Dagur - 27.07.1983, Side 1
MIKIÐ \
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA
SKRÍNUM
GULLSMtÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Akureyri, miðvikudagur 27. júlí 1983
82. tölublað
Verður japanska
tilboðinu tekið?
— Ef leyfi fæst hjá ríkisstjórninni til innflutnings skipsins
- Næsta skref okkar verður að
sækja um leyfí til stjórnvalda
til að flytja inn skip og ef það
fæst að taka þá lægsta tilboð-
inu sem barst, sagði Gísli Kon-
ráðsson, framkvæmdastjóri
Útgerðarfélags Akureyringa er
hann var spurður um niður-
stöðu stjórnarfundar ÚA varð-
andi smíði skuttogara fyrir
fyrirtækið.
Samkvæmt upplýsingum Út-
gerðarfélagsins þá hljóðaði
lægsta tilboðið í smíði skuttogar-
ar upp á krónur 126.184.000 mið-
að við staðgreiðsluverð og af-
hendingu í höfn á Akureyri og
eftir að tillit hafði verið tekið til
styrkja og mismunandi vaxta af
lánum til smíðinnar í átta ár.
Þetta japanska tilboð var frá
Narasaki Shipbulding Co.
Næsta tilboð var frá spænskri
skipasmíðastöð og hljóðaði upp
á rúmlega 140 milljónir en tilboð
Slippstöðvarinnar á Akureyri var
níunda lægsta tilboðið og hljóð-
aði það upp á 162.100.000
krónur, eða um 36 milljónum kr.
hærra en japanska tilboðið. í jap-
anska tilboðinu er gert ráð fyrir
10 mánaða afhendingartíma en
20 mánaða afhendingartíma í til-
boði Slippstöðvarinnar.
Þess má geta að inni í tilboðs-
tölum er reiknað með flutningi
skipsins til Akureyrar og hljóðar
sá liður í flestum erlendu tilboð-
anna upp á tvær til þrjár milljónir
króna en flutningskostnaðurinn
frá Japan er tíu milljónir kr.
Sjá nánar á bls. 8.
Jón Björn Hreinsson og Harpa Birgisdóttir með hundana á Ljósavatni.
Ljósmynd: ÞB.
Álagningaskrá í Norðurlandsumdæmi eystra lögð fram:
Magnús Stefánsson
hæsti gjaldandinn
66. árgangur
- Ég er því mjög andsnúinn að
stækka fískiskipaflotann eins
og málum er háttað í dag. Það
var jafnframt ákveðið af síð-
ustu ríkisstjórn að ekki kæmi
til greina að heimila innflutn-
ing á fískiskipi næstu tvö árin
og sú stefna hefur ekki breyst.
Þetta sagði Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra í sam-
tali við Dag, er hann var inntur
eftir því hvaða afgreiðslu beiðni
Útgerðarfélags Akureyringa, um
innflutning á skuttogara frá Jap-
an myndi fá hjá stjórnvöldum.
- Eg skil vel að Útgerðarfélag-
ið vilji fá nýtt skip, sagði Halldór
Ásgrímsson, - þeir hafa lagt einu
skipi og vilja auðvitað fá annað í
staðinn.
- Hvað um það ef ákveðið
hefði verið að taka íslensku til-
boði, t.a.m. frá Slippstöðinni á
Akureyri?
- Það held ég að breyti litlu. Ef
fyrirtæki sem bæjarsjóður Akur-
eyrar á meirihluta í, vill láta
smíða skip fyrir sig erlendis held-
ur en láta smíða skipið í sinni
heimabyggð, þá held ég að engir
séu dómbærari á hagkvæmni
þeirrar ráðstöfunar en þeir
sjálfir, sagði Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra.
Vil viðræður
við
Slippstöðina
Vegna ummæla Gísla Kon-
ráðssonar, framkvæmdastjóra
ÚA, í kvöldfréttum útvarps í
gær, hafði Sigurður ÓIi Bryn-
jólfsson, stjórnarmaður í ÚA,
samband við blaðið og bað
fyrir að eftirfarandi yrði komið
á framfæri:
Stjórn ÚA hefur ekki enn tek-
ið ákvörðun um til hvaða tilboðs-
aðila verður leitað um smíði tog-
ara fyrir ÚA. Hins vegar ákvað
stjórn félagsins að senda fulltrúa
til viðræðna við ráðherra um
þessi mál áður en ákvarðanir
yrðu teknar.
- Ég tel að taka eigi upp samn-
ingaviðræður við Slippstöðina
um smíði togara en samtímis
leita úrræða til að brúa að a.m.k.
nokkru það bil sem er á milli til-
boðs Slippstöðvarinnar og hag-
stæðustu erlendu tilboðanna. Er-
lendu tilboðin eru m.a. hagstæð-
ari vegna opinbers stuðnings í
viðkomandi löndum og nemur
sá stuðningur allt að 23 milljón-
um króna.
Magnús Stefánsson, læknir á
Akureyri, er sá sem hæstu
gjöldin ber við álagningu í
Norðurlandsumdæmi eystra
við álagningu 1983. Hann á að
greiða kr. 769.048, en næstur í
röðinni er Ólafur Ólafsson,
lyfsali á Húsavík, en á hann er
lagt«gjöld kr. 588.714. í þriðja
sæti er Teitur Jónsson, tann-
læknir á Akureyri, en á hann
hefur verið lagt í gjöld kr.
581.629. Kaupfélag Eyfírðinga
ber hæst gjöld af félögum í um-
dæminu, kr. 18.788.755.
Álagningarseðlar verða sendir
út í dag og álagningaskrá liggur
frammi á skattstofunni til 10.
ágúst. Kærufrestur er til 25.
ágúst.
Samtals var jafnað á einstak-
linga og félög í umdæminu rúm-
lega 507 m. kr.; í tekjuskatt rúm-
lega 226 m. kr., eignaskatt rúm-
lega 23 m. kr., útsvar rúmlega
212 m. kr. og aðstööugjald rúm-
lega 46 m. kr. Álögð útsvör
hækka um 53.83% milli ára en
mest hækkar eignaskatturinn, um
90.21%.
Á blaðsíðu 8 í blaðinu í dag er
nánar greint frá álögðum gjöld-
um í Norðurlandsumdæmi eystra
árið 1983.