Dagur - 11.01.1984, Side 11
11. janúar 1984 - DAGUR -11
Frá Áfengisvarnaráði:
Að gefnu tilefni
Að gefnu tilefni vekur Áfengis-
varnaráð athygli á eftirfarandi:
1. í áfengislögum, en þau voru
sett undir handarjaðri
Bjarna Benediktssonar, seg-
ir að Áfengisvarnaráð skuli
„stuðla að bindindissemi“
og „vinna gegn neyslu
áfengra drykkja".
2. Viðhorf og afstaða Áfengis-
varnaráðs eru að flestu leyti
svipuð stefnumiðum stofn-
unar þeirrar í Noregi sem
sinnir sams konar verkum
þar og heitir Norsk Edru-
skapsdirektorat.
3. Áfengisvarnaráð hefur
engra hagsmuna að gæta í
sambandi við vímuefnasölu.
Bjórsala eða bjórbann
snerta hagsmuni annarra en
þess.
4. Hins vegar hefur verið reynt
að koma á framfæri ýmsum
staðreyndum varðandi
áfengismál, m.a. með því að
kynna hvað Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin leggur til í
þeim efnum.
5. Það er ekki nýtt að upp rísi
menn sem hafa lausnir á
vímuefnavandanum á tak-
teinum. Um 1930 átti til að
mynda sala sterkra drykkja
að bæta drykkjusiði íslend-
inga, undanfarna tvo áratugi
vínsöluhús og nú telja sumir
áfengt öl allra áfengismeina
bót.
6. Bjórdrykkja virðist síður en
svo draga úr neyslu sterkari
vímuefna. Holland og Dan-
mörku byggja ekki bjórvana
þjóðir. - Þó er neysla ann-
arra vímuefna en áfengis
stórfelldara vandamál þar en
víðast annars staðar í ná-
munda við okkur.
7. Hvarvetna virðast nýjar
áfengistegundir (líka bjór)
ekki aðeins bætast við þá
neyslu vímuefna sem fyrir
er heldur beinlínis auka
hana.
8. í Svíþjóð deyja 30 sinnum
fleiri af völdum áfengis en
allra annarra vímuefna enda
áfengi það vímuefni sem út-
breiddast er og helst notað.
Hlutfallið er ef til vill svipað
hér.
9. Nú er a.m.k. á Norðurlönd-
um yfirleitt rætt um vímu-
venjur („ruskultur") þegar
stefnu í þeim málum ber á
góma og áhersla lögð á að
greina sem minnst á milli
áfengis og annarra vímuefna
þegar unnið er að því að
draga úr tjóni vegna neysl-
unnar. Neysla ólöglegra
vímuefna tengist yfirleitt
áfengisnotkun (oft öli).
10. Það kann að vera að Björn
Jónsson ritstjóri og ráðherra
hafi hitt naglann á höfuðið
þegar hann sagði í umræðum
á Alþingi 1909 að erfiðleikar
við það að framkvæma skyn-
samlega áfengismálastefnu
stöfuðu ekki af mótþróa
drykkjumanna heldur frá
auðmönnum sem hefðu hag
af áfengisgerð (áfengissölu)
og drykkjuskap.
11. Áfengisvarnaráð hefur frá
1967 staðið straum af vís-
indalegum rannsóknum á
ýmsu er varðar áfengisneyslu
íslendinga. Þessar rannsókn-
ir hafa farið fram á vegum
Háskóla íslands og færustu
vísindamenn íslenskir á sviði
áfengisfræða hafa stjórnað.
12. Áfengisvarnaráð getur ekki
að því gert og eltir ekki ólar
við það þó að einhverjum
verði gramt í geði ef upplýs-
ingar þess stangast á við
hagsmuni þeirra eða það sem
þeir gera ráð fyrir eftir
»hyggjuviti sínu“. En það
telur miður farið ef reynt er
að bregða vísindablæ yfir
brjóstvit, tilgátur og einka-
vitranir manna.
(Áfengisvarnaráð, 28. des.
1983.)
íbúðir í
verkamannabústöðum
Stjóm verkamannabústaöa auglýsir til sölu 2
íbúöir. Önnur íbúöin er í Móasíðu 8e sem er 114
fermetra 4ra herb. íbúö í raðhúsi en hin íbúðin er
í Hjallalundi 1b og er 102 fermetra 4ra herb. íbúö
í fjölbýlishúsi. íbúðirnar eru seldar samkvæmt
mati.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu verkamannabústaða í
Kaupangi við Mýrarveg, sími 25392, og skal um-
sóknum skilað þangað í síðasta lagi 22. janúar
næstkomandi.
Þeir sem eiga inni óafgreiddar umsóknir og óska
eftir að koma til greina við þessa úthlutun eru
beðnir að ítreka umsóknir sínar.
Akureyri, 10.01.1984
Stjórn verkamannabústaða, Akureyri.
ATARI
heimilistölvur
kr. 8.460,00
lumBUÐini
sr 22111
Hestamenn! if
Látum ekki aka á okkur x'/
í skammdeginu - notum
ENDURSXINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR
Stotnad 5 nóv 1928 P O Bo« 348 - 602 Akureyri
Frá Kjörmarkaði
KEA Hrísalundi
Opið
á fimmtudag
til kl. 20
Kjörmarkaður KEA
Hrísalundi
Frá Námsflokkum
Akureyrar
Innritun í almenna flokka, valgreinanámskeið og
verslunardeild fer fram í skrifstofu Námsflokk-
anna í Kaupangi 16.-20. janúar nk. kl. 16-19.
Námsgjöid greiðist við innritun.
Skólastjóri.
Við viljum ráða
starfsmann
á skrifstofu
Laun samkvæmt kjarasamningi Félags verslun-
ar- og skrifstofufólks.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri
störf sendist á skrifstofu félagsins.
Utgerðarfélag
Akureyringa hf.
Útsala: 10% afsláttur á ölliun vörum
Postulíni • Kristalsglösum • Södahl-vörum • Gluggatjaldaefnum
Handklædum • Ofnum veggteppum • Buxnaterelíni og flaueli.
Hladin bord af efnum á aðeins 90 kr. pr. metra.
Fatamarkaður, ótrúlega lágt verð. ^ ^
Geríð reyfarakaup
Opið á
laugardögum
Æ)
aílt til sauma
æmman
SKIPAGATA 14 B - SÍMI 96-23504
PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI