Alþýðublaðið - 11.08.1921, Síða 1

Alþýðublaðið - 11.08.1921, Síða 1
Alþýðublaðið Q-efið út af AlþýðuflokkHHM. 1921 Fimtudaginn 11. ágúst. 182. tölubl. 1 Fjárkreppan, Því nær ár er nú liðið síðan Alþýðublaðið hóf árás sfaa á ís landsbanka og ait aðgerðaleysi Iandsstjórnarinnar í því máli. Sum blöðin hér í bænum tóku þá svari bankans og hæddust að því, sem Álþbl. sagði um yfirvofandi fjár- kreppu. Taldi eitt þeirra hina mestu fjarstæðu að halda því fram, að ekki yrði alt komið í lag um nýjár og var með rosta mikinn út af ummælum Alþbl. En sama blaði snerist þó hugur síðar, en hefir þó litið gert að því, að benda á leiðir út úr kreppunni. Höfuðmálgagn eiginhagsmuna- mannanna átti viðtal við fjármála- ráðherrann, sem romsaði upp heil margar tölur, sem áttu að sýna það og sanna, hve landið stæði sig ágætlegá og að engin þörf væri á því, að reyna að bjarga við því ástandi, sem hér var í íyrrahaust, það mundi lagast af sjálfu sér. Fjármálaráðherrann sigldi til Hafnar, annað taldi hann þarfieysu. Þar gerði hann ekkert Þegar heim kom kvaðst hann vera á móti því, að ríkiö tæki lán og mundi af alefli berjast á móti því, að lán yrði tekið. Þessari stefnu hélt hann trúlega fram til þings og þar hélt hann sína alkunnu fjmnálaræðu, þar sem hann fiokk aði niður lántökur í ýmsa fiokka, Á alþingi var ekkert gert til þess að reyna að bæta úr fjár kreppunni, sem þá var meiri en hún hafði nokkurntíman áður ver ið, þrátt fyrir spádóm íslands- bankamálgagnsins aikunna og út reikninga fjármálaráðherra f Mogga og Tfmanum. Ójú, þingið sam- þykti lög, sem heimiiuðu stjórn inni að bjarga við fjárhag fs landsbanka, hvernig sem um stofn- un landsins færi, og önnur lög, sem heimiluðu henni að taka lán erlendis í þessu augnamiði. En stjórnin fór sér að engu óðslega. Ekkert lá á. Henni hafði að þessu tekist bezt að sitja með því, að láta ait danka. Gera sem allra allra minst til að grfpa fram í rás viðburðanna og reyna að hamla á móti því, að Iandið fari í hundana. Hennar pólitík var og er að hanga á aðgerðaleysinu. Heimskinginn heldur að sér hönd- um og hefst ekki að, ef háska ber að höndum, því hann heldur að hann geti ekki ráðið við örlög sfn. Þess vegna hefir stjórnin ekkert hafst að, að hún faeldur að alt lagist á endanum af sjálfu sér. Stjórnin fór loks á stúfana og leitaði þá vitaniega fyrst þangað sem hún síðast hefði átt að Ieita. En slfkt verður henni sennilega fyrirgefið á þingi, vegna þess að það er eðli forsætisráðherra, að gera ekkert það, sem stygt gæti vini hans við Eyrarsund. Svo kom kóngurinn f spilið, og ölíu var frestað í heilan mánuð. Þvf ekki dugði annað en allir ráðherrarnir væru viðstaddir þar. Að minsta kosti varð stórkross- riddarinn, sem síðar varð, að vera heima. „Eftir kóng* var aftur byrjað þar sem endað var áður. Þá var nú farið að nagast heldur en ekki utan úr loforðunum f Khöfn. Þau höfðu megrast furðanlega á svo skömmum tfmal Nú mun vera farið, að hugsa til þess, að fá lán í Englandi. En hver kjörin muni þar verða, getur enginn sagt. Tröllasögur ganga um þau, en þær munu úr Iausu lofti vera gripnar; þó vel mætti trúa þvf, að ekki mundu fást sér- lega góð kjör f Englandi, eftir allar þær dylgjur og rógburð, sem dönsk blöð hafa farið með, um fjárhag íslands. En það er vitanlega engin h'öjuðleið út úr fjárkreppunni, að taka lán. Sú leið er að eins ein af mörgum, sem þarf að fara. Bankarnir virðast nú loksins hafa rekið augun í það, að ekki dugar, að láta útgerðarmenn leggja alla peninga, sem þeir fá fyrir útfluttar afurðir, inn í erlenda banka; að ein leiðin út úr kreppunni er, að þeir nái yfirráðum yfir sem mestu af erlenda gjaldeyrinum. Útflytj- endur hafa hingað tii vitanlega notað sér gjaldeyrisskortinn, og selt það fé, sem þeir hafa átt erlendis, svo dýrt sem unt var. Þar er Ifka ein orsök dýrtíðarinnar. Að því er bezt verður séð, eru út- gerðarmenn, sem einna stærstan þátt hafa átt í fjárkreppunni, óánægðir með þessa ráðstöfun, vegna þess, að þeir geta ekki selt gjaldeyrinn, „eins og hann gengur hér*. Með öðrum orðum þeir eru gramir þvf, að geta ekki fram- vegis notað sér fjárkreppuna. Þessi ráðstöfun bankanna virðist hárrétt, og hefði fyrir löngu átt að framkvæma hana. Eina leiðin út úr fjárkreppunni er ekki, að „setja gengi* á fslenzka seðla, það er öruggasta leiðin feil að auka vandrœðin. En aftur á móti er það leið út úr kreppunni, sem alt of Iftið hefir verið rannsökuð, að leita nýs markaðs fyrir afurðir landsins. Þær hafa nú, sem kunnugt er, svo þröngan markað, að ekkert má út af bera, svo ekki faili vörurnar von úr viti. Þetta er leið, sem hefir miklu varanlegra gildi, en alt annað sem reynt verður. Þes3 vegna á ríkis- stjórnin nú þegar að hefjast handa, fyrst útfiytjesdur ekki hafa rænu á þvf, og láta gera ftarlegar rann- sóknir og tilraunir með rýmkvun markaðsins. Og þetta er að minsta kosti leið, sem fjármálaráðherrann ætti að geta fallist á. Heðal farþega á Botnfu f gær voru Pétur G. Guðmundsson, Jakob Kristinsson, Þórbergur Þórð- arsson, Jón J. Kaldal, Nielsea framkvæmdarstjóri, Petersen bíó* stjóri o. fl.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.