Dagur - 13.07.1983, Síða 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA-
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 13. júlí 1983
Fallhlífastökkvararnir tíu staddir á Grímsey skömmu áður en þeir lögðu upp til stökksius. Önnur innfellda myndin er af Rosmary um borð í flugvélinni en
hin af þeim Sigurði Bjarklind og Guðlaugi Þórðarsyni. Myndir: Guðmundur Brynjarsson/KGA
I Grímsey á
mánudagskvöld
Banaslys í Grímsey
— Kanadísk stúlka hrapaði til bana í fallhlífarstökki
Banaslys varð í Grímsey um klukkan hálf þrjú í fyrri-
nótt. Þrjátíu og sex ára gömul kanadísk kona, Ros-
mary Abilson, hrapaði í björgum þegar hún, ásamt
níu félögum sínum, var í fallhlífarstökki við eyna. í
hópnum voru auk hennar sjö Ameríkanar og tveir ís-
lendingar.
Að undanförnu hafa verið hér
á landi fallhlífarstökkvarar frá
Kaliforníu. Komu þeir í þeim til-
gangi að kenna félögum í Flug-
björgunarsveit Reykjavíkur fall-
hlífarstökk. Þar sem veður sunn-
anlands var óhagstætt var haldið
til Akureyrar og námskeiðið
haldið þar. Að námskeiðinu
loknu á mánudaginn var farið til
Grímseyjar. Um nóttina stukku
Ameríkanarnir sjö, ásamt Ros-
mary, eiginkonu eins þeirra og
íslendingunum Sigurði Bjark-
lind og Guðlaugi Þórðarsyni, úr
rúmlega 14.000 feta hæð yfir
eynni. Ætluðu þau að mynda tíu
manna „rós“ í frjálsu falli áður en
fallhlífarnar opnuðust. Slíkt
hafði aldrei verið gert norðan
heimskautsbaugs.
En eitthvað fór úrskeiðis. Flest
bendir til þess að stökkvararnir
hafi stokkið úr flugvélinni sunnar
og austar en ætlunin var. Þess
vegna náðu þeir ekki allir eynni.
Fjórir þeirra náðu þó bjargbrún-
inni að austan en fimm lentu í
fjöruborðinu eða sjónum
skammt frá landi. Svo virðist sem
Rosmary hafi ætlað sér að ná
bjargbrúninni, fremur en að
lenda í sjónum. En það tókst
henni ekki því hún skall utan í
bjarginu. Við það féll fallhlífin
saman og Rosmary hrapaði niður
í grýtta fjöruna.. Mun hún hafa
látist samstundis.
Stökkvararnir voru allir með
björgunarvesti og búnaður þeirra
var fyrsta flokks og ekki um
neina bilun í honum að ræða.
Enda voru hér á ferð þaulvanir
fallhlífarstökkvar. Rosmary átti
að baki hátt á annað hundrað
stökk.
Loftferðaeftirlitið hefur þetta
mál til rannsóknar og mun að lík-
indum gefa um það skýrslu innan
tíðar.
76. tölublað
Lög frá 1887
-sem farið verður eftir í „útburðarmálinu“ á morgun
Rosmary útbýr sig fyrir stökkið á
mánudagskvöldið.
- Hvaða atburðum? Er eitt-
hvað að gerast í þessu máli?
Haldið þið að þetta sé einhvers
konar stríðsleikur? Þetta sagði
Brynjólfur Kjartansson,
hæstaréttarlögmaður, lög-
maður Grímu Guðmundsdótt-
ur, er Dagur innti hann álits á
síðustu atburðum í hinu svo-
kallaða Þingvallastrætismáli.
Sem kunnugt er þá lagði
Gríma Guðmundsdóttir inn út-
burðarbeiðni hjá Bæjarfógeta-
embættinu á Akureyri sl. mánu-
dag þar sem þess er krafist að
dómi Hæstaréttar verði fullnægt
og hjónin á 1. hæð Þingvalla-
strætis 22 og börn þeirra verði
borin út. í bréfi frá Bæjarfógeta-
embættinu dagsettu 11. júlí 1983
eru Ólafur Rafn Jónsson og
Danielle Somers, annars vegar
og Gríma Guðmundsdóttir, hins
vegar, kvödd fyrir dómstól
Bæjarfógetaembættisins á Akur-
eyri, fimmtudaginn 14. júlí
klukkan 10. „Krafist er fullnustu
á dómi Hæstaréttar í máli númer
150,1980, upp kveðnum 25. mars
1983.“
- Eftir mér verður ekkert haft
í blöðum, sagði Brynjólfur Kjart-
ansson, er hann var spurður að
því hvort honum hefði ekki þótt
liggja beinast við að fullnægja
dómi Hæstaréttar.
Sigurður Eiríksson, fulltrúi
bæjarfógetans á Akureyri, sagði
hins vegar í samtali við Dag að
þar sem hér væri um að ræða
beiðni um aðför, myndi verða
farið með þetta mál samkvæmt
aðfararlögunum sem eru frá 1887
og enn í gildi. Mál sem þetta hef-
ur aldrei áður komið upp í ís-
lenskri réttarsögu og því erfitt að
segja til um lyktir.