Dagur - 11.01.1984, Qupperneq 12
RAFGEYMAR
IBÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
Heildsala
Smásala
1 . ■
93 Ll syi ii-
ú h far n“
íi i Glerár- torpi!
Að undanförnu hefur veriö
starfrækt „leyniútvarpsstöð“ í
Glerárhverfí á Akureyri. Hef-
ur stöð þessi gengið undir
nafninu „helgarrásin“ manna
á meðal en sendingar stöðvar-
innar hafa eingöngu átt sér
stað um lielgar. Þessi nýjung í
útvarpsmálum á Akureyri
verður hins vegar varla lang-
vinn því Póstur og sími á Ak-
ureyri hefur aðvarað aðstand-
endur stöðvarinnar.
Að sögn Ársæls Magnússonar,
umdæmisstjóra Pósts og síma þá
hefur stofnunin yfirleitt sýnt
mikið umburðarlyndi þegar
menn hafa verið að fikta við slt'k-
ar sendingar.
- Við höfðum samband við
þessa tilteknu aðila í því síma-
númeri sem þeir gáfu upp sjálfir
og við báðum þá að hætta þessum
sendingum. Slíka í^ðvörun gefum
við bara einu sinni og ef það dug-
ar ekki þá lokum við stöðinni
með þeim ráðum sem við höfum
tiltæk. Það er verið að brjóta
a.m.k. tvenn lög með starfrækslu
þessara svonefndu leyniútvarps-
stöðva. Annars vegar eru fjar-
skiptalög brotin þar sem óheimilt
er að vera með sendi án leyfis
Pósts og síma og hins vegar er
farið inn á einkaréttarsvið Ríkis-
útvarpsins, sagði Ársæll Magnús-
son.
Ársæll sagði ennfremur að það
væri lítið mál að hafa upp á leyni-
útvarpsstöðvum með þeim tækj-
um sem Póstur og sími hefur yfir
að ráða í dag.
- Pað tekur dálítinn tíma að
miða stöðvarnar út en þegar því
er lokið getum við gengið að
þeim vísum, sagði Ársæll Magn-
ússon.
Pað má því búast við því að
„útvarpsstjórarnir" úti í Porpi
hugsi sig tvisvar um áður en
þeir senda út næst. Þeir hafa ann-
ars þann möguleika að sækja um
leyfi til útvarpsreksturs til út-
varpsstjóra, en hvort slíkt leyfi
liggur á lausu er svo annað mál.
ese
Málmiðnaöarmenn í Slippstöðinni:
Kref jast 80% álags
á alla eftirvinnu
— á meðan eftirvinna „liggur niðri“ hjá fyrirtækinu
Sú ákvörðun forráðamanna
Slippstöðvarinnar á Akureyri
að segja upp eftirvinnu frá og
með síðustu áramótum en láta
eftir sem áður einstaka starfs-
menn vinna eftirvinnu við
ákveðin verkefni, hefur mælst
ákaflega misjafnlega fyrir
meðal starfsmanna.
Á fundi sem málmiðnaðar-
menn í Slippstöðinni héldu 2.
janúar sl. var samþykkt að vinna
enga eftirvinnu nema gegn
ákveðnum skilyrðum.
- Ástæðan fyrir þessari sam-
þykkt okkar er sú að við teljum
að með eftirvinnunni séum við að
minnka aðra atvinnu hjá fyrir-
tækinu og því töldum við rétt að
vinna ekki eftirvinnu nema í sér-
stökum tilfellum til þess að koma
í veg fyrir frekari uppsagnir,
sagði Örn Einarsson, trúnaðar-
maður málmiðnaðarmanna hjá
Slippstöðinni.
Örn sagði að starfsmönnunum
væri það ljóst að til þess gæti
komið að vinna þyrfti eftirvinnu
til þess að fyrirtækið fengi ákveð-
in verkefni og þeir hefðu tjáð
forráðamönnum fyrirtækisins að
þeir væri tilbúnir til þess að vinna
slíka eftirvinnu ef brýna nauðsyn
bæri til gegn 80% álagi. Þetta
hefði ekki verið tekið til greina af
stjórnendum fyrirtækisins og því
ynnu málmiðnaðarmenn enga
yfirvinnu sem stæði.
Samkvæmt heimildum Dags
eru það aðeins málmiðnaðar-
menn sem sett hafa fram sérkröf-
ur varðandi þá eftirvinnu sem
býðst en aðrir iðnaðarmenn vinni
eins og þeir eru beðnir um hverju
sinni. ese
Starfsmenn í Slipp.
