Dagur - 21.11.1983, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 21. nóvember 1983
21. nóvember 1983 - DAGUR - 11
hvern tíma í ljós ánægju mína
með störf hans þar.
Ég sé því ekki betur samkvæmt
þessu en að knattspyrnudeild KA
sé búin að fá æviráðinn
formann.“
- Hljóðið í ykkur formönnun-
um virðist ekki vera þannig að
um neina kærleika sé að ræða?
„Nei því miður.“
- Getur það ekki komið niður
á starfsemi deildanna á næstunni?
„Það er a.m.k. ekki til bóta.
Við störfum að vísu ekki einir,
erum báðir með góða menn með
okkur og vonandi lagast þetta."
- Víkjum að félagslegri að-
stöðu ykkar Pórsara, hvernig er
hún í dag?
„Vallaraðstaðan hjá okkur er
alveg þokkaleg og batnar enn ef
jafnað verður og tyrft á svæði
norðan við vellina en við þurfum
mjög nauðsynlega að fá þar æf-
ingasvæði vegna þess að grasvöll-
urinn okkar er alveg fullnýttur og
vel það. Félagsaðstaðan er hins
vegar alveg í lágmarki og enn
neðar en það reyndar. Við höfum
smá herbergi með öðrum deild-
um félagsins og aðalstjórn. Við
höfum sótt nokkuð á að fá að-
stöðu í kjallara Glerárskólans en
það virðast vera ýmis ljón á veg-
inum hvað það snertir. Það má
segja að ýmsir ráðamenn hafi
uppi góð orð í þessu efni en alltaf
skjóta þó upp kollinum annmark-
ar, bæði fjárhagslegir og aðrir.
Ég held að menn séu fallnir frá
þeirri hugmynd að fara út í bygg-
ingu félagsheimilis, það er nógu
erfitt að reka þetta í dag þótt
byggingaframkvæmdir, bættust
ekki þar við.“
- Að lokum. Hvernig leggst
komandi starfsár í þig?
„Knattspyrnulega séð leggst
það vel í mig en það er fyrirsjá-
anlegt að það verður sama baslið
áfram hvað snertir fjármálin. Við
vorum í 4. sæti í 1. deild sl. sumar
og við erum staðráðnir í því
næsta sumar að horfa á topp
deildarinnar, annað kemur ekki
til greina. Ég vil fá að skjóta því
hér að í lokin varðandi félags-
starfið að knattspyrnudeildin hef-
ur nú ráðið sér framkvæmda-
stjóra, Jónas Hallgrímsson. Við
höfum fengið aðstöðu fyrir hann
að Furuvöllum 13 og þar er opið
virka daga kl. 16-18 og ég vil
hvetja Þórsara til að líta þar inn
og ræða málin.
— Unnu ÍS 3:
„Þetta var leikur kattarins að
músinni, það gekk ailt upp sem
við reyndum og það má segja
að um algjöran bakstur hafi
verið að ræða,“ sagði Hannes
Karlsson þjálfari 1. deildariiðs
Völsungs í blaki kvenna er við
ræddum við hann eftir að
Völsungur hafði sigrað helsta
keppinaut sinn í blakinu um
helgina.
Það var lið ÍS sem var fórnar-
lamb stúlknanna í Völsungi um
helgina, en þessi lið voru tvö ein
taplaus fyrir leikinn. En ÍS átti
aldrei nokkurn möguleika gegn
Úr leik KA og
Völsungs á dögunum.
0 í blakinu og
hinu skemmtilega liði Völsungs.
Var sama hvort um var að ræða
vörn eða sókn og úrslitin gátu
ekki orðið nema á einn veg, stór-
sigur Völsungs 3:0. Hrinurnar
fóru 15:2, 15:4 og 15:6.
„Það var geysileg barátta í lið-
inu hjá okkur,“ sagði Hannes
þjálfari. „Við reiknuðum með ÍS-
liðinu miklu sterkara en það var
og sigurinn var fyrirhafnarlaus.
