Dagur - 29.08.1983, Side 1

Dagur - 29.08.1983, Side 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS uui-lSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 66. árgangur Akureyri, mánudagur 29. ágúst 1983 95. tölublað Innbrot í gullsmíðaverslun á Akureyri: Skartgripum fyrir tugi þúsunda var stoliö Aðfaranótt laugardagsins var brotist inn í verslun gullsmið- anna Sigtryggs og Péturs við Brekkugötu 5 á Akureyri. Inn- brotsþjófurinn hafði skartgripi að verðmæti 50-60 þ. kr. upp úr krafsinu og hafði á brott með sér. Ekki er fyllilega ljóst hvenær innbrotið var framið, samkvæmt upplýsingum rannsóknarlögregl- unnar á Akureyri í morgun. Inn- brotsþjófurinn braut gat á rúðu í sýningarglugga verslunarinnar og lét greipar sópa um það sem var í glugganum. Hann fór hins vegar ekki inn í verslunina. Enginn virðist hafa orðið var við skark- alann þegar rúðan var brotin, en árvakur vegfarandi um Brekku- götu á laugardagsmorguninn sá vegsummerkin og tilkynnti þjófn- aðinn til lögreglunnar. Málið er enn óupplýst. enn „Kartöflugrösin standa enn og standi þau 2-3 vikur til viðbótar má búast við þokkalegri upp- skeru, en það nær samt aldrei meðaluppskeru,“ sagði Sigurgeir Sigurgeirsson, bóndi á Staðarhóli í Ongulsstaðahreppi, í spjalli við Dag í morgun. Hann sagði að kartöflurnar hefðu sprottið vel að undanförnu og væru þær nú komnar vel yfir útsæðisstærð. Kartöflu- grös standa Viðhald Mynd: KGA. „Ein og ein þúfameð berjum“ „Þetta er voðalegur dauði enn, það er rétt ein og ein þúfa með berjum, ef það helst góð tíð þessa viku er hugsanlegt að eitt- hvað verði komið af berjum um helgina," sagði Aðalsteinn Ósk- arsson, einn af eigendum skóg- ræktargirðingarinnar á Kóngs- staðahálsi í Skíðadal, í samtali við Dag í morgun. Á Kóngsstaðahálsi hefur löng- um verið góssenland eyfirskra berjatínslumanna, enda er þar 60 ha. skógræktargirðing. Aðal- steinn fór um girðinguna í gær og sagði hann svolítið um krækiber, en bláber væru vandfundin. En það er með berin eins og kartöfl- urnar; ef ekki gerir næturfrost á næstunni, þá verður ef til vill eitt- hvað um ber, en það nær þó tæp- lega meðalsprettu úr þessu. „Erfið vinna en spennandi að fást við“ bls. 4 Allt um íþróttir helgarinnar _______bls. 6-7 Heimsókn á Þórshamar bls. 8-9 Ólafsfjörður: Valtýr ráðinn bæjarstjóri Valtýr Sigurbjarnarson hefur veriö ráðinn bæjarstjóri á Ólafsfirði, og tekur hann við starfinu af Jóni E. Friðrikssyni sem hyggst flytja búferlum til Sauðárkróks og taka þar við nýju starfi. Staða bæjarstjóra var auglýst og sóttu sjö um hana. Peir eru: Loftur H. Jónsson, Dalsgerði 5 Akureyri, Heimir Ingimarsson Brekkugötu 45 Akureyri, Jónas Vigfússon Litla-Dal Saurbæjar- hreppi Eyjafirði, Valtýr Sigur- bjarnarson Kjarrhólma 30 Kópa- vogi, Einar Flygenring Njálsgötu 72 Reykjavík og Heimir Lárus- son Fjeldsted Melabraut 41 Sel- tjarnarnesi. Einn óskaði nafn- leyndar. Á fundi bæjarstjórnar Ólafs- fjarðar fyrir helgina var ráðið í stöðuna, og var samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum að ráða Valtý. Valtýr Sigurbjarnarson.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.