Dagur - 04.01.1984, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
67. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 4. janúar 1984
2. tölublað
Ofærð á Norðurlandi!
Versta veður gekk yfir allt
norðanvert landið í fyrrinótt
og í gærmorgun. Vindhæð var
allmikil og mikil snjókoma á
flestum stöðum norðanlands.
Voru þjóðvegir ófærir af þess-
um sökum en stórum bflum
tókst þó að brjótast frá Sauð-
árkróki til Akureyrar. Kol-
ófært var til Siglufjarðar og Ól-
afsfjarðar og grunur Ieikur á
að mörg snjóflóð hafi fallið í
Ólafsfjarðarmúla. Um það var
þó ekki vitað með neinni vissu
vegna ófærðarinnar.
Löggæslumenn á svæðinu frá
Blönduósi í vestri, austur til
Húsavíkur voru sammála um að
þetta sé versta veður sem komið
hefur það sem af er þessum vetri.
Sem betur fer olli veðrið og
ófærðin engum teljandi erfiðleik-
um m.a. vegna þess að lítið var
um sjúkraflutninga nema innan-
bæjar á hinum ýmsu stöðum.
- Það er skafbylur hérna núna
og ákaflega þungfært innanbæj-
ar, sagði lögreglumaður á
Blönduósi í samtali við Dag.
hann sagði þó í ráði að ryðja flug-
brautina en þjóðbrautin væri
gjörsamlega ófær.
Löggæslumenn á Sauðárkróki
tóku í sama streng. Leiðinda-
veður var í bænum og illfært
nema stórum bílum.
Á Siglufirði var vitað um eitt
snjóflóð á Strandavegi en eins og
í Olafsfirði var ófærðin það mikil
að enginn hafði komist til að
kanna færðina að nokkru gagni.
Á Húsavík gekk veðrið niður
um tíuleytið í gærmorgun en er
haft var samband við lögregluna
um miðjan dag í gær var eins og
að vind væri að herða á nýjan leik
og þá var komin ofanhríð á
Húsavík.
Valdimar Steingrímsson, vega-
eftirlitsmaður í Ólafsfirði sagði
að ástandið þar væri ekki gott.
- Það er vafalaust nóg af
snjóflóðum í Múlanum. Það var
sæmileg færð í kringum áramótin
en síðasti bíll sem ég veit um að
hafi komið til bæjarins, var bíll
sem kom frá Húsavík um kl. 14
á nýársdag. Um kl. 17 var allt
orðið kolófært, sagði Valdimar.
- Það er hugsanlegt að við
reynum að flýta fyrir okkur og að
við reynum að moka eitthvað út
frá Akureyri en mokstur hefst
ekki af fullum krafti fyrr en á
miðvikudag, þ.e.a.s. ef veður
leyfir, sagði Sveinn Brynjólfsson,
vegaeftirlitsmaður á Akureyri.
Sveinn sagði þá fyrirhugað að
moka suðurleiðina og eins út til
Dalvíkur.
Hjá Veðurstofunni fengum við
þær upplýsingar að í nótt væri
spáð breytilegri átt og bjartviðri.
Sunnan eða suðvestanátt í dag en
á morgun er hætt við að vindur
snúist aftur til norðlægrar áttar
með éljagangi eða snjókomu. ese
Allt fast. Akureyringar áttu margir í erfiðleikum með bfla sína í gær. Út um allan bæ voru bflar þvers og kruss á göt-
um - pikkfastir í snjónum. Mót Oddeyrargötu og Brekkugötu voru vinsæll staður til að festa stálfákinn, þar var þessi
mynd tekin. Mynd: kga.
ÁTVR á Akureyri:
Áfengi fyrir
1,4 milljónir
- daginn fyrir gamlársdag
Áfengi seldist fyrir 1.4 milljón-
ir króna í áfengisversluninni á
Akureyri sl. föstudag. Þetta er
um 200 þúsund krónum meira
en sambærilegan dag 1982,
þannig að salan virðist að
magni til hafa verið heldur
minni að þessu sinni.
