Dagur - 19.09.1983, Qupperneq 1
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, mánudagur 19. september 1983
104. tölublað
„Fáránlegur skólatími“
— Yngstu börnin á ferðinni í svartasta vetrarmyrkrinu
Skipulag skólamála í bænum
virðist vera í nokkrum ólestri
a.m.k. ef marka má viðbrögð
foreldra og forráðamanna
skólabarna í upphafí skólaárs.
Dagur hefur þegar greint frá
óánægju foreldra í Síðuhverfí
vegna seinagangsins með Síðu-
skóla og „hreppaflutninga“
barna þeirra en nú síðast hefur
orðið vart óánægju foreldra af
Eyrinni sem börn eiga í Odd-
eyrarskóla.
Þessi óánægja beinist einkum
að hinum „fáránlega skólatíma"
sem börnunum sem nú byrja í
forskóla er ætlaður. Börn á for-
skólaaldri í Oddeyrarskóla eru
um 70 talsins og er þeim skipt
niður í þrjá hópa. Einn byrjar um
kl. 9 árdegis, annar eftir hádegi
og sá þriðji ekki fyrr en um og
eftir 15 á daginn. Þetta þýðir í
raun að börnin sem eru fimm og
sex ára þurfa stundum að fara í
skólann klukkan hálf fjögur á
daginn og þá lýkur skóladeginum
ekki fyrr en klukkan sex. ivetur
þurfa því sum minnstu barnanna
sem eru að byrja í skólanum að
fara í skólann í hálfrökkri og
aftur heim í svartasta vetrar-
myrkri. Er engum öðrum en
þeim yngstu boðið upp á slíkt
hlutskipti.
Óánægja foreldranna á Eyrinni
beinist einkum að skólatímanum
en börnum þeirra hefur verið út-
hlutað „hinum vafasama" skóla-
tíma. Þykir foreldrunum það hart
að börn þeirra skuli vera horn-
rekur í eigin skóla en að bömin úr
Síðuhverfi sem keyrð eru á skóla-
bílum í skólann skuli ganga fyrir
og vera í skólanum á hættu-
minnsta tímanum.
Þessi myndariega lúða sem Jón V. Ólason verkstjóri hjá Fiskhúsi KEA á
Akureyri stendur við kom í troilið hjá togaranum Björgvin frá Dalvík fyrir
helgina. Lúðan reyndist vera 2,30 metrar á lengd, 1,10 metrar á breidd. Þess
má geta að hausinn einn var 23 kg á þyngd, en alls var „flykkið“ um 150 kg
á þyngd. Ljósmynd: KGA.
Hvernig á að
reka leiktæki
á Akureyri?
- Þeirri spurningu verður svarað
í bæjarstjórn á morgun
„Bæjarráð leggur til víð bæjar-
stjórn, að rekstur leiktækja
skuli einungis vera í höndum
þeirra er fara með æskulýðs-
mál á vegum bæjarins. Gjald-
töku skal stillt í hóf, og hugs-
anlegur hagnaður komi ung-
Iingunum sjálfum til góða við
uppbyggingu félagsstarfs.“
Þannig hljóðar orðrétt tillaga
sú sem bæjarráð Akureyrar hefur
samþykkt varðandi rekstur leik-
tækjasala og Dagur sagði frá í
síðustu viku. Tillagan var borin
fram af Valgerði Bjarnadóttur og
Helga Guðmundssyni og auk
þeirra fékk hún stuðning Sigurð-
ar Óla Brynjólfssonar. Jón G.
Sólnes greiddi atkvæði gegn til-
lögunni, en Margrét Kristinsdótt-
ir sat hjá. Jórunn Sæmundsdóttir,
áheyrnarfulltrúi Alþýðuflokksins
í bæjarráði, lét bóka, að hún væri
andvíg tillögunni.
En samþykkt bæjarráðs er ekki
endanleg, því bæjarstjórn á eftir
að fjalla um máíið. Þar verður
það tekið fyrir á fundi sem hefst
í bæjarstjórnarsalnum kl. 4 á
morgun.
atvinnulausir
í ágúst
Eitt hundrað og fjórir voru
skráðir atvinnulausir þann 31.
ágúst síðastliðinn, 59 konur og
45 karlar.
Skráðir voru 1775 heilir
atvinnuleysisdagar, sem svarar til
þess að 77 manns hafi verið
atvinnulausir allan mánuðinn.
Það eru helst verkamenn sem eru
án atvinnu, samkvæmt upplýsing-
um Vinnumiðlunarskrifstofunn-
ar, en eitthvað hefur þó glæðst
það sem af er septembermánuði.