Dagur - 06.01.1984, Blaðsíða 6
6-DAGUR —6. janúar 1984
Jakob áritar.
Tómas áritar.
Egill áritar.
Þórður og Ásgeir árita.
Valgeir áritar.
Stuðmeim á A kureyri
® Stuðmenn og mannfjöldinn hylla Hansínu ■ Dalakofanum. Færðu Stuðmenn henni bók sína „Draumur okkar beggja“, blómvönd og kossa marga og stóra.
Hinir cinu og sönnu
Stuðmenn brugðu fyrir
sig betri fótunum
skömmu fyrir jól, öxl-
uðu gullin skinn og
stikuðu til Akureyrar.
Erindið var að árita
„drauma“ ungs fólks á
öllum aldri og hylla
Hansínu vinkonu
þeirra í Dalakofanum
á Akureyri sem átti
merkisafmæli um þær
mundir.
Með Jakob Frímann
Magnússon, barnabarn
Jakobs Frímannssonar
í broddi fylkingar
skunduðu Stuðmenn
að hjarta bæjarins með
slaggígjur sínar undir
dúndrandi lúðrasveit-
armúsik Síðan voru
kveðnar hálfkveðnar
vísur að hætti Stuð-
manna og Ragnhildur
„Grýla“ Gísladóttir
sem Stuðmenn höfðu í
pússi sínu, þrýsti bylm-
ingskossi á Hansínu
fyrir allt gamalt og
gott. Viknuðu við-
staddir enda ræktar-
semi Stuðmanna við-
brugðið. Síðar um dag-
inn stóðu liðsmenn
sveitarinnar svo við
stórmagasín bæjarins
og árituðu alfræðiævi-
sögu sína er Illugi Jök-
ulsson Itefur hnýtt
saman í eina litskrúð-
uga skruddu.
Myndirnar hér á síð-
unni tók kga er um-
ræddir atburðir áttu sér
stað - og eru þær fram-
lag Dags til Stuð-
mannanostalgíunnar á
því herrans ári sem nú
er liðið í aldanna skaut
og aldrei kemur til
baka-nemaábók. esc