Dagur - 02.01.1984, Side 1
67. árgangur
Akureyri, mánudagur 2. janúar 1984
1. tölublað
Rólep
áramót
„Það er ekkert hér í bókunum
hjá okkur sem telja má frétt-
næmt og það er óhætt að segja
að áramótin hér á Akureyri
hafi ekki verið neitt frábrugðin
venjulegri helgi fyrir lögregl-
una,“ sagði varðstjóri hjá lög-
reglunni á Akureyri í samtali
við Dag i morgun.
Hann sagði að lögreglan hefði
þurft að hafa afskipti af þremur
mönnum sem grunaðir voru um
ölvun við akstur, og aðstoða fólk
við ýmislegt en ekkert hefði verið
um meiri háttar verkefni. gk
370 biðu
eftir flugi
Ekki reyndist unnt að hefja
flug frá Akureyri á réttum tíma
í morgun vegna þess að flug-
brautin var á kafí í snjó, en út-
lit fyrir að hægt yrði að fljúga
um hádegið.
Þá biðu um 350 manns eftir
flugi til Reykjavíkur og var
áformað að Flugleiðir myndu
fljúga 7 ferðir til þess að koma
þessu fólki suður í dag. Hjá Flug-
félagi Norðurlands biðu um 20
manns eftir flugi til hinna ýmsu
staða á Norðurlandi. gk
Dorriét
Kavanna
latin
Dorriét Kavanna, óperusöng-
kona, eiginkona Kristjáns Jó-
hannssonar, óperusöngvara,
Iést á sjúkrahúsi í Bonn í
Þýskalandi á gamlársdag.
Dorriét Kavanna var fædd í
Barcelona á Spáni og þar lifði hún
barnsárin. Móðir hennar var
spönsk, en faðir hennar var amer-
ískur. Foreldrar Dorriét slitu sam-
vistum, en þau eru nú bæði látin.
Frá Spáni flutti Dorriét til Banda-
ríkjanna með móður sinni og þaðan
til Italíu. Hún gat sér gott orð sem
leikkona, en sneri sér síðar að söng-
listinni og vann stóra sigra á því
sviði, enda röddin sérstök og hríf-
andi. Dorriét var sterkur persónu-
leiki og mikil, fjölmenntuð lista-
kona. Dagur sendir Kristjáni og
öðrum ástvinum Dorriét innilegar
samúðarkveðjur. Drottinn gef þú
dánum ró, hinum líkn sem lifa. gs
Nú er svartasta skammdegið liðið og sól fer hækkandi á lofti. Skuggarnir verða fyrst í stað langir en styttast síðan
smátt og smátt. Að margra mati er sá árstími sem nú fer í hönd sá besti og fegursti. Með ósk um að svo verði að
þessu sinni óskar Dagur lesendum sínum gleðilegs nýs árs. Mynd: hsv
„Fullnustu frestað“
- Ég vil taka það skýrt fram að
við erum ekki með þessari
undirskriftasöfnun að taka af-
stöðu með öðrum aðilanum í
þessu máli. Okkur er vel Ijóst
að sjaldan veldur einn er tveir
deila og við erum heldur ekki
að saka Hæstarétt um að hafa
brotið lög með þessum dómi.
Það hefur hins vegar verið
dæmt eftir lögum sem okkur
fínnst ekki eiga við í dag og
okkar ósk er sú að lögin verði
færð til nútímalegra horfs og
að fullnustu Hæstaréttardóms-
ins verði frestað þar til Mann-
réttindadómstóllinn hefur
fjallað um málið.
Þetta sagði Kolbeinn Sigur-
björnsson í samtali við Dag en
Kolbeinn er í forsvari þeirra sem
standa að baki undirskriftasöfn-
un þeirri sem stofnað hefur verið
til vegna hins svokallaða „út-
burðarmáls". Fór undirskrifta-
söfnunin af stað 28. desember sl.
en fyrirhugað er að afhenda
dómsmálaráðherra listann fljót-
lega. ,
I áskoruninni til ráðherra
eru ofangreind atriði áréttuð og
jafnframt skorað á ráðherra að
beita sér fyrir endurskoðun lag-
anna til þess að framvegis megi
forðast „réttarslys á borð við
þetta“, eins og segir í áskorun-
inni.
- Það er einkum tvennt sem
við höfum við þennan dóm að at-
huga.
Annars vegar er verið að
beita lagaklásúlum gegn fólki
sem hingað til hafa eingöngu ver-
ið notaðar um eignir og eigur
fólks og hins vegar þá finnst okk-
ur ótækt að yfirvöld dæmi í eigin
máli, ef svo má að orði komast.
Það er ljóst að við verðum að
bregðast fljótt við og afhenda
listana fljótlega eftir áramótin ef
okkur á að takast að fá fullnustu
dómsins frestað, sagði Kolbeinn
Sigurbiörnsson. Sjá einnig um-
mæli Olafs Rafns Jónssonar bls.
3. ese
Akureyri:
Viður-
kenndu
neyslu
og
sölu á
hassi
Rétt fýrir jólin var ungur
maður handtekinn á Akureyri,
grunaður um neyslu og dreif-
ingu á hassi. Var maðurinn
handtekinn þar sem lögregl-
unni höfðu borist ábendingar
um að hann væri við þetta
riðinn.
Við yfirheyrslu viðurkenndi
maðurinn sök sína og í framhaldi
af því voru 8 Akureyringar til
viðbótar teknir til yfirheyrslu.
Viðukenndu þeir allir að hafa
notað hass og einnig tengdust
tveir Reykvíkingar þessu máli.
Daníel Snorrason rannsóknar-
lögreglumaður á Akureyri sagði
í samtali við Dag að full ástæða
væri til þess að vera vel á verði í
þessum málum. „Ég held að það
sé að verða miklu meira um
neyslu í þessum efnum hér en
maður hefur talið,“ sagði hann.
Annars sagði Daníel að mjög
rólegt hefði verið hjá lögreglunni
á Akureyri um jólin. „Þetta voru
friðarjól og mjög rólegt hjá okk-
ur lögreglumönnum,“ sagði
Daníel. gk
Akureyri:
Fyrsta barn ársins 1984
-Fæðingin gekk
fljótl og vel
Fyrsta bam ársins á Akureyri
kom að þessu sinni í heiminn
klukkan 12.22 á nýársdag. Var
það stúlka sem vó við fæð-
ingu 2970 gr, 50 cm löng.
- Þetta gekk ákaflega vel. Ég
var komin á Fæðingardeildinar um
klukkan 11 um morguninn og
barnið fæddist svo kl. 12.22,
sagði móðirin Agnes Eyfjörð er
Dagur ræddi við hana í morgun.
Agnes sagði að hún hefði alls
ekki átt von á því að eiga fyrsta
barn ársins. „Samkvæmt áætlun"
hefði barnið átt að fæðast um
næstu helgi.
Agnes er gift Elíasi Óskars-
syni, pípulagningamanni á Akur-
eyri og eiga þau einn son, Rúnar
Þór sem er að verða 10 ára.
ese Agnes með dótturina - fyrsta bam ársins 1984 á Akureyri.
mynd: kga