Dagur - 24.10.1983, Qupperneq 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
66. árgangur Akureyri, mánudagur 24. október 1983 119. tölublað
Vöruverð óbreytt
milli sendinga
— í fyrsta skipti í mörg ár sem slíkt gerist
„Þetta er í fyrsta skipti í mörg
ár að við tökum upp vörur sem
eru á sama verði og í síðustu
sendingu. Áður brást það ekki
að verðbreytingar urðu á milli
sendinga, en nú hefur þetta
breyst,“ sagði Birkir Skarp-
Drengur
varð fyrir
bifreið
á Skógarlundi
í gærkvöld varð drengur fyrir
bifreið skammt vestan við mót
Heiðarlundar og Skógarlundar.
Drengurinn var fluttur á sjúkra-
hús, en sem betur fer reyndust
meiðsli hans minni en ætlað var í
fyrstu. Hann fékk því að fara
heim að rannsókn lokinni.
héðinsson, kaupmaður í
Amaro í viðtali við Dag.
„Það er ekkert vafamál að
breyting hefur orðið á. Verðið
breytist lítið og stendur jafnvel í
stað og í undantekningartilvikum
höfum við orðið varir við verð-
„Mín persónulega skoðun er
sú að þessi sullaveiki hafí kom-
ið með hundum, sem smyglað
hefur verið til landsins. Það
sem stendur í okkur er hvað
þetta kemur dreift. Þetta kem-
ur upp í V.-Húnavatnssýslu og
svo á Svalbarðsströnd og þarna
vestur frá er ekki nokkurt sam-
band hugsanlegt við refí. Því
er ég fremur þeirrar skoðunar
að veikin hafí komið með
hundum en refum,“ sagði Páll
A. Pálsson, yfírdýralæknir í
viðtali við Dag.
Ný tegund sullaveiki hefur
komið upp á Norðurlandi og er
um hálfur mánuður síðan hún var
lækkun, eins og t.d. á snyrtivör-
um,“ sagði Einar Gunnarsson,
innkaupastjóri hjá matvörudeild
KEA. Hann sagði það mjög
áberandi hvað hækkanir væru nú
minni en áður og allt annað að
vinna við þetta heldur en var,
uppgötvuð. Veikin fannst í slát-
urfé á Blönduósi, Hvammstanga
og Svalbarðsströnd. Hér er um
nýja tegund að ræða hér á landi,
sem þekkist meðal annars í Bret-
landi, og er hún hvorki hættuleg
heilsu manna né dýra, en þá
hluta sauðfjár sem verst verða
úti er ekki hægt að selja til
neyslu, en það eru einkum
hjarta, þind og magáll.
„Hugsanlega hefði þetta getað
komið með refum á Grund í
Grýtubakkahreppi, en ekki á
bæjum í Húnavatnssýslum. Við
höfum yfirheyrt fólk vegna
hundahalds en ekki getað fengið
staðfestingu á þeim grun að þetta
hafi borist með hundum. Mér
þegar sífellt þurfti að gera nýja
verðútreikninga.
„Það eru dæmi um að verð á
vörum sem eru að koma í dag sé
það sama og á vörusendingum
frá því í byrjun september,"
sagði Einar Gunnarsson.
finnst dreifingin hins vegar benda
einna helst til þess,“ sagði Páll A.
Pálsson.
Þessi bandormur þrífst bæði í
refum og hundum. Eggin ganga
svo niður af skepnunum með
saur og menga bithaga. Þaðan
fara eggin í sauðfé og þroskast
þar og ef hundar eða refir komast
í sláturúrgang hefst hringrásin á
nýjan leik. Frysting og suða
drepa sullinn og til að reyna að
stöðva hringrásina verður hert á
hundahreinsun og hart gengið
eftir því að sláturúrgangi verði
ekki hent. Erfiðara er hins vegar
um vik ef sjúkdómurinn er kom-
inn í villta refastofninn, að sögn
yfirdýralæknis.
Leiruvegurinn:
Flóðahætta
minnkar
frá því
sem nú er
-ef 120 metra brú verður
byggð og gömlu brýmar hverfa
„Þegar ég segi í þessari skýrslu
að brúin valdi aukinni hættu
vegna árfióða, er ég raunar að
tala um ástandið eins og það er
í dag, þ.e. að ný 120 metra
Iöng brú kæmi í Leiruveginn
og ekki búið að fjarlægja
gömlu brýrnar. Ef hins vegar
120 metra brú kemur á Leiru-
veg og gömlu brýrnar hverfa
tel ég að ástandið muni batna
frá því sem nú er og flóðahætta
minnka.“
Þetta sagði Loftur Þorsteins-
son, verkfræðingur hjá Vegagerð
ríkisins í Reykjavík, en hann
gerði á sínum tíma skýrslu um
áhrif Leiruvegar á vatnsborð í
ánni. Hann sagði að samkvæmt
útreikningum ætti 60 metra löng
brú á Leiruveginn að nægja, en
til að mæta óvissu hafi hann lagt
til að hún yrði helmingi lengri,
eða 120 metrar.
„Ef gömlu brýrnar verða fjar-
lægðar tel ég öruggt að ástandið
muni batna frá því sem nú er. Ef
í ljós kemur þrátt fyrir þetta að
flóð geti orðið á flugvellinum ætti
að vera auðvelt og ódýrt að setja
hálfs til eins metra háan varnar-
garð meðfram flugbrautinni, sem
myndi leysa málið.
Ég hef hins vegar heyrt að
hestamenn vilji gjarnan halda
gömlu brúnum svo áfram verði
hægt að ríða og komast upp með
ánni og sömuleiðis bændur vegna
grasnytja á eyrunum. Ég hef
aftur á móti grun um að þeir sem
vilja vernda lífríkið á þessum
slóðum vilji gömlu brýrnar burt.
En eins og ég sagði áðan er tal-
ið að 60 metra brú á Leiruveg
muni nægja en til að mæta óvissu
lagði ég til 120 metra brú,“ sagði
Loftur Þorsteinsson að lokum.
„Það var ákaflega gaman - annað get ég ekki sagt,“ sagði Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti íslands, eftir að hún hafði séð sýningu L.A. á My fair Lady í
gærkvöldi. Vigdís heilsaði upp á leikara og starfsmenn Leikfélagsins að lok-
inni sýningu og hér er hún ásamt Ragnheiði Steindórsdóttur, sem fer með
hlutverk Elísu. Með þeim á myndinni er Ásthildur, dóttir Vigdísar.
Tel veikina hafa
borist með hundum
—segir yfirdýralæknir um nýja tegund sullaveiki sem komið hefur upp á Norðurlandi