Dagur - 05.12.1983, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, mánudagur 5 . desember 1983
137. tölublað
23 m.kr. bil sem
verður að brúa
— ef nást á samkomulag milli Slippstöðvarinnar
og Útgerðarfélagsins um togarasmlði
Bílnum
stoiið
tvívegis
nóttina
Flestir bifreiðaeigendur sleppa
við það að bifreið þeirra sé
stolið, en aðrir ekki. En senni-
lega eru þeir ekki margir sem
hafa orðið fyrir þeirri reynslu
að bifreið þeirra hafi verið
stolið tvívegis sömu nóttina.
Það henti þó ungan Akureyr-
ing í síðustu viku. Aðfaranótt
föstudags ætlaði hann að aka
bifreið sinni frá húsi við Laugar-
götu, en greip í tómt. Hóf
maðurinn leit að bifreiðinni
ásamt kunningja sínum og var
einnig ætlunin að fá lögregluna til
liðsinnis. En áður en málið komst
svo langt bárust eigandanum þær
fregnir að bifreiðinni hefði verið
skilað.
Þá kom hins vegar í ljós að
búið var að skemma „kúpling-
una“ þannig að eigandinn taldi
bifreiðina ekki ökufæra. Hélt
hann því heimleiðis á tveimur
jafnfljótum og lagðist til svefns.
Morguninn eftir hugðist hann
síðan sækja bifreiðina og koma
henni á verkstæði. En er hann
kom í Laugargötuna greip hann
í tómt! Tilkynnti hann nú lög-
reglu um stuldinn og var leit
hafin. Fannst bifreiðin skömmu
fyrir hádegi á bifreiðastæði við
Skipagötu og er á verkstæði þeg-
ar þetta er skrifað á föstudegi.
Atvinnuástand hjá frystihúsinu
á Dalvík hefur verið þolanlegt
að undanförnu. Fullri atvinnu
hefur verið haldið uppi en afli
togaranna hefur þó verið
tregur.
- Þetta er sama sagan og á
flestum öðrum stöðum. Afli er
lítill og togararnir, Björgvin og
Björgólfur hafa verið að landa
„Þetta var fyrst og fremst upp-
lýsingafundur fyrir bæjarráð til
að fá fram hin ýmsu sjónarmið
í málinu. Niðurstaðan varð sú,
að bæjarstjórn tilnefndi þrjá
menn til að kafa betur í þetta
mál og þá möguleika sem fyrir
hendi eru,“ sagði Helgi M.
Bergs, bæjarstjóri, að aflokn-
um fundi bæjarráðs með ráða-
þetta 60 til 90 tonnum eftir 10 til
12 daga veiðiferðir, sagði Krist-
ján Ólafsson, kaupfélagsstjóri á
Dalvík er Dagur ræddi við hann.
- Okkur hefur samt sem áður
tekist að halda uppi fullri atvinnu
við frystingu og annað starfsfólk
hefur unnið við mat og pökkun á
saltfiski og skreið. Við losnum
við allar saltfiskbirgðirnar fyrir
áramót en eftir sem áður þá
mönnum Slippstöðvarinnar og
Utgerðarfélagsins á fimmtu-
daginn.
Á fundinum var rætt um leiðir
til að brúa bilið milli Slippstöðv-
arinnar og Útgerðarfélagsins,
þannig að samningar geti tekist
um smíði á nýjum togara. Slipp-
stöðin mun vera tilbúin til að
smíða skipið fyrir um 170 m.kr.,
liggjum við með miklar skreiðar-
birgðir, sagði Kristján.
Að sögn Kristjáns hefur sá afli
sem borist hefur til Dalvíkur ver-
ið sæmilega góður gæðalega séð
en þorskurinn er fremur smár.
Um 80 til 100 manns hafa unnið í
frystihúsinu að undanförnu en
Kristján treysti sér ekki til að
spá um ástandið eftir áramót.
Eftir ætti að marka fiskveiði-
en Útgerðarfélagið er ekki tilbú-
ið til að borga nema um 147
m.kr., sem er það verð sem félag-
ið getur fengið nýtt skip fyrir er-
lendis.
Mismunurinn er því sam-
kvæmt þessu um 23 m.kr. og
Helgi M. Bergs staðfesti, að þessi
tala væri nærri lagi. En er þá ekki
óviðráðanlegt fyrir Akureyrarbæ
einan að brúa þetta bil?
stefnuna en ef svo færi sem horfði
að kvóti yrði settur á hvert skip,
þá væri ljóst að mikill samdrátur
væri fyrirsjáanlegur á næsta ári.
Þá yrði pökkun jafnframt lokið
og því erfiðara að halda uppi
fullri vinnu.
- Við verðum bara að bíða og
sjá framvindu mála, sagði Krist-
ján Ólafsson.
„Menn verða að gera sér grein
fyrir hvernig þessi mismunur er
tilkominn. Hann stafar einfald-
lega af því, að þessar erlendu
skipasmíðastöðvar njóta opin-
berra styrkja. Þannig geta þær
leyft sér undirboð. Þess vegna er
ekki óeðlilegt að ríkisstjórnin sé
fengin til samtarfs við að skoða
þetta mál,“ sagði Helgi M.
Bergs.
Skoraá
bæjarstjóm
að tryggja
, samninga
Utgerðarfélagsins
og Slippstöovar
Málmiðnaöarmenn á Akureyri
hafa þungar áhyggjur af
atvinnuástandinu á Eyjafjarð-
arsvæðinu, eins og glöggt kem-
ur fram í ályktun frá fundi í
Félagi málmiðnaðarmanna á
Akureyri, sem haldinn var í
síðustu viku.
Fundurinn skorar á ríkisstjórn-
ina að standa við það fyrirheit sitt
að tryggja fulla atvinnu í landinu,
og bendir á í því sambandi að
það er í hennar verkahring að
tryggja skipasmíðastöðvunum í
landinu forgang við endurnýjun
og viðhald alls flotans, bæði á
fiskveiði- og vöruflutningaskip-
um.
Fundurinn minnir á, að launa-
menn hafa þurft að þola verulega
kjaraskerðingu á undanförnum
mánuðum. Eigi síðan að bætast
við algjör svipting atvinnutekna,
verður öllum að vera ljóst að til
verulegra. átaka mun koma á
næstunni.
Fundur haldinn í Félagi málm-
iðnaðarmanna Akureyri mánu-
daginn 28/11 1983 skorar á bæjar-
stjórn Akureyrar að tryggja nú
þegar að samningur um smíði
togara fyrir Útgerðarfélag Akur-
eyringa verði gerður við Slipp-
stöðina hf.
Kári Ellson kraftlyftingamaður úr KA bætti um helgina tveim íslandsmetum í íslandsmctasafn sitt. Kári lyfti 165 kg
og 167.5 kg í bekkpressu í 75 kg flokki og hefur nú sett 148 Islandsmet á ferli sínum sem lyftingamaður. Sjá nánar
fréttir af Grétarsmótinu i kraftlyftingum í opnu. Mynd: KGA
Frystihúsið á Dalvík:
Þolanlegt atvinnuástand