Dagur - 06.06.1983, Side 1
STÚDENTA-
SKEIÐAR
OG
STÚDENTA-
HÚFUR
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
fm&j | 1
1 1
I 1
■ J
& :Wá W ■ Jfl
66. árgangur
Akureyrí, mánudagur 6. júní 1983
61. tölublað
Kaupmannahafnarflugið:
Aðeins þrjár
ferðir í sumar
„Flugleiðum þykir leitt að ekki
skuli vera grundvöllur fyrir
þeirri ferðatíðni sem upphaf-
lega var ráðgerð milli Akureyr-
ar og Kaupmannahafnar og
félagið hefur lagt mikla vinnu í
að undirbúa,“ sagði Sæmundur
Guðvinsson, fulltrúi Flugleiða
í samtali við Dag.
Flugleiðir hafa ákveðið að
fljúga aðeins þrjár ferðir í beinu
áætlunarflugi milli Akureyrar og
Kaupmannahafnar í sumar. Upp-
haflega var áætlað að fara 12
ferðir, síðan var þeim fækkað í 7
og loks var ákveðið að hafa
ferðirnar 3; 16. júní, 7. júlí og 4.
ágúst. Ef markaðsaðstæður breyt-
ast til batnaðar er möguleiki á að
fjölga ferðum.
Farþegar sem eiga pantað far
til Kaupmannahafnar í þær ferðir
sem felldar hafa verið niður, gefst
kostur á að bóka sig í þær ferðir
sem farnar verða. Feir sem vilja
halda óbreyttum brottfarardög-
um verða að fara um Keflavíkur-
flugvöll, en Flugleiðir greiða
kostnað af innanlandsferðum og
gistingu í eina nótt á Hótel
Loftleiðum. í beinu ferðunum
þremur verður tollfrjáls varning-
ur boðinn til sölu um borð í
flugvélunum.
Metaregn
Akureyrskir kraftlyftingamenn
gerðu góða ferð til Seyðisfjarð-
ar um helgina. Ferðin var sýn-
inga- og keppnisferð og gerðu
lyftingamennirnir sér lítið fyrir
og settu 13 Akureyrarmet og
eitt íslandsmet í samkomuhúsi
þeirra Seyðisfírðinga.
Kári Elísson, sem keppti í 75
kg flokki, var maður mótsins og
setti nýtt glæsilegt íslandsmet í
bekkpressu er hann lyfti 162.5
kg. Bætti þar með nokkra vikna
gamalt met sitt um 1.5 kg. Kári
setti svo fimm önnur Akureyrar-
met og lyfti samanlagt 650 kg.
Flosi Jónsson setti fimm Akur-
eyrarmet í 90 kg flokki, í bekk-
pressu, hnébeygju og samanlögð-
um árangri en alls lyfti hann 630
kg.
Freyr Aðalsteinsson setti tvö
Akureyrarmet og lyfti samtals
615 kg. Auk þess kepptu á mót-
inu Jóhannes Hjálmarsson og
Víkingur Traustason og náðu
þeir ágætum árangri þó ekki settu
þeir met að þessu sinni.
Áhöfnin á Svalbak fékk viðurkenningu Sjómannadagsins á Akureyri fyrir að
koma með best meðfarinn afla að landi af togurum ÚA. Svalbakur var rétt
ókominn að landi þegar verðlaunin voru afhent og tók Olga Guðnadóttir,
eiginkona Kristjáns Halldórssonar, skipstjóra, því við verðlaununum.
mm r
■ «3
ekki
að
keppa
á KIUI
€M niwi
Stjórn Lyftingasambands ís-
lands hefur dæmt þá Gylfa og
Garðar Gíslasyni í tveggja
mánaða keppnisbann. Bann
þetta setur stjómin á vegna
þess í»ð bræðurnir mótmæltu
vali stjórnarinnar á landsliði
íslands á NM sem fram fór
nýlega, en þá var maður með
lélegri árangur en Garðar val-
inn til keppni í 90 kg flokki en
Garðari gert að keppa í 100 kg
flokki. Bræðurnir sátu því
heima í mótmælaskyni.
„Þetta passar alveg hjá þeim,
þeir setja bannið á í 2 mánuði til
að útiloka okkur frá HM keppni
unglinga sem fram fer í Eygypta-
landi eftir tæplega 2 mánuði,“
sagði Gylfi Gíslason er við
ræddum við hann í morgun. Við
bíðum eftir að fá þetta bann
skriflega frá stjórn Lyftingasam-
bandsins en munum síðan gera
okkar ráðstafanir til þess að
reyna að hnekkja þessari ákvörð-
un.“
jrpt, Atvinnu vantar
Eyjafjarðarsvæðinu: | fyrir 700 manns
Atvinnu vantar fyrir 600-700
manns á Eyjafjarðarsvæðinu
fram til ársins 1990. Er þá búið
að gera bjartsýnisáætlun um
atvinnuaukningu í hinum hefð-
bundnu atvinnugreinum,
þannig að tala þeirra sem út-
vega þarf atvinnu í nýjum
greinum getur allt eins orðið
mun hærri. Hér er miðað við
að nýir kraftar á vinnumark-
aðnum fái atvinnu í sinni
heimabyggð og íbúafjölgun
verði rúmlega landsmeðaltal.
Þetta kemur fram í skýrslu sem
nefnd um stöðu iðnaðar og fram-
tíðarmöguleika hans á Eyjafjarð-
arsvæðinu hefur unnið að á veg-
um Iðnaðarráðuneytisins. Niður-
stöður nefndarinnar verða lagðar
fram á næstunni en þessar tölur
eru samkvæmt áreiðanlegum
heimildum blaðsins.
Þessi könnun kemur heim og
saman við þær kannanir sem
gerðar hafa verið á undanförn-
u m árum, t.d. á vegum Fjórð-
ungssambands Norðlendinga.
Heimildarmenn blaðsins töldu
hér um lágmarkstölu að ræða þar
sem reiknað væri með verulegri
aukningu í þeim atvinnugreinum
sem fyrir eru. Ef dregið er úr
þeim bjartsýnisspán getur þörfin
fyrir ný atvinnutækifæri tvöfald-
ast og rúmlega það.
Allt um
íþróttir
- Sjá opnu
Á bls. 8 og 9
er sagt
frá heimsókn
í Kjarna
- T0SCA
- bls. 3
18 húsa-
smiðir
- bls. 5
A iabbinu
-Sjá
lesendahornið
ðilÍHmnHHHMHBHMMn
Vildi verða
sjómaður
- bls. 2