Dagur - 04.01.1984, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 4. janúar 1984
85% aukning á vöru-
flutningum Drangs
— en farþegaflutningar eru sáralitlir
‘i
„Til loka október síðastliðins
hefur Drangur flutt 147 far-
þega og 7.703 tonn af vörum.
Á sama tíma 1982 flutti bátur-
inn 812 farþega og 4.149 tonn
af vörum. Skýring úthaldsaðila
á fækkun farþega á milli ára er
sú að á undanförnum árum
hefur verið um að ræða veru-
legan flutning á ferðamönnum
norður fyrir heimskautsbaug
yfir sumarmánuðina með
gamla Drangi, en með tilkomu
nýs Drangs hefur sá kostur
verið valinn að sinna frekar
arðbærari aukaverkefnum,
eins og flutningi á tækjum og
ýmsum varningi.“
Þessar upplýsingar komu fram
í nefndaráliti samvinnunefndar
um samgöngumál á Alþingi þar
Aframhald á tölvu-
væðingu hjá KEA
Kaupféiag Eyfirðinga hóf tölvu-
vinnslu í viðskiptamannabók-
haldi sínu árið 1975, þá með
símatengingu við tölvu Sam-
bandsins í Reykjavík. Seinni
hluta árs 1977 fékk svo kaupfé-
lagið sína fyrstu eigin tölvu og
hætti þá öllum samskiptum við
tölvu Sambandsins. Núverandi
tölva hefur verið starfrækt með
ágætum sl. 6 ár. Innra minni
hennar er 128 K, en á tölvumáli
merkir hvert K 1024 stafi. Fyrir
nokkru var Ijóst að tölvan var
fullnýtt og því ráðist í kaup á
tölvu til viðbótar. Fyrir valinu
varð tölva af gerðinni Digital
PDP 11/44. Innra minni nýju
tölvunnar er nú 512 K en hægt er
að stækka það upp í 4096 K.
Tölvunni fylgdu tveir 67 MB
gagnadiskar, en MB merkir ein
milljón stafir. Hægt er að stækka
geymslurými þessara gagnadiska
upp í samtals 2.000 MB. Einnig
er hægt að tengja utan á tölvuna
segulbönd en það mun vera ódýr-
ast og öruggast að geyma tölvu-
gögn á segulböndum. Verkefni
þessarar tölvu eru í dag nótu-
skriftir og birgðabókhald.
Keypt voru þrjú kerfi fyrir
tölvuna til að vinna eftir: Birgða-,
viðskiptamanna- og fjárhags-
bókhaldskerfi frá Þróun hf. Eru
þetta íslensk kerfi og einhver þau
bestu sem fáanleg eru hérlendis.
Á næsta ári stendur til að kaupa
hjá sama fyrirtæki toll- og verð-
útreikningskerfi og verkbók-
haldskerfi. Þá mun einnig ætlun-
in að kaupa ritvinnslukerfi, sem
nýtist til bréfaskrifta og skýrslu-
gerða.
Nú er búið að beintengja við
tölvuna: Raflagnadeild, Mjólkur-
samlag, Véladeild og Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri, sem fé-
lagið hefur annast launaútskrift
fyrir sl. 8 ár. Vonir standa til að
á næstunni verði hægt að tengja
Kjötiðnaðarstöð, Vélsmiðjuna
Odda hf, Fóðurvörudeild KEA
og KSÞ og Timburvinnslu KEA,
en í heild er hægt að tengja milli
30 og 40 skjái við tölvuna og jafn
marga prentara.
Bæklingar mjólkurdagsnefndar:
„Smáveislur
í húsinu“
Mjólkurdagsnefnd hefur gefið
út skemmtilegan 8 síðna bækl-
ing með mörgum athyglisverð-
um uppskriftum á smáréttum.
Þessum hæklingi, sem heitir
„Smáveislur í húsinu“ verður
dreift í verslanir á næstu
dögum. Þar verður hann seld-
ur á 15 krónur.