Þetta var sigur góðrar liðsheildar
en þó voru þær bestar Kristjana
Skúladóttir, Jóhanna Guðjóns-
dóttir og Ásdís Jónsdóttir," sagði
Hannes.
Nú er lokið fyrstu umferðinni
af fjórum í 1. deild kvenna, og
Völsungur er með fullt hús stiga.
Meira en það, því liðið hefur
ætti samstarf á einhverjum svið-
um að vera báðum til hagsbóta
en er slíkt fyrirsjáanlegt í stað
rígsins?
„Ég er sammála Stefáni Gunn-
laugssyni formanni knattspyrnu-
deildar KA sem sagði í við-
tali við Dag að rígur að vissu
marki er ekki óæskilegur, hann
eflir baráttu beggja aðila. Pers-
ónulegt skítkast er hins vegar
ekki æskilegt þótt það sé fyrir
hendi.
Undanfarin ár hefur verið
mjög gott samstarf og samvinna
á milli KA og Þórs í knattspyrn-
unni en eins og staðan er í dag
finnst mér erfitt að sjá að svo geti
orðið á næstunni. Ég hef fengið
nokkrar athyglisverðar „glósur“
frá kollega mínum hinum megin,
bæði í blöðum og eins boðsend-
ar. Þar á meðal er boð um sál-
fræðiþjónustu sem ég reikna að
vísu með að þiggja ef svo fer að
ég stend mig að því að hæla Stef-
áni.“
Engir kærleikar
„Ég neita því hins vegar ekki að
þessi maður hefur ýmsa kosti en
gallarnir skyggja því miður á.
Hann gumaði af því í viðtali við
Dag að hafa bent okkur á nýráð-
inn þjálfara okkar og í sama við-
tali sagði hann að hann myndi
segja af sér hjá KA ef ég léti ein-
stefna ákveðnar á íslandsmeistaratitilinn
Hvert var álit þitt á sínum tíma
þegar hætt var að keppa undir
merki ÍBA í knattspyrnunni og
félögin fóru að tefla fram sínum
liðum, og hefur það álit breyst?
„Ég var hlynntur því á sínum
tíma að þessi ákvörðun var tekin
og er enn á því að þá hafi verið
stigið rétt spor. Hitt er annað mál
að í dag er allt annað og erfiðara
að reka þetta fjárhagslega en þá
var og það kemur hugsanlega
niður á starfinu. Þó held ég að
það sé til bóta að nú starfa menn
mun meira í anda síns félags en
áður var.
Þó væri æskilegt að skoða þetta
mál, t.d. hvað varðar kvenna-
knattspyrnuna. Við höfum,
óformlega að vísu, vakið máls á
því við KA að það mál verði
skoðað hvort æskilegt væri að
sameina kvennaliðin, kvennalið
okkar þarf t.d. ekki færri en 7
ferðir suður næsta sumar og ég
sé ekki fjárhagslegan grundvöll
fyrir þessu til viðbótar við allt
annað. Við viljum ræða þetta og
jafnframt önnur atriði einnig.“
Rígurinn
- Þegar hugsanlegt samstarf ber
á góma er ekki óeðlilegt að
maður spyrji sem svo hvort slíkt
sé unnt á milli KA og Þórs þar
sem rígurinn virðist á stundum
keyra úr hófi fram. Að sjálfsögðu
Hið hefð-
bundna „betl“
„Síðan við tókum við stjórn
cíeildarinnar fyrir um ári
sýnir bókhald okkar að við höf-
um verið með alls 35 mismunandi
fjáröflunarleiðir. Stór hluti þeirra
er þetta hefðbundna „betl“ sem
íþróttahreyfingin er fræg fyrir, en
ekki tapað einni einustu hrinu og
unnið álla leiki sína 3:0. „Ég veit
ekki hvað verður, við bíðum bara
og sjáum en ætlum ekki að gefa
neitt eftir,“ sagði Hannes er við
spurðum hann hvort leiðin að
titlinum væri ekki greið.
