Dagur - 26.10.1983, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 26. október 1983
120. tölublað
Tæringarhætta hjá
öllum hitaveitum
- nema Hitaveitu Reykjavíkur. Hjá helmingi hitaveita er vatn um eða undir 60°C
Meiri og minni tæringarhætta
er í nánast öllum hitaveitum
landsins, að undanskildri Hita-
veitu Reykjavíkur. Þetta
vandamál er síður en svo ein-
skorðað við Akureyri og Hrís-
ey, en fréttir af tæringu ofna
frá þeim stöðum hafa verið í
fjölmiðlum. Vandamálið er
nær alls staðar að finna, en á
mismunandi háu stigi. Hins
vegar virðist svo sem þessi
vandamál hafi verið þögguð
niður á öðrum stöðum á land-
inu en á Akureyri og í Hrísey,
þar sem þau hafa verið til um-
ræðu opinberlega.
Ásbjörn Einarsson, verkfræðing-
ur, hefur undanfarið unnið að
könnun á þessu máli fyrir Sam-
band íslenskra hitaveita. Hann
skilaði bráðabirgðaskýrslu á
mánudag og í framhaldi af því
verður lokaskýrsla kynnt 15. nóv-
ember nk.
„Gróflega áætlað má segja að
annar hver ofn sem tengdur er
við hitaveitu hér á landi geti farið
að leka vegna tæringar. Þetta
vandamál er ekki verra t.d. á Ak-
ureyri en víðast hvar annars
staðar. Það hafa farið ofnar á
Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði,
Hvammstanga, Selfossi og á Sel-
tjarnarnesi, svo ég nefni ein-
hverja staði. í Reykjavík eru
menn lausir við þetta vandamál,
nema hvað þar er helst hætta á
því að eirrör géti farið. Þetta
vandamál er leysanlegt með svip-
uðum aðferðum á öllum stöðun-
um, íblöndun efnis og með því að
klæða yfirborð vatns í heitavatns-
tönkum með plasti, til að hindra
að súrefni komist í vatnið. En
eins og áður sagði er þetta vanda-
mál langt frá því að vera ein-
skorðað við Akureyri.
Sama er að segja um hita á
vatninu til neytenda. Það er víða
mjög mikið vandamál og sem
dæmi get ég nefnt að hjá um
helmingi hitaveita á landinu er
vatnið um eða undir 60 gráðum,"
sagði Ásbjörn Einarsson.
Þess má geta að Hitaveita Ak-
ureyrar bætir neytendum upp
lágt hitastig með meira vatns-
magni, ef hitinn er undir 70
gráðum. Víðast hvar annars stað-
ar er þetta ekki bætt á neinn hátt,
en að sögn Ásbjörns fara hita-
veitur á landinu líklega í auknum
mæli að bæta neytendum lágt
hitastig með aukningu á vatns-
magni.
íþróttahöllin:
Þakið
lekur
-og rakastig er of lágt
Engin íþróttakennsla var í
íþróttahöllinni á Akureyri í
gær og fyrradag vegna leka
sem upp kom á þaki Hallarinn-
ar.
Á mánudagsmorgun datt ung
stúlka sem var í leikfimi, í
bleytu á gólfinu og meiddist lítil-
lega. í framhaldi af því ákváðu
íþróttakennarar sem starfa í hús-
inu að leggja niður kennslu þar til
viðgerð hefði farið fram.
„Þetta er vegna þess að ekki
var nógu vel gengið frá þessum
hlutum í sumar,“ sagði Hermann
Sigtryggsson íþróttafulltrúi og
formaður bygginganefndar húss-
ins í samtali við Dag í gær. „Þetta
er fremur erfitt viðureignar en
við gerum okkur vonir um að
komast fyrir þetta endanlega
núna þannig að þetta mál verði
úr sögunni. Þetta er ekki stór-
vægilegt en þarf engu að síður að
komast í lag.“
Þá hefur einnig verið talsvert
kvartað undan því að rakastig í
Höllinni væri lágt og þeir sem
hafa verið þar á æfingum hafa
kvartað undan því. Vegna þess
snerum við okkur til Valdimars
Brynjólfssonar heilbrigðisfulltrúa
á Ákureyri.
„Við mældum rakastigið í
íþróttahúsum bæjarins á dögun-
um og reyndust niðurstöður í
þeim öllum með ágætum nema í
Höllinni,“ sagði Valdimar.
