor-
maður Alþýðuflokksins, Ólafur
Ragnar Grímsson formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins, Sig-
hvatur Björgvinsson formaður
þingflokks Alþýðuflokksins, Árni
Gunnarsson Alþýðuflokki,
Guðmundur Karlsson Sjálfstæð-
isflokki, Ingólfur Guðnason
Framsóknarflokki og Jóhann Ein-
varðsson Framsóknarflokki.
Fimm þingmenn frá síðasta
kjörtímabili voru ekki í kjöri nú,
Gunnar Thoroddsen, Steinþór
Gestsson og Jósep Þorgeirsson
Sjálfstæðisflokki, Stefán Jónsson
Alþýðubandalagi og Guðmundur
G. Þórarinsson Framsóknar-
flokki.
Alls taka nú 13 nýir þingmenn
sæti á Alþingi og eru 11 þar af sem
ekki hafa setið á Alþingi áður. Er
þetta óvenjuhátt hlutfall nýliða á
þingi.
Ellert B. Schram og Ragnhild-
ur Helgadóttir verða bæði þing-
menn Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík á ný eftir stutta fjar-
veru frá þingi, en þau 11 sem ekki
hafa setið á þingi áður eru þessi:
Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir Reykjavík fyrir kvenna-
lista, Guðrún Agnarsdóttir
Reykjavík fyrir kvennalista,
Kristín Halldórsdóttir blaða-
maður Reykjanesi fyrir kvenna-
lista, Gunnar G.Schram Reykja-
nesi fyrir D-lista, Þorsteinn Páls-
son Suðurlandi fyrir D-lista, Árni
Johnsen Suðurlandi fyrir D-lista,
Valdimar Indriðason Vesturlandi
fyrir D-lista, Steingrímúr J. Sig-
fússon Norðurlandi eystra fyrir
G-lista, Kristín S. Kvaran
Reykjavík fyrir C-lista, Kolbrún
M. Jónsdóttir Norðurlandi eystra
fyrir C-lista og Guðmundur Ein-
arsson Reykjanesi fyrir C-lista.
Aldrei
fleiri
konur á
Alþingi
Á síðasta Alþingi íslendinga
sátu þrjár konur en eftir
kosningarnar um helgina hefur
tala þeirra þrefaldast. Hafa
aldrei áður jafnmargar konur
setið á Alþingi.
Þær konur sem sitja nú á
Alþingi eru: Ragnhildur Helga-
dóttir og Salóme Þorkelsdóttir
Sjálfstæðisflokki, Jóhanna Sig-
urðardóttir Alþýðuflokki, Sig-
ríður Dúna Kristmundsdóttir,
Kristín Halldórsdóttir og Guðrún
Agnarsóttir frá Samtökum um
kvennalista, Kristín S. Kvaran og
Kolbrún Jónsdóttir frá Bandalagi
jafnaðarmanna og Guðrún
Helgadóttir frá Alþýðubandalagi.
Þrjár af þessum konum eru
kjördæmakosnar, þær Ragnhild-
ur og Sigríður Dúna í Reykjavík
og Salóme í Reykjaneskjördæmi,
hinar eru landsícjörnar.