Þessi árangur Völsungs þarf
ekki að koma svo mikið á óvart.
Stelpurnar í liðinu urðu flestar
meistarar með Völsungi fyrir
nokkrum árum, þá héldu þær til
Reykjavíkur þar sem þær léku
með Víkingi í tvö ár, og Víkingur
varð íslandsmeistari þau árin.
Nú eru þær komnar heim aftur og
allt bendir til þess að þær ætli að
taka titilinn til Húsavíkur á ný.
„Horfum á
toppinn“
- segir Guðmundur Sigurbjörnsson nýkjörinn
formaður knattspyrnudeildar Þórs
„Reksturinn
kostar 1,9
milljónu
„Rekstur knattspyrnudeildar
Þórs á þessu ári kostar 1,9 millj-
ónir króna. Við fáum upp í húsa-
leigu yfir vetrarmánuðina frá Frá aðalfundi knattspyrnudeildar Þórs um helgina.
Þetta er þeim mun athyglisverð- og því ekki hægt að gefa boltann
ara þegar þess er gætt að æfinga- upp nema inni á vellinum og loft-
salur Völsungs er 10x20 metrar, hæð er einnig mjög lítil.
„Þokkalegir
kaflar“
— nægðu KA ekki gegn ÍS
Um helgina var haldinn aðal-
fundur knattspyrnudeildar
Þórs og fór hann fram í Glerár-
skóla. Þar var kjörin ný stjórn
eins og lög gera ráð fyrir og að
sjálfsögðu voru aðalmál fund-
arins hin sígildu fjárhagsvand-
ræði sem allar íþróttadeildir
hér á Iandi eru í sífelldri glímu
við. Aðalfundir deildanna
marka einnig stefnuna hvað
önnur mál snertir því starf
knattspyrnudeildanna er ekki
einungis bundið við sumar-
tímann þótt þá sé auðvitað há-
vertiðin. Við ræddum við
Guðmund Sigurbjörnsson sem
var um helgina endurkjörinn
formaður knattspyrnudeildar
Þórs og auðvitað voru það
fjármálin sem við byrjuðum að
ræða.
„Það er alveg óhætt að segja að
fjárhagsstaða okkar er afar slæm
um þessar mundir eftir síðasta
starfsár. Við eigum þó útistand-
andi nokkuð af loforðum um
fjárhagslegan stuðning sem von-
andi tekst að innhemta. Þá vant-
ar okkur nýjar leiðir til þess að
brúa bilið. Skuldahalinn hjá okk-
ur í dag er langur og ég sé ekki
annað en að okkur vanti nýjar
fjáröflunarleiðir til þess að ná inn
um 300 þúsund krónum sem er
hluti af honum.“
„Það komu þokkalegir kaflar
í þessum leik en annars var
hann fremur daufur,“ sagði
Sigurður Harðarson, þjálfari
KA í blaki kvenna eftir að KA
hafði tapað 0:3 fyrir ÍS um
helgina.
Sigurður sagði að lið ÍS hefði
verið mun slakara en hann hefði
átt von á vegna þess að liðinu
hefur gengið vel í leikjum sínum
fyrir sunnan. Þær höfðu þó getu
til að vinna KA 3:0 en hrinurnar
einnig höfum við tekið að okkur
sölu og dreifingu á hinu og þessu
fyrir ýmis fyrirtæki. Þegar við
höfum starfað að stærri verkefn-
um eins og t.d. útburði á ýmsum
hlutum og söluherferðum þá höf-
um við mikið leitað til okkar leik-
manna úr hinum ýmsu flokkum.
