Dagur - 10.08.1983, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 10. ágúst 1983
Járnbrautarteinar undir gólfinu
Þeir Magnús Jónatansson og Jón Sigurðsson trésmiðir vinna nú að því að koma upp hljómsveitargryfju í Samkomuhúsinu. Eitt af því sem þarf til
verksins My Fair Lady er 12 manna sveit hljóðfæraleikara og þeir þurfa jú sinn stað. Það kom m.a. í Ijós þegar gólfið í salnum var rofið, að járnbraut-
arteinar höfðu verið notaðir sem styrktarbitar í það. Hér rogast þeir Magnús og Jón með einn slíkan. Mynd: KGA.
„Eftir að sjá hver
reynslan hefur orðið“
„Það á eftir að taka þetta til
skoðunnar til að sjá hver
reynslan hefur orðið,“ sagði
Sæmundur Guðvinsson, blaða-
fulltrúi Flugleiða, í samtali við
Dag, um beina flugið frá Akur-
eyri til Kaupmannahafnar, en
síðasta ferðin að sinni a.m.k.
var farin héðan á fimmtudag í
síðustu viku.
Upphaflega var áætlað að um
vikulegar ferðir í sumar yrði að
ræða, en þær urðu aðeins þrjár
þegar upp var staðið. „Við höfum
sennilega ekki byrjað á þessu á
réttum tíma. Það var almennur
samdráttur í vor, og greinilegt að
fólk hugsaði sig vel um áður en
það bókaði sig í utanlandsferðir.
Það var hins vegar ákveðið á síð-
asta ári að taka þetta upp og þá
var stefnt að því að þetta yrði
vikulega, en svo kom í Ijós er nær
dró að ekki var grundvöllur fyrir
því,“ sagði Sæmundur, „en við
vildum þó ekki alveg falla frá hug-
myndinni.“
Hann sagðist hafa trú á því að
vilji væri fyrir hendi að halda
beina fluginu áfram næsta sumar,
þó það hafi byrjað rólegar en
reiknað var með.
- Hvernig var nýtingin í ferð-
unum?
„Ég hef nú ekki tölur um það,
en þetta kom alveg sæmilega út.
Við reiknuðum að vísu með meiri
þátttöku, en það var margt sem
hjálpaðist að til að gera hana ekki
betri. Ég held að kenna megi ytri
aðstæðum um að miklu leyti -
frekar en að fólk hafi ekki viljað
nota þetta. Danir drógu t.d.
mikið úr ferðalögum sínum á
sama tíma og þessi kreppa gekk
yfir okkur í vor."
Sæmundur sagði að beina flug-
ið hefði verið auglýst talsvert
mikið í Damnörku, og einnig
hefðu komið greinar um það í
dönskum blöðum, þannig að ekki
væri hægt að kenna ónógri kynn-
ingu um hvernig fór. „Það virtist
bara ekki áhugi hjá dönum, með-
an vorið var kalt og leiðinlegt hjá
þeim, að hugsa til ferðar til
norður Islands, eða íslands yfir-
leitt."
87. tölublað
Sprenging
í þvotta-
herbergi
Slökkvilið Akureyrar var í
fyrrakvöld kvatt að Oddeyrar-
götu 36, en þar hafði orðið
mikil sprengin í þvottaherbergi
í kjallara.
Að sögn slökkviliðsins á Akur-
evri er talið líklegt að bensíngufur
hafi orsakað sprenginguna. en í
þvottaherberginu var gevmt bens-
ín á brúsa. Sprengingin hefur ver-
ið nokkuð öflug þ\ í gluggi brotn-
aði og einnig hurö og sjónvarp
sem geymt var á hillu i herbergi i
kjallaranum datt niður.
Skemmdir uðru engar af eldi.
en mikill revkur kontst um allt
húsið og olli nokkrum
skemmdum.
Hey fauk
víða í
Eyjafirði
„Ég tel víst að einstaka bændur
hati misst töluvert af heyi í
þessum látum“, sagði Guð-
mundur Steindórsson hjá Bún-
aðarfélagi Eyjafjarðar er við
ræddum við hann, en mikið
hvassviðri var í Eyjafirði um
helgina.
Mikið bar á því í Eyjafirði að
hey tæki upp í þessum miklu lát-
um en þegar vindhviðurnar voru
sem mestar var vindstyrkurinn
8—10 vindstig. Hey fauk víða á girð-
ingar og í skurði og mun talsvert
hafafarið í súginn af þeim sökunt.
Sirkus
Arenaá
Akureyri
Sirkusfóikið í Arcna-sirkusin-
um er mætt til Akureyrar og
mun halda 8 sýningar í bænum
nú í vikunni. Sirkusinn hefur
verið í Reykjavík að undan-
förnu eins og kunnugt er og
haidið þar fjölmargar sýningar
en héðan heldur sirkusfólkið til
Færeyja.
Sýningarnar á Akureyri fara
frarn í miklu tjaldi sem hefur vcriö
komið upp á Þórsvellinum í Gler-
árhverfi og er sú fyrsta í kvöld kl.
20. Sýningar verða síðan annað
kvöld kl. 20, á föstudagsdvöld kl.
20, á laugardag kl. 14,17 og 20 og
á sunnudag kl. 15 og 20.
I sirkus Arena eru listamenn af
ýmsu þjóðerni. og eru trúðar.
töframenn og loftfimleikamenn
þar í meirihluta. Forsala á sýning-
ar sirkusins á Akureyri er í versl-
uninni Kompan.