Dagur - 04.01.1984, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 4. janúar 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 130 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 18 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Aðgerðir í
fíkniefnamálum
Undanfarið hafa frásagnir af fíkniefnamisferli
hvers konar farið mjög í vöxt. Ástæðan er ein-
föld og skýr — fíkniefnamisferli hefur farið
vaxandi hér á landi ár frá ári. Því miður virð-
ast lögregluyfirvöld landsins ekki í stakk búin
til að bregðast við, en við svo búið má ekki
standa. Fullyrt er af fjölmörgum aðilum að
fíkniefnasmygl og sala sé orðin gróðavænleg-
ur atvinnuvegur hér á landi og óhemju miklir
fjármunir séu í spilinu.
Á Alþingi hefur verið flutt ályktunartillaga
um aðgerðir gegn ólöglegum innflutningi og
dreifingu ávana- og fíkniefna. í tillögu frá alls-
herjarnefnd þingsins segir:
„Alþingi ályktar að skora á dómsmálaráð-
herra að koma nú þegar á samstarfshópi
löggæslu- og tollgæslumanna er samræmi og
skipuleggi auknar aðgerðir gegn ólöglegum
innflutningi og dreifingu ávana- og fíkniefna
og athugi nýjar rannsóknaraðferðir í fíkniefna
málum". Gert er ráð fyrir að samstarfshópur-
inn fái einnig það verkefni að gera tillögur um
úrbætur á sviði toll- og löggæslu sem nauð-
synlegar kunna að reynast til að fyrirbyggja
dreifingu og innflutning fíkniefna. Niðurstöð-
um skal skila til dómsmálaráðuneytisins eigi
síðar en 1. mars n.k.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Hins vegar
er ljóst að niðurstöður fást ekki í svo flóknu
máli á nokkrum mánuðum. Aðgerðir í fíkni-
efnamálum þurfa að endurskoðast í sífellu. í
nágrannalöndum okkar er fíkniefnamálið
mjög vaxandi vandamál. Fjöldi fólks leggur líf
sitt í rúst með notkun ávana- og fíkniefna.
Byrjunin er oft kannabisefni, sem margir telja
lítt skaðleg. Reynslan hefur hins vegar sýnt
að ofnotkun þeirra efna, sem og annarra
vímuefna, er stórhættuleg. Þá opnast einnig
leiðir til notkunar sterkari eiturefna sem ekki
geta haft annað í för með sér en tortímingu
þeirra sem neyta.
Hér á íslandi er augljóslega um sömu þróun
að ræða og í nágrannalöndum okkar. Við
erum hins vegar skemmra á veg komin í þró-
uninni og auðveldara ætti að vera að hamla
gegn þróuninni hér og nýta þá reynslu sem
aðrir hafa fengið. Einskis má látið ófreistað til
að sporna gegn ávana- og fíkniefnanotkun
hér á landi og þeirri spillingu og glæpastarf-
semi sem jafnan fylgir í kjölfarið.
Verður botnfiskur rækt-
aður í Eyjafirði?
Hvaða möguleika eiga Eyflrð-
ingar og Norðlendingar yfir-
leitt hvað varðar fiskeldi, bæði
í sjó og ferskvatni. Við lögðum
þessa spurningu fyrir Guð-
mund Val Stefánsson, sem er
við nám í fiskifræði með físk-
eldi sem sérgrein við háskól-
ann í Bergen, en hann var
staddur á Akureyri um hátíð-
arnar. Guðmundur Valur
skrifaði grein í Dag fyrir
nokkru um þorskeldi og mögu-
Ieika í þeim efnum. Fara svör
hans hér á eftir:
Botnkvíaeldi með
lúðu eða þorsk
Það sem mér dettur í hug að
komi fastlega til greina er botn-
kvíaeldi með botnsjávarfiska t.d.
lúðu eða þorsk. Það veltur fyrst
og fremst á hitastigi sjávar við
botninn hvort slíkt eldi væri
mögulegt eða ekki. Ég tek það
fram að ekki er hægt að styðjast
við mælingar sem gerðar eru við
yfirborð sjávar heldur verður að
mæla við þann botn sem til greina
kemur (helst að hafa samanburð
á fleiri stöðum). Það er mikilvægt
að mælingar fari fram a.m.k. yfir
köldustu vetrarmánuðina og þá
helst daglega. Blóð fisksins hefur
u.þ.b. 10% seltu og frýs þ.a.l. í
kringum -1°C, þannig að ef hita-
stig sjávar fer niður fyrir 0°C er
vafasamt að taka áhættuna.
í Noregi er komin reynsla á að
nota má fiskislóg óbreytt eða lít-
ils háttar vítamínbætt til fóðurs
fyrir þorsk og geri ég ráð fyrir að
sama gildi um lúðu. Slík eldisað-
ferð er því hugsanlegur mögu-
leiki, sérstaklega í nágrenni út-
gerðarhafna.
Tökum dæmi, ef Dalvíkingar
og Óiafsfirðingar landa árlega
u.þ.b. 12000 tonnum af botnfiski
á hvorum stað, sem lætur nærri,
u.þ.b. 25% af því fer í slóg eða
3000 tonn. Fóðurfaktor slógsins
er nálægt 5 (5 kg slóg = 1 kg
eldisfiskur) eða 3000 tonn slóg =
600 tonn eldisfiskur t.d. lúða á
hvorum stað.