Það má segja að við séum með
allar klær úti og fjármálin eru sí-
felldur höfuðverkur sem maður
getur sjaldan leyft sér að hætta að
hugsa um, því miður.“
- Finnst þér að bæjarfélagið
ætti að veita ykkur meiri stuðning
en gert er?
„Mér finnst að bæjaryfirvöld
geri alls ekki nógu vel við okkur,
og að mínu mati vantar talsvert
upp á að yfirvöld og reyndar allur
almenningur geri sér grein fyrir
því mikla æskulýðsstarfi sem
íþróttafélögin inna af hendi. Við
höfum t.d. haft mikinn áhuga á
því að bærinn legði til einn starfs-
mann eða greiddi laun hans, og
þessi starfsmaður gæti verið
meira á félagssvæðinu við leið-
beiningastörf hjá yngri börnun-
um. Við fáum að vísu framlag
frá bænum til þess að reka
íþrótta- og ieikjanámskeið en
það framlag er ekki nema hluti af
kostnaðinum við þessi námskeið.
Það vantar meiri skilning á því
hvað við erum að gera fyrir æsk-
una og þetta er ekki bundið við
Akureyri."
bænum. Báðum knattspyrnu-
deildunum voru færðar 100 þús-
und krónur frá bænum í haust
sem er vel metið en yfir höfuð
mætti þessi stuðningur vera mun
meiri og skilningurinn einnig."
- Hvernig gengur að fá menn
til að starfa við rekstur knatt-
spyrnudeildarinnar?
„Það er erfitt, ég hef það á til-
finningunni að menn haldi að ef
þeir rétti okkur litla fingur til
hjálpar þá hellist yfir þá verkefni
og þeir verði hreinlega kaffærðir
og þar spilar örugglega mest inn
í að menn vilja ekki gefa kost á
sér í þetta margumtalaða betli-
starf. Það er eins og menn gefist
hreinlega upp þegar þeir hafa
starfað að þessum málum um ein-
hvern tíma.“
- Látum þetta nægja um fjár-'
málin, og snúum okkur að öðru.
Breyttur leiktími
vegna sjónvarpsins
fóru 15:8, 15:8 og 16:14. KA var
því nærri því að vinna síðustu
hrinuna.
Sigurður sagði að Hrefna
Brynjólfsdóttir hefði átt bestan
leik í liði KA en að öðru leyti
hefði liðið verið mjög jafnt.
Jón Héðinsson skorar í leik gegn UMFS á dögunum.
eflir
bók-
— þegar Þór mætir Fram í körfuboltanum
Tveir leikir voru háðir í 2.
deild í Norðurlandsriðli um
helgina í blakinu, og urðu úr-
slit þeirra „eftir bókinni“ ef
svo má segja.
Á Dalvík lék lið Reynivíkur
gegn b-liði KA og vann Reynivík
örugglega 3:0. Éinstaka hrinur
fóru 15:2, 15:4 og 15:0 þannig að
ekki var um mikla keppni að
ræða.
Þá léku a-lið KA og lið Skauta-
félags Akureyrar og vann KA þar
átakalausan sigur 3:0. Þess má
geta að lið Skautafélagsins er
skipað leikmönnum sem eru 40
ára og eldri svo segja má að
þarna sé á ferðinni „old boys“ lið
í bókstaflegum skilningi. Þetta er
vegna þess að leikmenn sem eru
yngri en 40 ára mega ekki leika í
deildarkeppninni og halda um leið
rétti sínum til að keppa í „öld-
ungamótinu".
Nk. laugardag er ætlunin að
sjónvarpið sýni okkur í beinni
útsendingu leik Ipswich og
Liverpool í 1. deildinni ensku.
Eins og venjan hefur verið til
þessa setjast allir íþróttaáhuga-
menn niður við sjónvarpstækin
þegar þessar beinu útsendingar
eru, og hefur þurft að flytja til
íþróttaviðburði sem hafa átt að
vera á sama tíma.
