Dagur - 07.12.1983, Blaðsíða 9

Dagur - 07.12.1983, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - 7. desember 1983 7. desember 1983 - DAGUR - 9 Við lögðum leið okkar í Slippstöðina á Akureyri sl. mánudagsmorgun. fengu 60 starfsmenn stöðvarinnar uppsagnarbréf og eiga uppsagnirnar að taka gildi þann 1. mars nk. fyrirtækinu og eins við nokkra Við ræddum þar við Gunnar Ragnars forstjóra um útlit og horfur hjá starfsmönnum sem urðu fyrir því að fá uppsagnarbréf. Það er slíku og vonandi fer svo að hægt verði að finna lausn á vanda s JÞað verður hins vegar að koma í Ijós hvort leiðir finnast en viðtölin við „Ekki um annað að ræða en að búast við hinu versta en vona hið besta“ t — segir Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar „Starfsaldur gjörsamlega virtur að vettugi Anv finni'é nlrlra nntt ctnAlA . • . » r / - Mér finnst ekki rétt staðið að þessum uppsögnum. Starfs- aldur er virtur gjörsamlega að vettugi og geðþóttaákvaröanir virðast ráða ferðinni, sagði Ásmundur Jónsson, vélvirki í samtali við Dag, en Ásmundur á að baki átta ára starfsferil í Slippstöðinni. - Hvaða sjónarmið ráða ferð- inni varðandi uppsagnirnar að þínu mati? - Pað er ekki ljóst en því hefur heyrst fleygt að mætingar vegi þar þungt. Það má vel vera rétt en það á a.m.k. ekki við um mig. Ég tel mig hafa mætt vel til vinnu og unnið vel, en hins vegar er því ekki að leyna að ég hef beðist undan því að vinna eftirvinnu. Það hefur kannski mælst illa fyrir hjá verkstjórunum. Nógu illa til þess að þeir hafa viljað losna við mig. - Ertu hræddur um að upp- sagnirnar komi til framkvæmda að þrem mánuðum liðnum? - Já, dauðhræddur. - Farinn að leita að annarri vinnu? - Ekki enn en ég verð að gera það fljótlega. Það er annars ekki um auðugan garð að gresja í þeim efnum og ég veit til þess að menn ætla sér að leita eftir vinnu annars staðar á landinu. Einn fé- lagi okkar er búinn að leita fyrir sér hér í bænum en hann kom alls staðar að lokuðum dyrum. Á meðan svo er þá er ekki óeðlilegt að menn leiti út fyrir bæjarfélag- ið. Ásmundur Jónsson. „Mér finnst það athyglisvert að þegar smáfækkun á sér stað á starfsliði hér þá ætlar allt að ganga af göflunum en allt í kringum okkur hefur orð- ið gífurleg fækkun á undan- förnu ári,“ sagði Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðv- arinnar á Akureyri þegar við settumst niður á skrifstofu hans til þess að ræða það mál sem efst hefur verið á baugi í bænum að undanförnu, upp- sagnir 60 starfsmanna stöðvar- innar. „Það eru ekki frekari uppsagn- ir á döfinni þótt ég hafi látið hafa það eftir mér að uppsagnir þess- ara 60 starfsmanna séu lágmarks- aðgerðir, ekki að svo stöddu. Við vorum með hér 318 manns í sept- ember þegar flest var og sú tala er komin núna niður í 270. Það er að vísu að hluta til sumarfólk sem farið hefur á þessum tíma. Þessar uppsagnir núna vekja auðvitað meiri athygli vegna þess að þær koma allar á einu bretti, en ég tel að Slippstöðin hafi staðið sig vel í því að halda út í því ástandi sem verið hefur. Ég býst við því að það þurfi um 200 manns til þess að reka þetta fyrirtæki á núll- „Annar- leg sjónar- mið ráða“ - segir Johannes Kárason skipasmiður - Ég veit ekki af hverju mér var sagt upp. Ég hef unnið hér í bráðum tíu ár með sjö mán- aða hléi og hélt satt að segja að ég væri í hópi þeirra sem síðast yrði sagt upp ef til uppsagna kæmi, sagði Jóhannes Kára- son, skipasmiður er Dagur ræddi við hann og félaga hans. Það var greinilegt að mikil ólga var meðal skipasmiðanna en af sjö smiðum sem sagt var upp störfum voru fimm skipasmiðir. Jóhannes Kárason. - Er þetta viðurkenning á því að nýsmíðar séu að líða undir lok hjá fyrirtækinu? - Kannski en við höfum hing- að til unnið mikið við viðgerðir á trébátum. Staðreyndin virðist einfaldlega sú að sumir starfs- manna hér virðast betur verndað- ir en aðrir. Margir þeirra sem skemmstan starfsaldurinn hafa, fengi ekki uppsagnarbréf og svo virðist sem mjög