„Rakaprósenta í húsunum var
um 50% en í Höllinni ekki nema
32-38%.“
- Stafar hætta af þessu?
„Nei, það held ég ekki, hættu-
mörkin eru við 30% og ég reikna
ekki með að um neinar aðgerðir
verði að ræða frá okkar hendi
nema það fari niður fyrir þau
mörk.“
Hann kom og lagði alla að fótum sér í Sjallanum og Dynheimum um helgina. Hallbjörn Hjartarson kántrísöngvari
gerði stormandi lukku en á mynd KGA sést hann ásamt aðdáendum sínum. - Sjá nánar í H-Degi sem kemur út á
föstudag.
Bygging
hafiná
22íbúðum
„Ég get ekki sagt að þetta sé
endanleg tala, en auðvitað
bætist ekki mikið við eftir að
október er búinn,“ sagði Jón
Geir Agústsson byggingafull-
trúi á Akureyri er við ræddum
við hann um nýsmíði íbúða í
bænum á yfirstandandi ári.
„Það hefur verið hafin bygging
á 22 íbúðum í bænum það sem af
er þessu ári,“ sagði Jón Geir. Það
munu vera 9 íbúðir í einbýli og 13
í raðhúsum.
Ef teknar eru nokkrar tölur til
viðmiðunar má nefna að 1978 var
hafin bygging 241 íbúðar á Akur-
eyri. Árið 1981 sem þótti afar lé-
legt ár voru þetta 56 íbúðir og á
sl. ári var hafin bygging 97 íbúða.
Er ljóst af þessum tölum að árið
í ár er langt fyrir neðan það sem
verið hefur og nær ekki 10% af
því sem var fyrir fimm árum.
Slippstöðin bauð 19
millj. meira en ÚA
- Vilja breyta Hafþóri í frystitogara og skapa meo því verkefni í stöðinni
„Jú, það er rétt, Slippstöðin
bauð í Hafþór og tilboðið nam
eins og þú nefnir 64 milljónum
króna. Ástæðan fyrir því að
boðið var í skipið er sú að stöð-
ina vantar verkefni og hug-
myndin er sú að breyta skipinu
í frystiskip, Iíkt og nú er verið
að gera við Akureyrina. Það
kostar um 40 milljónir og ég
hef ekki trú á öðru en það
verði slegist um skipið, því út-
gerð frystitogara hefur gengið
mjög vel,“ sagði Stefán
Revkjalín, stjórnarformaður í
Slippstöðinni á Akureyri í við-
tali við Dag.
„Við verðum að leita allra
leiða til að fá verkefni svo ekki
þurfi að koma til uppsagna.
Breytingin á skipinu gæti skapað
verkefni og auk þess eru teikn-
ingar af slíkri breytingu til, því
þetta er systurskip Akureyrinn-
ar,“ sagði Stefán ennfremur.
Hann var spurður að því hvort
stjórnarheimild hafi verið fyrir
þessari tilboðsgerð og svaraði
því til að svo hafi ekki verið þeg-
ar tilboðið var gert á föstudags-
kvöld, en stjórnin hefði sam-
þykkt þessa ráðstöfun.
Togstreita hefur verið milli
Slippstöðvarinnar og Útgerðar-
félags Akureyringa varðandi smíði
á skipi fyrir ÚA. Útgerðarfélagið
bauð 45 milljónir króna í Hafþór
og munu menn hafa talið að slíkt
boð nægði þegar tillit yrði tekið
til greiðslukjara. Bæjarstjóri sem
á seturétt á stjórnarfundum í ÚA
lagði til á fimmtudag að boðnar
yrðu 60 milljónir í skipið, en þá
átti tilboðsfresti að ljúka. Bæjar-
stjóri á sæti í stjórn Slippstöðvar-
innar og mun þessi hugmynd að
bjóða í togarann hafi komið upp
eftir fund í bæjarráði á föstudag,
þar sem Gunnar Ragnars, for-
stjóri Slippstöðvarinnar á sæti
ásamt bæjarstjóra.
Ekki var í gær hægt að fá upp-
lýsingar um það hjá Sjávar-
útvegsráðuneytinu hve mörg til-
boð hefðu borist í Hafþór, en
þegar Slippstöðin kom með sitt
tilboð á föstudag munu fjögur til-
boð hafa verið komin, þ.ám. frá
ÚA og Þormóði ramma á Siglu-
firði.