Efninu er skipt í 2 kafla, ann-
ars vegar „Smápartí unga
fólksins" og hins vegar „Smá-
veisla gamla fólksins".
í inngangi fyrir kafla unga
fólksins stendur m.a.: „Ætlarðu
að hafa partí bráðum - viltu
hlusta á plötur með vinum þínum
eða bjóða þeim að sjá góða
videomynd? Spáðu í þessar upp-
skriftir - það er ekkert mál.“
Uppskriftirnar eru m.a.: Mið-
næturglaðningur, kjúklingur
marengo, ungverskt salat, pizza
með kjöthakki, kókóísdrykkur.
Samtals eru 9 mismunandi
uppskriftir, sem ætlaðar eru ser-
staklega fyrir unga fólkið. Þá eru
6 uppskriftir fyrir „gamla fólkið“.
Reyndar er þetta gamla fólk á
öllum aldrei frá fermingu og upp
úr.
Það er hugsað að þessir réttir
séu boðnir í rólegheitum þegar
boðið er heim í saumaklúbb eða
í spilamennsku.
Gefnar eru uppskriftir að heit-
um karrýrétti, rússnesku fiskipie,
síldarsalati catalína og þrem öðr-
um frábærum réttum.
í þessum fallega bæklingi eru
ennfremur nytsamar upplýsingar
fyrir þá sem bjóða til sín gestum,
þar er m.a. bent á að ekki þurfi
að kosta margra daga vinnu í að
útbúa huggulegt veisluborð.
Uppskriftirnar af réttunum eru
til orðnar í tilraunaeldhúsum
Mjólkursamsölunnar og Osta- og
smjörsölunnar.
Þá er rétt að geta þess að bækl-
ingurinn „3 hátíðarborð" hefur
verið endurútgefinn og á hann að
fást í flestum matvörubúðum.
sem fjallað var um framlög til
flóabáta. Eins og sjá má af þess-
um tölum hefur orðið 85% aukn-
ing á vöruflutningum en farþega-
flutningar hafa lagst svo til niður.
Um mánaðamótin október-
nóvember var hallinn á rekstri
Drangs orðinn 1 milljón og hefur
þá verið tekið tillit til fjármagns-
kostnaðar og verðbreytinga.
Sambærileg tala í árslok 1982 var
1,4 milljónir og var því reiknað
með að reksturinn kæmi heldur
betur út á síðasta ári.
Að mati rekstraraðila Drangs
hefur nýja skipið reynst vel en
vakin hefur verið athygli á því að
þó nokkuð vanti á að sveitarfé-
lögin á þjónustusvæðinu nýti sér
þá flutningsmöguleika sem skipið
hefur upp á að bjóða. Sérstak-
lega er nefnd sú ástæða í bréfi
sem samvinnunefnd um sam-
göngumál fékk, að hefð hafi
skapast á miklum landflutningum
á þeim árstímum sem vegir séu
almennt færir.