annarleg sjón- armið ráði ferðinni. - Hvað með atvinnumögu- leika ykkar hér í bænum? - Það er ekkert hér að hafa fyrir trésmiði. Við fáum ekki vinnu hér í bænum ef uppsagn- irnar koma til framkvæmda, sagði Jóhannes Kárason. „Þetta leggst illa í mig“ - segir Ólafur Jensson rafvirki „Ég er auðvitað óánægður með það að hafa fengið upp- sagnarbréf,“ sagði Ólafur Jensson rafvirki sem starfað hefur í Slippstöðinni frá árinu 1974. Ólafur hóf þá störf í stöðinni sem sumarmaður en 1977 fór hann að læra rafvirkjun og hefur síðan lært og unnið þar að námi Ioknu ef frá er talið eitt ár sem hann vann annars staðar. „Þetta leggst illa í mig en ætli það sé nokkuð við þessu að segja,“ sagði Ólafur. „Mér finnst hins vegar að það hafi ekki verið staðið nógu vel að þessum upp- Ólafur Jensson. sögnum. Það virðist ekki hafa verið farið eftir neinu ákveðnu kerfi og starfsaldur virðist t.d. ekkert hafa haft að segja.“ - Hvað tekur við hjá þér ef þessar uppsagnir verða að veru- leika? „Ég veit það ekki, en ég hef ekki trú á því að það sé auðvelt ,að fá vinnu í mínu fagi hér í bænum. Ég veit heldur ekki hvort það verður gott að vera áfram hjá Slippstöðinni þótt upp- sagnirnar komi ekki til fram- kvæmda núna, maður virðist þá vera á svörtum lista ef til upp- sagna kæmi síðar. Annars bíð ég fram yfir áramót með að taka einhverjar ákvarðanir í þessu efni.“ „Engir atvinnumöguleikar hér“ — segir Freyr Aðalsteinsson járnsmiður Freyr Aðalsteinsson. - Það kom mér talsvert á óvart að ég skyldi vera í hópi þeirra sem sagt var upp. Ég lærði hér á sínum tíma og vann í Slippstöðinni í fímm ár, sagði Freyr Aðalsteinsson, járn- srniður. Að sögn Freys þá hefur hann nú unnið í Slippstöðinni á þriðja mánuð, samtals hátt f sex ár og hann taldi sig því hafa það langan starfsaldur að atvinnan hefði ekki átt að vera í hættu, að sinni a.m.k. — Ég er auðvitað óánægður og svo er um fleiri. Ekki minnkar óánægjan heldur þegar maður sér allt í kringum sig menn sem eru nýbyrjaðir og hafa aldrei unnið hér áður, sem halda vinnunni. - Ertu hræddur um að upp- sagnirnar komi til framkvæmda? - Ég veit ekki. Auðvitað von- ar maður allt hið besta í lengstu lög en þetta virðist allt vera svo vonlaust. - Hefurðu leitað þér að ann- arri vinnu? - Ekki enn sem komið er en ég hefði ekki efni á að sleppa vinnu ef mér byðist hún. Jafnvel þó það væri annars staðar á land- inu. - Er erfitt fyrir járnsmiði að fá vinnu um þessar mundir? - Það eru a.m.k. engir mögu- leikar til þess hér í bænum, ef Slippstöðin bregst. Nú og ef eng- in vinna fæst hér þá segir það sig sjálft að maður verður að leita fyrir sér annars staðar, sagði Freyr Aðalsteinsson. punkti en eftir að þessum 60 manns hefur verið sagt upp verða hér 210-220 manns.“ - Þú hefur sagt að þið forráða- menn stöðvarinnar séuð með all- ar klær úti til þess að þessar upp- sagnir sem koma til framkvæmda 1. mars verði ekki að veruleika. Hvað þarf að gerast til að svo verði? „Ég hef margoft lýst því yfir að svona stórt fyrirtæki á okkar mælikvarða er útilokað að reka skakkafallalaust nema ákveðin framleiðsla sé kjölfestan í rekstr- inum og framleiðsla hefur verið nýsmíði. Nýsmíðar hjá okkur eru nú á lokastigi og ég sé ekki að við höldum óbreyttri stöðu nema eitthvert framhald verði þar á. Nýsmíðar hafa verið sáralitlar að undanförnu og verða ekki nema rétt um 20% af starfseminni á þessu ári. Þetta hefur getað gengið vegna þess að það hefur verið mjög mikið um viðgerðir. Nú er talað um það að hætta eigi nýsmíðum og snúa sér alveg að viðgerðum vegna þess að sá markaður sé svo stór og víst er hann það. En þá tel ég að það sé útilokað annað en að skapa einhverja festu varð- andi fjármögnun á þessum við- gerðum en í dag er ástandið þannig að það er nánast ekki hægt að fjármagna þær. Á undanförnum misserum hafa útistandandi skuldir okkar vaxið úr hófi fram vegna þess ein- faldlega að útgerðaraðilar hafa verið svo hart keyrðir að þeir hafa ekki getað gengið frá sínum