Dagur - 25.05.1983, Síða 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA-
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 25. maí 1983
56. tölublað
99
Vegireru
MIÐJUSTJORN
33
- Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks small saman í gærkvöldi
én hiHi ab
yyby nim GK -sjá bls.2 Kl
„Þessi ríkisstjórn þarf að taka
mjög fast og ákveðið á þeim
efnahagsvanda sem fyrir
liggur, og nú verða menn að
standa saman. Það verður að
reyna á það hvort menn eru til-
búnir til að leggja eitthvað á sig
til að snúa við blaðinu, til að
hverfa frá verðbólgu sem kom-
in er á annað hundrað prósent,
sem auðvitað hefði sett
atvinnulíf landsins í strand á
næstu vikum, ef ekkert er að
gert. En þetta þýðir það að
menn verða að herða að sér til
að byrja með. Hvað á að kalla
þessa stjóm veit ég ekki; ætli
það væri þá ekki helst miðju-
stjórn,“ sagði Guðmundur
Bjarnason, alþingismaður, í
samtali við Dag í morgun.
Að öllum líkindum tekur ríkis-
stjórn Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins við völdum
á morgun. Samninganefndir
flokkanna sátu á fundum fram á
nótt en kl. 10 í morgun hófust
þingflokkafundir. Eftir hádegið
verða síðan fundir hjá miðstjórn-
um flokkanna.
Ekki lá endanlega fyrir í morg-
un hvor flokkurinn kemur til með
að leiða ríkisstjórnina og þar
með hljóta forsætisráðherraem-
bættið. Samkvæmt heimildum
Dags er líklegt að Steingrímur
Hermannsson verði forsætisráð-
herra. Verði það má búast við að
Framsóknarflokkurinn fái einnig
fjármála-, iðnaðar- og landbún-
aðarráðuneytin og jafnvel sam-
göngumálaráðuneytið til viðbót-
ar. Þá fær Sjálfstæðisflokkurinn
utanríkis-, mennta-, viðskipta-,
sjávarútvegs-, dóms-, kirkju-,
félags- og heilbrigðismál til um-
ráða.
AÍ háifu Framsóknarflokksins
hafa Guðmundur Bjamason,
Halldór Ásgrímsson, Davíð
Aðalsteinsson og Alexander
Stefánsson verið nefndir sem ráð-
herraefni auk Steingríms. Af
hálfu Sjálfstæðisflókksins er
reiknað með Geir Hallgrímssyni,
Albert Guðmundssyni, Matthíasi
Bjarnasyni, Matthíasi Á.
Mathiesen og Birgi ísleifi Gunn-
arssyni sem líklegum ráðherra-
efnum.
í drögum að málefnasamning
er gert ráð fyrir lögum um há-
mark verðbóta á laun. Reiknað
er með 7-8% um næstu mánaða-
mót en síðan verði verðbótatíma-
bilið lengt um einn mánuð þannig
að næst komi verðbætur á laun í
október. Á móti verður varið 500
m. kr. til „mildandi" aðgerða.
Barnabætur verða hækkaðar,
tekjuskattur lækkaður með aukn-
um persónuafslætti, húshitunar-
kostnaður jafnaður og lífeyrisbæt-
ur hækkaðar. Jafnframt er reikn-
að með lengingu á lánstíma verð-
tryggðra lána til húsbygginga.
81 % mismunur
á orkuverði
hitaveitunnar
- Svo segir Ólafur B. Árnason, en Hákon Hákonarson er ekki á sama máli
„Þetta þýðir einfaldlega að
eigandi Rimasíðu 10 greiðir
81,8% hærra orkuverð til
Hitaveitu Akureyrar heldur en
eigandi húss í Eikarlundi. Ef
jöfnuður ætti að vera í orku-
verði ætti eigandi Rimasíðu 10
annað hvort að fá 4,55 lítra á
mínútu af heitu vatni, á móti
2,5 lítrum á mínútu, sem húseig-
andinn í Lundahverfi fær -
ellegar að greiða 45% lægra
verð fyrir sama magn.“
Þessi tilvitnun er úr „opnu bréfi“
til stjórnar Hitaveitu Ákureyrar
sem Ólafur Birgir Árnason, lög-
fræðingur, skrifar í blaðið í dag.