Mynd: KGA.
Alþýðubankinn:
Loforð
fyrir
opnun
Opnar útibú Alþýðubankans
á Akureyri innan fárra daga?
Þetta er spurning sem margir
velta fyrri sér, en samkvæmt
upplýsingum Stefáns Gunn-
arssonar, bankastjóra Al-
þýðubankans, þá liggur fyrir
loforð viðskiptaráðherra um
að Alþýðubankinn fái að
opna útibú innan skamms.
- Við höfum átt von á svari við
umsókn okkar undanfarna daga,
sagði Stefán Gunnarsson er Dag-
ur ræddi við hann en sem kunn-
ugt er þá hefur útibú bankans á
Akureyri staðið fullbúið frá því í
haust. Aðeins hefur staðið á leyfi
ráðherra.
Stefán Gunnarsson sagði að
þetta mál hlyti að skýrast næstu
daga og hann ætti von á því að
Akureyringar gætu innan
skamms farið að skipta við Al-
þýðubankann á Akureyri. Ekki
náðist í viðskiptaráðherra í gær.
ese
Veður
Horfur eru á suðvestan and-
vara, bjartviðri og um 8
gráðu frosti í dag á Norður-
landi, samkvæmt upplýsing-
um Veðurstofunnar í
morgun. A morgun er hins
vegar reiknað með norðvest-
anátt og éljagangi á miðum
og útnesjum, en bjartviðri til
landsins. Á föstudaginn er
búist við lægð austan við
landið, sem leiðir til snjó-
komu og norðanáttar á
Norðurlandi, Að sögn Braga
Jónssonar, veðurfræðings,
er allt útlit fyrir að snjókom-
an og norðanáttin haldist yfir
helgina.__________________
# Gera svo vel
að hringja kl..
Pað er heldur óskemmtilegt
að þurfa að standa mikið í
því þessa dagana að ferðast
milli landshuta. Veðurfarið
hefur verið með eindæmum
rysjótt og má reyndar búast
við því að svo verði um nokk-
urt skeið, eins og komið hef-
ur fram hér eftir glöggum
veðurspámanni og draum-
spökum. Einn starfsmanna
blaðsins lenti í því á dögun-
um að verða veðurtepptur í
Reykjavík. Flugi á sunnu-
dagskvöld var frestað til
morguns - gera svo vel að
hringja klukkan 7.30 i fyrra-
málið. Þvi miður - ófært, var
svarið þegar hringt var að
morgni mánudagsins,
hringja aftur klukkan 8.30.
Ófært, en það á að athuga kl.
9.30. Því miður er ófært og
þú mátt hringja kl. 11 og at-
huga með flug þá. Þannig
gekk það allan daginn - gjöra
svo vel að hringja aftur kl. 13,
15,17 og loks kl. 19 var sagt að
búið væri að aflýsa fluginu.
Átta hringingar sama daginn
og árangurslaus bið við
símann. Þegar hringt var
samviskusamlega kl. 7.30 á
þriðjudagsmorgni var svarið:
Því miöur er ófært en hringdu
aftur kl. 8.30. Sama sagan
virtist ætla að endurtaka sig,
nema hvað: Þegar loksins
náðist samband kl. 8.45 (en
sífellt gekk erfiðlegar og erf-
iðlegar að ná sambandi
vegna þess að sffellt jókst
hópur þeirra sem hringdi) var
sagt að mæta ætti kl. 9. Síðan
var farið í loftið kl. um hálf ell-
efu og allt gekk eins og í
sögu.
# Auglýst eftir
lausn
Þannig getur þetta gengið
fyrir sig dögum saman. í
fréttum útvarpsins var sagt
að um 2 þúsund manns biðu
flugs á mánudagskvöldið og
gera má ráð fyrir að hátt f
þúsund manns hafi verið að
reyna að ná sambandi við
26011 með jöfnu millibili
þennan dag. Vesalings
starfsfólkið sem svarar í
þennan síma, að ekki sé talað
um farþegana sem lenda í
slíkum hringingum. Það skal
tekið fram að starfsfólk Flug-
leiða á Reykjavíkurflugvelli,
sem annars staðar, er ein-
staklega kurteist og haldið
miklu jafnaðargeði, þrátt fyrir
álagið. En er ekki ráð fyrir
einhvern hugvitssaman
mann að reyna að leysa þetta
vandamál, öllum til hægðar-
auka? Má ekki koma upp
sjálfsvara sem getur jafnvei
svarað mörgum hringingum
í einu og hefur að geyma allar
nýjustu upplýsingar um
flugið?