Þorsk-hafbeit
Varðandi þorskveiðar við Eyja-
fjörð og nágrenni hygg ég að ef
Eyfirðingum tækist að setja á
stofn eldisstöð sem framleiddi
þorskseiði í stórum stíl (vitna í
grein mína í Degi 23.11.’83) og
sleppa í Eyjafjörð myndi þorsk-
gengd í fjörðinn stóraukast.
Þorskur leitar sinna æskustöðva
til að hrygna, eyfirskur þorskur
hrygnir þess vegna sjaldan við
Suðurland en gæti hins vegar
hrygnt inni á Skjálfanda eða
Grímseyjarsundi en mestar líkur
eru á að hann komi til baka inn í
Eyjafjörðinn til að hrygna.
Það mætti segja mér að ey-
firskir útgerðarmenn og sjómenn
myndu alveg þiggja nokkur þús-
und tonna aukningu í þorskafla.
Menn ættu a.m.k. að hafa það
hugfast að fleira kemur til greina
en álver við Eyjafjörð, enda er
ólíklegt að slíkt fari saman, fiski-
rækt í stórum stíl og stóriðja við
Eyjafjörð, t.d. álver sem hefur
mengun í för með sér.
Skeljaeldi
Einnig væri hugsanlegt að ala hér
bláskel Mytelus edulus. Mark-
aður fyrir bláskel er orðinn tals-
vert stór og fer vaxandi. Hér víða
við Norðurland væri væntanlega
hægt að beita svipaðri aðferð og
er notuð í Noregi. Ég mun ekki
útskýra þá aðferð nánar að sinni,
nema áhugi verði látinn í ljós.
Laxeldi
Ef möguleiki er á heitu vatni eða
annarri upphitun er hugsanlega
hægt að ala lax til slátrunar t.d.
með að loka af vík, fjörð eða lón.
Mögulegt er að notast við stóran
tank eða gamlan skipsskrokk
þ.e.a.s. einhverja aflokun þar
sem maður stjórnar straum-
rennsli út og inn án mikils dælu-
tilkostnaðar og getur fullnýtt
hitann.
Fiskeldi í ám
og vötnum
Fiskirækt í ám: Eldri kynslóðin
man þá tíð þegar lækirnir og árn-
ar voru rík af silungi og hefur
horft upp á silungsgengd minnka
ár frá ári. Hörgá í Hörgárdal með
sínar hliðarár og læki er gott
dæmi um þetta. Breytingin sem
hefur átt sér stað í þessu vistkerfi
síðastliðin 50 ár er hliðstæð víð-
ast hvar um landið. Áin straum-
hörð að ofan, lygn að neðan.
Áður hlykkjuðust lygnir lækirnir
eftir breiðum bökkunum. Þessir
lækir voru fullir af lífi og fram-
leiddu fóður fyrir ána, auk þess
sem þeir voru uppeldisstöðvar
seiða. Nú hafa flestir lækir verið
grafnir beinar línur í ána þ.e.a.s.
fóðrurunum hefur verið kippt úr
sambandi og uppeldisstöðvar
seiðanna hafa verið eyðilagðar og
svo eru menn hissa yfir því að sil-
ungagengd minnkar. Ef bændur
vilja fá aukningu á silungi í árnar
sínar skulu þeir huga að lækjun-
um t.d. með því að grafa hyli og
breiður, bera áburð eða tað á
bakkana o.fl. þvíumlíkt.
Laxeldi í fersku vatni:
Þar sem er til staðar heitt og kalt
vatn eru miklir möguleikar fyrir
eldi í ýmsu formi. Ég vil í því
sambandi minnast á hugmynd
Fiskeldis h.f. á Húsavík, sem
aldrei var fullreynd, um að ala
upp lax til slátrunar í eingöngu
fersku vatni eða með aðeins lítils-
háttar seltu (undir 5%).
Þessa hugmynd tel ég mjög
þýðingarmikið að fullreyna fyrir
land sem hefur stór jarðhitasvæði
og nóg ferskt vatn. Og finnst mér
það hart að þeir Fiskeldismenn á
Húsavík skyldu þurfa að hætta í
hálfnuðu verki og kenni um
skipulagsleysi og skilningsleysi
stjórnvalda.
Við þróun nýrrar eldisaðferðar
verða menn að reikna með að 2ja
ára seinkun geti átt sér stað og
jafnvel meira. Það er mál til
komið að lög verði sett um
stefnumörkun fiskeldis í landinu.
Annað hvort á að styðja menn
yfir erfiðasta hjallann eða menn
eiga ekki að fá leyfi til að byrja.
En þetta mál er efni í sér grein
svo ég læt það niður falla.
Margir hrista höfuðið þegar
talað er um að ala lax til slátrunar
í fersku vatni, en tilraunir sem
gerðar voru í Kanada á tveggja
ára tímabili gáfu jákvæðar niður-
stöður. Það er því full ástæða
fyrir okkur íslendinga með allt
okkar heita og kalda vatn að full-
reyna þennan möguleika.
Ýmsar tilraunir hafa leitt í ljós
að vaxtaraukning á sér stað í
minni seltu en sjávarseltu. Ef
þessi aðferð væri möguleg, sýnist
mér að hún gæti orðið arðbærari
en meðaleldisstöð við Noregs-
strendur. hsv/ám