- Það var mjög mikið að gera
þennan síðasta söludag fyrir ára-
mót, sagði Ólafur Benediktsson,
útibússtjóri ÁTVR á Akureyri er
blaðamaður Dags ræddi við
hann.
Ólafur sagði að ein skýringin á
þessum mikla erli væri sú að
menn keyptu nú mikið meira af
léttvínum en áður og erillinn væri
því meiri en krónutölusalan gæfi
til kynna.
- Þetta þykir annars vafalaust
ágætis sala, sagði Ólafur um met-
daginn 30. desember, en þess
má geta að sá dagur sem kom
næst í röðinni var föstudagurinn
29. júlí en sá dagur markaði upp-
haf verslunarmannahelgarinnar
1983. ese
„Taugakerfið að komast í lag“
- segir Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri, um efnahagsástandið
„Mér finnst síðasta ár hafa
endað betur en ég átti von á,
velta í þjóðfélaginu varð meiri
en búist hafði verið við og fjár-
skil betri en reiknað hafði ver-
ið með. Ég býst við því að op-
inberir aðilar og eins stærri
fyrirtæki hafi staðið betur
heldur en menn bjuggust við
fyrir nokkrum vikum. Efna-
hagsaðgerðirnar eru farnar að
hafa þau áhrif að það virðist
vera meiri ábyrgni af hálfu
einstaklinga og fyrirtækja.
Manni virðist efnahags-
lífið núna vera að komast í
vissan endurbata eins og
taugasjúklingur sem hefur
fengið sterka meðferð hjá hæf-
um læknum. Efnahagslífið hér
var orðið sjúkt á taugum í
þessari óðaverðbólgu sem hér
ríkti og nú er eins og tauga-
kerfið sé loksins að komast í
lag,“ sagði Valur Arnþórsson,
kaupfélagsstjóri, þegar hann
var inntur álits á nýbyrjuðu ári
og því sem á undan er gengið.
„Þetta er ákaflega þýðingar-
mikið fyrir áframhaldandi þróun
og að þessu leyti er ég bjartsýnn
fyrir þetta nýbyrjaða ár. Mér
finnst eins og það sé búið að
skapa vissan siðferðisgrundvöll
með þjóðinni svo hægt verði að
hefja endurreisnarstarf. Hitt er
annað mál að þróunin fer ákaf-
lega mikið eftir því hvernig
tekjustraumarnir verða inn í
þjóðfélagið og þeir koma á næsta
ári til með að ráðast fyrst og
fremst af aflabrögðum. Glæðist
afli aftur og tekjustraumar aukast
getum við verið hóflega bjartsýn.
Ég tel ekki ástæðu til að óttast að
erlendir markaðir breytist mikið
okkur í óhag á næsta ári.
Það sem síðan að öðru leyti
ræður miklu um þróun efnahags-
málanna er það, að íslendingar
gæti þess að eyða ekki umfram
tekjur. Þar ráða mestu kjara-
samningarnir sem koma til með
að verða gerðir á árinu. Þar þarf
að halda á málum með mikilli
gætni og hófsemi um leið og
reynt verður að rétta, að svo
miklu leyti sem hægt er, hag
hinna verst settu í þjóðfélaginu.
Atvinnuástand fer ákaflega
mikið eftir því hvernig aflabrögð
verða og verði þau léleg er ákaf-
lega lítið sem hægt er gera til að
koma í veg fyrir tímabundið
atvinnuleysi víðs vegar um
landið. Ef þau hins vegar batna
eru talsverðar vonir til þess að
atvinnuleysi- verði hverfandi. Ég
tel að ekki sé nein ástæða til að
vera svartsýnni fyrir hönd þessa
svæðis en annarra landshluta.
Hins vegar er mikilvægt fyrir sið-
ferðisþrekið hér að menn fari að
sjá fram á stærri uppbyggingu,“
sagði Valur Arnþórsson að
lokum. hsv