Dagur - 04.01.1984, Blaðsíða 3
4. janúar 1984 - DAGUR - 3
Rækjuvinnsla á
Árskógsströnd
— Stofnun hlutafélags í undirbúningi og
jákvæðar undirtektir Sjávarútvegsráðuneytisins
„Við höfum fengið mjög já-
kvæðar undirtektir hjá ráðu-
neytinu og nú er í undirbúningi
stofnun hlutafélags,“ sagði
Sveinn Jónsson í Kálfsskinni,
en hann hefur ásamt nokkrum
útgerðarmönnum á Árskógs-
strönd og Hauganesi ásamt
fleiri aðilum sótt um leyfi til að
setja á fót rækjuvinnslu á Ár-
skógsströnd.
Sveinn sagði að menn stæðu
nú frammi fyrir samdrætti í hefð-
bundnum veiðum og því væri
reynt að leita á önnur mið.
Nokkrir bátar, af stærðinni 30-70
tonn, hafa stundað rækjuveiðar
með viðunandi árangri, þegar
gæftir hafa verið til þessara
veiða, en margir bátanna hafa
reynst heldur litlir. Sveinn sagði
að nóg virtist vera af rækju við
Norðausturlandið, bæði á djúp-
slóð og grunnslóð. Vonir stæðu
til að hægt væri að standa betur
að þessu en hingað til ef hægt
væri að vinna rækjuna heima.
Gott verð fengist fyrir lausfrysta
rækju, en forsendan fyrir því að
hægt væri að verka hana með
þeim hætti væri sú að frysta mætti
hana tiltölulega ferska.
„Við gerum ráð fyrir að stofna
hlutafélag með þátttöku almenn-
ings, nokkurra útgerðarmanna,
Kaupfélags Eyfirðinga og e.t.v.
fleiri á næstu dögum og munum
síðan hefjast handa á fullu við
undirbúning, m.a. að panta
vélar. Gert er ráð fyrir að tvær
vélasamstæður verði í þessari
rækjuvinnslu, 14-18 manns geti
unnið við framleiðsluna til að
byrja með og að kostnaðurinn
við að koma fyrirtækinu á fót
verði um eða yfir 10 milljónir
króna. Ef til vill gæti þetta fyrir-
tæki haslað sér völl á fleiri
sviðum, t.d. við veiðar á kúskel,“
sagði Sveinn að lokum. hs
Háhitasvæðið í Oxarfirði
nýtt til fiskiræktar?
„Þrjú sveitarfélög á þessu
svæði, Öxarfjarðarhreppur,
Kelduneshreppur og Prest-
hólahreppur (Kópasker) hafa
nú náð samkomulagi við land-
eigendur um afnot af orkunni
sem talin er vera á þessu
svæði, og helst hefur verið rætt
um að nýta hana til stórfellds
fiskeldis,“ sagði Bjöm Bene-
diktsson oddviti í Sandfells-
haga í Öxarfirði, en áður-
greindir hreppar hafa nú feng-
ið framlag á fjárlögum upp á
1,2 milljónir króna til að hefja
undirbúningsrannsóknir á há-
hitasvæðinu sem er undir
söndunum frá aðalkvísl Jök-
ulsár, framhjá Ærlækjarseli og
út í sjó.
„Orkustofnun hefur gert
nokkrar athuganir á þessu svæði
og þetta er talið fjórða mesta há-
hitasvæðið á landinu. Svæðið er
undir sandi og setlögum og ekki
hefur áður verið nýtt heitt vatn
við slík skilyrði, þannig að ekki
er vitað hvort einhver sérstök
vandkvæði yrðu á því að bora
eftir vatninu. En talið er að 200
gráðu heitt vatn sé að finna á 300
metra dýpi, þar sem grynnst er á
það.
Við stefnum hiklaust á að
láta kanna svæðið til hlítar og
virkja þessa miklu orku og höfum
helst haft í huga að ala lax og
slátra í stórum stíl. Þetta gæti t.d.
tengst laxaseiðaeldi á jörðinni
Taf ir á vinnu við
Verkalýðshúsið
„Það átti að ljúka uppsteypu á
húsinu fyrir jól, en það hefur
ekki tekist af ýmsum ástæðum.
Það hefur orðið um 11 vikna
seinkun á verkinu miðað við
upphaflega áætlun, sem að
vísu var búið að endurskoða.
Nú vantar hins vegar ekki
nema herslumuninn að hægt
verði að Ijúka steypuvinnu,“
sagði Jón Helgason, formaður
Einingar, um byggingu húss
verkalýðsfélaganna við Skipa-
götu á Akureyri.
„Veðráttan hefur valdið töfum
undanfarið, en auk þess hefur
okkur fundist að fleiri menn
hefði mátt setja í verkið. Það
ræðst að sjálfsögðu mjög af veðr-
áttunni á næstunni hvernig þetta
gengur. Eftir er að steypa hluta
af plötu fjórðu hæðarinnar og
veggi á 5. hæð, sem verður að öðru
leyti mest tréverk. Þá á eftir að
setja allt gler í bygginguna. Við
gripum hins vegar tækifærið með-
an hlýjast var og létum einangra
útveggi á þremur hæðum, þannig
að það flýtir fyrir.
Hugmyndir voru um að bjóða
næstu verkþætti út alla saman, en
úr því þessi seinkun hefur orðið
munum við líklega bjóða þá út
sitt í hverju lagi, þ.e. múrverk,
miðstöðvarlögn og raflögn,"
sagði Jón Helgason.
Verktaki við uppsteypu er
Smárinn h.f.
Reiknað hefur verið með að
hægt verði að flytja inn í a.m.k.
hluta byggarinnar fyrir eða
um næstu áramót. hsv
Árdal í Kelduhverfi, en þar eru
bergvatnsvolgrur sem gefa tilefni
til að ætla að séu kjörnar til að
ala upp laxaseiði í. Hlutafélag á
þessa jörð og samstarf við þessa
aðila er vel hugsanlegt.
Þetta er sauðfjárræktarsvæði
og samdráttur í greininni hefur
orðið mjög mikill. Við verðum
því að huga að öðrum atvinnu-
rekstri og hér eru taldir geysi-
miklir möguleikar á fiskirækt
vegna hitans sem hér er,“ sagði
Björn Benediktsson að lokum.
Sem kunnugt er hefur mikil
fiskirækt verið sett á laggirnar í
Lóni í Kelduhverfi, ekki ýkja
langt frá þeim stað þar sem talað
er um að nýta háhitann. hsv
Ráðhústorg 7 - Akureyrl - Sími 26510