Dagur - 30.05.1983, Blaðsíða 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA-
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, mánudagur 30. maí 1983
58. tölublað
Eldgos
hafið
r
i
Gríms-
vötnum
Um helgina hófst eldgos í
Grímsvötnum og voru þaö
flugmenn á Flugleiðavél á leið
til Egilsstaða sem fyrstir urðu
gossins varir.
Gosstöðvarnar eru við vestari
Svíahnjúk og er ljóst að talsverð
aska hefur komið upp í byrjun
gossins og breitt úr sér yfir
Vatnajökul suður af gossvæðinu.
í gær þegar flogið var yfir gos-
stöðvarnar var hins vegar um
miklar sprengingar að ræða og
mikill gufumökkur steig til
himins.
Talsverðar hræringar höfðu
komið fram á jarðskjálftamælum
fyrir helgina sem bentu ótvírætt
til þess að eitthvað óvenjulegt
væri á seyði á þessum slóðum og
jarðskjálftavirkni um helgina
benti til þess að kvikuhlaup ætti
sér stað undir jöklinum.
Eins og staðan er núna eru
ekki taldar líkur á Grímsvatna-
hlaupi. Ekki er talin hætta á því
nema gosið breiðist út til
norðurs. Mönnum hefur orðið
hugsað til þess hvaða áhrif slíkt
gæti haft á Skeiðarársandi þar
sem nú eru miklar framkvæmdir
í gangi við undirbúning að upp-
greftri á hollenska gullskipinu.
Leiðangursmenn þar halda að sér
höndum og hafast lítið að en þeir
eru tryggðir erlendis gegn skaða
af völdum náttúruhamfara.
Söngvararnir Dorriét Kavanna og Kristján Jóhannsson voru gefín saman í
hjónaband af sr. Sigurði Guðmundssyni, vígslubiskupi, í Grenjaðarstaðar-
kirkju í gær, á brúðkaupsafmæli foreldra Kristjáns; Fanneyjar Oddgeirsdótt-
ur og Jóhanns Konráðssonar. Myndin er tekin þegar brúðguminn smellti
kossi á brúði sína að athöfninni lokinni á Grenjaðarstað í gær.
„Einkennileg
vinnubrögð“
— segja starfsmenn Slippstöðvarinnar um aðferðir
stjórnenda Útgerðarfélagsins við að eignast nýtt skip
„Mér fínnst það einkennileg
ráðstöfun að eyða peningum í
að teikna skip fyrir Útgerðar-
félagið þar sem Slippstöðin á
6-8 teikningar á lager af skip-
um sem reynst hafa mjög vel í
alla staði,“ sagði Konráð Jó-
hannsson, einn af starfsmönn-
um Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri, í samtali við Dag og fleiri
starfsmenn stöðvarinnar hafa
haft samband við blaðið vegna
þessa máls.
„Það er ekki riffilfæri milli
Slippstöðvarinnar og Útgerðar-
félagsins og bæði þessi fyrirtæki
eru að stórum hluta í eigu Akur-
eyrarbæjar. Þess vegna finnst
mér - og ég veit um marga aðra
sem eru sömu skoðunar - það
einkennilegvinnubrögð hjá ráða-
mönnum Útgerðarfélagsins að
láta teikna skip með ærnum
kostnaði og bjóða síðan út smíði
þess hérlendis og einnig út um
allan heim. Þetta gerist á sama
tíma og verkefnaskortur er yfir-
vofandi hjá Slippstöðinni," sagði
Konráð.
„Frá mínum bæjardyrum séð
eru þessi vinnubrögð Útgerðar-
félagsins mjög eðlileg," sagði
Gísli Konráðsson, framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyr-
inga, í samtali við Dag.
„Við erum einfaldlega að
kanna hvort hægt er að fá nýtt
skip í stað Sólbaks á viðráðan-
legu verði, þannig að einhver leið
verði að gera skipið út fjárhags-
lega. Það kemur svo í ljós þegar
tilboðin verða skoðuð hvort þetta
er möguleiki. En það verður að
segjast eins og er að eins og mál
útgerðarinnar í landinu standa í
dag þá er ólíklegt að útgerð á
nýjum togara standi undir fjár-
magnskostnaði, alla vega ekki ef
skipið er keypt því verði sem ég
tel mig vita að hafi verið í boði
hjá Slippstöðinni.
Þetta skip sem við höfum látið
gera frumteikningar og útboðs-
lýsingar af er lítið eitt stærra en
Sólbakur og smíði þess hefur ver-
ið boðin út hérlendis og víða er-
lendis. Gerð þess er sniðin eftir
hugmyndum margra manna, þar
á meðal hefur verið tekið mikið
tillit til reynslu okkar ágætu
skipstjórnarmanna. Með útboð-
inu erum við að afla okkur upp-
lýsinga um hvað svona skip kost-
ar og hvar við fáum það ódýrast.
Að öðru jöfnu vildi ég helst að
það yrði smíðað hjá Slippstöð-
inn,“ sagði Gísli Konráðsson.
Stálu
dekkjum
og felgum
undan bíl
Rannsóknarlögreglan þurfti
um helgina að hafa afskipti
af frekar óvenjulegu þjófn-
aðarmáli. Bíræfnir þjófar
stálu þá nefnilega framdekkj-
um með felgum undan bíl á
Arskógssandi og hefur ekk-
ert spurst til þeirra síðan.
Umræddur atburður er talinn
hafa átt sér stað á föstudag eða
aðfaranótt laugardags en þjóf-
arnir eða þjófurinn hafði þann
háttinn á að bíllinn, sem var
Mazda 929, var tjakkaður upp,
dekk 07 felgur tekin undan og
steinar settir undir bílinn í
staðinn. Eigandi bílsins er Hrís-
eyingur og var bíllinn á bílastæði
þeirra Hríseyinga á fastalandinu.
Felgurnar og dekkin sem stolið
var eru 13 trommu og eru allir
þeir sem orðið hafa varir við
grunsamlegar mannaferðir á Ár-
skógssandi á umræddu tímabili
beðnir um að láta rannsóknarlög-
regluna vita.