Dagur - 12.09.1983, Síða 1
66. árgangur
Akureyri, mánudagur 12. september 1983
101. tölublað
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
. SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
Framlag ríkisins til
Byggðasjóðs minnkandi
er þriðjungi minna í ár en lög gera ráð fyrir
Framlag ríkisins til byggða-
sjóðs Framkvæmdastofnunar
ríkisins hefur farið sífellt
minnkandi á undanförnum
árum. Á þessu ári eru framlag-
ið 36,5% lægra en lög gera ráð
fyrir, í fyrra var það 23,5%
lægra og 1981 var framlag
ríkisins til sjóðsins 36% lægra
en ráð er fyrir gert í lögum. Á
árunum 1977-1980, að báðum
meðtöldum, var rýrnunin að
meðaltali 6,1% en er að með-
altali 32% árin 1981 til 1983.
Þetta kemur fram í svari Fjár-
laga- og hagsýslustofnunar við
fyrirspurn Fjórðungssambands
Norðlendinga. Samkvæmt lögum
eru tekjur byggðasjóðs þrenns
konar; af eignum atvinnujöfnun-
arsjóðs, vaxtatekjur og framlag
úr ríkissjóði, en árlegt ráðstöfun-
arfé sjóðsins á að vera eigi lægra
en sem svarar 2% af útgjöldum
fjárlaga.
Á þessu ári er framlag ríkis-
sjóðs 1,27% í stað 2% eins og
gert er ráð fyrir í lögum, sem er
36,5% rýrnun, eins og áður
sagði. 1982 var framlagið 1,53%
og árið 1981 var það 1,28%. Árin
þar á undan var framlagið mun
hærra eða 1,87% árið 1977,
1,94% árið 1978, 1,96% árið
1979 og 13% árið 1980.
Það fer saman vaxandi rýrnun
á framlagi ríkisins til byggðasjóðs
1980-1983 og óhagstæð búsetu-
þróun á Norðurlandi og víðar út
um land, þó fleira hafi þar vafa-
laust áhrif á.
Dregið í dilk. Á laugardaginn var réttað í Akureyrarrétt og var þar margt um manninn, jafnvel fleira um kindur.
Mynd: KGA.
Atvinnuþátttaka kvenna á Akureyri:
Meiri en að meðal-
tali á landinu öllu
er fyrst og fremst verið að athuga
atvinnumarkaðinn. Og það verð-
ur fróðlegt að sjá hvað kemur í
ljós í seinni hluta könnunarinnar,
því þar eru athugaðir þættir eins
og til dæmis launamunur á kynj-
unum.“
Könnunin er unnin úr gögnum
frá ýmsum opinberum stofnun-
um, til dæmis Framkvæmdastofn-
un Ríkisins, Hagstofunni og
Skattstofunni.
„Það kom eiginlega mest á
óvart að atvinnuþátttaka
kvenna á Akureyri er meiri en
að meðaltali á landinu,“ sagði
Karólína Stefánsdóttir formað-
ur jafnréttisnefndar um könn-
un sem nú er verið að vinna
að, á þátttöku kynjanna í
atvinnulífi bæjarins.
„Það má segja að þessi könnun
sé fyrsta skrefið í því að kanna
hvernig jafnréttismál eru hér í
bænum,“ sagði Karólína. Það er
Kristinn Karlsson félagsfræðing-
ur sem vinnur að könnuninni á
vegum jafnréttisnefndarinnar og
að sögn Karólínu liggja niður-
stöður ekki fyrir ennþá, en jafn-
réttisnefnd hefur fengið fyrstu
drög að niðurstöðum í fyrri hluta
athugunarinnar. Og þar kom
meðal annars fram, að atvinnu-
þátttaka kvenna á Akureyri er
meiri en á landsvísu.
Endanlegrar niðurstöðu er að
vænta í október. „Við erum að
reyna að átta okkur á því hvernig
staðan er hér. Það er jú hlutverk
jafnréttisnefndar að berjast fyrir
auknu jafnrétti í bænum og til
þess að við getum það verðum
við að vita hvernig málin standa.
í framhaldi af því getum við síð-
an í samráði við bæjarstjórn gert
áætlun um hvar aðgerða sé þörf,“
sagði Karólína. „Það er eiginlega
nauðsynlegt að hafa samstarf við
atvinnumálanefnd, því að þarna