Það ætla körfuknattleiksmenn
Þórs sér að gera nk. laugardag.
Þá eiga þeir að leika gegn Fram í
íþróttahöllinni á Akureyri og var
leikurinn upphaflega settur á kl.
14. Nú hefur verið ákveðið að
leikurinn hefjist kl. 13, og verður
honum þá lokið um hálftíma
áður en útsending sjónvarpsins
hefst kl. 15.
Framarar hafa enn ekki tapað
leik í 1. deildinni og þeir unnu
Þórsara örugglega fyrir sunnan á
dögunum. Því er óþarfi að leyna
að þá var það hörmulegur fyrri
hálfleikur Þórs sem skóp sigurinn
fyrir Fram öðru fremur, enda
unnu Þórsarar síðari hálfleik
þeirrar viðureignar.
Þá vantaði einnig Jón Héðins-
son máttarstólpa í lið Þórs og var
það mjög bagalegt þar sem Fram-
arar skoruðu mikið eftir fráköst.
Jón verður hins vegar með um
helgina og það getur allt gerst í
Höllinni með góðum stuðningi
áhorfenda.
Tindastólsliðið
kom á óvart
— á íslandsmóti 4. flokks í körkuknattleik
Strákarnir í 4. flokki Tinda-
stóls í körfuknattleik komu
talsvert á óvart um helgina, en
þá var leikinn fyrsti hlutinn í
þeirra riöli í íslandsmótinu og
fór keppnin fram á Akureyri.
Það mættu 5 lið til leiks, Tinda-
stóll, KR, UMFG, Reynir Sand-
gerði og Þór Akureyri og léku
liðin einfalda umferð í íþrótta-
höllinni. Eftir þá leiki er Tinda-
stóll í efsta sæti, en að vísu aðeins
vegna þess að liðið er með betra
stigahlutfall en KR og UMFG.
Tindastóll tapaði aðeins einum
leik, fyrir KR eftir hörku baráttu,
KR tapaði fyrir UMFG og
UMFG tapaði fyrir Tindastól.
Þór tapaði öllum sínum leikjum
KA-menn halda suður og
leika gegn Val og KR
Ekkert var um að vera í deild-
arkeppninni í handknattleik
um helgina, en um næstu helgi
fer boltinn aftur á fulla ferð.
Þá heldur 1. deildarlið KA
suður til Reykjavíkur og leikur
þar tvo leiki. Sá fyrri verður gegn
Val, en daginn eftir verður svo
leikið gegn KR. Tveir erfiðir
leikir framundan hjá KA-mönn-
um sem verma nú botnsæti 1.
deildarinnar.
Ekki tókst okkur í morgun að
nálgast upplýsingar um leiki hjá
Þór um næstu helgi, enda engin
mótabók komin út. Er það til
skammar fyrir HSÍ að svo skuli
vera, en hefur þó verið árviss at-
burður að bókin komi ekki út
fyrr en líða tekur að jólum.
nema fyrir Reyni Sandgerði sem
er á botninum. Úrslit leikjanna
urðu þessi:
Þór - UMFG 40:71
Þór - Reynir 48:32
Þór - Tindastóll 22:49
Tindastóll - KR 30:33
UMFG - KR 48:46
UMFG - Tindastóll 33:64
KR - Reynir 63:23
UMFG - Reynir 75:56
Þór-KR 60:102
Tindastóll - Reynir 80:44
Strákarnir í liði Tindastóls eru
ákaflega hávaxnir og sterkir lík-
amlega. Það sem háir þeim mest
er skortur á meira skipulagi sem
vantar í sóknaraðgerðir liðsins og
varð það þeim að falli í leiknum
gegn KR. En lítum þá á stöðuna
eftir leiki helgarinnar:
Tindastóll
KR
UMFG
Þór
Reynir
223:132
244:161
227:206
170:254
155:266
Völsungsstelpurnar
í hlutverki kattarins!