málum. Víxlar hafa verið algengt greiðsluform á þessum viðskipt- um og það hefur viljað brenna við að þeir hafa ekki verið greiddir á réttum gjalddögum. Þetta ástand þolum við ekki til lengdar. Það má líka benda á það að það eru ekki mörg stór verkefni á sviði viðgerða eða endurbóta framundan eins og málið lítur út í dag. Við erum þó með eitt slíkt hér við bryggjuna. Það er togari en það er engin fjárhagsleg fyrirgreiðsla fyrir hendi til þess að okkur sé kleift að ráð- ast í það verkefni. Það má því segja að það vanti allan gruridvöll undir þetta. Það er einfaidlega sú staðreynd sem við stöndum frammi fyrir og við höfum í lengstu lög reynt að komast hjá því að fækka starfsmönnum hér. En nú stöndum við frammi fyrir þessum staðreyndum og þá er ekki um annað að ræða en búast „Lítið um aðra vinnu hér“ við hinu versta en vona það besta og það er það sem við gerum. Við vonum að það komi eitt- hvað það fram sem verður til þess að það verði hægt að halda hér uppi skipasmíðastöð af þessari stærðargráðu. Það væri auðvitað hörmulegt til þess að vita ef við bærum ekki gæfu til þess að „Það er ekki komið neitt ákveðið út úr því enn sem komið er enda varla við því að búast. Hins vegar erum við með nokkur mál í gangi og það gæti komið eitthvað út úr því á næstunni.“ - Nú hefur það heyrst að sumir starfsmenn sem fengu upp- Eitthvað varð hins vegar að gera, við neyddumst til þess að segja upp 60 starfsmönnum og þetta varð útkoman. Hins vegar óska ég þess að við þurfum ekki að missa frá okkur þessa góðu starfsmenn." - Átt þú von á því að eitthvað gerist svo þessar uppsagnir verði ekki að veruleika? Gunnar Ragnars á skrifstofu sinni. samning sinn og einnig Iðn- skólann en eiga eftir að fara í próf. „Ég veit ekki hvað maður gerir, það virðist ekki mikið um möguleika á að fá vinnu við raf- virkjun hér í bænum. Ég ætla suður um jólin og þá reyni ég að athuga hvernig landið liggur og tek svo ákvörðun um framhaldið að því loknu. Ef atvinnuástandið batnar ekki hérna þá liggur sjálf- sagt ekkert annað fyrir en að hugsa sér til hreyfings. Annars hafði ég ekki hugsað mér að fara héðan í bráð.“ Hreinsitækí í allar stærðir fiskabiira Spillers dýrindis dósamatur - fyrir hunda og ketti Go-Cat þurrfóður f. ketti 5 bragðteg Katlit kattarsandurinn sem virkar. 3kg kr. 85,- pk. @ kr. 28,33 pr. kg i 6kg kr.l65,-pk. @ kr. 27,50 pr.kg 12 kg kr. 295,- pk. @ kr. 24,50 pr. kg 25 kg kr. 550,- pk. @ kr. 22,00 pr, kg Gerið verð- og gæðusamanburð. avara Verslun Sigurða (Leikfangamarkaðurip llafnarstræti 96 Akuri Guðjón Guðmundsson. Katlit Katlit - segir Guðjón Guðmundsson rafvirkjanemi „Ég er í sjálfu sér ekkert hissa á því að hafa fengið uppsagn- arbréf, ég hef ekki starfað hér nema í stuttan tíma,“ sagði Guðjón Guðmundsson sem er að ljúka námi við rafvirkjun og starfar hjá Slippstöðinni. Guð- jón sagðist vera búinn með - Hefur þú trú á því að þessar uppsagnir komi til framkvæmda 1. mars? „Ég veit ekki hvað ég á að segja, ætli maður verði ekki að búa sig undir það,“ sagði Guðjón. standa þannig að okkar málum að slíkt sé framkvæmanlegt. Ég vil benda á það að það er búið að byggja hér upp mikla reynslu og þekkingu og það er fokið í öll skjól þegar gefast á upp.“ - Þið hafið unnið talsvert í því að leita verkefna erlendis, hefur það borið einhvern árang- ur? sagnarbréf séu mjög óánægðir vegna þess að þeir telja að ekki hafi verið farið eftir starfsaldri. Hvað lá til grundvallar þegar ákveðið var hverjum væri sagt upp og hverjum ekki? „Þetta var erfið ákvörðun og það er ekkert gamanmál að þurfa að segja upp góðum starfskröft- um eins og við þurftum að gera. „Ég get ekki sagt að ég eigi beinlínis von á því en ég segi bara að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að svo þurfi ekki að fara. Hitt er staðreynd að þegar maður hefur komist yfir eina hindrun í þessum rekstri hafa bara tvær nýjar blas- að við í staðinn," sagði Gunnar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.