Dagur - 05.10.1983, Qupperneq 1
66. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 5. október 1983
111. tölublað
Leiktækjastofur mega vera
opnar frá kl. 15-23.30 daglega,
ekki má selja unglingum
innan 14 ára aldurs aðgang að
leiktækjunum, starfsmenn
mega ekki vera yngri en 18 ára
og leyfisgjald skal miðað við
leiktækjafjölda, eru þau meg-
inákvæði sem finna má í reglu-
gerð um leiktækjasali, sem
bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti í gær.
Reglugerðin er í sjö liðum, en
gerð hennar hefur vafist fyrir
bæjarráðsmönnum undanfarnar
vikur og mánuði. Bakslag kom í
gerð hennar þegar meirihluti
bæjarráðs samþykkti að heimila
ekki rekstur leiktækjasala nema
á vegum bæjarins. Þeirri sam-
þykkt var hnekkt í bæjarstjórn og
settist bæjarráð þá aftur niður við
að semja reglugerðina.
Leyfisgjald er 10 þúsund krón-
ur fyrir fyrsta leiktækið, en síðan
bætast við 15 þúsund krónur fyrir
hver 5 leiktæki. Þannig kostar 70
þúsund kr. að fá leyfi fyrir 16-20
leiktækjum, ef það þá fæst, því
samþykki bæjarstjórnar þarf til
að bæjarfógeti gefi út leyfi til
reksturs leiktækjasalar.
Þar við bætist ályktun, sem
bæjarstjórn samþykkti með 6 at-
kvæðum, fyrir frumkvæði Val-
gerðar Bjarnadóttur, Sigurðar
Óla Brynjólfssonar og Sigríðar
Stefánsdóttur. Þar segir, að fyrst
og fremst skuli leyfi fyrir rekstri
leiktækjasala veitt til félagasam-
taka, svo sem íþrótta- og æsku-
lýðsfélaga. Kom fram í máli Val-
gerðar, að íþróttafélögin hefðu
hug á slíkum rekstri. Það voru
bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokks, Kvennaframboðs og Al-
þýðubandalags sem samþykktu
þessa ályktun, en bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.
Ofnasmiðja Norður-
lands flytur suður
Ofnasmiðja Norðurlands hætt-
ir rekstri hér á Akureyri í lok
nóvember og verður fyrirtækið
þá flutt suður tíl Reykjavíkur.
Að sögn Guðrúnar Einarsdótt-
ur eiganda fyrirtækisins er
ástæðan fyrir þessum flutningi
sú að verkefnaskortur blasir
við vegna síaukins samdráttar
í byggingariðnaði og eins hafa
markaðsmál og það sem Guð-
rún kallar „undirboð á heima-
markaði“ sitt að segja.
- Það er staðreynd að 95% af
framleiðslu Ofnasmiðju Norður-
lands fara á markað í Reykjavík
og á öðrum stöðum utan Akur-
eyrar og nágrennis og aðeins 5%
fara á heimamarkað, sagði Guð-
rún í samtali við Dag.
Að sögn Guðrúnar hefur þessi
markaðshlutdeild hér farið stöð-
ugt minnkandi og þegar við bæt-
ist að horfur í byggingariðnaði
eru allt annað en glæsilegar þá
sjái hún sér ekki annað fært en að
flytja fyrirtækið.
- Því er heldur ekki að leyna
að við höfun verið í samkeppni
við Vélsmiðjuna Odda hér á
þessum heimamarkaði síðan
vélsmiðjan sneri sér að ofna-
framleiðslu og stöðug undirboð
og verðstríð hefur gert okkur erf-
itt fyrir, sagði Guðrún.
Ofnasmiðja Norðurlands flytur
í byrjun desember að Funahöfða
17 í Reykjavík og sagðist Guðrún
vonast til að rekstur fyrirtækisins
myndi ganga betur þar ekki síst
vegna þess að þar væri markaður-
inn sem framleitt væri fyrir.
* »
Bygging vatnspökkunarverksmiðju hafin á Króknum
Utflutningur hefst
væntanlega að ári
- Það er stefnt að því að
hefja útflutning frá verksmiðj-
unni í september á næsta ári og
ef ekkert óvænt kemur upp á
þá á það að takast, sagði Hreinn
Sigurðsson, aðalhvatamaður-
inn að stofnsetningu vatns-
pökkunarverksmiðju á Sauð-
árkróki í samtali við Dag.
Um miðjan síðasta mánuð hóf-
ust framkvæmdir við byggingu
húss fyrir vatnspökkunarverk-
smiðjuna á uppfyllingu við höfn-
ina á Sauðárkróki. Fyrsti áfangi
er 2.600 fermetrar og að sögn
Hreins er áætlað að framkvæmd-
um við grunn byggingarinnar
ljúki 10. október. Stefnt er að
því að halda áfram framkvæmd-
um í haust og í vetur eins og
veður leyfir.
Stofnun félags um rekstur
verksmiðjunnar er í undirbúningi
og verður gengið frá þeim málum
innan skamms. Málefni vatns-
pökkunarverksmiðju á Sauðár-
króki hafa lengi verið í deiglunni,
en nú er kominn skriður á málin,
Sauðkrækingum til mikillar
ánægju að sögn fréttaritara Dags
á Sauðárkróki.
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI