Dagur - 24.10.1983, Blaðsíða 5
Tvímenningskeppni
Bridgefélagsins:
Frímann og
Páll sigruðu
Nú er lokið fjögurra umferða
Thule-tvímenningskeppni
Bridgefélags Akureyrar. Verð-
laun hafa framleiðendur Thule-
ölsins gefið.
Keppnin að þessu sinni var
nokkuð jöfn og spennandi. Sig-
urvegarar urðu Páll Pálsson og
Frímann Frfmannsson sem hlutu
735 stig, í öðru sæti voru Helgi
Sigurðsson og Vilhjálmur Hall-
grímsson með 720 stig, en þeir
eru nýlega farnir að spila með
BA.
Spilað var í þremur 14 para
riðlum, alls 42 pör, þar af spiluðu
10 konur.
Röð efstu para varð þessi:
Stig:
1. Páll Pálss.-Frímann Frímannss. 735
2. Helgi Sigurðss.-Vilhjálmur Hallgrímss. 720
3. Stefán Ragnarss.-Pétur Guðjónss. 718
4. Ólafur Ágústss.-Grettir Frímannss. 707
5. Gylfi Pálss.-Helgi Stefánss. 689
6. Páll Jónss.-Þórarinn B. Jónss. 687
7. Júlíus Thorarensen-Alfreð Pálss. 684
8. Arnar Daníelss.-Stefán Gunnlaugss. 676
9. Karl Steingrímss.-Bragi Jóhannss. 658
10. Tryggvi Gunnarss.-Reynir Helgas. 655
Meðalárangur er 624 stig.
Næsta keppni félagsins, sveita-
keppni Akureyrarmót hefst nk.
þriðjudag 25. október í Félags-
borg kl. 19.30. Keppnisstjóri er
sem fyrr Albert Sigurðsson.
Bókin „Ljóðþrá"
úrval Ijóða og sálma eftir föður minn Valdemar
Snævarr, fyrrverandi skólastjóra, fæst hjá undirrituð-
um og kostar hún kr. 400.00 innbundin. Góð bók og
tilvalin til tækifærisgjafa.
Stefán Snævarr, Hólavegi 17, Dalvík. Sími: 61350.
Frá kjörmarkaði
KEA
Estrel la-f lögur
í pökkum tvær stærðir
100 gr á 24 kr. 200 gr á 47 kr.
All-Bran morgunfæða
375 gramma pakki á aðeins 31 kr.
Komið og gerið
beti matarkaup
Kjörmarkaður KEA
Hrísalundi
Bændur
Haustverð á heyvinnuvélum
Eigum á lager:
heytætlur,
sláttuþyrlur,
heyhleðsluvagna
Guffen mykjudreifara,
oc
ALFA-LAVAL
mykjudælur,
ImM|Im|||0 áburðardreifara.
Véladeild KEA smihpmi
Véladeild Sambandsins •****.
Uppdráttur og skýringar á umferð í miðbæ Akureyrar
Öll umferð ökutækja um göngugötu í Hafnarstræti er bönnuð, nema
takmörkuð umferð hreyfihamlaðra, vörulosun og flutningur á sjúkling-
um að og frá heilsugæslustofnunum.
Akstursstefna í göngugötunni er frá suðri til norðurs og síðan til aust-
urs sunnan Ráðhústorgs. Ennfremur eru allar bifreiðastöður þar bann-
aðar nema fyrir hreyfihamlaða á þar til merktum stæðum.
Hámarkshraði umræddra ökutækja á göngugötunni er 10 km/klst.
Tvístefna er á Skipagötu milli Kaupvangsstrætis og Strandgötu og bif-
reiðastaða bönnuð beggja vegna nema vestan götunnar við Ráðhús-
torg. Umferð um Skipagötu skal víkja fyrir umferð um Strandgötu og
Kaupvangsstræti, sem auðkennt er með biðskyldumerkjum, en að
öðru leyti nýtur Skipagata aðalbrautarréttar.
Umferðarljós eru á gatnamótum Glerárgötu-Strandgötu og Glerárgötu-
Kaupvangsstrætis en á umferðarljósunum á gatnamótum Kaup-
vangsstrætis-Skipagötu verður slökkt a.m.k. fyrst um sinn.
Umferðarljósin á gatnamótum Glerárgötu-Strandgötu eru að hluta til
umferðarstýrð. Gangandi vegfarendur sem ætla yfir Glerárgötu á
gatnamótunum þurfa því sjálfir að þrýsta á Ijósahnapp, sem er á um-
ferðarljósunum við gangbrautirnar og bíða síðan eftir grænu Ijósi.
Vegna byggingaframkvæmda við Skipagötu 14 eru vegfarendur hvattir
til að sýna þar sérstaka aðgát.
Bæjarverkfræðingur.
24. oktöber 1983 - DAGUR - 5