í bréfi sem framkvæmdastjóri
Drangs sendi nefndinni segir:
„Takist að færa verulegan hluta
þessara flutninga yfir á Drang
verður loksins grundvöllur fyrir
að stunda áætlunarsiglingar allt
árið og jafnframt mundi verða
viðunandi rekstargrundvöllur
fyrir félagið. Að þessu er nú
unnið. Sem dæmi um þessa flutn-
inga; að ef Drangur fengi alla
flutninga Kaupfélags Eyfirðinga
á Dalvík þýddi það 60% aukn-
ingu í tonnum talið. Einnig hefur
Drangur í Akureyrarhöfn
verið um það rætt að Drangur
taki að sér þjónustu fyrir Skipa-
útgerð ríkisins til Norð-Austur-
lands, allt til Reyðarfjarðar einu
sinni í hálfum mánuði, og er það
til athugunar.“ Til að endar nái
saman á nýbyrjuðu ári þarf ríkis-
framlagið að vera 2,4 milljónir,
sem er 33% aukning frá árinu á
undan. hsv
Minning
Guðrún Margrét Holmgeirsdottir
Fædd 2. nóvember 1915 - Dáin 29. desember 1983
Góð vinkona mín og móðursyst-
ir, Guðrún Margrét Hólmgeirs-
dóttir hefur verið kvödd frá
okkur, af þeim sem öllu ræður og
stjórnar. Já, þannig er lífið og
enginn veit hver næstur fer til
æðri heima. Alla vega grunaði
mig það ekki er ég hringdi heim
til hennar stuttu fyrir jól að það
yrði okkar síðasta samtal. Spaug-
söm að vanda ræddum við um
heima og geima þar til ég bað um
að fá að ræða við strákinn
hennar, þá svaraði hún að
bragði, hvorn, þann svarta fer-
fætta eða hinn. Ég kvaðst lítið
geta talað við hundinn í síma en
þætti vænna ef nafni minn gæti
komið.
Guðrún Margrét Hólmgeirs-
dóttir, eða Gígja, eins og hún var
oftast kölluð, fæddist á Grund í
Eyjafirði 2. nóvember 1915, dótt-
ir hjónanna Valgerðar Magnús-
dóttur Sigurðssonar bónda á
Grund og Hólmgeirs Þorsteins-
sonar frá Ytra-Dalsgerði í Saur-
bæjarhreppi, er oftast var kennd-
ur við Hrafnagil. Þriggja ára
gömul fluttist hún með foreldrum
sínum til Dalvíkur en þar hafði
faðir hennar fengið starf við
rekstur útibús KEA á staðnum.
Frá Dalvík fluttist svo fjölskyld-
an aftur að Grund og síðar að
Hrafnagili, í sömu sveit, og
stunduðu þar bústörf allt til þess
dags er þau flytja til Akureyrar
um 1938. Snemma kom í ljós
handlagni Guðrúnar og hefur
það eflaust átt sinn þátt í því að
hún innritaðist í Húsmæðraskól-
ann á Blönduósi árið 1933-34 og
þar er, að hún kynnist eftirlifandi
eiginmanni sínum, Páli Gunnars-
syni, kennara og bóndasyni frá
Þverárdal þar í sýslu, einstökum
sómadreng. Gengu þau í hjóna-
band 20. maí 1944 og hófu bú-
skap í Munkaþverárstræti 23 en
byggðu sér síðar myndarheimili
að Helgamagrastræti 40 hér í bæ.
Elst er Guðrún fjögurra systra,
þeirra Steingerðar, Kristjönu og
Hólmfríðar. Mikill samgangur og
óvenju gott samband var á milli
þeirra systra og veit ég að þeim
eftirlifandi systrum hennar er nú
þungur harmur.
Þrjú börn áttu þau Guðrún og
Páll. Dreng er þau misstu stuttu
eftir fæðingu, Gerði Jónínu,
kennara gifta Einari Ragnarssyni
tannlækni, Reykjavík og Hólm-
geir, kjötiðnaðarmann, sem enn
er í föðurhúsum og föður sínum
nú mikil stoð við þennan þunga
missi.
Vettvangur Guðrúnar var eins
og flestra mæðra þess tíma,
húsmóðurstarfið og skilaði því
með ræktarsemi og hlýju og einn
kost fannst mér hún hafa framar
flestum öðrum, hann var sá, að
aldrei mér vitandi skyldi hún
hallmæla nokkrum manni, heldur
taka frekar málstað hans og
reyna að réttlæta hans gjörðir.
Fellur hún nú frá um aldur fram,
en lætur eftir sig minningu um
mæta frænku - slíkra er gott að
minnast.
Páli, Gerði, Hólmgeiri, Einari
svo og bamabörnum votta ég
mína innilegustu samúð.
Hólmgeir Valdemarsson.