Dagur - 20.07.1983, Síða 1

Dagur - 20.07.1983, Síða 1
MIKIÐ ÚRVAL AF SKARTGRIPA- SKRÍNUM GULLSMIOIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 66. árgangur Akureyri, miðvikudagur 20. júlí 1983 79. tölublað Ný sím- stöð og pósthús í Síðu- hverfi Póstur og sími hefur fest kaup á húsnæði í Síðuhverfi þar sem fyrirhugað er að rísi í framtíð- inni ný símstöð, birgðastöð og jafnvel nýtt póstútibú. Þetta nýja húsnæði Pósts og síma er að Fjölnisgötu 3b og var gengið frá kaupunum í síðustu viku. Póstur og sími hefur þegar fengið vilyrði byggingarnefndar Akureyrarbæjar fyrir því að byggja allt að 200 fermetra við- byggingu á lóðinni sem hús fyrir verkstæði, birgðastöð og sjálf- virka símstöð en á fundi bygg- inganefndar var ekki tekin af- staða til hugsanlegs póstútibús á lóðinni að sinni en ekki útilokað að slíkt leyfi verði veitt síðar. Þeir menn sem Dagur ræddi við hjá Pósti og síma voru sam- mála um að þörfin fyrir póstúti- bú á þessum stað væri þegar fyrir hendi en endanlega ákvörðun um byggingu slíks útibús hefur sem sagt ekki verið tekin. Isinn er sívinsæll í sólinni. Hitt er öllu lakara aö þá bráðnar hann af tvöföldum krafti og eins gott að vera „kjaftgleið- ur“ þá. Mynd: KGA Akureyri: Offram- boðá fast- eignum „Það er mikið offramboð á fasteignamarkaðinum þessa dagana, ekki síst vegna þess að niargir hafa hugsað sér til hreyfings úr bænum vegna ótryggs atvinnuástands, en það heyrir hins vegar til undantekninga að fólk flytji til bæjarins.“ Þetta hafði Pétur Jósefsson, sölumaður hjá Fastcigna- og skipasölu Norðurlands, að segja um fasteignaviðskiptin á Akur- eyri þessa dagana. Aðrir fast- eignasalar sögðu svipaða sögðu. Nánar er fjallað um fasteignaviö- skiptin í opnu blaðsins í dag. Margir grunaðir um ölvun við akstur Óvenjumikið annríki var hjá lög- reglunni á Húsavík um síðustu helgi. Fjórir ökumenn voru tekn- ir grunaðir um ölvun við akstur og helgina áður voru einnig fjórir ökumenn grunaðir um sama at- hæfi. Þetta samsvarar því að 150 ökumenn væru teknir grunaðir um ölvun í Reykjavík. A Akur- eyri voru fjórir ökumenn teknir grunaðir um ölvunarakstur að- faranótt sunnudagsins, en enginn síðan. - sjá opnu Sumarbúðapiltar frá Ástjörn: Fundu hlaðinn riffil og hvítvínsflösku! Tveir ungir drengir, 10 og 11 ára sem dveljast í sumarbúð- unum að Ástjörn í Keldu- hverfi, fundu á laugardag stóran, hlaðinn riffil skammt frá sumarbúðunum. Hálffull hvítvínsflaska lá við hliðina á rifflinum. - Þetta er auðvitað mjög al- varlegt mál og mesta mildi að drengirnir skyldu ekki fara sér að voða með byssunni, sagði Bogi Pétursson, forstöðumaður sumarbúðanna að Ástjörn í sam- tali við Dag. Að sögn Boga fundu drengirn- ir sem eru frá Akureyri og Reyð- arfirði, riffilinn við veginn hjá Ástjörn á að giska 300 metra frá sjálfum sumarbúðunum. Við nánari athugun kom í ljós að eitt skot var í magasíni riffilsins sem er að hlaupvídd 222 kalíber. Sem betur fór þá skynjuðu drengirnir alvöruna og fóru strax með riffil- inn heim að Ástjörn, þar sem starfsmenn tóku hann í sína vörslu og komu honum síðan til lögreglunnar á Húsavík. - Við höfum haft upp á eig- anda riffilsins en hann ber því við að honum hafi verið stolið, sagði Þröstur Brynjólfsson, lögreglu- varðstjóri á Húsavík í samtali við Dag. Mál þetta er því enn í rann- sókn hjá Húsavíkurlögreglunni en það verður líklega aldrei of- brýnt fyrir fólki að geyma skot- vopn ekki á glámbekk eða þar sem auðvelt er að ná til þeirra.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.