Dagur - 31.10.1983, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, mánudagur 31. október 1983
122. tölublað
Síðuskóli:
Híbýli
vill halda
byggingunni
áfram
upp á krít
„Það eru okkur vissulega von-
brigði að þessu erindi okkar til
bæjarráðs skuli hafa verið
hafnað. En neitunin setur okk-
ur hins vegar ekki út á klakann
því við höfum verkefni fram á
vorið,“ sagði Hörður Tulinius,
einn af eigendum Híbýlis hf.
en fyrirtækið skrifaði bæjar-
ráði bréf og bauðst til þess að
halda áfram vinnu við bygg-
ingu Síðuskóla gegn greiðslum
á næsta ári.
í bréfinu segir að byggingu 1.
áfanga Síðuskóla sem Híbýli tók
að sér á sínum tíma gæti verið
lokið um eða upp úr mánaða-
mótum okt. - nóv. Fyrirtækið
lýsir sig tilbúið til að halda áfram
byggingu skólans á einingaverð-
um sem samið yrði um þótt
greiðslur kæmu ekki fyrr en eftir
áramót. Um byggingarstig yrði
einnig samið sérstaklega og skila-
tíma fyrirtækisins. Þá segir í bréf-
inu að með þessu móti aukist lík-
ur verulega á því að hægt verði
að taka húsið í notkun næsta
haust.
Bæjarráð Akureyrar hefur tek-
ið þetta bréf til afgreiðslu og var
erindinu hafnað þar. „Því var
hafnað að það yrði samið við Hí-
býli um að ljúka við byggingu
hússins,“ sagði Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir bæjarfulltrúi sem sat
fund bæjarráðs á umræddum
fundi.
„Þeir buðu áframhald, óskil-
greint, en við bjóðum þeim þess
í stað upp á þá uppsteypu sem
eftir er, á stöfnum og súlum. Það
hefur verið unnið að útboði á
þeim hluta verksins sem þá yrði
eftir. Þannig er ekki hægt að
segja að við höfum hafnað tilboð-
inu í sjálfu sér en við höfnuðum
því að semja um meira en steypu-
vinnuna," sagði Úlfhildur.
Margar góðar bækur voru á uppboði í Sjallanum sl. laugardag. Hér má sjá Jón G. Sólnes bjóða eina þeirra upp en
við hlið hans er Bárður Halldórsson sem gekkst fyrir uppboðinu. Mynd: gk-.
_ Slippstöðin:
Tveir menn urou
undir frystipressu
Alvarlegt vinnuslys varð í
Slippstöðinni fyrir helgina.
Tveir menn voru að vinna við
að flytja frystipressu er hún
valt um og lentu mennirnir
undir.
Það voru þeir Kristinn Steins-
son, verkstjóri og Valgeir H.
Guðmundsson sem voru að vinna
við frystipressuna og slapp Val-
geir með skrekkinn. Marðist á
fæti en tókst að losa sig af sjálfs-
dáðum undan farginu. Kristinn
slapp hins vegar ekki eins vel því
hann brotnaði illa á öðrum fæti
en fór úr ökklalið á hinum.
Að sögn Birgis Björnssonar,
öryggisstjóra Slippstöðvarinnar
þá var mikil mildi að ekki fór
verr, því frystipressan sem menn-
irnir urðu undir vegur um 1,7
tonn.
Gagnaöflun
lokið
Gagnaöflun af hálfu lögfræð-
ings Kennarasambands Islands
vegna máls Ormars Snæ-
björnssonar, fyrrum kennara
við Þelamerkurskóla er nú
lokið.
Að sögn Gests Jónssonar, lög-
fræðings Kennarasambandsins er
óvíst hvaða stefnu málið tekur en
hann sagðist þó vera að leita
samkomulags við ráðuneytið.
Hjá Menntamálaráðuneytinu
fengust þær upplýsingar í gær að
engra tíðinda væri að vænta fyrr
en Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra kæmi til
landsins, en ráðherra hefur að
undanförnu dvalist erlendis í
embættisérindum.
Engar
uppsagnir
- Það er engin vá fyrir dyrum
hér. Það var tímabundinn hrá-
efnisskortur hér þannig að við
sögðum fólkinu upp en nú hef-
ur okkur tekist að útvega hrá-
efni þannig að uppsagnirnar
koma ekki til framkvæmda,
sagði Kristján Ólafsson, úti-
bússtjóri KEA á Dalvík.
Það er Bliki ES 12 sem landar
á milli 10 og 15 tonnum á Dalvík
í dag og sagði Kristján að þetta
hráefni ásamt þeirri vinnu sem
væri við pökkun og fleira myndi
duga fastráðna fólkinu þangað til
togarinn Björgvin landaði á ný
seinni part vikunnar. Hinn tíma-
bundni hráefnisskortur stafar af
því að togarinn Björgúlfur sigldi
með aflann að þessu sinni, en
Kristján sagði að þetta væri fyrsta
sigling togarans um tveggja ára
skeið og ekki yrði siglt aftur í bili.
Leiktækjastofan í Kaupangi opnar án leyfis:
„Fógeti á að loka“
- segir Helgi M. Bergs bæjarstjóri
„Ég ætla að opna á mánudag-
inn,“ sagði Magnús Kjartans-
son er við ræddum við hann
fyrir helgina, en Magnús ætlar
að opna leiktækjastofu í Kaup-
angi án þess að hafa fengið til
þess leyfi frá bæjaryfírvöldum.
„Ég verð þarna með 6 leiktæki,
satt að segja á ég von á öllu illu
frá yfirvöldum vegna þessa. Ég
ætla að fylgja þeirri lögreglusam-
þykkt sem er í gildi í bænum og
tel mig ekki brjóta hana með því
að opna þennan stað. Það verður
hins vegar að koma í ljós hver
viðbrögðin verða,“ sagði
Magnús.
„Ég held að viðbrögðin við
þessari opnun geti ekki orðið
nerna á einn veg, en annars er
það fógeta að bregðast við því,“
sagði Helgi Bergs bæjarstjóri er
við spurðum hann hver yrðu við-
brögð bæjaryfirvalda við þessari
opnun.
„Ég tel að fógeti þurfi ekki
beiðni frá okkur í þessu efni,
hann á að framfylgja lögreglu-
samþykkt á Akureyri og þessi að-
ili hefur ekki leyfi fógeta svo ég
viti til þess að opna þessa leik-
tækjastofu og fógeti á að loka
henni,“ sagði Helgi.