Segir Ölafur að hitastig vatnsins
frá Hitaveitu Akureyrar sé ekki
nema um 60 gráður á Celsíus inn
í hús sitt og þannig sé ástandið
víðar. Ólafur býr í Síðuhverfi en
hann segir vatnið mun heitara í
öðrum bæjarhlutum, jafnvel um
80°C, sem sé raunar það hita-
stig sem Hitaveitan lofaði í upp-
hafi.
Ólafur segir þennan mismun
óþolandi, „þar sem kaupendur
eigi skýlausan rétt á að fá þá orku
sem þeir greiða fyrir.“ Síðan seg-
ir Ólafur orðrétt:
„Verði þeirri réttmætu og sjálf-
sögðu kröfu ekki sinnt og kulda-
bolar kerfisins láta sér ekki segj-
ast mun ég einskis láta ófreistað
tii að ná fram rétti mínum og ég
veit að þannig er farið með
fleiri.“
„Ég skil það mjög vel að Ólaf-
ur sé óhress ef hann fær vatnið
ekki nema 60 gráðu heitt inn til
sín. Það er hlutur sem ekki er í
lagi og verður lagfærður," sagði
Hákon Hákonarson, stjórnar-
formaður Hitaveitunnar, þegar
Dagur bar þetta mál undir hann.
„Það á enginn neytandi að fá
vatnið inn til sín við lægra hitastig
en 70 gráður. Við það höfum við
miðað. Þeir sem fá vatnið með
lægra hitastigi eiga að fá yfirstill-
ingu þannig að allir fái þann
kílókaloríufjölda sem þeir borga
fyrir. Mér er ekki kunnugt um
annað en að þeir hafi fengið yfir-
stillingu sem um hana hafa beðið
enda samkvæmt stefnu stjórnar
veitunnar sem ekki hefur verið
breytt. Það er síður en svo að við
í stjórn Hitaveitunnar höfum
áhuga á að stela frá bæjarbúum,
það hljóta allir hugsandi menn að
skilja," sagði Hákon Hákonarson
í lok samtalsins.
Meeeee - mér er kalt, segir lambið hennar Stellu
Hrannar Jóhannsdóttur, heimasætu í Keflavík í
Hegranesi. Já, veröldin er köld fyrir litlu lömbin
en sauðburður gengur víðast hvar vel þrátt fyrir
það. Og svo hlýnar líka á laugardaginn, að sögn
„Drauma-Jóns“.
Veðrið batnar
á laugardaginn
-segir „Drauma-Jón“ á Húsavík, en hann segir sumarið verða erfitft
„Veðrið breytist heldur til
batnaðar á laugardaginn, en
sumarið verður erfitt; það má
búast við snjókomu í hverjum
mánuði,“ sagði Jón P. Jónsson
á Húsavík í samtali við Dag.
Jón er kunnur á Húsavík fyrir
að geta sagt til um óorðna hluti,
þannig að mark sé á takandi.
Hann byggir spádóma sína á
draumum og reynslu liðanna ára,
en hann býr nú aldraður hjá syni
og tengdadóttur.
Fyrir spádómshæfileika sína er
Jón oft nefndur „Drauma-Jón“
meðal samborgara sinna, en
kunnari mun hann í heimabæ sín-
um sem Jón Koti.
Hann var spurður um getu og
líf þeirrar ríkisstjórnar, sem nú
hefur verið mynduð. „Hún verð-
ur getulítil og lifir stutt,“ svaraði
lón.