Dagur - 03.08.1983, Page 1

Dagur - 03.08.1983, Page 1
MIKIÐ ÚRVAL AF SKARTGRIPA- SKRÍNUM GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 66. árgangur Akureyri, miðvikudagur 3. ágúst 1983 84. tölubiað „Sennilega hafa þau verið skítug“ - Róleg helgi hjá lögreglu „Þetta var rólegra en rólegasta helgi,“ sagði Sigurður Björnsson, yfírlögregluþjónn í Olafsfírði, aðspurður um hvernig umferðamesta helgi ársins, vcrslunarmannahelgin, hefði gengið fyrir sig í Ólafs- fírði. Kollegar Sigurðar á Dalvík og Siglufirði höfðu svipaða sögu að segja. „Petta var nú eins og draugabær hér,“ sagði Stefán B. Einarsson, lögregluþjónn á Dalvík, en þar og í Ólafsfirði var talsverð umferð aðkomufólks, sem stoppaði stutt. „f>að var dansleikur hér á staðnum, sem var hvorki verri né betri en venjulega," sagði Ólafur Jóhannsson hjá lögregl- unni á Siglufirði. „Svo voru krakkarnir með smá prakkara- strik. Hér voru framin smáinn- brot og sennilega hafa krakkarnir verið skítug greyin, því þau gerðu sig heimakomna í sund- laugina, þar sem þau svömluðu og létu sér líða vel í heita pottin- um,“ sagði Ólafur Jóhannsson. í Nú fara allir út að skokka - sjá bls. 4 „Þetta gengur ágætlega, ég reyni að vera ódýrari en verslanirnar og hef haft nóg að gera í dag,“ sagði Italinn Cosimo, sem selur Akureyringum og öðrum sem leið eiga um Ráðhústorgið, nýja ávexti. Hann vonaðist til að geta bráð- lega boðið upp á ávexti frá Sólbergi. Mynd: KGA Eyjafjörður: Heyskap víða lokið „Ég reikna með að heyfeng- ur bænda framan Akureyrar verði víðast hvar í slöku meðallagi að magni til, en á móti kemur mjög góð verk- un á heyinu,“ sagði Jóhann- es Sigurgeirsson bóndi á Öngulsstöðum í Önguls- staðahreppi, að spurður um heyskaparhorfur í framsveit- um Eyjafjarðar. Það kom fram í samtalinu við Johannes, að margir bændur í nágrenni við hann hafa lokið hey- skap og aðrir eru langt komnir. Þó er þetta misjafnt, eins og gengur, og nokkrir bændur slá hluta af túnum sínum upp, þ.e. slá þau tvisvar. „í heild held ég að útlitið sé alls ekki slæmt hér í héraði, ég hugsa að það verði ekki langt frá meðalheyskap, ef tíðin verður þolanleg næstu vikurnar," sagði Ævari Hjartarson, ráðunautur hjá Bunaðarsambandi Eyjafjarð- ar, í samtali við blaðið. Hann var sammála Jóhannesi um ástandið framan Akureyrar og það sama ætti við um sveitirnar næst Akur- eyri að norðan. En í utanverðum firðinum, t.d. í utanverðum Arn- arneshreppi og á Arskógsströnd, svo ekki sé minnst á Ólafsfjörð, væru heyskaparhorfur mun verri. Hins vegar væri spretta góð í Svarfaðardal og þar hefði hey- skapur gengið vel. Ongulsstaðahreppur fær húsmæðraskólann í samtali við Dag í morgun, en hægt að gera nauðsynlegar hreppurinn hefur barist fyrir því endurbætur á byggingunni í í mörg ár að fá húsnæði hús- sumar. Það verður því að líkind- mæðraskólans keypt. um ekki nema hluti af starfsemi „Húsið verður að mestu leyti grunskólans sem flytur inn í nýtt fyrir grunnskóla hreppsins. gamla húsmæðraskólann í Við erurn hins vegar búnir að haust,“ sagði Hörður Garðarsson tapa tíma þannig að ekki verður í lok samtalsins. fundinum. Aöur haföi Dal- víkurbær samþykkt að selja Öngulsstaðahreppi sinn hlut í skólahúsinu. Þar með á Öngulsstaðahreppur 30% í húsinu en ríkissjóður á af- ganginn. Húsmæðraskólanum að Laugalandi var síðast sagt upp fyrir 8 árum en þá hafði aðsókn að skólanum farið minnkandi ár frá ári. Síðan hefur húsnæðið lít- ið sem ekkert verið nýtt. Hita- veita Akureyrar hafði þar að- stöðu á meðan framkvæmdir stóðu yfir að Laugalandi og áður hafði verið rekið heilsuhæli í skólanum yfir sumartímann. Annað hefur húsið ekki verið notað en á sama tíma hefur Brugðið getur til beggja vona með kartöfluuppskeru Meðaluppskera? „Við verdum að spá góðu arnir væru um 2 vikur á eftir bjargaði málurn. Sigurgeir taldi, hausti og vona síðan bara það meðalsprettu, en það væru líka að grösin yrðu að standa fram um besta,“ sagði Sigurgeir Garð- til garðar sem væru vonlitlir. 20. september til að uppskeran arsson, bóndi á Staðarhóli í Astæðan fyrir mismunandi yrö* einliycr að ráði. En það Öngulsstaðahreppi, en hann ástandi garðanna væri sú, að verður aldret annað en léleg upp- og synir hans settu kartöflur niðursetning hefði tafist í vor skcra’ al,ave8a er mJö8 bæptð að niður í 12 ha lands í vor. Tíðin vegna bleytutíðar. t>að kom fram við náum meðaluppskerusagði næstu vikurnar sker úr um f samtalinu við Sigurgeir, að litlu s'gurgeir Garðarsson í lok sam- uppskeruna. munaöi að kartöflugrös féllu að- ta,sins- Sigurgeir sagði, að bestu garð- faranótt þriðjudagsins, en þoka Sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu samþykkti á aukafundi í gær- kvöldi að selja Öngulsstaða- hreppi hlut sýslunnar í húsi húsmæðraskólans að Lauga- landi, á grundvelli þeirra samningsdraga sem láu fyrir grunnskóli Öngulsstaðahrepps búið við þröngan húsakost skammt frá. „Eftir þessa samþykkt sýslu- nefndar sé é ekki að annað sé eftir en að ganga frá formsat- riðum," sagði Hörður Garðars- son, oddviti Öngulsstaðarhrepps,

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.